Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2010, Síða 15
Bestu bækurnar
Þó jólin hitti á helgi
þetta árið, og séu
því frekar stutt
fyrir flest vinnandi
fólk, eru margir
sem nota fríið til að
lesa bækurnar sem
koma úr fyrir jólin. DV hefur dæmt fjöldann
allan af bókum eins og venjulega fyrir jólin.
Fjórar bækur hafa fengið fimm stjörnur í ár.
Þær eru Missir eftir Guðberg Bergsson, Svar
við bréfi Helgu eftir Bergsvein Birgisson, ljós-
myndabókin veglega Veiðimenn norðursins
eftir Ragnar Axelsson og myndlistabókin
Landslag hugans eftir Tolla. Þá fékk Gleði-
leikur Dante fjórar og hálfa stjörnu frá Jóni
Viðari Jónssyni gagnrýnanda og ljóðabókin
Brúður eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur fékk
fjórar stjörnur. Besta barnabókin sem dæmd
hefur verið heitir Dagbók Didda klaufa 2 –
Robbi Rokkar.
Vert er að taka fram að verðkönnunum DV og
ASÍ ber saman um að í verslunum Bónus fáist
ódýrustu bækurnar fyrir jólin.
Skaðlegar púslmottur „Belgar hafa bannað svokallaðar
púslmottur úr mjúku plasti eða svampi sem ætlaðar eru ungum börnum. Ástæðan
er sú að þessar mottur innihalda gjarnan skaðleg efni sem börn ættu ekki að vera í
snertingu við. Formamide er efni sem fundist hefur í mottunum en það er krabba-
meinsvaldandi.“ Frá þessu er greint á vef Neytendasamtakanna. Fram kemur að
Belgía sé fyrsta landið sem bannar sölu á þessum mottum en ef framleiðendur
vilja fá að selja motturnar verða þeir að sanna öryggi þeirra. Þeir sem óhlýðnast
geta þurft að greiða þriggja milljóna króna sekt. „Afar sjaldgæft er að stjórnvöld
taki svo afgerandi afstöðu með neytendum og láti þá njóta vafans,“ segir á ns.is.
Hættulegar blöðrur Neytendastofa greinir frá því að hér á Íslandi hafi
barn verið hætt komið vegna þess að blaðra hafi verið bundin við rúm þess og barnið
hafi náð að vefja bandinu um hálsinn á sér. Neytendastofa bendir á að á skemmtunum
og í afmælum séu gjarnan álblöðrur með böndum sem séu mjög sterk, næstum óslítan-
leg, jafnvel fyrir fullorðna. Bandið sé oft bundin við rúmgafla eða barnavagna sem geti
skapað mikla hættu ef barnið vefur því um hálsinn á sér, eins og í ofangreindu tilviki.
Stofnunin bendir því á að bönd á leikföngum megi ekki vera lengri en 22 sentimetrar.
„Til að gæta fyllstu varúðar telur Neytendastofa rétt að framangreind lengd sé höfð til
viðmiðunar þegar bönd eru sett í blöðrur,“ segir á neytendastofa.is.
Neytendur | 15Mánudagur 20. desember 2010
Ýmislegt stendur þeim til boða sem
hafa hug á að kaupa lifandi jólatré
þessi jólin. Skógræktarfélögin hafa
mörg boðið fólki að koma að velja og
höggva sitt eigið tré. Fólk þarf þó að
hafa hraðann á þar sem síðustu sölu-
dagar voru á einhverjum stöðum um
helgina. Á heimasíðu Skógræktarfé-
lags Íslands má finna ýmsar upplýs-
ingar um jólaskóga skógræktarfélag-
anna. Verð á trjánum hjá félögunum
er allt frá 3.000 upp í 10.000 en það
fer eftir stærð og gerð trjánna. Á sum-
um stöðum er þó fast verð, 5.000 til
6.000 krónur, en það er fyrst og fremst
á þeim stöðum sem fólk heggur sjálft.
Skógrækt ríkisins er með jólatréssölu
á að minnsta kosti tveimur stöðum nú
um helgina en það er í Haukadal og
Skorradal. Auk skógræktarfélaganna
eru ýmis félög að selja tré í fjáröflun-
arskyni.
