Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2010, Side 16
16 erlent 21. júní 2010 mánudagur
Varaformaður Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins og fundarstjóri ráðstefnu hval-
veiðiráðsins sem haldin er í Marokkó
í dag, mánudag, hefur fengið leyni-
legar greiðslur frá japönsku fyrirtæki.
Fyrirtækið hefur meðal annars borgað
fjögur þúsund Bandaríkjadala ferða-
kostnað hans og gistingu á lúxushóteli
meðan á ráðstefnunni stendur.
Japan er eitt af þeim löndum sem
styðja hvalveiðar í atvinnuskyni og
hefur málið styrkt þær grunsemdir,
sem haldið hefur verið uppi af and-
stæðingum hvalveiða, að Japanir
reyni að múta fulltrúum hvalveiði-
ráðsins. Fyrirtækið tengist Hideuki
„Harry“ Wakasa, sem sýnt hefur ver-
ið fram á að hafi greitt inn á reikn-
inga fulltrúa landa í Karíbahafinu sem
styðja afnám bannsins. Hótelreikn-
ingar fimm annarra fulltrúa á fund-
inum voru greiddir af sama fyrirtæki.
Richard Benyon, fulltrúi Breta á fund-
inum, segist ætla að spyrjast fyrir um
málið á fundinum.
Anthony Liverpool, varaformaður
hvalveiðiráðsins, hefur sagt að hann
muni ekki stíga til hliðar vegna máls-
ins. Segist hann ekki hafa vitað um
stuðning fyrirtækisins. Samkvæmt
samþykktum Alþjóðahvalveiðiráðsins
er ekki heimilt að þiggja greiðslur, eða
stuðning, vegna ferðalaga eða annars
kostnaðar þátttakenda vegna funda
og ráðstefna ráðsins. Ríkisstjórnir
þeirra landa sem eiga fulltrúa í ráð-
inu eiga að bera allan kostnað af slíku.
Er þetta því skýrt brot á samþykktum
ráðsins.
adalsteinn@dv.is
Japanir hafa borið fé í fulltrúa Alþjóðahvalveiðiráðsins:
Hvalveiðiráðstefna í uppnámi
Í uppnámi Varaformaður
Alþjóðahvalveiðiráðsins segist
ekki hafa vitað um stuðninginn.
Aftaka í Íran
Leiðtogi uppreisnarhóps súnní-
múslíma var tekinn af lífi í Íran á
sunnudaginn. Samkvæmt frétt í rík-
issjónvarpi landsins var Abdolma-
lek Rigi hengdur í dögun, en hann
var „... sakfelldur fyrir fjölda glæpa,
þeirra á meðal fjölda banvænna
árása... og að hafa orðið fjölda sak-
lausra að fjörtjóni.“
Samkvæmt Fars-fréttastofunni
fór aftakan fram í Evin-fangelsinu
í Teheran „... að viðstöddum fjöl-
skyldum nokkurra fórnarlambanna.“
Fars-fréttastofan skýrði enn frem-
ur frá því að Rigi hefði verið ákærður
fyrir rán, mannrán og aðild að fíkni-
efnaviðskiptum. Aftakan hefur verið
fordæmd af mannréttindasamtök-
um víða um heim.
Sex lík í
„vændishúsi“
Rotnandi lík sex kvenna og tveggja
karla fundust í því sem talið er
hafa verið vændishús í austurhluta
Bagdad. Fréttaveita Reuters hefur
eftir heimildarmönnum innan lög-
reglunnar að meint vændishús sé
í Zayouna-hverfi en þar búa bæði
súnní- og sjía-múslímar. Lík kvenn-
anna fundust í einu herbergi hússins
og lík karlanna í öðru og samkvæmt
Reuters fundust þau í kjölfar þess að
nágrannar kvörtuðu um óþef sem
barst frá byggingunni.
Sökum þess í hve slæmu ástandi
líkin voru er ekki hægt að fullyrða
um dánarorsök, hefur Reuters eftir
heimildarmanni.
Svikul amma í
Moskvu
Sjötíu og eins árs rússnesk amma
hefur verið úrskurðuð í ferðabann
af lögreglunni í Moskvu fyrir að hafa
með svindli haft meira en sem nem-
ur um 64 milljónum króna af þar-
lendum kaupsýslumönnum. Konan,
Svetlana, þóttist vera áhrifamikil í
ráðhúsi Moskvu árin 2007 og 2008.
