Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2011, Blaðsíða 16
16 | Fréttir 15.–17. apríl 2011 Helgarblað
Um tuttugu starfsmenn lyfjafyrir-
tækisins Actavis á Íslandi munu
flytja til bæjarins Zug í Sviss þar sem
höfuðstöðvar fyrirtækisins verða. Er
um að ræða framkvæmdastjórn Ac-
tavis á heimsvísu. Gert er ráð fyrir
að um 150 starfsmenn verði í höfuð-
stöðvunum í Sviss. Þetta staðfest-
ir Benedikt Sigurðsson, sviðsstjóri
samskiptasviðs Actavis, við DV.
Skattalegt hagræði
„Starfsmenn Actavis eru rúmlega
10 þúsund í dag og þar af yfir 700 á
Íslandi. Starfsemi Actavis fer fram í
um 40 löndum. Með þessu flyst öll
alþjóðastarfsemin á einn stað. Fólk
frá öllum heimshornum er að flytja
til Sviss. Gera má ráð fyrir að þegar
allir verði komnir til Zug verði þar
um 150 starfsmenn,“ segir Benedikt.
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir,
forstjóri Actavis á Íslandi, lét nýlega
hafa eftir sér í fjölmiðlum að ástæða
þess að framkvæmdastjórnin væri
að flytja sig til Sviss væri skortur
á hæfu starfsfólki á Íslandi. Með
því að flytja höfuðstöðvarnar til
Sviss hafi fyrirtækið betra aðgengi
að hæfu fólki úr lyfjageiranum frá
löndum eins og Sviss, Þýskalandi og
Austurríki.
Því hefur þó verið haldið fram
að ástæðan sé ekki síst skattalegt
hagræði. Bæði fyrir fyrirtækið sem
og starfsmenn. Á fundi Félags við-
skipta- og hagfræðinga þann 5. apríl
síðastliðinn lét Guðbjörg hafa eftir
sér að skattaumhverfið í Sviss væri
mjög hagstætt. Bæði fyrir fyrirtæki
og starfsfólk.
14 lykilstarfsmenn eiga hlut í
Actavis
Við fjárhagslega endurskipulagn-
ingu Actavis varð félagið Argon
Equity S.á.r.l. meirihlutaeigandi
í lyfjafyrirtækinu. Fréttatíminn
fjallaði um þetta félag í lok febrúar.
Þar kom fram að langstærsti hlut-
hafi Argon Equity væri Björgólfur
Thor Björgólfsson í gegnum félagið
Nitrogen DS Ltd. sem skráð er á Tor-
tóla.
Hins vegar eiga fjórtán lykil-
starfsmenn hjá Actavis líka hlut í
Argon Equity, þar af sex Íslending-
ar. Samkvæmt þjóðskrá hafa þrír
þeirra þegar flutt lögheimili sitt til
Sviss. Það eru þau Guðrún Sigríður
Eyjólfsdóttir, yfirmaður gæðastjórn-
unar, Gunnar Ágúst Beinteinsson,
yfirmaður mannauðsstjórnunar, og
Stefán Jökull Sveinsson, yfirmaður
þróunarsviðs. Benedikt segist ekki
vera með upplýsingar um hversu
mikið hlutafé starfsmenn Actavis
eigi í Argon Equity.
Heimildarmaður DV segir að
stefnt sé að sölu Actavis á næstu
þremur til fimm árum. Þegar það
gerist muni þeir 14 lykilstarfsmenn
Actavis sem eiga hlut í félaginu lík-
lega geta innleyst töluverðan hagn-
að. Af þeim hagnaði þyrfti síðan að
greiða fjármagnstekjuskatt sem er
mun lægri í Zug í Sviss en á Íslandi.
Fjármagnstekjuskattur á Íslandi
hækkaði úr 10 prósentum í 15 pró-
sent 1. janúar árið 2009. 1. janúar
2010 var hann síðan hækkaður í 18
prósent og hefur verið 20 prósent
frá 1. janúar á þessu ári. Fjármagns-
tekjuskattur í Zug í Sviss er hins veg-
ar einungis 8,5 prósent.
Erlendir sérfræðingar flytja ekki
til Íslands
Benedikt segir að það sé útbreidd-
ur misskilningur að skráning á Ac-
tavis hafi verið flutt til Sviss. Mik-
ilvægt sé að það komi fram að
Actavis Group sé íslenskt fyrir-
tæki með íslenska kennitölu og
heimilisfesti í Hafnarfirði. Á Ís-
landi starfi enn yfir 700 starfs-
menn. „Hvað starfsfólkið varðar
blasir við að fólk með alþjóðlega
reynslu í lyfjageiranum er af mjög
skornum skammti á Íslandi og
þeir sem hér eru eru við störf hjá
lyfjafyrirtækjum, bæði hjá Actavis
sem og öðrum. Fólk sem nú þegar
vinnur hjá Actavis á Íslandi er allt
í hæsta gæðaflokki. En það hefur
reynst erfitt að sannfæra fólk úti
í heimi um að flytjast til Íslands,“
segir hann. Benedikt segir að ekki
sé stefnt að því að fjölga í yfirstjórn
Actavis vegna flutningsins til Sviss.
