Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2011, Page 23
Fréttir | 23Helgarblað 15.–17. apríl 2011
Dagana 12. 13. 16. og 17. maí verða haldin inntökupróf við Tónlistarskóla FÍH.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð eru á heimasíðu skólans www.fih.is/sk Umsóknarfrestur er til 26. apríl.
Án FÍH skólans væri ég ekki nýbúinn að spila á Iceland Airwaves
hátíðinni í fimmta sinn, gefa út plötu, spila með hljómsveit sem
tilnefnd var til þrennra tónlistarverðlauna 2011, fara í tónleikaferðir
til útlanda og fá að kynnast og spila með frábæru tónlistarfólki.
- Vignir Rafn Hilmarsson, Agent Fresco
Til hamingju með afmælið, elskulegi skóli! Rauðagerði 27
hýsir menntastofnun á háu kaliberi. Takk fyrir að kynna
okkur fyrir mýgrút hæfileikaríks og skemmtilegs fólks,
sem og hver öðrum.
- Moses Hightower; Andri, Danni, Maggi og Steini
Til hamingju Tónlistarskóli FÍH. Ég er þakklátur fyrir
öll tækifærin sem námið í FÍH gaf mér.
- Einar Scheving, tónlistarmaður
Hamingjuóskir og þúsund þakkir.
- Ómar Guðjónsson, stoltur FÍH-maður
TÓNliSTARSkÓli FÍH
30 áRA
www.fih.is
Þegar ég hóf nám við Tónlistarskóla FÍH 16 ára gamall
hófst tónlistarmenntun mín fyrir alvöru. Ég væri ekki þar
sem ég er í dag ef ég hefði ekki verið svo heppinn að geta
stundað nám við þennan frábæra og nauðsynlega skóla.
- Haukur Gröndal, tónlistarmaður
Um 240 dátar úr þýska sjóhernum eru
staddir í Reykjavík þessa dagana, þar
af eru um tíu konur. Manuel Pauly,
einn yfirmanna á skipinu Brander-
burg, sem er eitt þriggja herskipa sem
liggja nú við Skarfabakka í Sunda-
höfn, segir að um þessar mundir sé
verið að leyfa ungum yfirmannsefn-
um að kynnast lífinu á herskipum
áður en þeir hefja nám í háskóla.
Vopn á þilfari
Blaðamaður og ljósmyndari DV
fengu að fara um borð í eitt skipið og
skoða aðstæður. Þar tóku prúðbún-
ir menn á móti þeim á þilfari skips-
ins sem allir báru handbyssur í slíðr-
um. Að sögn Paulys bera aðeins þeir
sem eru á vakt á þilfari vopn, en þeir
verða ávallt að vera viðbúnir árás.
„Jafnvel þó að við gerum ekki ráð fyr-
ir að verða fyrir árás í Reykjavík,“ seg-
ir Pauly og hlær.
Skipið er ávallt reiðubúið til bar-
daga en ekki hefur komið til þess. Það
er þó algengt að skipið fari í sérstök
verkefni sem snúa meðal annars að
því að verja höf þar sem sjórán eru al-
geng „Við höfum tvisvar tekið þátt al-
þjóðlegri áætlun um að vernda skip á
ferðum á hafsvæðum við Afríku fyr-
ir sjóræningjum,“ segir Pauly. „Þar
þurftum við ekki að berjast beint við
sjóræningja en okkar reynsla er sú að
þeir henda vopnum í sjóinn ef þeir
verða varir við herskip. Við fórum þó
um borð í nokkra báta til að leita að
vopnum og yfirheyrðum þá sem við
grunuðum að væru sjóræningjar.“
Sjóræningjar ættu þó ekki roð í þýska
flotann. Skipið er hlaðið tundurdufl-
um, og skotvopnum til að verjast árás-
um á sjó og frá landi.
Diskókúla niðri í lest
Skipið er byggt árið 1994 en notast er
við gamaldags töflu með teiknibólum
og merkimiðum til að sjá hverjir eru á
vakt hverju sinni. Ekki fer mikið fyrir
hátækni. Í setustofu má sjá diskókúlu
og bar með bjórkrönum og aðspurð-
ur hvort oft væri fjör um borð svarar
Pauly því svo að „það kæmi fyrir að
diskóljósin væru sett í gang og spiluð
væri diskótónlist. Og auðvitað erum
við með bjór á krana. Við erum nú
einu sinni Þjóðverjar!“ Þrátt fyrir það
þá viðurkennir Pauly að það ríki tals-
verður agi um borð þegar skipsverj-
ar eru á vakt. Dátarnir fá frí á meðan
skipið er í höfn og munu einhverjir
ætla að bregða sér í bæinn og skoða
mannlífið. Pauly segir að flestir noti
þó tímann til að hvíla sig þar sem líf-
ið um borð einkennist af mikilli vinnu
og löngum vöktum.
Áhugasömum er velkomið að
skoða skipin í Sundahöfn á laugar-
daginn á milli klukkan 13.00 og 16.00.
„Auðvitað erum við
með bjór á krana.
Við erum nú einu sinni
Þjóðverjar!
Verjast sjóræningjum
n 240 dátar úr þýska flotanum á landinu n Herskipið skartar bæði diskókúlu og tundurduflum
n Verjast sjóræningjum við Afríku
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Á sjó Manuel Pauly, einn yfirmanna
á þýska herskipinu Branderburg
sem liggur við bryggju í Sundahöfn.
mynD Sigtryggur Ari
Friðarsinninn Jón Gnarr
„Ég er friðarsinni og á móti hernaði í
hvaða mynd sem er,“ segir Jón Gnarr
borgarstjóri en greint var frá því á Vísi á
fimmtudaginn að hann hefði ekki áhuga
á að taka á móti yfirmönnum af herskipi
þýska flotans sem liggur nú við Skarfa-
bakka í Sundahöfn. „Ég lít ekki svo á að í
því felist einhver óvirðing við þetta fólk
sem er hér í heimsókn núna. Ég vil ein-
faldlega ekki tengjast hernaðarbrölti.
Það er einlæg skoðun mín að Reykjavík
eigi að vera borg friðarins.
Íslendingar eiga að
sýna það í verki að við
erum herlaus þjóð. Við
eigum ætíð að tala fyrir
friði og mótmæla stríði
manna á milli,“ segir Jón
í yfirlýsingu sem barst nú
fyrir stundu.
Borgarstjóri hefur enn-
fremur lagt til að herflug-
vélar fái ekki að lenda á
Reykjavíkurflugvelli nema
þær séu að sinna hjálpar-
eða björgunarstarfi.