Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2011, Side 19
Fréttir | 19Helgarblað 15.–17. apríl 2011
Kona fékk miskabætur vegna áreitni yfirmanns:
Isavia áfrýjar dómnum
Isavia hefur ákveðið að áfrýja dómi
Héraðsdóms Reykjaness þar sem
fyrirtækið var dæmt til að greiða
1,8 milljónir í miskabætur. Miska-
bæturnar voru dæmdar konu,
sem var starfsmaður fyrirtækisins,
vegna kynferðislegrar áreitni yfir-
manns.
Forsaga málsins er sú að kon-
an fór ásamt yfirmanni sínum,
framkvæmdastjóra öryggissviðs
Keflavíkurvallar, og yfireftirlits-
manni fyrirtækisins í sumarbústað
í Grímsnesi. Tilgangur ferðarinnar
var að fara yfir breytingar í starfi
hennar sem áttu meðal annars
að fela í sér aukna ábyrgð. Fram-
kvæmdastjórinn og yfireftirlits-
maðurinn fóru í heitan pott við
bústaðinn eftir að störfum lauk og
reyndi framkvæmdastjórinn ítrek-
að að fá konuna í pottinn, sam-
kvæmt dómnum. Hún neitaði þar
sem hún var ekki með sundföt en
fyrir áeggjan manna settist hún í
stól við pottinn en tók þá eftir að
framkvæmdastjórinn var nakinn í
pottinum.
Fyrir dómi sagði konan að hún
hafi í kjölfarið farið inn í svefnher-
bergið sitt og lokað sig af, enda lið-
ið verulega illa yfir stöðunni. Kon-
an setti þá ferðatösku fyrir hurðina
til að verða vör við ef einhver
reyndi að komast inn í herberg-
ið. Um klukkustund síðar bankaði
framkvæmdastjórinn á dyrnar og
ruddist að lokum inn í herbergið.
Konan fór þá fram og settist í sófa í
stofunni þar sem yfirmaður henn-
ar reyndi að fá hana til að halda
um hendur sínar. Á þessum tíma-
punkti sagðist konan hafa verið
mjög ráðvillt og liðið mjög illa. Hún
fór að lokum aftur inn í herbergi,
setti töskuna fyrir hurðina en þorði
ekki að fara á salernið um nóttina,
að því er fram kemur í dómnum.
gudni@dv.is
„Forsendurnar á bak við endurút-
reikninga bankanna eru ekki alltaf
ljósar. Við erum að skoða þetta bet-
ur,“ segir Svanborg Sigmarsdóttir,
upplýsingafulltrúi umboðsmanns
skuldara.
Háværar raddir hafa verið uppi
um að endurútreikningar bankanna
standist ekki lög. Lögfræðingar og
endurskoðendur hafa bent á að
lögin standist ef til vill ekki eignar-
réttarákvæði stjórnarskrárinnar auk
þess sem fjármálafyrirtækin hafi
rangt við í útreikningum sínum.
Vaxtavextir óheimilir
Sigurður G. Guðjónsson hæstarétt-
arlögmaður er einn þeirra sem sagt
hafa að lögin um endurútreikning
myntkörfulánanna standist ekki
eignarréttarákvæði stjórnarskrár.
Gunnlaugur Kristinsson endur-
skoðandi skrifaði grein í Fréttablað-
ið á dögunum þar sem hann túlkaði
aðferðafræði fjármálafyrirtækjanna
við endurútreikninginn á þann veg
að þau væru að gera tilraun til að
hagnast óeðlilega á kostnað lán-
takenda. Hann talaði meðal annars
um að SP fjármögnun reiknaði ígildi
refsivaxta og vaxtavaxta, sem væri
algjörlega óheimilt samkvæmt lög-
um um endurútreikning ólögmætra
gengislána. „Hér getur munað tug-
um ef ekki hundruðum þúsunda til
óhagræðis fyrir skuldara,“ skrifaði
hann.
Stjórnvöld bundin af
Hæstarétti
Árni Páll Árnason, efnahags- og
viðskiptaráðherra, segir í samtali
við DV, aðspurður um þessa gagn-
rýni, að löggjöfin um endurútreikn-
inga bankanna hafi verið sniðin ná-
kvæmlega eftir þeirri forskrift sem
lesa megi úr dómum Hæstaréttar.
