Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2011, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2011, Síða 4
4 | Fréttir 16. maí 2011 Mánudagur Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Í sumar er opið virka daga frá kl. 9 -18 Yogadýnur Hafðu þína eigin dýnu með þér í yogatímann • Gott úrval • Mismunandi þykktir Verð frá: 3.890 kr. Páll Winkel fangelsismálastjóri fór ásamt Erlendi S. Baldurssyni deildar- stjóra í veiðiferð á opnum skemmtibáti frá Kvíabryggju í júní 2008 ásamt Geir- mundi Vilhjálmssyni, fangelsisstjóra á Kvíabryggju. Fengu þeir félagar um 170 kíló af fiski sem var landað fram hjá vigt. Slíkt er raunar heimilt, lögum samkvæmt, ef um er að ræða afla sem veiðimaðurinn og fjölskylda hans geta neytt sjálf. Þegar komið var úr sjóferð- inni þann 13. júní 2008 nutu yfirmenn Fangelsisstofnunar aðstoðar fanga við að landa aflanum. Að því loknu héld- ur þeir Páll og Erlendur til síns heima með aflann. Páll staðfesti í samtali við DV að umrædd ferð hefði verið farin líkt og mörg ár þar á undan. „Nei, nei, þetta var ekkert að neinu ráði,“ segir Páll aðspurður um hvort menn hafi verið að landa miklum af afla. Páll seg- ist halda að hann hafi einu sinni tekið með sér eitthvað af aflanum heim úr veiðiferðunum í gegnum árin. Fleiri hafi gert slíkt hið sama en einnig hafi hluti af aflanum verið eldaður á staðn- um, á Kvíabryggju. Menn voru forvitnir Geirmundur Vilhjálmsson, sem var fangelsisstjóri þá en var vikið úr starfi vegna gruns um misferli í starfi, stað- festi í samtali við DV að hafa farið með yfirmenn sína í umræddan róður á bátnum Þresti sem er í hans eigu. „Ég, Geirmundur Vilhjálmsson, með Pál Winkel og Erlend S. Baldursson á sjó á bát sem er skráður opinn skemmtibát- ur. Aflinn var um 170 kg,“ segir í stuttri yfirlýsingu sem hann sendi DV. Geir- mundur er meðal annars sakaður um að hafa keypt fimm króka til að nota á báti sínum og að hafa látið skrifa þá á fangelsið. Krókarnir fimm munu hafa verið notaðir í veiðiferðinni. Geirmundur viðurkennir að þeir hafi notið aðstoðar fanga við að bera aflann og koma honum fyrir í bíl Fang- elsismálastofnunar. Páll Winkel segir ferðina hafa verið farna í frístundum og að menn hafi tekið sér frí frá vinnu sem verður að teljast sérstakt í ljósi þess að bíll Fangelsismálastofnun- ar var notaður. „Páll og Erlendur fóru með allan aflann með sér til Reykja- víkur eftir að búið var að flaka hann á staðnum,“ segir Geirmundur. Heim- ildir DV herma að Páll kunni ekki að flaka fisk og hafi þannig verið háður Geirmundi fangelsisstjóra og föngum hans. „Þetta er opið fangelsi og menn eru þarna á rölti forvitnir. Að þeir hafi verið að hjálpa mér eða öðrum með einhverja poka frá bryggjunni og upp eftir, það getur vel verið. Ég bara man það ekki,“ sagði Páll aðspurður um hvort fangarnir hefðu hjálpað til við að landa aflanum. Þegar Páll er inntur eftir því hvort ekki sé erfitt fyrir fanga að segja nei ef þeir eru beðnir um að hjálpa yfirmönnum í fangelsum tekur hann fyrir að það þeir hafi verið beðn- ir um að aðstoða við löndun: „Nei, alls ekki. Menn vildu þetta bara. Voru áhugasamir um hvað hefur verið veitt og svo framvegis.