Hún hét kaupsýslumönnunum því
að hún kæmi mútufé þeirra í hend-
ur meintra tengla hennar meðal
yfirvalda. Múturnar áttu að tryggja
kaupsýslumönnunum kauprétt á
eftirsóttum fasteignum í höfuðborg-
inni.
Svetlana lét sig hins vegar hverfa
með mútuféð og tókst að fara huldu
höfði þar til á fimmtudaginn þegar
lögreglunni tókst að hafa hendur í
hári hennar.
Um tuttugu og fimm fyrrverandi
fangar frá Gvantanamóflóa snéru sér
aftur að vígamennsku eftir að hafa
farið í gegnum endurhæfingu sem
hugsuð er fyrir liðsmenn al-Kaída í
Sádi-Arabíu, sagði embættismaður
öryggisþjónustu landsins á laugar-
dag.
Bandaríkjamenn hafa sent um
120 Sádi-Araba úr Gvantanamó-
fangelsinu til síns heima og stjórn-
völd þar hafa reynt að snúa föngun-
um fyrrverandi frá villu síns vegar
með því að senda þá í endurhæf-
ingu þar sem meðal annars er lögð
áhersla á trúarlega endurmenntun,
sem klerkar sjá um, auk þess sem
þeir fá fjárhagslegan stuðning til að
hefja nýtt líf.
Pyntingar skapa öfgamenn
Um þrjú hundruð öfgamenn hafa
gengið í gegnum endurhæfinguna
sem er þáttur í baráttu sádiara bískra
stjórnvalda gegn hryðjuverkum.
Endurhæfingunni var ýtt úr vör í
kjölfar árása al-Kaída í Sádi-Arabíu
árin 2003 til 2006.
Reuters hefur eftir yfirmanni ör-
yggisþjónustu Sádi-Arabíu, Abdul-
rahman al-Hadlaq, að um ellefu
Sádi-Arabar sem voru í Gvantanamó
hafi farið til Jemen þar sem stjórn-
stöð al-Kaída er sögð vera. Aðrir fyrr-
verandi fangar hafa verið fangelsað-
ir eða felldir eftir að hafa tekið þátt í
endurhæfingunni.
Abdulrahman al-Hadlaq sagði
sterk persónuleg tengsl á milli fyrr-
verandi fanga, sem og harkalegar
aðfarir Bandaríkjamanna í Gvant-
anamó, vera ástæðu þess að um tut-
tugu prósent sádiarabískra fyrrver-
andi fanga í Gvantanamó hafa snúið
í vígamennsku, samanborið við 9,5
prósent annarra þátttakanda í end-
urhæfingunni.
Hadlaq skírskotað þar til þeirra
pyntinga sem fangar í Gvantanamó
sættu og sagði að pyntingar væru
afar hættulegar og afleiðingar þeirra
róttækar. „Þú færð fleiri öfgasinna ef
þú beitir miklum pyntingum,“ sagði
Hadlaq.
2.000 kennarar reknir úr starfi
Af um 180 föngum sem eru enn í
Gvantanamó eru þrettán Sádi-Arab-
ar, en þegar mest lét voru tæplega
800 fangar í fangabúðunum.
Hvað sem líður afföllum með
tilliti til fyrrverandi Gvantanamó-
fanga eru yfirvöld Sádi-Arabíu þeirr-
ar skoðunar að þau hafi haft árang-
ur sem erfiði í endurhæfingunni sem
hefst þegar fangar hafa lokið afplán-
un.
Yfir 2.000 fylgismenn al-Kaída
eru í fangelsi í Sádi-Arabíu og svip-
aður fjöldi kennara hefur verið sett-
ur úr starfi vegna öfgaskoðana og um
400 kennarar eru á bak við lás og slá,
sagði Hadlaq.
GerASt vÍGA-
Menn Að ýju
Sádiarabísk stjórnvöld senda fylgismenn al-Kaída í endurhæfingu. Þeirra á meðal eru
heimsendir fyrrverandi fangar úr Gvantanamófangelsinu á Kúbu. Hlutfall þeirra sem
fara aftur í vígamennsku er hærra á meðal fyrrverandi fanga en annarra sem taka
þátt í endurhæfingunni.
kolbeinn þorsteinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Þú færð fleiri öfgasinna ef þú
beitir miklum pyntingum.
Fangar í Gvantanamófang-
elsinu Endurhæfing fanganna
skilar mismiklum árangri.