Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2011, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2011, Qupperneq 24
Manchester United varð á laugar- daginn Englandsmeistari í 19. sinn þegar liðið gerði jafntefli á útivelli, 1–1, gegn Blackburn. Með titlinum er United orðið sigursælasta félag Englands en liðið var jafnt Liver- pool með átján titla. Þegar Sir Alex Ferguson tók við stjórnartaumunum á Old Trafford var staðan 18-7 fyrir Liverpool en tólf úrvalsdeildartitl- ar hafa komið United upp fyrir erki- fjendur sína. „Nei, aldrei,“ svaraði Sir Alex Ferguson aðspurður á Sky hvort hann hefði dreymt um að velta Liverpool af stalli í sinni stjórnartíð. „Það var bara mikilvægt fyrir okkur að vinna þennan fyrsta. Þá komumst við í gang. Við höfum átt fullt af frá- bærum liðum hérna og sama hvað hver segir, þetta er eitt af þeim,“ sagði Ferguson. Small allt í lokin Edvin van der Sar, Nemanja Vidic, Ryan Giggs, Nani, Wayne Rooney, Dimitar Berbatov og Javier Hernan- dez hafa verið þeir sem hvað mest hafa gert til að landa þessum nítj- ánda titli. Framlagi tveggja manna núna undir lokin má þó ekki gleyma, Ji-Sung Park og Antonio Valencia. „Þeir komu inn í þetta á hárrétt- um tíma og gáfu okkur meiri fersk- leika í liðið,“ sagði Ferguson en Val- encia spilaði aðeins sinn tíunda leik í deildinni gegn Blackburn og nær því rétt svo að fá medalíuna næsta sunnudag. Javier Hernandez er án nokkurs vafa kaup ársins í enska boltanum en þessi átta milljóna punda fram- herji skoraði 20 mörk á sinni fyrstu leiktíð og fiskaði vítið sem á endan- um tryggði United titilinn. Hann réð sér vart af kæti eftir sigurinn. „Þetta er allt sem mig hefur dreymt um. Líf- ið hefur verið frábært alveg síðan ég kom til Englands og að vinna titil á mínu fyrsta ári er ólýsanlegt,“ sagði litla baunin. Tímabil United getur orðið full- komið eftir tvær vikur þegar liðið mætir hinu stórkostlega liðið Barce- lona í úrslitaleik meistaradeildar- innar. Þar getur Ferguson bætt enn einni rós í hnappagat sitt og gert það sama og Sir Matt Busby gerði, að gera United að Evrópumeisturum á Wem- bley. LEIÐIN AÐ TITLINUM Ágúst Chelsea hóf tímabilið með látum og vann fyrstu tvo leiki sína 6–0 gegn WBA og Wigan. Man. United vann aftur á móti báða heimaleiki sína en gerði jafntefli gegn Fulham á úti- velli. Arsenal náði síðbúnu jöfnun- armarki gegn Liverpool í fyrsta stór- leik ársins en skoraði sex á nýliðana í Blackpool. Staðan í lok mánaðar: 1. Chelsea 3 leikir og 9 stig, 2. Arsenal 3 leikir og 7 stig, 3. Man. United 3 leikir og 7 stig. September Chelsea lítur áfram vel út og vinn- ur auðvelda sigra á West Ham og Blackpool en gerir loks jafntefli þegar liðið mætir Man. City á útivelli. Uni- ted nær aðeins jafntefli gegn Ever- ton og Bolton í góðum leikjum en vinna erkifjendaslaginn gegn Liver- pool þar sem Dimitar Berbatov skor- ar þrennu. Arsenal fær á sig mark frá Darren Bent gegn Sunderland á síð- ustu mínútu leiksins gegn Sunder- land og tapar óvænt gegn WBA, 3-2. Staðan í lok mánaðar: 1. Chelsea 6 leikir og 15 stig, 2. Man. United 6 leikir og 12 stig, 3. Arsenal 6 leikir og 11 stig. Október WBA heldur áfram að gera stóru lið- unum skráveifu og nær jafntefli gegn United á útivelli. United klárar mán- uðinn þó vel með sigrum gegn Stoke og Tottenham. Chelsea eykur for- skotið á toppnum með mikilvægum sigri á Arsenal en þarf að sætta sig við jafntefli gegn Aston Villa úti. Arsenal nær sér á skrið eftir tapið gegn Chel- sea og vinur þrjá leiki í röð og kemst þannig yfir Man. United á töflunni. Staðan í lok mánaðar: 1. Chelsea 10 leikir og 25 stig, 2. Arsenal 10 leikir og 20 stig, 3. Man. United 10 leikir og 20 stig. 24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 16. maí 2011 Mánudagur Manchester City bikarmeistari: „Núna viljum við vinna deildina“ Það var heldur betur fagnað á götum úti í Manchester-borg um helgina þar sem Manchester City varð bikar- meistari með 1-0 sigri á Stoke. Vann liðið þar sinn fyrsta titil í 35 ár. Verða stuðningsmenn nágrannanna í Uni- ted því að rífa niður borðann góða á Old Trafford þar sem gert er grín að titlaleysi þeirra bláu. Hæstlaunaðasti knattspyrnu- maðurinn á Englandi, Yaya Toure, reyndist heldur betur drjúgur í bik- arkeppninni því hann skoraði bæði markið sem kom