“ Aðspurður hvort þeir hafi ekki verið að misnota aðstöðu sína segir Páll að þeir líti ekki svo á. Árlegar ferðir Þessar veiðiferðir með yfirmenn Fang- elsismálastofnunar voru samkvæmt upplýsingum DV nær árlegur við- burður fyrir þessa umræddu ferð. Iðulega voru fangar látnir aðstoða við að flaka aflann og landa honum. Páll Winkel var með sum árin en ekki öll. Yfirmennirnir komu árið 2008 á Kvía- bryggju á Subaru Legacy Outback-bif- reið embættisins. Yfirlýstur tilgangur hinna árlegu veiðiferða toppanna var sá að rætt væri við fanga í ferðunum. DV hefur undir höndum myndir frá veiðiferðinni sem farin var í júní 2008 en hún var jafnframt sú síðasta sem farin var undir þessum formerkjum. Þar sést fangi bera fiskikassa á móti fangelsismálastjóranum. Myndirnar voru teknar 13. júní 2008. „Ég, Geirmund- ur Vilhjálmsson, með Pál Winkel og Er- lend S. Baldursson á sjó á bát sem er skráður opinn skemmtibátur. Aflinn var um 170 kg. n Páll Winkel fangelsismálastjóri veiddi vel á óskráðum báti n Aflanum landað fram hjá vigt og ekið til Reykjavíkur í bíl embættisins n Fangar á Kvíabryggju látnir hjálpa til við aflann Reynir Traustason blaðamaður skrifar rt@dv.is Guðni Rúnar Gíslason blaðamaður skrifar gudni@dv.is Í sjöttu grein laga um stjórn fisk- veiða kemur fram að heimilt sé að stunda fiskveiðar í frístundum til eigin neyslu. Slíkar veiðar er einungis heimilt að stunda með sjó stöng og handfærum án sjálf- virknibúnaðar. Aflann sem fæst með slíkum veiðum er einungis heimilt að nýta til eigin neyslu og er óheimilt að selja hann eða fé- nýta á annan hátt. Samkvæmt upplýsingum frá sjávarútvegsráðuneytinu og Fiski- stofu eru engar takmarkanir á magni við slíkar veiðar. Hvorki lög- in né reglugerðir skilgreina hversu mikið magn leyfilegt er að veiða til eigin neyslu. Skiptir því engu hvort menn veiði fimm eða fimm hundruð kíló sé það gert með sjós- töng eða handfærum. Í raun er það eingöngu hvernig aflinn er veidd- ur og hvort viðkomandi selji hann sem ákvarðar hvort aflinn sé skil- greindur þannig að hann sé til eig- in neyslu. Lög um stjórn fiskveiða: Engar takmarkanir STJÓRINN LÉT FANGA VINNA FISK FYRIR SIG Páll Winkel Hvílir lúin bein við bryggjuna eftir veiðiferðina. Páll Winkel og ónefndur fangi á Kvíabryggju Bera saman afla úr bátnum yfir í bíl Fangelsisstofnunar. Óvæntur næturgestur Karlmaður í austurbæ Reykjavíkur vaknaði við heldur betur óvæntar aðstæður aðfaranótt sunnudags þegar ókunnugur næturgestur hafði lagst upp í rúm til hans. Nætur- gesturinn, sem var karlmaður, var á nærbuxunum einum fata og sofnaði í rúminu hjá manninum. Maður- inn hringdi á lögregluna sem kom á staðinn og vakti næturgestinn. Það tók næturgestinn drjúgan tíma að vakna enda hafði hann lagst til hvílu nokkuð ölvaður. Fangelsi í stað Hörpunnar „Við hefðum þá átt að moka ofan í þessa holu?“ spurði Egill Helga- son, stjórnandi Silfurs Egils Pétur Blöndal alþingismann í þættinum á sunnudaginn. Ekki stóð á svari frá Pétri: „Nei, við hefðum átt að breyta henni í fangelsi.“ Pétur var nýbúinn að tjá þá skoðun sína að tónlistarhúsið Harpa væri alltof dýrt og að þjóðin hefði ekki haft efni á húsinu. „Fyrir utan það, að þetta er ekki list sem höfðar til stórs hluta þjóðarinnar,“ sagði Pétur sem hefur ekki enn komið í húsið og langar ekkert sérstaklega mikið þangað að eigin sögn. Hann telur að frekar hefði átt að hækka bætur til öryrkja eða atvinnulausra eða að skapa atvinnu annars staðar. „Raknar lygar“ „Ég er bara aldeilis rasandi. Þetta eru eins miklar raknar lygar og hægt er að hugsa sér,“ sagði Arnþrúður Karlsdóttir þegar blaðamaður bar undir hana frásögn Viðskiptablaðs- ins af handalögmálum Péturs Gunn- laugssonar og Björn Vals Gíslasonar. Arnþrúður sem segist hafa stjórnað umræddu morgunútvarpi segir að ekkert slíkt hafi átt sér stað: „Þetta er rakin lygi og sýnir mest illkvittnina, öfundina og ógeðið sem menn eru að reyna að koma með.“ Viðskipta- blaðið greindi frá því að Pétur Gunn- arsson hafi reiðst Birni Val það mikið í útvarpsviðtali að hann hafi sópað öllu af borðinu og rifið í Björn Val.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.