Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2010, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2010, Síða 18
18 FRÉTTIR 26. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR Bröns alla laugardaga og sunnudaga Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík | Sími: 517 4300 | www.geysirbistrobar.is Verð aðeins 1.795 með kaffi eða te „Ég er bugaður maður,“ segir Gunn- ar Þorsteinsson oftast kenndur við Krossinn. Í gær greindi Pressan frá því að tvær systur fyrrverandi eigin- konu hans, þær Sólveig og Sigríður Guðnadætur, ásamt Brynju Dröfn Ísfjörð Ingadóttur hefðu sent bréf á stjórn Krossins þar sem Gunnar er sakaður um kynferðisofbeldi gagn- vart þeim. Gunnar fékk sjálfur afrit af bréfinu en sögur þessara kvenna fylgja í fylgiskjölum. Þar eru einn- ig sagðar sögur tveggja nafnlausra kvenna. Alvarlegar ásakanir Ásakanirnar eru alvarlegar en Gunnar er meðal annars sakaður um brot gagnvart stúlkum undir lög- aldri. Gunnar neitar að svara þess- um ásökunum efnislega en segir: „Ég skil ekki af hverju þær fara ekki lögformlegu leiðina. Ég mun gera það.“ Í bréfinu taka konurnar það fram að þar sem brotin séu fyrnd sé sú leið ekki fær en þær séu „knún- ar til þess að opinbera sannleikann.“ Þær hafi glímt við erfiðar afleiðing- ar en ætli nú að skila skömminni þangað sem hún á heima. Leita eftir stuðningi almenn- ings Þær segja jafnframt að Gunnar og Jónína Ben eiginkona hans hafi op- inberað málið í fjölmiðlum. Jón- ína sagði meðal annars að hún yrði ekki hissa ef einhver kona stigi fram á forsíðu Vikunnar á næstu vikum með alvarlegar ásakanir á hendur Gunnari. Jónína tengdi það við út- gáfu ævisögu sinnar og eiganda- valdi Hreins Loftssonar á Birtíngi. Í bréfinu segir að þar sem þau hjón- in hafi áreitt konurnar með síendur- teknum símtölum og fyrirvaralaus- um heimsóknum á heimili þeirra sem túlka mætti sem valdbeitingu og tilraun til þöggunnar sjái þær sér ekki annað fært en að senda bréfið á fjölmiðla í von um að fá stuðning frá almenningi. Sagði fréttina ranga Pressan greindi frá því fyrr í vikunni að Björn Ingi Stefánsson hefði geng- ið á milli þessara kvenna og Gunn- ars en eftir fund með Gunnari hafi honum orðið ljóst að ekki væri hægt að ná sáttum. Björn Ingi sagði í sam- tali við DV að þetta væri rangt. Hann hefði hvorki rætt við þessar konur né Gunnar og vissi ekki um hvað málið snérist. „Mér þykir leiðinlegt að frétt fari út þegar hún er svona fjarri veruleikanum.“ Óska eftir viðbrögðum Eins er vísað til þess að Krossinn hafi ásamt öðrum kristnum samtök- um gefið út bækling um kynferðisof- beldi árið 2009. Þar segi meðal ann- ars: „Hvers kyns kynferðisathöfn milli fullorðins einstaklings og ólög- ráða einstaklings eða milli tveggja einstaklinga þar sem annar aðilinn hefur vald yfir hinum. Að neyða, þvinga, hvetja eða sannfæra barn um að taka þátt í hvers kyns kynferð- islegri athöfn. Að sjálfsögðu á þetta við um alla kynferðislega snertingu.“ Þær árétta það því við stjórnarmeð- limi að þeir hafi tekið opinberlega afstöðu gegn þeirri refsiverðu hátt- semi sem þær saka Gunnar um og óska eftir því að brugðist verði við með hagsmuni þeirra og safnaðar- ins að leiðarljósi. Erfiður dagur Ásta Knútsdóttir sagði að þessi dag- ur hefði verið mjög erfiður fyrir þær konur sem þarna stigu fram en ekki náðist í þær sjálfar við vinnslu fréttar innar. Sjálfur segist Gunn- ar vera niðurbrotinn vegna þessara ásakana. „Ég mun hreinsa mann- orðið,“ segir hann og leggur áherslu á orð sín. Aðspurður hvernig hann muni gera það segir hann: „Ég mun fara allar færar leiðir til þess. Mér mun takast það.“ Gunnar í Krossinum segist vera bugaður maður vegna alvarlegra ásakana um kynferðisglæpi gagnvart ólögráða einstaklingum. Þrjár konur sendu sögu sína á stjórn Krossins í dag þar sem þær bera upp þessar ásakanir og með fylgdu einnig sögur tveggja nafnlausra kvenna. Gunnar hefur hótað málsókn og segir að honum muni takast að endurheimta mannorð sitt. ÉG MUN HREINSA MANNORÐIÐ Sigríður Guðnadóttir Fyrrverandi mágkona Gunnars er í hópi þeirra kvenna sem saka hann um kynferðisglæpi gegn sér. Þrjár konur stigu fram undir nafni í dag en tvær eru enn nafnlausar. Bugaður Gunnar Þorsteinsson þarf að verjast alvarlegum ásökunum. Hann segist ekki skilja af hverju konurnar fari ekki lögformlegu leiðina. Þær segja að þar sem brotin séu fyrnd sé það ekki möguleiki. Þær hafi glímt við erf-iðar afleiðingar en ætli nú að skila skömminni þang- að sem hún á heima. INGIBJÖRG DÖGG KJARTANSDÓTTIR blaðamaður skrifar: ingibjorg@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.