Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2011, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2011, Blaðsíða 4
4 | Fréttir 15.–17. apríl 2011 Helgarblað Bæjarlind 6, Kópavogi, sími 517 6067. Opið mán. - fös. 10 -18, laug. 11-16. 10% afsláttur hjá F&B þýðir FRÁBÆRT VERÐ til neytenda! Flísa & Baðmarkaður­ inn er eins árs! Þökkum frábærar vitökur! Í tilefni afmælisins er 10% afsláttur af öllum vörum vikuna 11. til 16. apríl. Gerðu góð kaup! Hlaut fyrstu verðlaun í Sviss Í vikunni var haldin alþjóðleg ráð­ stefna í Lausanne í Sviss um rann­ sóknir í ferðaþjónustu þar sem 100 þátttakendur frá um 70 helstu há­ skólum á þessu sviði lögðu fram rannsóknar­ verkefni sín. Ráðstefnan, sem haldin er á vegum Travel & Tour ism Re­ search Association, er árlegur við­ burður. Að þessu sinni var það Ís­ lendingur, Einar Svansson, sem hreppti fyrstu verðlaun (Best Paper Award) fyrir rannsóknarverkefni sitt, Open innovation with Lead users: the case of the Blue Lagoon, Iceland. Verkefnið er hluti af doktorsritgerð Einars við Exeter­háskóla í Bretlandi en Einar starfar einnig sem lektor við Viðskiptafræðideild Háskólans á Bifröst. Eins og nafnið gefur til kynna lýtur rannsókn Einars að Bláa lóninu en viðfangsefni verkefnisins er að rannsaka leiðandi notendur þjónustufyrirtækja og tengsl þeirra við nýsköpun. Stúlkan sem fékk hjartastopp er ekki vöknuð: „Ekkert meira hægt að gera“ „Staðan er sú að það er eiginlega engin staða. Það er búið að slökkva á svæfingunni og við vitum ekkert hvað gerist,“ segir Helena Hauksdótt­ ir, vinkona Hrannar Benediktsdóttur sem fékk hjartastopp fyrir tæpum tveimur vikum. Hrönn var stödd á Billiardbarnum í Faxafeni þegar at­ vikið átti sér stað en henni var haldið sofandi á Landspítalnum í Fossvogi þar til fyrr í vikunni. Helena segir að sú ákvörðun hafi verið tekin að slökkva á svæfingunni og vonast hafi verið til að Hrönn myndi vakna við það. Það hafi hins vegar ekki gerst ennþá. „Við verðum bara að bíða og sjá hvað gerist. Tím­ inn verður að leiða þetta í ljós,“ segir hún og bætir við að Hrönn sé líkam­ lega hraust og því verði þau að halda í vonina. „Maður vill alltaf vona að þetta fari vel en það er ekkert meira hægt að gera.“ Helena stofnaði Face­ book síðu fljótlega eftir atvikið þar sem hún bað íslensku þjóðina um að sameinast í bæn og biðja fyrir vin­ konu hennar. Á síðunni skrifar Hel­ ena einnig að hún komist ekki hjá því að hugsa til þess að ef einhver á staðnum hefði hafið endurlífgun strax væri staðan önnur. Enginn sem var staddur á Billiardbarnum þegar atvikið á sér stað kunni skyndihjálp. Nokkrar mínútur liðu þar til sjúkra­ flutningamenn mættu á staðinn og endurlífgun hófst. „Ég vil reyna að berjast fyrir því að kennsla í skyndi­ hjálp verði fastur liður í grunnskól­ um, menntaskólum og á vinnustöð­ um og ég held að besta leiðin til þess séu fjölmiðlar. Mig langar að vekja athygli almennings á því hversu mik­ ilvægt þetta er og hvernig þetta varð­ ar okkur öll. Ég hafði hugsað mér að koma á fót styrktarátaki til þess að koma þessu af stað,“ segir