Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2010, Blaðsíða 6
6 | Fréttir 20. desember 2010 Mánudagur
Íslenska lopapeysan mun koma að góðum notum um jólin:
Flekkótt jól í höfuðborginni
„Það verður indælisveður um jólin,“
segir Sigurður Þ. Ragnarsson veður-
fræðingur um jólaveðrið. Sigurður
segir að jólin á höfuðborgarsvæð-
inu verði flekkótt en íbúar á Norður-
landi fái algjört draumaveður. Þeir
sem verða á faraldsfæti á Vestfjörð-
um og Snæfellsnesi á þriðjudag og
miðvikudag þurfa þó að vera viðbún-
ir töluverðri snjókomu og hvassviðri.
Sigurður segir þó að ekkert stórviðri
sé í vændum.
„Þeir sem verða á ferðalagi þurfa
að hafa í huga að það eru mikil
snjóa lög á Norðurlandi og þar mun
hreyfa vind. Það þýðir að það getur
orðið blint þar sem lausamjöllin fer
af stað auk þess sem það má búast
við éljum.“
Sigurður gerir ráð fyrir að það
muni hvessa á Vestfjörðum og Vest-
urlandi á þriðjudagskvöld og verða
hvasst fram á miðvikudagskvöld.
Einnig séu horfur á snjókomu á Suð-
ur- og Suðvesturlandi á miðviku-
dagskvöld og það þurfi ferðalangar
að hafa í huga.
En verða þá hvít jól um allt land?
„Það verða flekkótt jól í Reykjavík út
af þessari snjókomu á miðvikudags-
kvöld og aðfaranótt fimmtudags. Ak-
ureyringar fá draumaveður og Norð-
lendingar almennt. Þar mun varla
hreyfa vind þó það verði minnihátt-
ar éljagangur. Frostið á Norðurlandi
verður í kringum tíu stig og í höfuð-
borginni verður það eitthvað svipað,“
segir Sigurður og bætir við að skíða-
mönnum á Norðurlandi muni ef-
laust kitla í iljarnar að komast á skíði.
Á Suðvesturlandi eru horfur á björtu
veðri með köflum yfir hátíðirnar.
Sigurður segir að jólagjöfin sem
Samtök verslunar og þjónustu völdu
á dögunum, íslenska lopapeysan,
eigi vel við. „Ég held það mætti bæta
við góðum lopavettlingum, lopahúfu
og lopasokkum. Það mun ekkert
minna duga í þessu frosti. Sigurður
bætir við að lokum að loftþrýsting-
urinn verði með þeim hætti að lund-
arfar landans verði með besta móti.
„Það má segja að þetta verði gleðijól
á krepputímum.“
Fínt jólaveður „Það má segja að þetta
verði gleðijól á krepputímum,“ segir
Sigurður. Mynd Sigtryggur Ari
Þorir enn ekki út úr húsi:
Freyja Dís fékk
afsökunarbeiðni
Freyja Dís Númadóttir, einstæð móð-
ir og öryrki, sem kom fram í fréttum
Stöðvar 2 í síðustu viku og lýsti fjár-
hagsörðugleikum sínum, segist enn-
þá ekki þora út úr húsi vegna allrar
þeirrar neikvæðu umræðu sem skap-
aðist um hana í kjölfar fréttarinnar.
Hún segir öldurnar þó sem betur fer
aðeins vera að lægja í kringum sig og
að fólk sjái nú betur að ekki hafi ver-
ið teiknuð upp rétt mynd af henni í
upphafi. „Ég hef fram að þessu fengið
eina afsökunarbeiðni. Það var ein-
staklingur úti í bæ sem hafði skrifað
um mig á netinu. Að öðru leyti finnst
mér fólk vera að reyna að þagga nið-
ur umræðuna og margir segja að ekki
eigi að vera með svona sleggjudóma
um fólk án þess að þekkja aðstæður
áður,“ segir Freyja aðspurð hvort hún
hafi fundið fyrir meiri stuðningi eftir
að hún fékk tækifæri til þess í fjöl-
miðlum að gera betur grein fyrir að-
stæðum sínum. Hún er mjög þakklát
öllum þeim sem hafa hugsað vel til
hennar, sýnt henni stuðning og tekið
upp hanskann fyrir hana.
Freyja segir að þrátt fyrir hún
skynji að fólk skilji aðstæður henn-
ar betur þá muni líða langur tími
þangað til hún þori að láta sjá sig úti
á götu. „Jólin mín og áramótin verða
bara undir þaki og mér þykir það
voðalega leitt. Ég óska þess bara að
geta farið út úr húsi án þess að vera
áreitt,“ segir Freyja sem er ennþá
mjög sár vegna fréttar Stöðvar 2, sem
henni þótti fordómafull í sinn garð.