Actavis nýtur ekki sérkjara í
Sviss
DV hafði samband við bæjaryfirvöld
í Zug í Sviss til þess að spyrjast fyrir
um hvort sérstakur samningur hefði
verið gerður við Actavis og starfs-
menn þess. Zug hefur verið sérstak-
lega duglegt við að laða til sín fyrir-
tæki í lyfja- og hátækniiðnaði. Dr.
Hans Marti, yfirmaður og kynning-
arfulltrúi efnahags- og viðskipta-
mála í Zug, segir að bæði Actavis
og starfsmenn þess sem starfi í Zug
séu skattlögð í samræmi við hefð-
bundin skattalög sem gildi í Sviss og
kantónum þess. „Enginn sérstakur
samningur hefur verið gerður við
fyrirtækið eða einstaka starfsmenn
þess,“ segir hann.
„Heimildarmaður DV
segir að stefnt sé
að sölu Actavis á næstu
þremur til fimm árum.
ActAvis til skAttA
pArAdísAr í sviss
n Framkvæmdastjórnin til Sviss þar sem nýjar höfuðstöðvar verða n Skortur á
hæfu fólki í lyfjageiranum á Íslandi n Skattalegt hagræði gæti falist í flutningnum
Höfuðstöðvar Actavis flytur
til Sviss. Þar verða nýjar höfuð-
stöðvar og um 20 starfsmenn frá
Íslandi flytja þangað.
mynd Sigtryggur Ari
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
Bærinn Zug í Sviss er smábær með
einungis um 27 þúsund íbúa. Zug er
við nokkuð stórt vatn í um 35 kíló-
metra fjarlægð frá Zürich, annarri
af helstu fjármálaborgum Sviss, þar
sem einnig er alþjóðaflugvöllur.
Laða til sín fyrirtæki
Á síðustu árum hefur bærinn ver-
ið duglegur að laða til sín alþjóðleg
fyrirtæki vegna hagstæðs skattafyrir-
komulags. Sem dæmi er fyrirtækja-
skattur í Zug einungis 8,5 prósent.
Í dag eru um 27 þúsund fyrirtæki
skráð í Zug eða eitt fyrirtæki á hvern
íbúa. Yfirvöld í Zug hafa haft það að
leiðarljósi að laða til sín fyrirtæki
með hagstæðu skattaumhverfi allt
frá árinu 1946.
Lítið af limmósínum
Þekktasti íbúi Zug er líklega þýski
tenniskappinn Boris Becker sem
flutti þangað til að flýja óhagstætt
skattaumhverfi Þýskalands. Gerðist
það eftir að hann var dæmdur fyrir
skattabrot í heimalandinu árið 2002.
Þrátt fyrir að vera heimili margra
auðkýfinga ber Zug þó ekki með sér
einkenni staða eins og Mónakó, svo
dæmi sé tekið. Þar sést lítið af spila-
vítum eða limmósínum. Þar er þó
veglegt listasafn þar sem Ólafur Elí-
asson var með sýningu árið 2009.
Heimili Kimi räikkönen
Eitt þekktasta fyrirtækið í Zug er
Nord Stream. Rússneska félagið
Gazprom á 51 prósent í Nord Stream
sem var stofnað vegna lagningar
1.200 kílómetra gasleiðslukerfis á
milli Vyborg í Rússlandi og Greifs-
wald í Þýskalandi en þannig á að
koma gasi frá Rússlandi til Evrópu.
Hefur þetta verkefni sætt töluverðri
gagnrýni en það var kynnt af Ger-
hard Schröder, þáverandi kanslara
Þýskalands, og Vladimir Pútin, þá-
verandi forseta Rússlands árið 2005.
Um þrjú prósent af öllum olíu-
viðskiptum heims fara í gegnum
fyrirtæki í Zug eða í gegnum bæinn
Baar, sem liggur nærri Zug og er líka
þekktur vegna hagstæðs skattaum-
hverfis. Í Baar var danska fyrirtækið
Lego með höfuðstöðvar sínar til árs-
ins 2006. Þar býr líka finnski ökuþór-
inn Kimi Räikkönen.
27 þúsund fyrirtæki voru skráð í Zug 2008:
Eitt fyrirtæki
á hvern íbúa
Flúði þýskt skattaumhverfi Þýski
tenniskappinn Boris Becker er einn
þekktasti íbúi Zug.
Actavis enn íslenskt Benedikt Sigurðs-
son, sviðsstjóri samskiptasviðs Actavis,
segir mikilvægt að fram komi að Actavis
sé áfram íslenskt fyrirtæki með íslenska
kennitölu.
Engin sérmeðferð Dr. Hans Marti, yfir-
maður og kynningarfulltrúi efnahags- og
viðskiptamála í Zug, segir að Actavis og
starfsmenn þess njóti engra sérkjara í Zug
umfram aðra.