Helena að lokum á Facebook­síðunni. gunnhildur@dv.is Bíða og vona „Það er búið að slökkva á svæfingunni,“ segir vinkona Helenu. Hrönn Bene- diktsdóttir. Karl Wernersson, fyrrverandi eigandi Milestone, og Sigríður Jónsdóttir, fyrr­ verandi eiginkona hans, takast nú á fyrir dómstólum, en Sigríður hefur stefnt fyrrverandi eiginmanni sínum. Hjónin skildu árið 2004 og sam­ kvæmt heimildum DV gerðu þau samninga sín á milli við skilnað­ inn sem kváðu á um skiptingu eigna þeirra. Ætla má að Sigríður hafi við skilnaðinn fengið að minnsta kosti nokkur hundruð milljónir króna í sinn hlut þar sem Karl hefur verið sterkefnaður um nokkurt skeið. Matsmenn kvaddir til Hugsanlegt er að Karl hafi ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart Sigríði eða að forsendur samninganna sem þau gerðu sín á milli séu brostnar og því þurfi að endurmeta þá, og að umrætt dómsmál sé höfðað vegna brota á þessum samningum. Í slíkum skilnaðarmálum geta samningarn­ ir jafnvel náð nokkur ár fram í tím­ ann og er ekki ólíklegt að svo hafi verið í þessi tilfelli jafnvel þó að nokkur ár séu liðin frá skilnaðin­ um. Þannig getur til dæmis vel ver­ ið að í samningunum á milli Karls og Sigríðar hafi verið kveðið á um að Karl, eða Sigríður, hafi átt að láta hinn samningsaðilann fá einhverja eign eða fjármuni fyrir skömmu. Þann 8. apríl síðastliðinn voru kvaddir til matsmenn vegna máls­ ins í Héraðsdómi Reykjavíkur. Nánast má fullyrða að tilgangur matsmannanna sé að endurmeta einhverjar eignir sem komu til skiptanna við skilnað Karls og Sig­ ríðar á sínum tíma. Man ekki hvort þau gerðu kaupmála Karl, sem er framkvæmdastjóri og eigandi Lyfja og heilsu, vildi í sam­ tali við DV hvorki játa því né neita að málið tengdist skilnaði hans og Sig­ ríðar á einhvern hátt. „Ég skildi held ég 12. ágúst 2004,“ sagði Karl. „Ég get bara sagt þér þetta eina um málið,“ bætti hann við þegar blaðamaður innti hann eftir því hvort dómsmál­ ið tengdist skilnaðaruppgjörinu. Að­ spurður sagðist Karl ekki muna hvort hann og fyrrverandi kona hans hefðu gert kaupmála sín á milli á hjúskap­ arárum sínum, líkt og stundum er gert þegar efnaðir einstaklingar eiga í hlut. Kaupmála er hægt að gera ann­ aðhvort þegar gengið er í hjónaband eða síðar. Við kaupmála myndast séreign sem annað hvort hjóna á og tilheyrir ekki sameiginlegu búi. Slík séreign er því undanþegin skiptum ef til skilnaðar kemur. Þegar blaða­ maður spurði Karl hvort það væri ekki eðlilegt að maður í hans stöðu gerði kaupmála svaraði hann: „Hvað er eðlilegt? Ég veit eiginlega ekk­ ert hvað er eðlilegt. Ég læt bara lög­ mennina mína ráðleggja mér um allt saman.