Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2010, Side 20
20 | Fókus 20. desember 2010 Mánudagur
Allir fá þá
eitthvað fallegt
Fyrir þá sem huga enn að jólagjafa-
kaupum er jólasýning Handverks og
hönnunar opin í Aðalstræti 10.
„Allir fá þá eitthvað fallegt“ er sölu-
sýning þar sem 24 aðilar sýna íslenskt
handverk, listiðnað og hönnun og
eru munir afhentir í sýningarlok. Allir
munirnir á jólasýningunni eru nýir en
sérstök valnefnd valdi inn á sýning-
una.
8 myndir til jóla
Það er gaman að fara í bíó á jólunum
mitt í öllu stressinu og Bíó Paradís
býður upp á átta nýklassískar myndir
til jóla sem óhætt
er að mæla með.
Það er gaman að
sjá klassíkina á
kvikmyndatjaldi
og myndirnar
eiga það allar
sameiginlegt að
þykja standast
tímans tönn ákaf-
lega vel; Das Boot er tvímælalaust
besta kafbátamynd allra tíma og með
allra bestu stríðsmyndum, Ghost-
busters þykir ein skemmtilegasta og
fáránlegasta gamanmynd síðari tíma.
Þá er ómissandi ein fallegasta stelp-
umynd sem gerð hefur verið; Fried
Green Tomatoes, hin óborganlega
Tootsie og Óskarsverðlaunamynd-
in My Left Foot og The Fisher King.
Þessar sýningar Bíós Paradísar eru
upphafið að reglulegum sýningum á
hvers kyns eldri kvikmyndum víðs-
vegar að úr heiminum og bíóið fær
lof fyrir að brjóta upp sýningarhald í
kvikmyndahúsum borgarinnar með
skemmtilegheitum. Stemningin í Bíói
Paradís er hlýleg og skemmtileg og
skipulag hússins þykir hafa heppnast
með eindæmum vel.
Harður jólapakki
Fjórar af þéttustu hljómsveitum
landsins halda sameiginlega tón-
leika í leikhúsinu Norðurpóln-
um á Seltjarnarnesi þriðjudags-
kvöldið 21. desember til að kynna
plöturnar sem þær gáfu út á árinu.
Allar hafa þær fengið framúrskar-
andi dóma og þar sem þær spanna
bilið frá lágstemmdri sálartónlist
upp í tryllt byltingarfönk verður
þetta fjölbreytt tónleikadagskrá.
Hljómsveitirnar fjórar eru Moses
Hightower, sem flytur lög af Búum
til börn, Jónas Sigurðsson, sem
flytur lög af plötunni Allt er eitt-
hvað, Ómar Guðjónsson flytur af
Von í óvon og Samúel Jón Sam-
úelsson og Big Band leika lög af
Helvítis fokking funk.
Viljir þú styrkja gott málefni er um
margt að velja fyrir jólin og slíkar
gjafir gleðja ávallt á marga mögu-
lega vegu.
Úrval UNICEF á Íslandi af jólagjöf-
um sem eru til góðs er afar fjöl-
breytt.
Eva Hrönn Steindórsdóttir hjá
UNICEF segir forláta jólakúlu vera
með vinsælli vörum þeirra.
„Jólakúlan okkar er einstaklega
vinsæl. Hún er einstök hvert ár og
hönnuð í samstarfi við börn. Marg-
ir eru að safna henni og hún hef-
ur verið framleidd frá árinu þá er
svo margt annað fallegt í boði. Eva
Hrönn nefnir sem dæmi forláta lát-
únsskraut, reykelsi og reykelsis-
stand, falleg kerti og matvörur sem
leiða hugann að þeim vörum sem
notaðar eru til hjálparstarfs.
Af leikföngunum þá er mjúk-
ur bangsi allra vinsælastur og það
er líka skemmtilegt læknasett sem
minnir þá hjálp sem börn heimsins
þurfa en er ekki alltaf til reiðu.“
Gjafavara og leikföng UNICEF
eru seld í Bókabúð Máls og menn-
ingar við Laugaveg. Þeir sem kom-
ast ekki í verslunina geta fengið
vörurnar sendar til sín.
„Það verður líka æ vinsælla að
að velja jólakort frá Barnahjálpinni
og þau má nálgast mjög víða, til
dæmis á pósthúsum um allt land.
Það er gaman að segja frá því að
þau hafa verið seld á Íslandi í nærri
hálfa öld og eru mikilvægur liður
í fjáröflun okkar en allur ágóði af
sölu kortanna rennur til verkefna
Barnahjálparinnar.“
Jólagjafakaupin geta verið til góðs:
Jólakúlan er vinsælust
Jólakúlan þykir eiguleg
Eva Hrönn segir marga kaupa jólakúluna
hvert ár . Kúlan er ávallt hönnuð í samstarfi
hönnuða og barna.
„The Empire Strikes Back er af öll-
um gagnrýnendum talin besta Star
Wars-myndin og ég er því sammála,“
segir Hugleikur Dagsson sem stend-
ur að þemasýningunni Star Wars 2
með félaga sínum myndlistarmann-
inum Davíð Erni Halldórssyni í til-
efni af 30 ára afmæli myndarinnar á
árinu. „Hún heitir Star Wars 2 þótt
auðvitað hafi málin verið flækt síð-
ar meir þannig að nú er hún núm-
er fimm. Ég veit ekki hvort það var
hún sem hóf þetta ferli að hafa mynd
númer tvö í seríunni kaldari og ógn-
vænlegri en fyrstu myndina. En í
myndinni er lífið erfiðara en í þeirri
fyrstu, atburðarásin á sér stað annað-
hvort á ísplánetu eða fenjasvæði.
