Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2011, Síða 24
24 | Fréttir 15.–17. apríl 2011 Helgarblað
Arnar Freyr var tíu ára. Þetta var föstu-
dagur. Föstudagur var yfirleitt besti
dagur vikunnar, skóladagurinn var
styttri og helgin fram undan. Arnar
Freyr hlakkaði til helgarinnar og naut
dagsins. Frímínúturnar byrjuðu og
krakkarnir hlupu út að leika sér. Á
leiðinni út mætti Arnar Freyr eldri
skólafélaga. Sá hreytti í hann ókvæð-
isorðum sem særðu þannig að Arn-
ar Freyr brast í grát, tók síðan nestið
af honum og dró hann með hótun-
um niður á næstu hæð þar sem hann
neyddi Arnar Frey til að afklæðast
áður en hann læsti hann inni í kústa-
skáp. Föstudagurinn, besti dagur vik-
unnar, hafði snúist upp í andhverfu
sína.
Nakinn og niðurlægður
Nakinn og niðurlægður þurfti Arnar
Freyr að húka í kústaskápnum þar
til frímínútunum lauk. Skólafélagar
hans urðu þá varir við óp og köll og
fylgdust furðu lostnir með því þegar
honum var hleypt út. Sumir reyndu
að nálgast hann, spurðu hvað hefði
gerst og hvernig þeir gætu hjálpað en
Arnar Freyr vildi ekki segja frá. Aðr-
ir fylgdust með úr fjarlægð, flissuðu,
bentu og pískruðust á. Það sveið. Föt-
in hans fundust síðan í ruslatunnu
neðar á ganginum en eins ógeðslegt
og það nú var fór Arnar Freyr feginn
í fötin aftur. Sár, reiður og skömm-
ustulegur hélt hann heim á leið.
„Ég á enn erfitt með að tala um
þetta,“ segir Arnar Freyr, „en ég veit
það núna að sá sem lagði mig einna
mest í einelti var sjálfur lagður í ein-
elti. Sennilega var það þess vegna
sem hann þurfti að níðast á öðr-
um. Hinir krakkarnir voru síðan of
hræddir til þess að bregðast við, þeir
vissu sem var að ef þeir skiptu sér
af þyrftu þeir sennilega að þola það
sama og ég. Þess vegna þorði enginn
að segja neitt.“
„Eins og kúkur“
Eineltið hófst þegar hann var í
fimmta bekk. Þá byrjaði nýr strákur í
skólanum sem tók að stríða honum.
Arnar Freyr var frábrugðinn hinum
krökkunum af því að hann er af ind-
verskum ættum og dökkur á hörund.
Þar fyrir utan hefur hann aldrei get-
að sagt „r“. „Þetta byrjaði þannig að
mér var strítt á því að ég gæti ekki tal-
að og að ég hefði komið út um rass-
inn á mömmu minni, að ég væri eins
og kúkur á litinn og svona alls kon-
ar sem sneri að húðlitnum. Hinir
krakkarnir fylgdu fljótlega á eftir og
þegar krakkarnir áttuðu sig á því að
ég reiddist versnaði þetta. Þeir sáu að
það skipti engu máli hvort ég reyndi
að hreyta einhverju í þá til baka eða
hjóla í þá, ég var alltaf bugaður og
varnarlaus. Þar fyrir utan fór ég líka
alltaf að gráta þegar eitthvað kom
upp á. Í þessum heimi, þessum ein-
eltisheimi, eru allir veikleikar notaðir
gegn þér.“
Troðið ofan í ruslatunnu
Eineltið vatt því upp á sig og fljót-
lega varð ofbeldið einnig líkamlegt.
Eitt af fyrstu atvikunum sem Arnar
Freyr man eftir var þegar hann fór
eitt góðviðriskvöldið út að leika sér
með krökkunum. Þau fóru út á róló
í hverfinu og skemmtu sér vel. Þar
til nokkra eldri stráka bar að garði.
Þetta voru sömu strákar og höfðu
níðst á Arnari Frey og þeir héldu
uppteknum hætti, byrjuðu að stríða
honum. Arnar Freyr svaraði fyrir sig,
tók upp stein og reyndi að grýta þá.
