Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2010, Blaðsíða 19
Hvenær er rétti tíminn til að taka ákvörðun? Rétti tíminn til að hefja nám? Kaupa íbúð? Fara
í sjálfboðastarf á jarðskjálftasvæði?
Stofna fyrirtæki? Sækja um nýtt starf?
Eignast barn? Flytja til Kína? Bjóða sig
fram til forsetaembættis?
Í flestum tilvikum er rétti tíminn
þegar maður sjálfur er tilbúinn til þess
og hefur efni á því. Í flestum tilvikum
en ekki alltaf. Ekki t.d. þegar maður á
yfir höfði sér allt að lífstíðar fangelsi.
Þegar maður er fyrir rétti, ákærður um
alvarlegan glæp, er líf hans að mörgu
leyti í biðstöðu. Það er ekki ráðlegt að
taka stórar og afdrifaríkar ákvarðanir
á meðan maður er sakaður um glæp
sem varðar þungri refsingu og stund-
um er það hreinlega ekki hægt.
Áskorun um stöðvun
Á næstu dögum verður mannrétt-
indaráðherra Íslands afhent áskor-
un um að stöðva málsókn í máli ní-
menninganna sem eru ákærðir fyrir
valda ránstilraun. Valdaránstilraun já,
ekkert minna en það, þótt hverjum
manni megi ljóst vera að sá var alls
ekki tilgangur þess valdlausa og sund-
urleita hóps sem mótmælti vinnu-
brögðum Alþingis þann 8. desember
2008. Ríkisstjórnin var að vísu hrakin
frá völdum nokkrum vikum síðar, en
ekki af þeim níu manneskjum sem
eru fyrir rétti, heldur mörgum þús-
undum karla og kvenna. Rúður voru
brotnar, eggjum kastað í ráðherrabíla,
bálkestir loguðu á götum, þingmenn
flúðu út bakdyra megin í lögreglu-
fylgd og hafi einhver hrópað „drull-
ið ykkur út“ þá heyrðist ekki í honum
fyrir þúsundum radda sem hrópuðu
„vanhæf ríkisstjórn!“ klukkustundum
saman. Enginn hefur þó verið ákærð-
ur fyrir þær aðgerðir.
Ákæruvaldinu misbeitt
Ýmsir hafa dregið í efa að það sé æski-
legt að ráðherra hlutist til um dóms-
mál og ég get tekið undir að það ætti
aðeins að gerast í undantekningartil-
vikum. Slík mál geta þó komið upp og
það er einmitt þess vegna sem stjórn-
arskrá lýðveldisins heimilar stöðvun
málsóknar ef rík ástæða er til. Í máli
nímenninganna er augljóst að ákæru-
valdinu hefur verið misbeitt, þar sem
óvopnað fólk er ákært er fyrir glæp
sem enginn heilvita maður trúir að
hafi staðið til að fremja, einmitt ágætt
dæmi um mál þar sem rík ástæða er
til að ráðherra beiti sér.
Sú skoðun hefur einnig heyrst að
nímenningamálið eigi að hafa sinn
gang í dómskerfinu. Það sé svo aug-
ljóslega út í hött að saka fólkið um að
stofna sjálfræði þingsins í hættu að
sýknudómur sé nánast sjálfgefinn og
betra að hann verði felldur en að mál-
inu verði vísað frá. Nú ef svo ólíklega
færi að þau yrðu sakfelld, þá sé rétt og
eðlilegt að vísa málinu til mannrétt-
indadómstóla.
Það yrði vissulega áhugavert að sjá
dómsniðurstöður úr þessu máli. Ég
efast hins vegar um að þeir sem vilja
láta þetta mál fara í gegnum tvö og
jafnvel þrjú dómsstig, geri sér grein
fyrir því hvers konar áhrif það hefur
á líf fólks að vera ásakað um alvarlega
glæpi og mér finnst þetta fáránlega
mál ekki svo áhugavert að réttlætan-
legt sé að halda níu manns og fjöl-
skyldum þeirra í félagslegri gíslingu
vegna þess.