Markmiðið hafi verið að flýta þessu
uppgjöri þannig að hver og einn
einstaklingur þurfi ekki að bíða úr-
lausnar fyrir dómi. „Allar uppgjörs-
reglur eru fengnar þaðan og ef menn
eru ósáttir við þær verða menn að
leita til Hæstaréttar,“ segir hann.
Árni bendir á að umboðsmað-
ur skuldara, sem fari með eftirlit
með útreikningunum, hafi skoðað
hundruð samninga og hafi enn ekki
fundið neina sem séu í ósamræmi
við lögin. Vel geti verið að eitthvað
eigi eftir að koma í ljós en úr því
verði þá að skera fyrir dómi.
Um þá gagnrýni að lögin gangi
gegn eignarréttarákvæði stjórnar-
skrárinnar segir Árni að stjórnvöld
telji sig bundin af dómum Hæsta-
réttar. „Hún byggir á því að menn
séu að gefa sér tiltekna hluti óháð
því hvað Hæstiréttur er búinn að
dæma.“
Misjafnir útreikningar
Svanborg segir embætti umboðs-
manns skuldara hafa fengið fjöl-
marga útreikninga frá einstakling-
um til að fara yfir. Um 170 erindi þess
efnis hafi borist í mars en embætt-
ið hafi ekki svarað þeim öllum. Hún
segir að erfitt hafi reynst að bera út-
reikningana saman á milli fjármála-
fyrirtækja og erfitt sé að vita hverjar
forsendurnar séu. Þess vegna hafi
embættið sent sams konar dæmi á
alla bankana og beðið um endur-
útreikning samkvæmt aðferðafræði
þeirra. Svör áttu að berast fyrir helgi.
„Við ætlum að fara yfir endurútreikn-
ingana og fáum einnig aðstoð Raun-
vísindastofnunar Háskóla Íslands
til að fara yfir þetta og meta hvernig
þetta er gert,“ segir hún.
Skerðing eignarréttar
Svanborg bendir á að gagnrýnin
hafi annars vegar snúist um útreikn-
ingana sjálfa og hvort þeir séu rétt
unnir. „Okkur sýnist að munur sé á
útreikningum á bílasamningum og
húsnæðissamningum, en við sjáum
það betur þegar við förum yfir end-
urútreikninga fjármálafyrirtækj-
anna á dæmunum okkar,“ segir hún
en niðurstöðu er að vænta fljótlega.
Hins vegar snúist gagnrýnin um
lögmæti laganna sjálfra; hvort þau
standist Evróputilskipanir um neyt-
endarétt og eignarréttarákvæði
stjórnarskrárinnar. Um það verði
dómstólar að skera úr en hún bendir
á að embættið hafi frá upphafi efast
um lögmæti laganna, bæði með tilliti
til Evróputilskipunar um neytenda-
rétt og út frá eignarréttarsjónarmið-
um.
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
„Allar uppgjörs
reglur eru fengnar
þaðan og ef menn
eru ósáttir við þær
verða menn að leita til
Hæstaréttar.
n Umboðsmaður skuldara bíður eftir svörum bankanna n Erfitt að bera saman útreikningana því
forsendur eru óljósar n Lögin hafa verið gagnrýnd harðlega og þau sögð brjóta gegn stjórnarskránni
Lánin reiknuð
á óLíkan hátt
Leitið til Hæstaréttar Árni Páll segir
lögin byggja á dómum Hæstaréttar. Þangað
verði þeir að leita sem telji þau brjóta gegn
stjórnarskránni.
Misjafnir útreikningar Umboðs-
maður skuldara kannar hvort
fjármálafyrirtækin hafi rangt við í
endurútreikningum myntkörfulána.
Geirsgötu 7b | Verbúð 2, 101 Reykjavík | S. 551 8484
Bossa Nova með Jussanam Dejah
og Andrési Þór kl. 21.oo föstudag
Kreólaréttur að hætti Eldu
borðapantanir í 588 8484
Keflavíkurflugvöllur Isavia sér um rekstur
og uppbyggingu allra flugvalla á Íslandi.