“ Ólafur Eiríksson, lögmaður Karls, vildi ekki tjá sig um mál skjól­ stæðings síns þegar DV hafði sam­ band við hann. Algengt að samið sé um greiðslur til margra ára Lögmenn, sem DV hafði samband við og tengjast málinu ekki, töldu nánast öruggt að dómskvaðning matsmanna í umræddu máli væri til komin vegna þess að Sigríður, sem er hjúkrunarfræðingur, telji að sameiginlegt bú þeirra sé meira virði en talið var þegar samningur­ inn var gerður, eða að hún telji sig ekki hafa fengið það sem hún átti að fá samkvæmt samningnum. Lög­ maður sagði í samtali við DV að ef þau hefðu gert á milli sín skiln­ aðarsamning væri hugsanlegt að hún væri að reyna að fá hann end­ urupptekinn. Lögmaðurinn sagði það jafnframt vera algengt, ef ann­ ar makinn í hjónabandi væri mjög efnaður en hinn með lágar tekjur eða jafnvel heimavinnandi, að við skilnað væri gerður samningur á milli hjóna um ákveðnar greiðslur í ákveðinn fjölda ára. Í sumum tilfell­ um væri um einhvers konar lífeyris­ greiðslur að ræða. Breyttar aðstæður með efnahagshruni Karl átti fjárfestingarfélagið Mile­ stone með systkinum sínum, Steingrími og Ingunni, en Werner Rasmus son faðir þeirra fyrirfram­ greiddi þeim arf árið 1999 með því skilyrði að þau settu peningana í eignarhaldsfélag sem þau áttu saman. Karl átti þó stærstan hlut í Milestone, eða 41 prósent. Mile­ stone átti meðal annars trygginga­ félagið Sjóvá og fjárfestingarbank­ ann Askar Capital. DV greindi frá því snemma árs 2009 að eignir Karls hefðu verið metnar á um 65 milljarða króna þegar útrásin stóð sem hæst árið 2007. Karl fór þó ekki varhluta af efnahagskreppunni, en Milestone varð gjaldþrota í sept­ ember árið 2009 eftir að kröfu­ hafar höfnuðu nauðasamningum. Hugsanlegt er að Karl hafi brotið einhver ákvæði í samningunum á milli þeirra hjóna þar sem aðstæð­ ur hafa óneitanlega breyst í kjöl­ far efnahagshrunsins. Samkvæmt tekjublaði DV frá því síðasta haust var Karl með tæpar ellefu hundruð þúsund krónur í mánaðarlaun árið 2009. Sigríður, fyrrverandi eiginkona Karls, vildi ekki tjá sig um málið þegar DV hafði samband við hana. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is FYRRVERANDI STEFNIR KARLI n Sigríður Jónsdóttir stefnir Karli Wernerssyni n Karl man ekki hvort þau gerðu kaupmála n Ætla má að hann hafi ekki staðið við skuld- bindingar skilnaðarsamnings n Búið að kveða til matsmenn í málinu„Hvað er eðlilegt? Ég veit eiginlega ekkert hvað er eðlilegt. Stóð hugsanlega ekki við skuldbindingar Karl Wernersson vildi hvorki játa því né neita í samtali við DV að málið tengdist skilnaðaruppgjöri hans. Lilja, Atli og Ás- mundur stofna þingflokk Lilja Mósesdóttir íhugar nú að stofna nýjan stjórnmálaflokk í sam­ starfi við Atla Gíslason og Ásmund Einar Daðason. Hann verður form­ lega stofnaður eftir helgina. Frétta­ miðillinn Vísir.is greindi frá þessu í gærkvöldi, fimmtudag. Þar kom fram að þau Lilja, Atli og Ásmundur Einar hefðu fundað í gær, miðviku­ dag, um breytta stöðu eftir úrsögn Ásmundar Einars úr þingflokki vinstri grænna. Þar var ákveðið að stofna nýjan þingflokk. Fram kemur að nafnið á flokknum hafi ekki end­ anlega verið ákveðið enda þurfi að velja vel. Haft var eftir Lilju að nýr þingflokkur muni auðvelda þeim að hafa áhrif í þinginu, óháðir þing­ menn fái meðal annars ekki upp­ lýsingar um dagskrá þingsins. Einnig var haft eftir henni að hún sé nú að kanna skilyrði þess að stofna nýjan stjórnmálaflokk til höfuðs VG fyrir næstu Alþingiskosningar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.