Mikið er vald stjórnmálamanna
Málaferli taka oft langan tíma og það
er ekkert lögmál að réttlætið sigri. Þótt
flestir telji sýknudóm eðlilegastan,
skulum við ekki gleyma því að rétt-
armorð hafa verið framin á Íslandi.
Það þekktasta er 16 ára fangelsisdóm-
ur yfir mönnum sem sakfelldir voru
fyrir morðið á Geirfinni Einarssyni,
sem enn í dag er ekki einu sinni full-
víst að sé látinn. Þótt þessi mál séu
ólík, sannar Geirfinnsmálið að á Ís-
landi getur það gerst að fólk sé dæmt
til refsingar af pólitískum ástæðum,
fremur en á grundvelli sannana. Það
var þáverandi dómsmálaráðherra
sem krafðist þess að einhver yrði sak-
felldur vegna Geirfinnsmálsins. Í dag
er það Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir sem hefur ákveðið að einhver,
bara einhver, skuli sóttur til saka fyr-
ir uppreisnina sem átti sér stað á Ís-
landi í kjölfar efnahagshrunins. Mikið
er vald stjórnmálamanna og hugsan-
lega gæti farið svo að nímenningarn-
ir neyddust til að leita réttar síns fyr-
ir alþjóðadómstólum. Það gæti tekið
nokkur ár til viðbótar.
29. grein stjórnarskrárinnar, sú sem
heimilar stöðvun málsóknar, var ekki
sett inn í hana í hugsunarleysi. Þessi
grein er til, vegna þess að ákæruvald-
ið getur farið offari og það er ólíðandi í
réttarríki að fólk þurfi að svara fyrir af-
brot sem augljóst er að ekki var fram-
ið. Níu manneskjur standa nú í þeim
sporum að vera sakaðar um glæp sem
löggjafinn lítur jafn alvarlegum augum
og morð. Áhrifin á líf þessa fólks felast
ekki fyrst og fremst í því að þau þurfi
af og til að taka sér frí frá vinnu til að
mæta fyrir rétti, heldur merkir þetta að
á meðan málið velkist í dómskerfinu
er þeim og fjölskyldum þeirra haldið í
biðstöðu sem ekki sér fyrir endann á.
Þau eru í raun svipt tækifærum til að
taka nokkra afdrifaríka ákvörðun.
Að ákæra fólk fyrir glæp sem ekki
var framinn, brýtur í bága við allar al-
mennar hugmyndir um mannúð og
réttlæti. Það er þess vegna sem mann-
réttindaráðherra á að taka í taumana.
Ég vona að sá ágæti maður Ögmund-
ur Jónasson, sem sjálfur hefur lýst því
yfir að hann taki afstöðu með þeim
sem órétti eru beittir, verði við þeirri
áskorun. Jafnframt hvet ég þá sem
enn hafa ekki skrifað undir áskorun-
ina til að gera það hið snarasta.
http://www.ipetitions.com/petition/
nimenningamalid
Umræða | 19Mánudagur 20. desember 2010
Rödd fá-
tækra þarf
að heyrast
1 Örn Árnason: Flugferð með Halldóri Ásgrímssyni eins og að
vera í fangelsi
Leikarinn lýsir flugferð með
fyrrverandi forsætisráðherra í viðtali í
helgarblaði DV.
2 Mótmælandi á Saga ClassBirgitta Jónsdóttir, þingmaður
Hreyfingarinnar, ferðast þægilega.
3 Móðir svipt börnunum: Fundust sofandi úti í bíl
Lét börnin sofa í bílnum meðan hún
freistaði gæfunnar í spilakassa.
4 Árleg bragðkönnun á hamborg-arhryggjum: Sjáðu hver vann
Hamborgarhryggur Fjarðarkaupa
varð hlutskarpastur í bragðkönnun-
inni þetta árið.
5 Ed Westwick leiddi íslenskar stúlkur upp á hótel
Leikarinn úr Gossip Girl stóð undir
nafni í Reykjavík.
