Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2010, Síða 10
10 | Fréttir 20. desember 2010 Mánudagur
n Nýfædd gekkst hún undir fósturæðaaðgerð n Læknar gerðu mistök í aðgerðinni
n Hægri fótur hennar er mjög illa farinn n Fékk reikning upp á 116 þúsund krónur
Þriggja ára stúlka er varanlega
sködduð á fæti eftir læknamistök
sem urðu þegar hún gekkst undir
aðgerð aðeins nokkurra daga göm-
ul. Læknar skáru í sundur bláæð í
nára sem leiddi til þess að blóð safn-
aðist fyrir í fótlegg hennar. Í dag þarf
hún á sérsmíðuðum skóm að halda
en foreldrarnir fá ekki styrk vegna
þessa hjá Tryggingastofnun.
Mistök hjá læknum
Aníta Björk Gunnarsdóttir er sex
barna móðir á Akranesi. Árið 2007
eignuðust hún og maðurinn henn-
ar, Benedikt Karlsson, þríbura.
Einn þríburanna, lítil stúlka, þurfti
að fara í svokallaða fósturæðaað-
gerð þegar hún var nýfædd. „Það
gleymdist að setja upp hjá henni
æðalegg áður en hún fór niður á
skurðstofu. Vökudeildarlæknarn-
ir áttu að gera það en það gleymd-
ist. Svæfingarlæknarnir vildu endi-
lega prófa og reyndu að stinga hana
í höndina en fundu hvergi æðar.
Hún var líka bara rúm 700 grömm,“
segir Aníta. Þá hafi verið brugðið á
það ráð að skera í nárann á henni
en við það var skorið á bláæð. Blóð-
ið rann því niður fótlegginn en ekki
upp aftur. Hún segir að svæfingar-
læknarnir hafi ekki kunnað á svona
lítil börn og hefðu átt að kalla til
vökudeildarlækni.
Spurning um að taka
af henni fótinn
„Hún fékk blóðtappa og var nokkr-
um sinnum mjög hætt komin. Á
tímabili var spurning um hvort taka
þyrfti af henni fótinn því það var svo
mikil hætta á að hún fengi sýkingu
í nýrun. Það slapp en fótleggurinn
er mjög illa farinn fyrir neðan hné.
Hún notar fótinn en blóðflæðið er
lítið svo hún er alltaf kaldari á hægri
fætinum,“ segir Aníta.
Auk þess að vera alltaf kaldari þá
vantar bein í fjórar tær á hægri fæt-
inum. Hún er ekki með neinar negl-
ur og stóra táin vex niður. Hún seg-
ir að dóttir sín muni alltaf þurfa að
vera í sérsmíðuðum skóm með upp-
hækkun. Það muni þremur sentí-
metrum á fótleggjunum og þar að
auki sé hægri fóturinn í skóstærð 21
en sá vinstri í 24. „Hann kemur allt-
af til með að vera svona lítill og þetta
eru því mjög alvarleg læknamistök.
Læknarnir segjast aldrei hafa séð-
svona áður,“ bætir hún við.
Fær tvö skópör á ári
Aníta segir að sjúkrasjóður hafi
greitt 90 prósent af þeim skóm sem
hún hefur keypt. „Ég hef fengið styrk
vegna tveggja skópara á ári og borga
einungis 10 prósent af þeim en það
er ekki nóg því Sandra Sól þyrfti fleiri
skópör á ári. Ég hafði pantað þriðja
parið og fékk reikning vegna þess
upp á 116.000 krónur og ég veit ekki
hvernig ég á að borga það. Í gær kom
svo áminning um að reikningurinn
væri ógreiddur,“ bætir hún við. Þess
má geta að Aníta, sem er formaður
Mæðrastyrksnefndar Vesturlands,
er öryrki en maðurinn hennar er
verkamaður.
