Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2011, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2011, Síða 20
20 | Fókus 16. maí 2011 Mánudagur Dansbraut leiklistardeildar Listaháskólans er alþjóðleg: Níu útskrifast frá fimm löndum Í vor útskrifast níu nemendur sem dansarar af samtímadansbraut leik­ listardeildar Listaháskóla Íslands. Dansararnir eru frá fimm löndum en skólinn hefur eflst mjög síðustu ár sem alþjóðlegur skóli. Dansar­ arnir sem útskrifast í ár eru Aus­ teja Vilkaityte, Ásrún Magnúsdóttir, Kara Hergils, Marie Bergby Hande­ land, María Þórdís Ólafsdóttir, Lea Vendelbo Petersen, Lotta Suomi og Þyri Huld Árnadóttir. „Við sækjum efnilega dansara út fyrir landstein­ ana,“ segir Karen María Jónsdóttir, kennari við skólann og dramatúrg við útskriftarsýninguna. „Við höld­ um inntökupróf víða um heim því við viljum að skólinn sé alþjóðlegur. Það er mikilvægt fyrir gæði skólans því starfsumhverfi listdansara er al­ þjóðlegt. Hér er meirihluti kennara af erlendu bergi brotinn og því er umhverfið sem dansarar læra í mik­ ill suðupottur.“ Útskriftarhópurinn frumsýndi útskriftarsýningu sína í Hafnarfjarð­ arleikhúsinu um liðna helgi, fleiri sýningar verða á verkinu á þriðju­ dags­ og miðvikudagskvöld. „Undanfarnar vikur hafa útskrift­ arnemarnir unnið með danshöf­ undunum Tony Vezich og Svein­ björgu Þórhallsdóttur að síðustu uppfærslum sínum við skólann og árangurinn má sjá í uppfærslunum The Genius of the Crowd og How did you know Frankie?“ segir Karen María. „Sýning Vezich, The Genius of the Crowd, er rosalega kraftmikið verk þar sem reynir mjög á dansar­ ana,“ segir hún. „Unnið er eftir tækni sem kallast Release the Beast. Síðan er það verk Sveinbjargar, How did you know Frankie? sem er leikhúss­ kotið dansverk unnið út frá dauða­ syndunum sjö.“ kristjana@dv.is Bhusta Rhymes á tónleikum Busta Rhymes heldur tónleika í Vals­ heimilinu á Íslandi 17. maí. Á meðal upphitunaratriða verða XXX Rott­ weilerhundar og færustu hipphopp­ plötusnúðar landsins. Tónleikarnir þykja hipphoppurum og fleiri aðdá­ endum Busta mikið tilhlökkunarefni því framkoma hans á sviði er stórkost­ leg. Mest selda plata hans er The Big Bang frá árinu 2006. Semur á Íslandi Eivør Pálsdóttir söngkona leggur Maríu Ellingsen og Reijo Kela dansara lið. Þær frumsýna Söguna um Fönix­ inn í Borgarleikhúsinu á Listahátíð þann 24.maí næstkomandi. Hún hefur dvalið hér á landi um skamma hríð og unnið með Maríu og Reijo að verkinu. Hún er einnig farin að vinna í róleg­ heitunum að sinni næstu plötu. „Ég er komin mjög stutt með plötuna og það verður bjartara yfir henni en Lörvu. Ég vil samt ekki segja of mikið því ég veit að allt getur gerst í stúdíóinu. Ég er svo dreymin að ég er alltaf að fá fullt af hugmyndum sem breytast svo daginn eftir,“ segir hún og brosir. Þ ú veist að þegar þú ferð á Ken Loach­mynd þá er aldrei um neina froðu að ræða. Margverðlaunaður og heiðraður fyrir sitt fram­ lag til kvikmynda, sínar persónulegu sögur í róttæku félagslegu samhengi. Leikstjórinn sem neitaði O.B.E.­ viðurkenningunni (Officer of the Order of the British Empire) sökum þess að breska heimsveldið væri bara minnisvarði um arðrán og land­ töku. Ekki furða að Hollywood þori ekki að snerta á honum. Hann fer um víðan völl og aldrei of hátíðlega, sögur hans eru fallegar og skítugar. Hann hefur sagt að kvikmynd sé ekki pólitísk hreyfing en í besta falli rödd reiðs almennings. Með þessum hóg­ væru kenniorðum hefur hann hrófl­ að upp eldfimri umræðu sem hefur leitt af sér varanlegar úrbætur. Leikrit sem hann gerði um heim­ ilislausa í Bretlandi og stórmyndin Land og frelsi um spænska borgara­ stríðið sköpuðu gríðarlega almenna umræðu. Mynd hans um réttarhöld McDonald's gegn gagrnýnendum sínum var stór valdur að ímyndar­ breytingu McDonald's. Loach var sakaður um að vera and­breskur fyr­ ir myndina the Wind That Shakes the Barley um sjálfstæðisbaráttu Íra þótt truflandi innihald myndarinn­ ar væru sögulegar staðreyndir sam­ þykktar frá báðum hliðum málsins. Route Irish sver sig í sömu ætt, tekur á Íraksstríðinu og þætti mála­ liða þar. „Private Contractors“ eru notaðir í æ meira mæli í stríðum dagsins í dag. Fergus (Mark Wo­ mack) er einn slíkur, þaulreyndur fyrrverandi sérsveitarmaður breska hersins sem fer í málaliðageirann sökum peninganna sem þangað er að sækja. Hann dregur æskuvin sinn Frankie (John Bishop) með sér í slíka vinnu í Írak og maður gerir ráð fyrir að tíu þúsund pund á mánuði segi sitt fyrir Liverpool­stráka komna af lágum stéttum. Þegar Frankie kem­ ur heim frá Írak í tægjum setur sorg­ bitinn Fergus spurningamerki við opinbera skýringu á dauða hans. Það kemur fljótlega í ljós að öryggisfyrir­ tækið sem sendi hann hefur ýmislegt að fela og Fergus hefur eigin rann­ sókn sem leiðir hluti í ljós sem þola tæplega dagsljósið. Ekki bara sem snýr að hernaðinum heldur einnig að persónlegum hlutum. Sem fyrr hjá Loach er veruleik­ inn hrár þótt rómantík og von séu alltaf til staðar. Eins og senan þegar þeir skemmta sér í blindrabolta með félaga sínum sem hefur misst sjón í stríðinu. Myndin magnast upp og viðbjóðurinn með. Í hernum vernd­ arðu félagana sama hvað, en í mála­ liðabransanum þá er viðskiptavinur­ inn það eina sem skiptir máli. Myndin er tekin upp í Jordan en einnig er notast við raunverulegar myndir frá Írak sem eru viðbjóður. Loach er alltaf næmur á aðstæður, ein mynda hans sem gerist í Bret­ landi var textuð fyrir Bandaríkja­ markað því bresku mállýskurnar, slangrið og framburðurinn var óskilj­ anlegur Kananum. Hérna þakkar maður fyrir textann því Liverpool skouzer­slangið er oft ekki auðvelt að skilja. Hér notast hann sem oft áður við minna þekkta leikara sem skila engu að síður sínu þrátt fyrir örlitla hnökra svo sem hjá ekkju Frankies, Rachel (Andrea Lowe). Týpurnar eru flottar og myndin er átakanleg og snjöll. Inntakið og fléttan er sönn, einföld en kemur samt á óvart. Loach er alltaf með puttann á púlsinum og dettur ekki í áróður sem sést meðal annars í hlið her­ mannanna sem hafa ekki mikla samúð með Írökunum. Myndir á borð við Saving Private Ryan og Hurt Locker eru stórkostlega útlít­ andi en innihaldið er sjálfhverft og rýrt. Hér eru brellur og útlit á sínum stað en hefur svo miklu meira fram að færa. Route Irish IMDb 6,9 RottenTomatoes 71% Leikstjóri: Ken Loach Handrit: Paul Laverty Leikarar: Mark Womack, Andrea Lowe, John Bishop. 109 mínútur Bíómynd Erpur Eyvindarson Blóð og dRulla Hrár veruleiki Kens Loach Þótt rómantík og von sé alltaf til staðar. Skáldasetur Jóhannesar Skáldasetur Jóhannesar úr Kötlum, http://johannes.is, hefur verið opnað á nýjan leik eftir vinnuhlé en umtals­ verðar breytingar og endurbætur hafa verið gerðar á vefsetrinu auk þess sem nýju efni hefur verið bætt við. Vefsetrinu er ætlað að veita bæði fræði­ og leikmönnum sem besta yfirsýn yfir verk og lífsferil Jóhannesar og vera gagnabrunnur á einum stað fyrir rannsóknir, ritgerðir eða hreina skemmtun og fróðleiksfíkn. Á vefsetr­ inu má sem dæmi finna greinar helstu fræðimanna þjóðarinnar um Jóhann­ es og skáldskap hans, tónlist samtíma­ listamanna við ljóð hans og ýmislegt efni sem óaðgengilegt hefur verið fyrir vefinn hingað til, svo sem afmælis­ og minningarljóð auk lausavísna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.