Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2011, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2011, Page 2
2 | Fréttir 16. maí 2011 Mánudagur n Axel Jóhannsson hefur viðurkennt að hafa ráðið barnsmóður sinni bana n Leitaði sér hjálpar við geðsjúkdómi samkvæmt heimildum DV n Barnsmóðirin vildi slíta sambandinu Leitaði sér hjáLpar við geðsjúkdómi Um áttaleytið á fimmtudag kom Axel Jóhannsson akandi að Landspítalan­ um í Fossvogi og vísaði starfsmönnum spítalans á lík ungrar stúlku sem hann var með í farangursgeymslu bifreiðar sinnar. Axel var í kjölfarið handtekinn. Við yfirheyrslur hjá lögreglunni við­ urkenndi hann að konan í farangurs­ geymslunni væri Þóra Elín Þorvalds­ dóttir, tvítug barnsmóðir sín, og að hann hefði ráðið henni bana. Axel var úrskurðaður í gæsluvarðhald daginn eftir. Voru trúlofuð og áttu tveggja ára barn Axel og Þóra höfðu þekkst lengi áður en harmleikurinn átti sér stað. Þau eignuðust barn saman fyrir um tveim­ ur árum, þegar Þóra var 18 ára og Axel 24 ára. Samkvæmt heimildum DV höfðu þau þá verið í föstu sambandi í um eitt ár en á bloggsíðu sem Þóra og vinkonur hennar héldu úti árið 2008 talaði hún um að þau væru trúlofuð. Saman ætluðu þau að flytja til Sauðár­ króks en þangað átti hún ættir að rekja. Axel ólst upp á Eskifirði en flutti þaðan um fermingu í kjölfar skilnað­ ar foreldra hans. Hann og Þóra Elín, höfðu flutt saman til Eskifjarðar þar sem hún vann á leikskólanum á staðn­ um en Axel hafði unnið hjá íslensku gámaþjónustunni á Reyðarfirði í þrjá mánuði en sagði upp störfum fyrir um það bil mánuði. Buðu af sér góðan þokka Samkvæmt heimildum DV voru Þóra og Axel reglusamt par og féllu þau vel inn í samfélag sitt. Bæði voru þau vin­ sæl og buðu af sér góðan þokka. Vin­ um þeirra og kunningjum er mjög brugðið vegna atburðarins sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Íbúi sem DV ræddi við sagði engan hafa átt von á slíkum hryllingsatburði. „Þau voru ósköp venjulegt fólk sem lét ekki mikið fyrir sér fara,“ sagði íbúinn. „Hér eru allir í sjokki.“ Vinkona Þóru Elínar tekur undir með íbúanum og öðrum sem DV hef­ ur rætt við. „Hún var mjög skemmti­ leg og góð við alla,“ segir vinkona Þóru Elínar um hana. Allir viðmælendur DV töluðu hlýlega um Þóru og lýstu henni sem skemmtilegri stúlku. „Mér var ráðlagt að ræða þetta ekki“ Fjölskylda Axels vill ekki staðfesta að Axel hafi ekið syni sínum til móður sinnar eftir að hann réð Þóru bana. Samkvæmt heimildum Vísis var barn­ ið með foreldrum sínum í bílnum þeg­ ar harmleikurinn átti sér stað. „Mér var ráðlagt að ræða þetta ekki,“ sagði móð­ ir Axels aðspurð um málið á föstudag. Eftir það er Axel sagður hafa ekið til vinkonu sinnar á höfuðborgarsvæðinu áður en hann ók að Landspítalanum í Fossvogi þar sem hann vísaði á lík barnsmóður sinnar. Vinkonan hvatti hann til að gefa sig fram. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 á laugardag en hefur ekki verið staðfest. Elín hafði verið látin í nokkrar klukkustundir áður en Axel tilkynnti um verknaðinn á sjúkrahúsinu. Fyrr um kvöldið höfðu Axel og Þóra Elín ekið um í Heiðmörk og telur lögregl­ an sig þar hafa fundið vettvang harm­ leiksins. Samkvæmt heimildum DV ræddi Elín um sambandsslit við Axel í bílferðinni. Það hefur heldur ekki fengist staðfest hjá lögreglu. Mun sæta geðrannsókn Eins og aðrir sem gerast sekir um manndráp mun Axel sæta geðrann­ sókn. Samkvæmt heimildum DV hefur Axel greinst með geðsjúkdóm. Hann mun hafa reynt að leita sér hjálpar vegna sjúkdómsins og hafði legið inni á geðdeild síðasta vetur vegna þung­ lyndis. Mun hann hafa orðið þung­ lyndur eftir að faðir hans lést í ágúst 