Bótaábyrgð viðurkennd
„Það hafa ekki orðið neinar breyt-
ingar og við höfum ekki heyrt frá
Sjúkratryggingum,“ segir Þorsteinn
Hjaltason, lögfræðingur Anítu sem
vinnur fyrir hana í málinu. Hann
segir að í þessu tilfelli hafi orðið
læknamistök og það sé búið að við-
urkenna bótaábyrgðina út úr sjúkl-
ingatryggingunum. Ekki sé hægt að
sjá eða meta varanlega örorku hjá
Söndru Sól því hún sé svo ung enn-
þá en hins vegar beri bótaskyldum
aðila, í þessu tilfelli Sjúkratrygging-
um Íslands, að halda fjölskyldunni
skaðlausri. Hann segir að hún eigi
rétt á öllu sem hún hefur þörf á.
Þarf sérsmíðaða skó
„Foreldrar hennar hafa þurft að
leggja út fyrir ýmsum hlutum, til
dæmis sérsmíðuðum skóm, sem
Sjúkratryggingar eiga að greiða fyr-
ir hana. Við höfum hins vegar ekki
fengið nein svör, þau gætu komið
eftir mánuð eða eftir einhver ár. Inn-
heimtufyrirtækin bíða þó ekki með
að senda þetta í lögfræðing,“ segir
hann og vísar í aðvörun sem foreldr-
ar Söndru Sólar fengu vegna reikn-
ings fyrir síðasta skóparið. Reikning-
urinn hljóðar upp á 116.000 krónur
og verður fljólega sendur til Intrum.
„Seinagangur hjá
Sjúkratryggingum“
Þorsteinn segir að afgreiðsla mála
hjá Sjúkratryggingum fari versn-
andi. „Það er ekki bara þetta mál
heldur ýmis önnur mál þar sem
menn eru bótaskyldir hjá þeim. Það
líða oft margir mánuðir frá því að
menn senda inn beiðni og staðfest-
ingu á að slysið sé varanlegt og hægt
sé að meta örorku, þar til málið er
afgreitt. Þetta hefur versnað mjög
mikið, það er mikill seinagangur hjá
þeim,“ segir hann.
Geta ekki tjáð sig
um einstök mál
Hreiðar Örn Arnarson, vef-og kynn-
ingarfulltrúi hjá Sjúkratrygginum
Íslands, segir að stofnunin geti ekki
tjáð sig um einstök mál. Almennt sé
skaði læknisfræðilega metinn vegna
örorku hjá börnum þegar þau hafa
náð stöðugleikapunkti um grunn-
skólaaldur. Greiðsluþátttaka sé síð-
an til staðar samkvæmt sjúkratrygg-
ingalögunum í læknisþjónustu,
sjúkraþjálfun, niðurgreiðslu hjálp-
artækja og svo framvegis. Frekari
réttindi hjá öðrum aðilum séu til
dæmis möguleg sjúkrasjóðsrétt-
indi hjá stéttarfélögum, umönnun-
argreiðslur hjá Tryggingastofnun
sem og almennar skaðabótareglur.
Hann bendir á að hér á landi gildi
meðal annars lög um almanna-
tryggingar, lög um sjúkratryggingar,
lög um sjúklingatryggingu, almenn-
ar skaðabótareglur, reglur stéttar-
félaga varðandi sjúkrasjóði, reglur
varðandi veikindarétt sem saman
mynda öryggisnet fyrir almenning.
Verði einstaklingur fyrir tjóni ræðst
réttarstaða hans bæði af tryggingum
hans svo og tryggingum og skyldum
þess sem veldur tjóninu.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
„Hún fékk
blóðtappa og
var nokkru sinnum
mjög hætt komin
Læknamistök
Fótur Söndru Sólar
eftir aðgerðina.
MyNdir Úr eiNkaSaFNi
illa farinn Á tímabili var haldið að taka þyrfti
fótinn af.
Sandra Sól Getur notað fótinn en þarf á
sérsmíðuðum skóm að halda.
aníta Björk Gunnarsdóttir Móðir Söndru Sólar skilur ekki í seinagangi Sjúkratrygginga.
Sex barna móðir fær ekki
styrk eftir læknamistök