Þetta endaði með því að strákarn-
ir tóku hann og tróðu honum ofan
í ruslatunnu. „Þar sem þetta var á
barnaleikvelli var ruslatunnan full
af bleyjum og ógeði. Ég mun aldrei
gleyma þessu því þetta var svo nið-
urlægjandi, fyrir utan hvað þetta var
ógeðslegt.“
Vinir hans létu sig hverfa, enda
fengu þeir að heyra það að ef þeir
reyndu að hjálpa honum yrði þeim
líka troðið ofan í ruslatunnu. Arnar
Freyr hafði líka sagt við þá að þeir
ættu ekki að reyna það því það hefði
ekkert að segja. „Ég vildi ekki að þeir
fengju sömu meðferð. Þannig að
ég var skilinn eftir aleinn og ósjálf-
bjarga ofan í ruslatunnunni. Rúmum
klukkutíma síðar gekk maður fram
hjá, hann var á göngu með hund-
inn sinn en heyrði ópin í mér. Hann
hjálpaði mér upp úr.“
Útgrátinn og illa lyktandi hélt
Arnar Freyr heim á leið. Mamma
hans tók á móti honum og sá strax
að eitthvað væri að. Hún ræddi þetta
við skólastjórann en það var ekki til
þess að hjálpa. „Mamma tók alveg
eftir því hvað var að gerast en úrræð-
in voru nánast engin. Gerendur voru
sendir til skólastjórans og foreldrarn-
ir í mesta lagi boðaðir á fund. Annað
var ekki gert. En þetta var ekki nóg.“
Grét ofan í götuna
„Annars held ég að ég hafi bara tvisv-
ar sagt mömmu hvað gekk á og í bæði
skiptin kom það niður á mér seinna,“
segir hann. Annað skiptið var eftir
körfuboltaleik með félögunum. Þá
kom einn eineltisseggurinn að og
skellti honum niður á jörðina með
þeim afleiðingum að hann missti
andann stundarkorn. Síðan lét hann
spörkin dynja á Arnari Frey sem lá
varnarlaus og grét ofan í götuna. „Ég
klagaði þetta atvik og hann var kall-
aður til skólastjórans sem skammaði
hann. Fyrir vikið fékk ég aðra með-
ferð daginn eftir. Þá setti hann fötin
mín í sturtu eftir leikfimitíma þannig
að ég gat ekki farið í hrein föt og varð
að fara heim í leikfimisfötunum.“
Eltur heim
Á tímabili voru árásirnar stöðugar og
Arnar Freyr vissi aldrei hvar eða hve-
nær hann yrði tekinn fyrir næst. Hann
var eltur heim úr skólanum og hótað
með hnífi, hjólið hans var eyðilagt
og nestið var tekið af honum. Aðeins
einu sinni greip einhver í taumana
og stöðvaði ofbeldið. Það var þegar
nágranni Arnars Freys heyrði hann
kalla eftir hjálp fyrir utan heimili sitt
einn eftirmiðdaginn. „Þessi mað-
ur var algjör hetja fyrir mér. Loksins
þorði einhver að stoppa hann af.“
Þá hafði aðalgerandinn hlaupið á
eftir Arnari Freyr og náð honum við
útidyrnar, rétt áður en hann komst
inn, hent skóladótinu hans út um
allt og eyðilagt það sem hann bjó til
í saumum en Arnar Freyr hafði lagt
mikla vinnu í það og þótti vænt um
það, enda gjöf til móður hans.
Ekki boðið með
Á þessum tíma átti Arnar Freyr enga
vini. Krakkarnir vildu ekki láta sjá
sig með honum af ótta við að verða
sjálf fyrir stríðni. Hann gafst þó ekki
svo auðveldlega upp og reyndi ítrek-
að að komast inn í hópinn. „Ég var
til dæmis alltaf haldinn þeirri rang-
hugmynd að ef ég byði öllum í af-
mælið mitt yrði mér líka boðið í af-
mælið þeirra. Það var nú ekki alltaf
þannig. Jú, stundum var mér boðið
með en alls ekki alltaf. Ég gleymi því
til dæmis aldrei þegar einn strákur-
inn hélt upp á afmælið sitt úti í sveit
og bauð öllum á hestbak. Síðan fóru
allir saman í bíó líka og þetta þótti
svakalega spennandi. Allir í bekkn-
um voru að tala um þetta, nema ég.
Mér var ekki boðið.“
Vildi vera hvítur
Sjálfsmyndin beið hnekki og Arnar
Freyr var óöruggur og hræddur.
Hann hrökklaðist úr fótboltanum
sem hann æfði og þorði ekki fyrir sitt
litla líf að fara að æfa júdó eins og
hann langaði til.
„Ég tapaði viljanum til þess að lifa
lífinu. Ég hafði ekki ánægju af því að
sækja skólann, ég hafði ekki ánægju
af því að umgangast krakkana og
hafði ekki ánægju af því að vera til.
