Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2011, Qupperneq 2
2 | Fréttir 27. apríl 2011 Miðvikudagur
Björgólfur Thor Björgólfsson og aðrir
hluthafar eignarhaldsfélagsins Sam-
sonar, sem keypti Landsbankann af
íslenska ríkinu í lok árs 2002, fengu
700 milljóna króna afslátt af bankan-
um vegna þess að afskrifa þurfti meiri
skuldir en talið hafði verið hjá við-
skiptavinum bankans, meðal annars
hjá Skúla Mogensen. Björgólfur Thor
fékk því afslátt af bankanum vegna
þess að eignir Landsbankans, sem
hafði verið í eigu íslenska ríkisins að
mestu fram að því, voru ofmetnar í
kaupsamningi ríkisins og Samsonar.
Um þennan afslátt var þó ekki
endanlega samið fyrr en síðla árs
2003, eftir að Björgólfur Thor og Sam-
son höfðu tekið við bankanum og eft-
ir að búið var að afskrifa í kringum
400 milljónir af skuldum Skúla við
Landsbankann. Tekið skal fram að
Björgólfur Thor og Skúli eru vinir frá
fornu fari og hafa brallað ýmislegt í
gegnum tíðina. Þeir ráku meðal ann-
ars Hótel Borg saman.
Skúli, sem varð stærsti hluthafinn
í nýjum endurreistum MP Banka fyr-
ir skömmu, var á þessum tíma, árið
2002, annar aðaleigandi tæknifyrir-
tækisins Oz sem stofnað var um ára-
tug áður. Miklar vonir voru bundnar
við Oz á árunum fyrir síðustu alda-
mót og keyptu margir hlutabréf í fyr-
irtækinu. Hlutabréfaverð í Oz hrundi
svo þegar dot.com-bólan svokallaða
sprakk árið 2001. Eftir það var nokk-
uð ljóst hver framtíð Oz yrði, starf-
semi félagsins dróst mjög saman og
það endaði með því að Landsbank-
inn tók fyrirtækið yfir vegna skulda.
Eignaðist félagið aftur
Líkt og fram kom í pistli Sigrúnar
Davíðsdóttur í útvarpsþættinum
Speglinum á Rás 1 í síðustu viku fékk
Skúli umræddar afskriftir í Lands-
bankanum um mitt ár 2003. Sigrún
hafði undir höndum „afskriftaryfir-
lit“ Landsbankans frá því „30. júní
2003“ en í því komu fram umræddar
afskriftir Skúla.
Í Speglinum var sömuleiðis
greint frá því að skuldir Skúla við
Landsbankann hefðu numið um
milljarði króna þegar mest lét og að
veðið fyrir þessum skuldum hefði
að hluta verið í hlutabréfum hans
í Oz. Á þessum tíma var Oz óskráð
félag. Í árslok 2001 leysti Lands-
bankinn til sín um helminginn af
bréfum Skúla Mogen sen í Oz vegna
þessara skulda. Um einu og hálfu
ári síðar voru svo afskrifaðar fjög-
ur hundruð milljónir af þessum
skuldum Skúla.
Athygli vekur að Skúli eignaðist
Oz svo aftur, ásamt nokkrum öðr-
um af lykilstjórnendum Oz, eftir
einkavæðingu Landsbankans. Skúli
flutti Oz til Kanada í kjölfar eigenda-
skiptanna, byggði félagið áfram upp
og seldi það svo til finnska farsíma-
risans Nokia árið 2008, samkvæmt
fréttum sem sagðar hafa verið. Sölu-
verðið á Oz hefur ekki verið gefið upp
en ætla má að það hafi hlaupið að
minnsta kosti á nokkrum milljörðum
króna.
Endurkomu Skúla í íslenskt við-
skiptalíf hefur verið stillt þannig upp
að hann sé að nota þessa fjármuni
sem hann fékk frá Nokia fyrir Oz til
að fjárfesta hér á landi.
Björgólfur taldi
eignirnar ofmetnar
Á heimasíðu Björgólfs Thors Björg-
ólfssonar, btb.is, er fjallað um þann
ágreining sem var á milli eigenda
Samsonar og einkavæðingarnefnd-
ar um hversu miklar skuldir þyrfti
að afskrifa hjá Landsbankanum eftir
einkavæðingu. Eins og gefur að skilja
vildu eigendur Samsonar að tekið
væri tillit til þessarar afskriftarþarf-
ar þegar samið var um kaupverðið á
bankanum.
Í umræðunni á heimasíðunni
kemur fram að Björgólfur Thor hafi
allt frá sumrinu 2003 talið eignir
Landsbankans hafa verið ofmetn-
ar. KPMG vann áreiðanleikakönnun
fyrir hönd Samsonar um málið og
kom fram í henni að „veruleg frávik
væru á bókfærðu virði eigna bankans
og raunstöðu“, líkt og segir á btb.is.