Ódýrustu jólatrén kosta 3.000 krónur:
Jólatréssölur
Húsasmiðjan Garðheimar
Normansþinur
1,0 til 1,5 m. 5.900 kr. 5.350 kr.
1,5 til 2,0 m. 7.900 kr. 7.650 kr.
2,0 til 2,5 m. 9.900 kr. 10.380 kr.
Stafafura
0,7 til 1,0 m. 1.900 kr.
1,0 til 1,5 m. 4.980 kr.
1,5 til 2,0 m. 6.990 kr.
Rauðgreni
1,0 til 1,5 m. 4.850 kr.
1,5 til 2,0 m. 6.950 kr.
Verð á jólatrjám
Hin fullkomnu jól
Veldu bara það besta
Jólin eru hátíð ljóss og friðar þó
sumir setji pakkana í forgang.
Besta borðspilið
Fimm blaðamenn
DV dæmdu sjö
borðspil sem komu
út fyrir jólin, enda
eru jólin alla jafna
sá tími ársins þegar
fjölskyldum gefst
helst tími til að
spila. Partý Alias
fékk hæstu einkunnina og nafnbótina
besta spilið í ár. Samdóma álit blaðamanna
var að Partý Alias, Fimbulfamb og Enn meiri
Popppunktur væru flottustu spilin af þeim
sem prófuð voru. Partý Alias fékk fimm af
sex mögulegum í einkunn. „Borðspil sem
gengur út á að leikmenn reyna að lýsa
orðum fyrir samherjum sínum. Ákaflega
einfaldar reglur og fyrir vikið gengur spilið
bæði hratt og er stórskemmtilegt,“ sagði
í umsögn um spilið. Athugið að ekki gafst
tækifæri til að prófa öll spilin sem komu út
fyrir jólin.
Spilið fæst víða, meðal annars í Bónus, og
kostar þar 5.600 krónur.
Besta jólagjöfin
Jólagjafirnar eru órjúfanlegur hluti jólanna.
Það væri óðs blaðamanns æði að ætla að
útlista hvaða jólagjöf væri besta jólagjöfin
í ár. Það fer væntanlega eftir því hverjum
á að gefa og hvaða áhugamál viðkomandi
hefur. Rannsóknarsetur verslunarinnar
hefur gert heiðarlegar tilraunir til að
útnefna jólagjöf ársins, undanfarin ár. Í
ár var íslenska lopapeysan valin jólagjöf
ársins. „Lopapeysa er ekki aðeins algeng
hversdagsflík heldur er sífellt algengara að
fólk mæti í lopapeysum á mannamótum.
Lopi og lopapeysur seljast sem aldrei fyrr,“
segir í rökstuðningnum.
Lopapeysur fást í ýmsum verslunum og kosta
yfirleitt 15–30 þúsund krónur.
Besti tölvuleikurinn Ekki verður annað sagt en að tölvur og tölvu-
leikir séu í móð, eða í tísku eins og nú er sagt. DV hefur dæmt fjöldann allan af tölvuleikjum á
árinu. Þegar horft er til leikja sem ganga í PC-tölvur, Playstation 3 og XBOX 360-tölvur fær
leikurinn Assassin's Creed: Brotherhood bestu einkunnina. Spilendunum gefst tækifæri til
þess að bregða sér í hlutverk launmorðingja á miðöldum. Leikurinn fékk 91 af 100 möguleg-
um í einkunn. Aðrir góðir eru Call of Duty Black ops, sem fékk 89 af 100 í einkunn. Þeim sem
vilja ekki gefa ofbeldisleiki er bent á FIFA 11. Hann fékk frábæra dóma eða 88 af 100.
Assassin's Creed fæst til dæmis í Elko og kostar þar 9.795 krónur.
Sk. Mosfellsbæjar
Sk. Reykjavíkur
Sk. Garðabæjar
Sk. Hafnarfjarðar Sk. Rangæinga
Sk. Árnesinga
Sk. Borgarfjarðar
Fossá
Sk. A-Húnvetninga
Sk. Eyfirðinga
Sk. Austurlands
Sk. Mörk