Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2011, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2011, Síða 12
12 | Fréttir 27. apríl 2011 Miðvikudagur Þegar blaðamann ber að garði á áfangaheimilinu Vin eru nokkrir íbúar, fyrrverandi og núverandi, saman inni í eldhúsinu á staðnum. Þeir eru að tala um félaga sem ný- lega er fallinn frá. Vímuefnafíknin varð hans bani. Hann tók of stóran skammt. Þegar blaðamaður spyr hvort þeir fái oft svona fréttir af gömlum neyslufélögum og kunn- ingjum, svara þeir játandi. Allt of oft. Þeir eru allir sammála um að með- ferðarúrræðið á Vin hafi verið þeirra lífgjöf. „Ég er mikill gæfumaður“ „Já, það er ekkert öðruvísi. Það er al- veg kristaltært í mínum huga. Ég er mikið á fundum og ég heyri í mönn- um á svipuðum aldri og ég, mönn- um sem ég hef umgengist, og bara á síðustu tíu dögum eru held ég farn- ir fjórir eða fimm. Þeir deyja ekki úr alkóhólisma en þeir eru flestir und- ir áhrifum þegar þeir deyja. Það er kannski þannig að einn óverdósar sig á insúlíni og annar dettur niður tröppur, en hann deyr af slysförum, og ef menn fara í krampa og hjarta- stopp þá deyja þeir úr hjartaáfalli en í mínum huga er það kristaltært, þeir deyja allir úr alkóhólisma. Það er bara ekki skilgreint þannig,“ segir karlmaður um fimmtugt sem nýlega hefur lokið meðferð á Vin og er flutt- ur í eigið húsnæði. „Ég er bara mik- ið meira en alsæll með þetta. Ég er mikill gæfumaður og það var mikið gæfuspor sem ég steig þegar ég kom hingað inn,“ bætir hann við. Var orðinn ósjálfbjarga Við setjumst saman niður í eldhús- inu á meðan hinir koma sér fyrir í setustofunni. Hann kom inn á Vin í febrúar árið 2010 og ætlaði sér að vera í ár. Hann flutti út nú í byrjun apríl og segist hafa náð takmarki sínu og rúmlega það. „Ég kom brot- inn, algjörlega brotinn og búinn á því, kjarkurinn alveg farinn og getan til þess að hreinlega bjarga sér var ekki til staðar lengur. Ég var búinn að fara oft í meðferð og náði alltaf einhverjum tíma og sjálfsvirðingu í einhvers konar vinnu. En þetta var ekkert líf, maður drakk sig í koju á kvöldin og upp á morgnana. Svo bara smájókst þetta þangað til mað- ur var orðinn ósjálfbjarga.“ Hann kom inn á Vin eftir að hafa lokið afeitrun á Vogi og með- ferð á Staðarfelli í enn eitt skiptið. Hann var nánast búinn að drepa sig. „Maður þykist alltaf vita betur þegar bráir aðeins af manni en ég ákvað í þetta skiptið að hlusta nú einu sinni og hlýða,“ segir hann aðspurður hvað hafi verið öðruvísi. Hann hafði í raun ekkert val. „Ég bara gafst upp, það var annað hvort þetta eða bara að klára þetta.“ Getur engu breytt Fyrst eftir að hann kom inn á Vin fannst honum þó hlutirnir gerast mjög hægt. „Maður er svo veikur í hausnum. Það læðast að manni það sem ég kalla hugsvik. Ef eitthvað gekk vel þá verðlaunaði ég það, ef eitthvað gekk illa þá langaði mig að deyfa mig og taldi mér trú um að ég gæti fengið mér smá eitt kvöld. En það að vera í þessu umhverfi, með þennan gríðarlega stuðning, kom mér einfaldlega í gegnum þetta. Þessi stuðningur sem ég fæ hérna er ómetanlegur. Menn sjá hvernig manni líður og maður hefur bein- an aðgang að læknum, sálfræðing- um, félagsfræðingum og nefndu það. Í fæstum tilfellum þarf mað- ur að biðja um það. Maður er stór strákur og vill ekkert segja hvernig manni líður, en þeir þekkja þetta.“ Á einu og hálfu ári hefur orðið gjör- breyting á öllum högum hans og lífi. Hann býr í eigin íbúð, er farinn að vinna aftur og er kominn í sam- band við fjölskyldu sína á nýjan leik. „Mér líður æðislega. Þetta gerist allt hægt og rólega, en þetta gerist. Ég get engu breytt og ekki græði ég á því að setja hausinn undir hendina og vera í fýlu, vera í skömm. Ég horfi á útrásarvíkingana sem hafa sett heila þjóð á hausinn, ekki eru þeir að skammast sín neitt. Af hverju ætti ég að skammast mín fyrir að hafa sett sjálfan mig á hausinn?