Þetta mat er ekki skrítið sé litið
til þeirra útlána sem hér um ræð-
ir, lána þar sem veðin voru í verð-
litlum hlutabréfum Skúla Mogensen
í Oz. Mat Samsonar-manna var það,
samkvæmt heimasíðu Björgólfs, að
„yfirstjórn Landsbankans, bankaráð
og Ríkisendurskoðandi hefðu með
skipulögðum hætti vantalið framlag
á afskriftarreikning útlána í því skyni
að fegra afkomu bankans.“
Miðað við eignamat frá 30. júní
Áður en skrifað var undir samning
um kaup Samsonar á Landsbankan-
um af íslenska ríkinu þann 31. des-
ember 2002 féllst einkavæðingar-
nefnd á það að hún væri „tilbúin að
skoða afslátt af kaupverði“, líkt og seg-
ir á heimasíðu Björgólfs Thors, vegna
mögulegs vanmats á afskriftaþörf
bankans. Samkvæmt kaupsamn-
ingnum átti að endurmeta eign-
ir Landsbankans í október 2003 en
því var flýtt til „30. júní 2003“, en af-
skriftaryfirlitið þar sem niðurfærslan
á skuldum Skúla kemur fram var ein-
mitt frá þeim degi, líkt og greint er frá
hér að framan.
Endanlegir samningar Samson-
ar og íslenska ríkisins í nóvem-
ber 2003 um afsláttinn á
Landsbankanum byggðu
á þessu endurmati á
eignum bankans frá
því í lok júní sama ár.
Niðurstaðan í mál-
inu varð sú, út frá
þeim afskriftum á
skuldum sem fyr-
ir lágu samkvæmt
afskriftaryfirlit-
inu, að Samson
fékk 700 milljóna
afslátt af Lands-
bankanum.
Kom sér
hvorki illa fyrir
Björgólf né
Skúla
Líkt og Valgerð-
ur Sverrisdótt-
ir viðskiptaráð-
herra greindi frá í svari við fyrirspurn
á Alþingi í lok nóvember 2003 var
þessi afsláttur tilkominn vegna áður-
nefnds endurmats á afskriftarþörf
Landsbankans. Valgerður sagði: „Já,
það hefur verið gengið endanlega
frá söluverði bankanna. Söluverð
Landsbankans vegna sölu til Sam-
sonar, sem var 45,8% hlutur, var 139
millj. dollara, þ.e. um 12,3 milljarðar
kr. miðað við gengi dollar ans þegar
gengið var frá samkomulaginu um
kaupin. Síðan hefur krónan styrkst
gagnvart dollar. Það kemur hins
vegar ekki að sök því að fjár-
hæðin er að fullu nýtt til
að greiða niður er-
lend lán. Í sam-
ræmi við kaup-
samninginn
hafa sérstak-
ir trúnaðar-
endurskoð-
endur farið
yfir ólíkt mat
samningsaðila
á afskriftaþörf
Landsbank-
ans. Niðurstað-
an af því mati er
að lækka skuli
kaupverð bank-
ans um 700 millj.
kr. í samræmi við
kaupsamning-
inn.“
Samson greiddi
því 11,6 milljarða
króna fyrir bankann
í stað 12,3 milljarða
króna, Skúli
Mo-
gensen fékk að minnsta kosti 400
milljóna króna skuldaafskriftir í
bankanum og var á meðal þeirra
sem eignuðust Oz aftur eftir þessar
afskriftir í bankanum. Afskriftirnar
komu sér því hvorki illa fyrir Björg-
ólf Thor né Skúla en hins vegar tap-
aði íslenska ríkið fjármunum á þeim
þar sem lækka þurfti söluverð Lands-
bankans vegna afskrifta Skúla og ein-
hverra annarra viðskiptavina Lands-
bankans sem fengið höfðu lán frá
ríkisbankanum með lélegum
eða engum trygging-
um.
„ Í samræmi við
kaupsamninginn
hafa sérstakir trúnaðar
endurskoðendur farið
yfir ólíkt mat samnings
aðila á afskriftaþörf
Landsbankans.
FÉKK AFSLÁTT ÚT Á
AFSKRIFTIR SKÚLA
n Skúli Mogensen fékk 400 milljónir afskrifaðar hjá Landsbankanum n Samson fékk 700
milljóna afslátt af Landsbankanum vegna skulda afskrifta n Afsláttur Samsonar byggði á
eignamati þar sem afskriftir Skúla koma fram n Skúli eignaðist Oz aftur eftir afskriftirnar
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Til Íslands eftir útrás Björgólfur Thor og eignarhaldsfélagið
Samson komu frá Rússlandi til Íslands og keyptu Landsbank-
ann. Skúli Mogensen er orðinn stærsti hluthafi MP Banka eftir
eigendaskipti. Skúli fjármagnar kaupin með fé sem hann fékk
þegar hann seldi Oz í Kanada en hann eignaðist fyrirtækið eftir
að hafa fengið afskrifað hjá banka Björgólfsfeðga.
700 milljóna afsláttur Samson fékk
afslátt af Landsbankanum meðal annars
vegna lána til Skúla Mogensen. Valgerður
Sverrisdóttir viðskiptaráðherra talaði um
afsláttinn á Alþingi í nóvember 2003.