Sjálfsvígshugsanir skutu rótum og ég
talaði til Guðs og bað um tvennt, að
hann myndi annaðhvort stöðva ein-
eltið eða láta mig hætta að vera til.“
Eineltið lagðist á sálina á Arnari
Frey sem óskaði þess að hann væri
hvítur. „Ég hugsaði oft um það að
þá væri lífið auðveldara og bað Guð
um að leyfa mér að vera hvítur í einn
dag. Um þetta hugsaði ég á meðan
ég lá andvaka á næturnar, en ég svaf
illa í mörg ár. Stundum svaf ég ekk-
ert tvær, þrjár nætur í röð. Ég var líka
hræddur við að sofna því ég óttað-
ist að fá martraðir eins og ég gerði
gjarna og geri enn í dag.“
Svitnar í margmenni
Um eineltið ræddi hann þó ekki við
neinn, enda hafði hann engan til þess
að tala við í raun og veru. „Þessi van-
líðan var bara innra með mér og hún
er það enn. Ég þróaði með mér félags-
fælni sem virkar þannig að mér líður
illa í margmenni, verð stressaður og
byrja að svitna. Stundum finnst mér
eins og ég sé að kafna. Mér líður eins
og allir séu að horfa á mig þótt ég viti
vel að það sé ekki raunin. Hausinn
spilar með mig.
Eins á ég erfitt með að treysta öðru
fólki og er alltaf var um mig. Ég forðast
líka þá sem tóku þátt í þessu á sínum
tíma því mig óar enn við þeim þótt ég
viti að þeir geri mér ekkert í dag. Það
sem þeir gerðu mér í gamla daga situr
enn í sálinni.“
Flúði þunglyndi með fíkniefnum
Eins og fyrr segir voru foreldrar
hans algjörlega úrræðalausir gagn-
vart þessum vanda. Svo fór að Arnar
Freyr var sendur í sveit þar sem hann
sótti annan skóla. Þar slapp hann
við eineltið en vanlíðanin bjó í hon-
um, þunglyndi sótti að og glíman við
svarta hundinn stóð yfir í áraraðir, allt
frá því að hann var þrettán ára gam-
all. „Allt í einu þurfti ég ekki að berjast
lengur. Þegar ég fékk tíma til að hugsa
helltist þetta yfir. Ég hef lagst í mjög
djúpt þunglyndi á tímabilum. Mér
fannst ég einskis virði og sá engan til-
gang með lífinu. Á meðan ég bjó einn
lokaði ég mig alveg af og lá bara fyrir.
Í dag er ég á lyfjum sem halda þung-
lyndinu niðri.“
Á fyrstu árum í menntaskóla leit-
aði hann þó annarra leiða til þess að
losna við þunglyndið. „Ég fór að fikta
við fíkniefni sem veittu mér vellíðan.
Undir áhrifum leið mér eins og ég
Undirheimarnir eins og
himnaríki eftir eineltið
n Mátti þola stöðugar árásir n Troðið í rusla-
tunnu og læstur allsber inni í kústaskáp n Missti
lífsviljann n Tók þátt í handrukkun um, inn-
brotum og fíkniefnasölu n Hótaði börn um bar-
smíðum n „Mér leið eins og ég væri kóngur“
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is
„Mér var strítt á
því að ég gæti
ekki talað og að ég hefði
komið út um rassinn á
mömmu minni, að ég
væri eins og kúkur á litinn.
Samkvæmt sænskri rannsókn hefur
meirihluti ungra afbrotamanna orðið
fyrir einelti. 60% þeirra sem dæmdir
voru fyrir ofbeldisbrot áður en þeir náðu
tvítugsaldri máttu þola einelti í skóla.
Þá var einnig sýnt fram á að færri verða
brotamenn ef gripið er snemma til
aðgerða gegn einelti. Í þeim skólum þar
sem kerfisbundið var tekið á einelti tókst
að draga úr þessu ofbeldi um 20%. Þá
hafa niðurstöður langtímarannsókna
Olweusar sýnt að gerendur eru fjórum
sinnum líklegri til að hljóta dóm en jafn-
aldrar sem hvorki hafa verið gerendur né
þolendur. Um 60% nemenda sem voru
gerendur í sjötta til níunda bekk í grunn-
skóla hlutu einn eða fleiri dóma fyrir
24 ára aldur. 35–40% gerenda höfðu
fengið þrjá eða fleiri dóma.
einelti og afbrot