Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2010, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2010, Page 40
Jóhannes fæddist að Ytralóni á Langanesi í Norður-Þingeyjarsýslu en flutti með fjöldskyldu sinni til Þórshafnar 1930 og þaðan til Reykja- víkur 1935. Jóhannes gekk í Samvinnuskól- ann við Sölvhólsgötu og útskrifaðist þaðan 1937. Á sínum yngri árum sinnti Jó- hannes almennum sveitastörfum, vegavinnu, beitningu og síðar meir byggingarvinnu, bókbandi og próf- arkalestri. Hann stundaði verslun- ar- og skrifstofustörf til 1961, fyrst hjá Pöntunarfélagi verkamanna, síðan hjá KRON 1937-42, var gjaldkeri hjá Grænmetis- og áburðarsölu ríkis- ins 1943 og sinnti skrifstofustörfum hjá Áfengisverslun ríkisins 1945-61. Lengst af stundaði hann þó þular- störf við Ríkisútvarpið eða á árunum 1956-87 og var með þekktustu út- varpsþulum þjóðarinnar. Þá stund- aði hann prófgæslustörf við Háskóla Íslands um langt árabil frá 1970. Jóhannes starfaði að félagsmál- um berklasjúklinga. Hann var mikill útivistar- og veiðimaður, unni tón- list og söng með blönduðum kórum frá tvítugsaldri, s.s. Útvarpskórnum og Söngsveitinni Fílharmóníu. Hann var búsettur að Þórsgötu 25 frá 1942, fyrst með móður sinni og systkinum og síðan eiginkonu og börnum. Fjölskylda Jóhannes kvæntist 29.12. 1945, eft- irlifandi eiginkonu sinni, Elísabetu Einarsdóttur, f. 8.6. 1922, húsmóður. Foreldrar hennar voru Einar Hall- dórsson, f. 18.11. 1883, d. 19.12. 1947, bóndi og hreppstjóri á Kárastöðum í Þingvallasveit, og k.h., Guðrún Sig- urðardóttir, f. 7.7. 1892, d. 25.2. 1955, húsfreyja. Börn Jóhannesar og Elísabetar eru Ása, f. 18.6. 1946, leikskólakenn- ari en barnsfaðir hennar er Jón Snorri Þorleifsson, f. 3.6. 1929, smiður og er sonur þeirra Einar Örn, f. 28.12. 1976, kvæntur Birnu Ósk Hansdóttur, f. 6.8. 1976 og eru börn þeirra Agnar Daði og Elísabet Ása. Ari Jón, f. 26.7. 1947, læknir en eiginkona hans er Jóhanna Fjóla Jó- hannesdóttir, f. 8.10. 1960, hjúkrun- arfræðingur og eru synir þeirra Egill, f. 17.6. 1989, og Teitur, f. 23.6. 1993, en fyrri eiginkona Ara er Vilborg Sig- ríður Árnadóttir, f. 7.1. 1946, og eru synir þeirra Jóhannes, f. 12.9. 1970 en sambýliskona hans er Bjarney Bjarnadóttir, f. 3.11. 1975 og eru börn þeirra Telma og Ari; Árni Gautur, f. 7.5. 1975, en sambýliskona hans er Sólveig Þórarinsdóttir, f. 28.11. 1980 og er dóttir þeirra Vilborg Elísabet, Einar, f. 16.8. 1950, klarinettuleik- ari en sambýlismaður hans er Ívar Ólafsson, f. 4.3. 1962 en fyrrverandi eiginkona Einars er Helga Egilson, f. 3.12. 1950, teiknari og er sonur þeirra Ólafur Daði, f. 14.6. 1972, kvæntur Ingibjörgu Agnesi Jónsdóttur, f. 8.10. 1971, og eru börn þeirra Nína Ísfold, Fríða Lovísa og Viggó Jón. Systkin Jóhannesar: Guðrún, f. 29.6. 1917, d. 24.11. 2005; Þóra Sig- kels, f. 17.8. 1918; Jón, f. 31.1. 1922, d. 25.2. 1925; Þorsteinn, f. 7.2. 1923, d. 12.5. 2009; Jón, f. 15.4. 1928, d. 28.9. 1985. Foreldrar Jóhannesar voru Ari Helgi Jóhannesson, f. 5.12. 1888, d. 20.7. 1938, bóndi, kennari og söng- stjóri á Ytra-Lóni og síðar á Þórshöfn og loks starfsmaður hjá Skattstofunni í Reykjavík, og k.h., Ása Margrét Að- almundardóttir, f. 5.9. 1890, d. 9.11. 