2010. Lögreglan vill ekki staðfesta að Axel hafi greinst með geðsjúkdóm. Lögreglan hefur þó staðfest að geð­ rannsókn verði gerð á Axel. Ef geð­ læknar komast að þeirri niðurstöðu að hann eigi við geðræn vandamál að stríða sem gætu hafa haft áhrif á gjörð­ ir hans er ekki útilokað að Axel verði fundinn ósakhæfur. Samkvæmt heim­ ildum DV er raunar talið líklegt að hann verði metinn ósakhæfur. Menn sem eru fundnir ósakhæfir eru sviptir sjálfræði og vistaðir á rétt­ argeðdeildinni að Sogni. Þeir sem vist­ aðir eru á Sogni eru þar í mislangan tíma en vistmenn réttargeðdeildarinn­ ar eru undir stöðugu eftirliti og fá við­ eigandi meðferð við geðsjúkdómum sínum. Þegar vistmenn koma á Sogn er aldrei hægt að segja til um hversu lengi þeir munu dvelja þar, eða hve­ nær þeir fái fullt sjálfræði aftur. „Megi hún hvíla í friði“ „Hún var mjög opin manneskja og tók öllum vel. Ég kynntist henni í gegnum mömmuhóp og frá því ég hitti hana fyrst fannst mér eins og ég hefði þekkt hana alla mína ævi. Þannig var hún við okkur allar í ungum mæðrum,“ seg­ ir ung kona sem hafði ætlað að hitta Þóru Elínu daginn sem henni var ráðin bani. „Hún sendi mér sms klukkan ell­ efu um morguninn og bað mig um að hitta sig en hún ætlaði að fara úr bæn­ um seinna um daginn.“ Vinkonan segir fráfall Þóru Elínar vera mikið áfall fyrir sig og mæðrahóp­ inn en hann samanstendur af ungum konum sem allar eiga það sameigin­ legt að hafa eignast barn ungar. Hún segir Þóru Elínu hafa staðið sig vel sem móðir. „Hún var rosalega góð mamma og stóð sig mjög vel í móðurhlutverk­ inu.“ Hópurinn hittist síðast síðastlið­ inn miðvikudag í Húsdýragarðinum, daginn áður en harmleikurinn átti sér stað. „Þar var hún bara glöð og hress eins og alltaf.“ Ungar mömmur minnast Þóru sem Hanna Ólafsdóttir blaðamaður skrifar hanna@dv.is Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Ferðir Axels daginn örlagaríka* *Heimildir Stöðvar 2 herma að Axel hafi komið við hjá vinkonu sinni áður en hann fór á Land- spítalann. Ekki liggur fyrir hvar eða hver það var. Viðkomustaður 1 (Heimili Þóru Elínar) Viðkomustaður 2 (Samkvæmt heimildum DV sást til bílsins í Reykjavík síðdegis á fimmtudag) Viðkomustaður 3 Heiðmörk (Rannsókn lögreglunnar snýr meðal annars að því hvort Heiðmörk hafi verið vettvangur harmleiksins) Viðkomustaður 4 (Axel ók með son sinn til móður sinnar áður en hann fór með lík Þóru Elínar á Landspítalann) Viðkomustaður 5 Landspítalinn í Fossvogi (Axel ók með lík Þóru Elínar á Landspítalann í Fossvogi þar sem hann vísaði starfs- mönnum spítalans á líkið) Kveðja frá vinkonum Þóru úr Iðnskólanum í Hafnarfirði: Stórkostleg stelpa Þóra var mjög glaðlynd og skemmtileg stelpa og traustur vinur vina sinna, ef maður var í vandræðum þá var hún alltaf til staðar hvað sem gekk á, en þó var alltaf eitt sem stóð upp úr hjá henni og var það litli gullmolinn hennar sem hún var svo montin af. Við munum minnast okkar frábæru vinkonu með bros á vör og erum ævinlega þakklátar fyrir að hafa fengið færi á að kynnast þessari stórkostlegu stelpu og alla frábæru tímana sem við áttum með henni þótt við munum ávallt óska að þeir hefðu verið fleiri. Minning þín er ljós í lífi okkar. Hvíl í friði. Kallið er komið kæra vin, kveðju stundin sár Öll við sitjum eftir hin okkar hugur fár, Engin veit hver ævin er uns hún verður öll Hvort við dveljum hér á jörð eða í himna höll. Elsku Þóra Elín þín verður sárt saknað Þínar vinkonur Axel Jóhannsson Axel var úrskurð- aður í gæsluvarðhald á föstudag en hann viðurkenndi að hafa orðið barnsmóður sinni að bana. MynD 365 / VALgArður gísLAson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.