“ Drakk sig á götuna Sjúkdómurinn þróaðist hægt. Hann var alltaf að „lenda“ í hinu og þessu og gerði sér ekki grein fyrir að eitt- hvað væri að. Áfengið var þó und- irrót vandamála hans, tíðra vinnu- skipta, sífellt nýrra sambanda og fleira. Hann leitaði sér ekki aðstoðar inni á Vogi fyrr en hann var 37 ára. Áður en það gerðist var hann í raun búinn að drekka sig í ræsið. Í fyrstu átti hann drykkjufélaga en síðustu árin drakk hann einn. Hann var mikil félagsvera áður en drykkjan heltók líf hans en var orðinn félags- fælinn og átti erfitt með að umgang- ast fólk undir það síðasta. Hann segir vanmátt sinn hafa verið full- kominn þegar hann fékk loksins þá aðstoð sem hann þurfti. Fullkomin kvöð „Ég var farinn að drekka þannig að ef ég fékk ekki skammtinn minn þá var ég í krampa eða skjálfta. Það að vakna á gólfi innan um plastpoka, bjórlík og brennivínslík, hafandi ælt í einhvern af þessum plastpok- um, geta ekki staðið á fætur, með of- skynjanir og skuggaverur allt í kring- um sig, svo skjálfhentur að maður réð ekki við að hringja úr símanum, missa hann og geta ekki sett saman aftur, geta ekki staðið upp og kom- ast ekki á klósett. Liggja svona í sól- arhring, pumpan á fullu, blóðþrýst- ingurinn upp úr öllu valdi og bíða í rauninni eftir því hvað gerist. Meika ég þetta? Fer ég í krampa? Verð ég grænmeti? Þetta er nöturlegt en svona var þetta.“ Sorgarsvipur fær- ist yfir andlit hans þegar hann rifjar þetta upp. „Fróunin var engin. Mað- ur var farinn að drekka af fullkom- inni kvöð. Eina hugsunin sem komst að var: Drottinn minn góður, gefðu að ég vakni ekki á morgun.“ Landsliðið í óreglu Hann segir meðferðina á Vin vera herslumuninn sem hann vantaði áður. „Allir erum við þannig að við erum búnir að drekka okkur út í horn, eng- inn á neina sjóði eða neina peninga. Við vöknum á morgnana og við get- um farið í morgunverð inn á Vog. Við förum í fyrirlestra og grúppur á hverj- um einasta degi og þegar grúppan er búin förum við í mat inn á Vog. Þann- ig að við þurfum ekki að hafa áhyggj- ur af því og þá eru komnir tveir grunn- þættir. Þú ert kominn með húsnæði og mat. Í þessu felst gríðarlegt öryggi og við þetta bætist umhyggjan. Það er verið að taka utan um okkur og styðja okkur af stað. Gert þannig að við ber- um ábyrgð á því sjálfir, en gripið inn í ef við ætlum út af sporinu og maður spurður: Viltu að við hjálpum þér aftur á brautina? Og þegar það er svoleiðis, sem betur fer, þá erum við nokkrir sem höfum borið gæfu til að nýta okkur þetta og þetta er að ganga upp.“ Hann segir skelfilegt að hugsa til þess ef Vin yrði lokað. Ég held að Þór- arinn [Tyrfingsson, innsk blm.] hafi orðað það þannig að þetta sé lands- liðið í óreglu. Og viljum við virkja þetta landslið í það sem það gerir best, sem er að vera undir áhrifum? Viljum við fá það á götuna aftur með tilheyrandi látum og tilheyrandi kostnaði? Það er nú einhvern veginn þannig að þegar við erum í okkar versta ham, þá erum við stórhættulegir sjálfum okkur og öðrum.“ Kann nú að tækla aðstæður Hann segir það hafa verið mikil við- brigði að fara af Vin í eigið húsnæði, en hann sé nú kominn með styrkinn til að feta sig úr hreiðrinu. „Ég veit að ef ég stunda fundina mína þá þarf ég ekkert að vera edrú nema bara í dag. Ég á nú- tíðina. Ég get gert hana rosalega góða. Fyrirbæri eins og fíkn og vínlöngun, það er eitthvað sem hefur ekki truflað mig, ekki í langan tíma. En ég geri mér alveg grein fyrir því að ég verð að halda fast í mína rútínu. Ég þarf að halda fast í þetta plan sem ég setti mér. Auðvitað lendi ég í erfiðum aðstæðum en nú kann ég að tækla þær.“ n Langtímaúrræði sem undirbýr menn fyrir lífið á nýjan leik n Voru nánast búnir að drepa sig n Landsliðið í óreglu á ekki heima á götunni n Stórhættulegir sjálfum sér og öðrum n Mikið gæfuspor að koma inn á Vin„Eina hugsunin sem komst að var: Drottinn minn góður, gefðu að ég vakni ekki á morgun. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is Vin bjargaði lífi þeirra Geta haft börnin hjá sér Á Vin dvelja 24 karlmenn saman einu. Þeir fá allir stúdíóíbúð og geta því verið út af fyrir sig. Þeir hafa einnig aðgang að sameiginlegri setustofu með sjónvarpi og sameiginlegu eldhúsi. Þannig skapast möguleiki fyrir þá að endurhæfast félagslega. Þeir geta boðið fólkinu sínu í heimsókn og hafa tækifæri til að umgangast börnin sín, hafa þau hjá sér á daginn og jafnvel yfir nótt. Setustofa Íbúarnir sitja oft saman yfir fótboltaleikjum í setustofunni. Heimilislegt Íbúðirnar á Vin geta verið mjög heimilislegar. Gæfuspor Þeir sem dvelja á Vin segja með- ferðina hafa bjargað lífi sínu. MynD RóbeRt ReyniSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.