1983, húsfreyja. Ætt Ari Helgi var bróðir Þorsteins, próf- asts í Vatnsfirði, föður Tryggva lækn- is og Hauks tannlæknis. Ari Helgi var sonur Jóhannesar, b. í Ytritungu, síð- ar á Ytralóni Jóhannessonar, hrepp- stjóra í Saltvík, síðar b. í Fellsseli, bróður Þorkels, b. á Syðrafjalli, afa Indriða Indriðasonar ættfræðings og Þorkels Jóhannessonar háskólarekt- ors. Systir Jóhannesar var Sigurbjörg, móðir Sigurjóns skálds, alþm. og oddvita að Litlulaugum, föður Hall- dóru skólastjóra, móður Kristínar Halldórsdóttur, fyrrv. alþm., en með- al annarra barna Sigurjóns má nefna Arnór, skólastjóra og rithöfund, Braga, alþm., ráðherra og ritstjóra, Dag skólastjóra og Unni, móður Inga Tryggvasonar, fyrrv. formanns Stétt- arsambands bænda. Sigurbjörg var einnig móðir Guðmundar skálds og b. á Sandi í Aðaldal, föður Bjartmars, fyrrv. alþm. og Heiðreks skálds. Jó- hannes var sonur Guðmundar, b. á Sílalæk Stefánssonar, b. á Síla- læk Indriðasonar gamla, b. á Síla- læk, ættföður Sílalækjarættar Árna- sonar, b. í Torfunesi Jónssonar, b. á Gvendarstöðum Þórðarsonar, ætt- föður Jóns Þórðarsonar-ættar. Móð- ir Jóhannesar á Ytralóni var Jóhanna, systir Sigurjóns, óðalsb. á Laxamýri, föður Jóhannesar á Laxamýri, afa Benedikts Árnasonar leikstjóra, föð- ur Einars borgarfulltrúa. Sigurjón var einnig faðir Jóhanns skálds og Snjólaugar, móður Sigurjóns, fyrrv. lögreglustjóra og ömmu Magnús- ar Magnússonar, sjónvarpsmanns á BBC, föður Sallýjar og Önnu Snjó- laugar á BBC. Jóhanna var dóttir Jó- hannesar, ættföður Laxamýrarættar, bróður Jóns í Sýrnesi, langafa Jónasar frá Hriflu. Jóhannes var sonur Kristj- áns, b. á Halldórsstöðum í Reykjadal Jósepssonar, b. í Kasthvammi Tóm- assonar, b. í Hvassafelli, ættföður Hvassafellsættarinnar, bróður Jónas- ar í Hvassafelli, afa Jónasar Hall- grímssonar skálds. Móðir Ara Helga var Þuríður Þor- steinsdóttir, pr. á Þóroddsstað, bróð- ur Sólveigar á Gautlöndum, móður Kristjáns háyfirdómara, alþm. og ráð- herra, afa Péturs Eggerz sendiherra. Sólveig var einnig móðir Péturs, alþm. og ráðherra, Steingríms, bæj- arfógeta og alþm., og Rebekku, móð- ur Haraldar Guðmundssonar, alþm., og ráðherra, og ömmu Jóns Sigurðs- sonar, fyrrv. alþm. og ráðherra. Bróð- ir Þorsteins var Jón, þjóðfundarmað- ur á Lundarbrekku, afi Árna, alþm. í Múla, föður Jónasar, rithöfundar og alþm., og Jóns Múla, tónskálds og út- varpsmanns. Annar bróðir Þorsteins var Benedikt, b. og smiður á Refstað, afi Geirs Hallgrímssonar forsætisráð- herra. Þorsteinn var sonur Jóns, pr. í Reykjahlíð, ættföður Reykjahlíða- rættarinnar Þorsteinssonar. Móðir Þuríðar var Guðbjörg Aradóttir, b. á Skútustöðum, hálfbróður Friðriku, móður Jóns í Múla. Ari var einnig hálfbróðir Þuríðar, móður Sigurðar, ráðherra í Ystafelli, afa Jónasar bún- aðarmálastjóra. Ari var sonur Helga, b. á Skútustöðum, ættföður Skútu- staðaættar Ásmundssonar. Ása Margrét var dóttir Aðalmund- ar, b. á Eldjárnsstöðum á Langanesi Jónssonar, b. þar Þorsteinssonar, b. þar Jónssonar. Móðir Aðalmundar var Ingibjörg Jónsdóttir, b. á Hraun- felli í Vopnafirði Jónssonar og Val- gerðar Sigurðardóttur. Móðir Ásu Margrétar var Hans- ína Benjamínsdóttir, b. á Brimn- esi á Langanesi Ásmundssonar, frá Hallgilsstöðum Sölvasonar. Móðir Hansínu var Guðný, dóttir Eymund- ar, b. í Fagranesi Eymundssonar, b. í Skálum Ólafssonar, b. í Skoruvík Finnbogasonar, b. á Haugsstöðum í Vopnafirði Steinmóðssonar, Árna- sonar, pr. í Vallanesi Þorvarðarson- ar. Móðir Árna var Ingibjörg Árna- dóttir, b. á Burstarfelli, ættföður Burstarfellsættarinnar Brandsson- ar. Útför Jóhannesar fór fram frá Hallgrímskirkju, miðvikudaginn 6.10. sl. Jóhannes Arason útvarpsþulur Jakob Jóhannesson Smári f. 15.3. 