6 Risaskuldir skildar eftir í gjaldþrota félagi
Eignarhaldsfélag Magnúsar Ármann
og Þorsteins M. Jónssonar, Steina í
Kók, Runnur ehf., hefur verið tekið til
gjaldþrotaskipta.
Linda Rós Alfreðsdóttir er
verkefnastjóri Evrópuársins 2010 en
markmiðið í ár var að auka umræðu um
félagslega einangrun og fátækt.
Hver er manneskjan?
„Verkefnastjóri Evrópuársins hjá félags- og
tryggingamálaráðuneytinu í baráttu gegn
fátækt og félagslegri einangrun.“
Í hverju felst verkefnið?
„Verkefnið er fjölþætti og felst meðal
annars í að skapa umræðu um fátækt og
félagslega einangrun í samfélaginu og að
styrkja verkefni þar að lútandi.“
Þekkir þú fátækt af eigin raun?
„Ég hef verið það lánsöm að hafa ekki
búið við fátækt en ég hef kynnst fátækt
frá ýmsum sjónarhornum, ég hef unnið
með götubörnum á Indlandi þar sem mikil
fátækt var til staðar og í gegnum verkefnið
hef ég kynnst mörgum hliðum fátæktar og
félagslegra einangrunar.“
Hvað þurfum við að gera betur?
„Við þurfum að vinna að því að skapa fólki
tækifæri til þess að verða sjálfsbjarga. Með
því að gefa manni fisk þá mettar þú hann
í einn dag en ef þú kennir honum að veiða
seður þú hungur hans til frambúðar.“
Hvað mega fjölmiðlar gera betur?
„Yfirveguð og fordómalaus umræða hjá
fjölmiðlum er nauðsynleg þegar verið er að
fjalla um fátækt og félagslega einangrun.
Það verður einnig að fjalla um fátækt
og félagslega einangrun frá mörgum
sjónarhornum og gæta þess að umræðan
verði ekki einhæf. Það er mikilvægt að rödd
þeirra sem búa við fátækt og félagslega
einangrun heyrist og þar geta fjölmiðlar
leikið stórt hlutverk.“
Standa einhverjir fjölmiðlar sig betur en
aðrir?
„Umræðan hefur stóraukist síðastliðin
ár og því ber að fagna. Við höfum séð að
umræðan er að breytast og fjallað er um
fátækt frá fleiri hliðum en út frá biðröðum
eftir mat. Erfitt er að tilgreina einn fjölmiðli
sérstaklega en þess má geta að fyrir stuttu
hlaut blaðamaður frá DV blaðamannaverð-
laun í tilefni Evrópuársins 2010 og í öðru
sæti var einnig grein sem hafði birst í DV.“
„Christmas Time með Cliff Richards.“
Sigríður Elín Ásgeirsdóttir
34 ára, vinnur í banka og Valgerður Sólborg 2 ára
„Ó, helga nótt.“
Ásgeir Hannes Eiríksson
63 ára, sestur í helgan stein
„Ætli það sé ekki bara All I Want for
Christmas is You með Mariah Carey.“
Birgitta Ólafsdóttir
17 ára, nemi í MR
„Jólalagið með Queen.“
Rakel Garðarsdóttir
33 ára, vinnur fyrir Vesturport
„Jingle Bells.“
Pétur Birgir Birgisson
15 ára, meistari
Mest lesið á dv.is Maður dagsins
Hvaða lag er uppáhaldsjólalagið þitt?
Ef ég nenni Helgi Björnsson taldi það ekki eftir sér að syngja nokkur vel valin lög með Stórsveit Reykjavíkur í Ráðhúsinu
á sunnudaginn. „Ég held að þessi texti sé ennþá umdeildur,“ sagði Helgi áður en talið var í jólalagið þekkta. Mynd SiGtRyGGuR ARi
Myndin
Hvenær á ráðherra að beita valdi sínu?
Dómstóll götunnar
„Að ákæra fólk
fyrir glæp sem
ekki var framinn, brýtur í
bága við allar almennar
hugmyndir um mannúð
og réttlæti.
Aðsent
Eva
Hauksdóttir