Hápunkturinn er auðvitað heim-
ilisofbeldið og senan þar sem faðir-
inn heggur höndina af syni sínum.
Bardaginn á snjóplánetunni finnst
mér einstaklega eftirminnilegur og
ein fallegasta sena sem ég veit um.
Myndin endar líka á því að lífið sökk-
ar og endirinn finnst mér vera einn
sá besti í kvikmyndasögunni. Það fer
bókstaflega allt í hönk en því er samt
einhvern veginn lofað líka að öllu
verði reddað. Spennuþrungin eft-
irvænting eftir næstu mynd verður
auðvitað mikil.“
Wampa-skrýmslið mörgum
hugstætt
Hugleikur varð var við það í sumar
þegar myndin varð 30 ára að listamenn
voru ötulir við alls kyns listgjörninga
og hönnun tengda myndinni og hann
sjálfur er hrifinn af slíkri tegund listar
sem mætti kalla „tribute“-list.
„Það er ekki mikið um „tribute“-
listaverk á Íslandi, við eigum það til
að taka okkur svolítið alvarlega. Ís-
land má hins vegar alveg verða popp-
aðra. Mig langaði sjálfan að vinna verk
í anda myndarinnar og mig langaði
líka að sjá aðra gera slík verk því það er
gaman að sjá hvað fólki dettur í hug.“
Hugleikur sendi boð á fjölda
listamanna og þeir tóku vel í það.
„Ég fékk Davíð til að hjálpa mér af
því að hann er svo klár að halda
utan um sýningu eins og þessa.
Hátt í tuttugu listamenn eru með
verk á sýningunni, til að mynda,
Jóhann Torfason, Sigga Björg Sig-
urðardóttir, Örvar Þóreyjarson og
þarna er Þorri Hringsson sem er
með skemmtilegt verk, Sara Riel
og Bjössi Biogen og Mr. Silla með
hljóðverk.“
Hugleikur segir Wampa-
skrímslið hafa verið mörgum af
þeim listamönnum sem tóku þátt í
sýningunni hugstætt. Þar á meðal
honum. „Ég teiknaði mína útgáfu af
Wampa-skrímslinu sem er skrímsli
sem rotar Luke í myndinni.“
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is
Prímanördasýning ársins, Star Wars 2, í Crymo galleríi, fjallar um stjörnustríðskvikmyndina The Empire Strikes
Back. Hugleikur Dagsson heldur mikið upp á myndina og verður með verk á sýningunni:
Megi mátturinn
vera memm
Með hugann við algeiminn Hugleikur
Dagsson stendur að sýningunni og vinur hans
myndlistarmaðurinn Davíð Örn Halldórsson
verður einnig með verk á sýningunni.
Philippe Clause fluttist til Íslands
frá Frakklandi fyrir nokkrum árum.
Hann hefur aflað sér góðs orðstírs fyrir
frumlega heklaðar flíkur og ýmsar vör-
ur sem hann hefur hannað úr endur-
unnum vörum.
Hann segist hafa fundið hjá sér
þörfina til þess að búa til eitthvað í
höndunum í upphafi kreppunnar. „Þá
hittumst við félagarnir og ræddum
saman eina kvöldstund að við ættum
allir að reyna að gera eitthvað bæði
jákvætt og róttækt. Ég lærði að hekla
og hóf að sanka að mér efni og flíkum.
Ég var í raun að bregðast við þessum
hamförum og að mínu viti speglast
umhverfið hér og ástandið í þjóðfélag-
inu í allri hönnun, líka minni.
Philippe fór að búa til trefla, klúta,
sjöl, ábreiður trefla úr gömlu efni og
gömlum fötum undir merkinu Esu-
alc. „Þekktastir eru treflarnir mínir
með andlitsskýlinu, sem hentar vel til
að berjast gegn íslensku veðri og vind-
um,“ segir hann og hlær.
Philippe sankar að sér efniviðnum
til hönnunarinnar á flóamörkuðum og
búðum sem selja notuð föt, til dæmis
hjá Rauða krossinum. Hann fær einnig
efnivið frá vinum sem eru gjarnir á að
láta honum eftir forláta flíkur. „Sjálfur
vil ég endilega ekki fá fötin upp í hend-
urnar því það er leitin sem er skemmti-
legust og ég kaupi oft föt sem gætu lík-
lega talist hræðilega ljót og hafa jafnvel
skemmtanagildi fyrir vikið. Síðan sker
ég þau niður og endurvinn í allt annað
form og þá tekur það breytingum sem
er líka afar spennandi hluti ferlisins.“
Hannar úr ljótustu flíkum sem völ er á:
Heklar í kreppunni
Listamaðurinn í hönnun sinni
Philippe klæðist forláta slá sem hann bjó
til úr fatagörmum sem enginn annar vildi
líta við.
Pólýfónía í
pakkann
Platan Pólýfónía frá Apparat Org-
an Quart et, gefin út af 12 tónum, er
vægast sagt áhugaverð. Hún inniheld-
ur 9 ný lög sem
fá innblástur úr
ýmsum áttum,
m.a. frá þýska vís-
indamanninum
Alfred Wegener
og höfuðriti hans
Myndun meginlanda og úthafa. Einnig
er lag á plötunni tileinkað föður gufu-
tölvunnar, Charles Babbage, og af öðr-
um áhrifavöldum sem koma við sögu
má nefna The Ramones, Motorhead,
Karlheinz Stockhausen, Buxtehude
og Pólýfónkórinn. Nokkrum lögunum
fylgja dansar sem hljómsveitin hefur
samið og verða þeir kynntir síðar.