1920, d. 26.9. 2010 f. 9.10. 1889, d. 11.8. 1972 Jakob Jóhannesson Smári fæddist á hinu sögufræga Sauðafelli í Miðdölum í Dalasýslu. Hann var sonur Jóhann- esar Lárusar Lynge Jóhannssonar, pr. á Kvennabrekku, og f.k.h., Stein- unnar Jakobínu Jakobsdóttur húsfreyju. Jakob var hálfbróðir, samfeðra, Ragnheið- ar, móður Vífils verk- fræðings og lækn- anna Ólafs Hergils og Þengils Odds- sona. Hálfsyst- ir Jóhannesar á Kvennabrekku var Valgerður, lang- amma Jóns Steff- ensen læknapró- fessors sem var einn helsti hvatamaður að Læknasafninu í Nes- stofu. Jakob lauk stúdents- prófi í Reykjavík 1908, stund- aði nám í norrænum fræðum við Kaupmannahafnarháskóla og lauk þar meistaraprófi í norrænni málfræði árið 1914. Jakob var kennari við ýmsa skóla í Reykjavik 1914-1920 og við Mennta- skólann í Reykjavík 1920-36. Jakob var orðin nokkuð þroskað- ur höfundur er hann sendi frá sér sína fyrstu ljósabók, en ljóðabækur hans eru Kaldavermsl, 1920; Handan storms og strauma, 1936; Undir sól að sjá, 1939, og Við djúp- ar lindir, 1957. Hann var mjög dæmigert nýróm- antískt skáld, skáld- skapurinn ljóðrænn en átakalítill. Son- nettan var hans að- alljóðaform en yrk- isefnið gjarnan sótt í kyrrð og fegurð ís- lenskrar náttúru. Hann var því ekki beint barn síns tíma þegar leið á ferilinn. Samt urðu ýmis Ijóða hans vel þekkt og oft sungin. Meðal þekktari og fegurstu ljóða hans er son- nettan Þingvellir, ort í tilefni Al- þingishátíðarinnar 1930 Jakob þýddi m.a. sum verka Gunn- ars Gunnarssonar, leikrit eftir Ibsen og Strindberg, óperettur, og Bókina um veginn eftir Lao-tse, ásamt Yngva Jó- hannessyni. 40 minning 8. október 2010 föstudagur andlátmerkir íslendingar Helgi Ingvarsson yfirlæknir á vífilsstöðum - f. 10.10. 1896, d. 14.4. 1980 Helgi Ingvarsson fæddist í Gaulverja- bæ í Flóa. Hann var sonur Ingvars Nik- ulássonar, pr. þar, og Júlíu Guðmunds- dóttur húsfreyju. Kona Helga var Guðrún Lár- usdóttir en meðal barna þeirra má nefna Guðrúnu, skólastjóra Kvenna- skólans, móður Ólafs Oddssonar mennta- skólakennara og læknanna Helga og Jóns Jónssona; Ingv- ar, stórkaupmann og forstjóra, föður Júlíusar Vífils, borg- arfulltrúa og óp- erusöngvara; Lárus Jakob, geðlækni og yfirlækni, og Sigurð, sýslumann og bæjar- fógeta. Helgi lauk stúdents- prófl frá MR 1916, embættis- prófi í læknisfræði við HÍ 1922 og stundaði framhaldsnám í berklalækn- ingum í Þýskalandi og á Norðurlönd- unum. Helgi var aðstoðarlæknir á Vífil- staðaspítala 1922-38 og yfirlæknir þar 1939-67. Hann var auk þess læknir við Kópavogshælið í rúman áratug. Helgi er sá læknir sem flestum kem- ur í hug þegar baráttan við Hvíta dauða ber á góma en yngri kynslóð- in á af skiljanlegum ástæð- um erfitt með að gera sér grein fyrir þeim hrika- lega tolli sem berklarn- ir tóku, einkum með- al ungs fólks á árum áður. Ævistarf Helga var helgað barátt- unni við berklana frá upphafi starfsfer- ils hans. Hann festi sjálfur kaup á rönt- gentæki og fylgdist mjög gaumgæfilega með öllum nýjung- um i berklavörnum og berklalækningum. Þá þótti hann sérstaklega nærgætinn og skilningsríkur gagnvart sjúklingum sínum sem oft var alvarlega veikt ungt fólk. Nú nýverið var endursýnd í ríkis- sjónvarpinu prýðileg heimildarmynd um baráttuna við berklana og ómet- anlegan þátt Helga í þeirri baráttu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.