Strandaglópar
í Keflavík
Kuldakastið sem verið hefur á Bret-
landi undanfarna daga gerði að
verkum að tvær Boeing-breiðþotur
breska flugfélagsins British Airways
þurftu að lenda á Keflavíkurflugvelli
aðfaranótt sunnudags. Vélarnar voru
á leið frá Bandaríkjunum til Heat-
hrow-flugvallar í London. Vegna
snjókomu var Heathrow-vellinum
hins vegar lokað og þurftu vélarn-
ar að lenda í Keflavík. Farþegar um
borð voru fluttir á hótel í Reykjavík
en vélarnar fóru svo af landi brott
eftir hádegi á sunnudag.
n umræður eru farnar af stað um
uppstokkun á miðju stjórnmálanna
til að efla ríkisstjórnina n Ástæðan
er sundrung innan Vg n innganga
Ögmundar Jónassonar í ríkisstjórn-
ina tryggði ekki friðinn innan Vg og
stjórnarmeirihlutann
Meirihluti þingflokks Vinstri grænna
telur vart við það unandi lengur að
nokkrir þingmenn á vinstri kanti
flokksins rísi reglulega gegn ríkis-
stjórninni og stjórnarmeirihlutanum
á Alþingi frekar en að ganga veg mála-
miðlunar innan flokksins. Því hljóti
senn að koma til uppgjörs.
Það hefur meðal annars valdið
vonbrigðum að innganga Ögmundar
Jónassonar í ríkisstjórnina á ný skuli
ekki hafa tryggt friðinn innan flokks-
ins. Þvert á móti eru upphlaup tíð, og
nú síðast hafa þrír þingmenn flokks-
ins, Atli Gíslason, Lilja Mósesdóttir
og Ásmundur Einar Daðason, geng-
ið gegn þingmeirihlutanum og ríkis-
stjórninni með harðorðri yfirlýsingu.
Þau neituðu að styðja fjárlagafrum-
varp Steingríms. J. Sigfússonar, fjár-
málaráðherra og formanns VG, og
sökuðu hann og forystu samstarfs-
flokksins um forræðishyggju og for-
ingjaræði. Þingmennirnir lýstu einnig
andstöðu við samstarfið við AGS, að-
ildarumsóknina að ESB og forgangs-
röðun við óhjákvæmilegan niður-
skurð innan velferðarkerfisins. Þetta
er túlkað svo að Ögmundur fari ekki
fyrir neinu flokksbroti lengst til vinstri
innan VG og þar fylgist menn aðeins
að eftir hentugleikum.
Jón heldur varla ráðherrastól
Samkvæmt heimildum DV hafði það
einnig áhrif á afstöðu þingmannanna
þriggja að ríkisstjórnin hefur sett nýtt
frumvarp Jóns Bjarnasonar, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra, um
róttækar breytingar í sjávarútvegi á
biðmálaskrá. Frumvarpið hefur leg-
ið neðarlega í bunkanum undanfarn-
ar þrjár vikur og stjórnarliðar í báðum
þingflokkunum hafa ekki fengið að sjá
það enn. Þetta leggst einnig þunglega
í menn á vinstri kanti VG. Það helg-
ast meðal annars af því að ríkisstjórn-
in hefur jafnframt fyrirætlanir um að
sameina ráðuneyti iðnaðar-, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarmála á vor-
þinginu, en víst er talið að Jón Bjarna-
son haldi ekki ráðherrastólnum verði
sameiningin undir hatti atvinnuvega-
ráðuneytis að lögum.
nýr veruleiki stjórnmálanna
Stjórnarliðar úr báðum flokkum, sem
treyst hafa böndin frá stjórnarskipt-
unum 1. febrúar 2009, telja marg-
ir tímabært í ljósi háttalags „órólegu
deildarinnar“ að kortleggja í fullri al-
vöru málaefnagrundvöll allra flokka á
þingi og kanna rækilega hverjir gætu
þar átt samleið um stærstu og mikil-
vægustu þjóðfélagsmálin á næstu
árum. Stefnan gagnvart ESB, afstaðan
til samstarfsins við Alþjóðagjaldeyris-
sjóðinn, Icesave-málin, breytingar á
fiskveiðistjórnunarkerfinu og aðgerðir
í ríkisfjármálum eru meðal mála sem
ágreiningur er um innan nánast allra
flokka á Alþingi. Hins vegar er að sjá
sem mörg þessara mála gætu sam-
einað brot úr öllum flokkum nema
Sjálfstæðisflokknum í breiðfylkingu
á miðju stjórnmálanna, hugsanlega
undir merkjum flokks jafnaðar- og
vinstrimanna. Þar með væri öðru
sinni frá árinu 1999 hafin tilraun til
þess að sameina jafnaðar- og vinstri-
menn í einn flokk.