liðinu í undanúrslit og einnig sigurmarkið gegn Stoke í úrslitaleiknum. „Ég er bara svo ánægður fyrir hönd stuðningsmannanna,“ sagði Mancini hæstánægður eftir sigurinn. „Það er langt síðan liðið hefur unn- ið titil. Auðvitað líður mér vel en það er mikilvægara að fólkinu sem styður liðið líði vel,“ sagði Ítalinn. Tímabilið verður ekki flokkað undir neitt annað en vel heppnað hjá þeim bláu en auk þess að vinna fyrsta titil liðsins í 35 ár er City nú þegar búið að tryggja sér sæti í Meist- aradeildinni á næstu leiktíð. Getur það því ekki bara boðið hæstu launin í Evrópuboltanum heldur getur það nú lokkað til sín allra stærstu stjörn- ur heims þar sem City verður í Meist- aradeildinni. Mancini veit vel af þessari góðu stöðu sem City er í. „Núna viljum við reyna að vinna deildina. Við höf- um sýnt að við getum barist á toppn- um og um Meistaradeildarsæti. Og núna höfum við fengið smá bragð af því hvernig er að vinna titla. Það var kominn tími á það þannig að á næsta tímabili reynum við að vinna þann stóra,“ sagði hann. Það er af sem áður var hjá City en fyrir aðeins tólf árum var liðið að mæta andstæðingum á borð við Shrewsbury í þriðju efstu deild Eng- lands. Að vanda eru mörg risanöfn orðuð við Manchester City en það helsta núna er brasilíski miðjumað- urinn Kaka. tomas@dv.is Sjö ára bið lokið hjá Milan n AC Milan er ítalskur meistari í fót- bolta en liðið tryggði sér titilinn um helgina með öruggum sigri á Cagl- iari á heima- velli, 4–1. Langri bið er því lokið hjá AC Milan sem varð síðast meistari árið 2004 eða fyrir sjö árum. Milan hefur haft tögl og hagldir á ítölsku deildinni allt tímabilið en titillinn er einkar sérstakur fyrir Zlatan Ibra- himovic sem hefur nú orðið deildar- meistari átta ár í röð með Ajax, Int- er, Barcelona og AC Milan. Þrír í röð hjá Rangers n Fleiri lið urðu meistarar um helgina en deildarkeppninni lauk í Skotlandi þar sem Glasgow-liðin Rangers og Celt- ic börðust um titilinn að vanda. Rangers hafði eins stigs forystu fyrir lokadaginn og átti útileik gegn Kilmar- nock. Það var nú ekki erfitt fyrir Rangers að klára titilinn því liðið valtaði yfir Kilmarnock, 5–1, og var komið í 3–0 eftir sjö mínútur. Celtic vann Motherwell á sama tíma 3–0 en það dugði ekki til og þarf liðið að sjá á eftir titlinum á Ibrox þriðja árið í röð. Ajax aftur á toppinn n Hollenska stórveldið Ajax endur- heimti meistaratitilinn þar í landi á sunnudaginn. Liðið var einu stigi á eftir Twente fyrir lokaumferðina en þau mættust einmitt á Amst- erdam Arena. Ajax sýndi mátt sinn og megin og vann þennan úr- slitaleik, 3–1, þar sem Siem De Jong skoraði tvö mörk. Sjö ára eyðimerk- urgöngu Ajax í hollensku deildinni er því lokið og þetta sigursælasta félag Hollands aftur komið á topp- inn. Þetta er þrítugasti meistaratitill Ajax sem þýðir að liðið getur bætt við stjörnu á búning sinn. Þrír leikir í Pepsi-deildinni n Fjórðu umferð Pepsi-deildar karla lýkur í kvöld, mánudag, með þremur leikjum. Bikarmeistarar FH taka á móti nýliðum Víkings í Kaplakrika en bæði lið hafa fjögur stig fyrir kvöldið. Suður- nesjaslagur Grindavíkur og Keflavíkur fer fram í Grinda- vík og þá taka KR-ingar á móti ný- liðum Þórs. Leikirnir í Krikanum og í Grindavík hefjast klukkan 19.15 en viðureign KR og Þórs hefst klukkan 20.00 og er hún í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Nýliðarnir vel af stað n Pepsi-deild kvenna fór af stað með látum um helgina en þar gerðu nýliðarnir heldur betur vel. Þróttar- ar gerðu sér lítið fyrir og náðu jafntefli gegn Breiðabliki á úti- velli, 1–1, en ÍBV gerði enn betur. Eyjastúlkur völt- uðu yfir silfur- meistara síðasta árs, Þór/KA, 5–0. Valur vann Grindavík, 1–0, Stjarnan vann Fylki, 3–0 og þá gerðu KR og Afturelding jafntefli, 0–0. ÍBV er á toppnum eftir fyrstu umferðina. Molar Fyrsti titillinn í 35 ár Næst ætlar Man. City að vinna deildina. MyND REUTERS n Manchester United Englandsmeist- ari í 19. sinn n Tók fram úr Liverpool með jafntefli gegn Blackburn n Ferguson hyggst ekki setjast í helgan stein Tómas Þór Þórðarson blaðamaður skrifar tomas@dv.is Leiðin inn í sögubækurnar Búið að velta Liverpool af stalli Manchester United hefur unnið 19 Englandsmeistaratitla, fleiri en nokkurt annað lið. MyND REUTERS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.