Óskoraður leiðtogi
„Ef ekki væri fyrir afstöðuna til aðild-
ar að Evrópusambandinu væri Stein-
grímur sjálfkjörinn formaður slíkrar
hreyfingar,“ segir Jón Baldvin Hanni-
balsson fyrrverandi ráðherra og for-
maður Alþýðuflokksins. „Afstaða VG
til ESB er í raun úrelt því helstu græn-
ingjaflokkar Evrópu telja einmitt ESB
vörn í umhverfismálum og vörn fyrir
smáríki gegn hnattvæðingu viðskipt-
anna.
Ríkisstjórnin vinnur að því að skera
upp ríkiskerfið og greiða úr óreiðunni
eftir aðra flokka. Lee Buchheit, for-
maður Icesave-samninganefndarinn-
ar, fór fögrum orðum um Steingrím
er hann sannfærði yfirstjórn AGS í
Washington um að taka til hendinni
með Íslendingum frekar en að draga
lappirnar. Buchheit hefur í tugi skipta
samið sig í gegnum kreppur fyrir mis-
munandi þjóðir og hann einfaldlega
sagði að fáir hefðu leikið það eftir sem
Steingrímur gerði.“
Jón Baldvin minnir á að Stein-
grímur hafi verið svo vinstrisinnaður
árið 1999 að hann hafi ekki getað tek-
ið þátt í stofnun Samfylkingarinnar.
„Nú er hann mikilvirkur í samstarfi við
heims kaptítaismann um að endur-
reisa landið úr rústum þeim sem for-
verar hans á valdastóli skildu eftir sig.
Fyrir utan sundrung í VG er veikleiki
ríkisstjórnarinnar ekki síst fólginn í því
að forsætisráðherrann sýnir þreytu-
merki og hefur ekki reynst öflugur
eða sannfærandi talsmaður stjórnar-
stefnunnar. Steingrímur væri þar trú-
verðugur arftaki og öflugur talsmaður
stjórnarstefnunnar.“
Þola ekki lengur
sundrungina í VG
Jóhann Hauksson
blaðamaður skrifar johannh@dv.is
Álfheiður Ingadóttir (S)
Árni Páll Árnason (S)
Árni Þór Sigurðsson (VG)
Ásta R. Jóhannesdóttir (S)
Birkir Jón Jónson (F)
Björgvin G. Sigurðsson (S)
Björn Valur Gíslason (VG)
Guðbjartur Hannesson (S)
Guðmundur Steingrímsson (F)
Helgi Hjörvar (S)
Jóhanna Sigurðardóttir (S)
Jónína Rós Guðmundsdóttir (S)
Katrín Jakobsdóttir (VG)
Katrín Júlíusdóttir (S)
Kristján L. Möller (S)
Lilja Rafney Magnúsdóttir (VG)
Magnús Orri Schram (S)
Mörður Árnason (S)
Oddný G. Harðardóttir (S)
Ólína Þorvarðardóttir (S)
Róbert Marshall (S)
Sigmundur Ernir Rúnarsson (S)
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (S)
Siv Friðleifsdóttir (F)
Skúli Helgason (S)
Steingrímur J. Sigfússon (VG)
Svandís Svavarsdóttir (VG)
Valgerður Bjarnadóttir (S)
Þórunn Sveinbjarnardóttir (S)
Þráinn Bertelsson (VG)
Þuríður Backman (VG)
Össur Skarphéðinsson (S)
Þessi meirihluti ætti vísan stuðning
við ESB-málin hjá að minnsta
kosti tveimur þingmönnum
Sjálfstæðisflokksins
Verður til nýtt meirihlutaafl á þingi?
Fer hann fyrir nýrri stjórnmálahreyf-
ingu? Mörgum sýnist Steingrímur J. Sigfússon
vera sjálfsagður leiðtogi nýrrar miðjuhreyfingar
komi til uppstokkunar í stjórnmálunum.
„Ef ekki væri fyrir afstöðuna til aðildar að Evr-
ópusambandinu væri Steingrímur sjálfkjörinn
formaður slíkrar hreyfingar,“ segir Jón Baldvin
Hannibalsson fyrrverandi ráðherra.