Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2012, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2012, Page 4
4 Fréttir 26. mars 2012 Mánudagur Afskrifað hjá félagi Einars n 227 milljóna kröfur hjá eignarhaldsfélagi Glitnismanns N ærri 227 milljóna króna skuldir voru afskrifaðar hjá eignarhaldsfélagi Einars Páls Tamimi, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra lögfræði- og reglu- vörslusviðs Glitnis fyrir hrun. Skipt- um er lokið á félaginu, sem heitir 123 Holding ehf. en hét áður eft- ir eiganda sínum, og fengust rúm- ar 500 þúsund krónur upp í rúm- lega 227 milljóna króna kröfur sem var lýst í bú félagsins. Auglýsing um skiptalokin birtist í Lögbirtinga- blaðinu á föstudaginn. Einar Páll Tamimi var launahæsti starfsmaður Glitnis árið 2008 með um 21 milljón króna í laun á mán- uði, samkvæmt skýrslu rannsókn- arnefndar Alþingis. Hann fékk 440 milljóna króna kúlulán hjá Glitni, bæði í eigin nafni og til eignarhalds- félagsins sem nú hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta og gert upp með nærri 227 milljóna króna afskrift. Glitnir lánaði starfsmönnum sínum fyrir hlutabréfum í bankanum með kúlulánum. Stjórn Íslandsbanka ákvað það á vormánuðum 2010 að afskrifa kúlu- lánin til starfsmannanna, að gera ekki kröfu um að sótt yrði á eignar- haldsfélög starfsmannanna þar sem engar eignir væri þar að finna nema verðlaus hlutabréf í gjaldþrota banka. Skorað var á fyrrverandi starfsmenn Glitnis að gefa eignar- haldsfélögin upp til gjaldþrotaskipta til að forðast kostnað við innheimtu kúlulánanna. Síðan þá hafa félögin verið tekin til gjaldþrotaskipta eitt af öðru og skuldir þeirra afskrifaðar. ingi@dv.is Ostborgari franskar og 0,5l gos Máltíð Mánaðarins Verð aðeins 1.045 kr. d v e h f. 2 0 12 / d av íð þ ó r Stigahlíð 45-47 | Sími 553 8890 *gildir í mars Launahæsti starfsmaður Glitnis Einar Páll Tamimi var með 21 milljón á mánuði árið 2008. Hann fékk auk þess 440 milljóna króna kúlulán. Eignarhaldsfélag hans hefur nú verið gert upp með nærri 227 milljóna afskrift. F járfestingarfélagið Teton, sem er í eigu Gunnlaugs Sigmunds- sonar, Vilhjálms Þorsteinsson- ar og Arnar Karlssonar, greiddi 155 milljónir króna af 248 millj- óna hlutafé sínu til hluthafa sinna í árslok 2010. Teton fékk undanþágu til þessa frá efnahags- og viðskipta- ráðuneytinu. Hluthafar Teton eru þrjú eignarhaldsfélög í Lúxemborg. 155 milljónirnar bætast við 600 milljóna króna arð sem Teton greiddi til eignarhaldsfélaga hluthafa sinna í Lúxemborg vegna rúmlega 1.150 milljóna króna hagnaðar félagsins árið 2008. Eigendur Teton hafa ekki viljað greina DV frá því hvernig félagið þeirra hagnaðist svo mjög á á hrunárinu 2008 þegar hlutabréfaverð, skuldabréfaverð og krónan lækkuðu í verði. DV hefur undanfarna daga fjallað um málefni Teton og var meðal annars greint frá því fyrir helgi að Teton sérhæfði sig í skortstöðum. „Svindl með hjálp endurskoðanda“ DV hefur síðustu vikurnar greint frá nokkrum dæmum um það að hlutafé eignarhaldsfélaga hafi verið lækkað með þessum hætti og greitt út til hlut- hafa eftir að efnahags- og viðskipta- ráðuneytið hefur veitt heimild til þess. Tvö dæmi eru félög sem voru í eigu Finns Ingólfssonar. Langflug og AB101 ehf., fengu slíka heimild frá ráðuneyt- inu til að lækka hjá sér hlutaféð um samtals nærri 1.100 milljónir króna og voru þessir peningar greiddir út til hluthafa sinna, annarra eignarhalds- félaga í eigu Finns Ingólfssonar. Þetta gerðist í blálok árs 2007. Endurskoðandi sem DV hefur rætt við um slíkar hlutafjárhækkanir og -lækkanir segir að oft og tíðum sé um óeðlileg viðskipti að ræða þegar hlutafé eignarhaldsfélaga er hækkað eða lækkað með þessum hætti í lok reikningsárs. Orðar endurskoðandinn það sem svo að um sé að ræða „svindl með hjálp endurskoðanda“. Hlutafjár- lækkun Teton var einnig framkvæmd í blálok árs 2010, Teton fékk heimildina frá ráðuneytinu með bréfi dagsettu 28. desember. Orðrómur um stöðutöku gegn bönkunum Ástæðan fyrir miklum hagnaði Teton fyrir hrunið 2008 liggur enn ekki fyrir. Eftir að DV fjallaði um málefni félags- ins hefur hins vegar komið í ljós að hávær orðrómur var um það á vor- og sumarmánuðum 2008 að eigendur Te- ton hefðu tekið stöðu gegn íslensku bönkunum. Slík stöðutaka gegn ís- lensku bönkunum árið 2008 hefði get- að skilað mönnum miklum hagnaði enda hrundi hlutabréfaverð í þessum fyrirtækjum á þessum tíma. Teton- menn vilja hins vegar engin svör veita um eðli fjárfestinga sinna. Þó umræðan um stöðutökur gegn fyrirtækjum í samfélaginu sé almennt frekar slæm þá getur stöðutaka hins vegar haft jákvæðar afleiðingar. Tekið skal fram að slíkar stöðutökur eru ekki ólöglegar. Ein jákvæð afleiðing getur verið sú að stöðutökur leiðrétta ofmat í hlutabréfum í samfélaginu og færa verðmat þeirra nær því sem það ætti að vera í raun. Eitt af vandamálum ís- lenska bankakerfisins fyrir hrun var auðvitað að hlutabréf bankanna voru allt of hátt metin miðað við raunveru- legt verðmæti þeirra. Þeir fjárfestar sem voru mjög klókir nýttu sér þetta og græddu á muninum á raunverulegu verðmæti hlutabréfanna og þess upp- blásna verðs sem lá fyrir á markaði. Tóku 155 milljónir úT úr TeTon 2010 n Bætist við 600 milljóna króna arð n Orðrómur um stöðutöku „Slík stöðutaka gegn íslensku bönkunum árið 2008 hefði getað skilað mönnum mikl- um hagnaði Fengu undanþágu Eignarhaldsfélagið Teton fékk undanþágu frá innköllunarskyldu þegar hlutafé félagsins var lækkað um 155 milljónir króna í árslok 2010. Félagið er meðal annars í eigu Gunnlaugs Sigmundssonar og Vilhjálms Þorsteinssonar. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Hvalreki í Beruvík „Það er full rúta af ferðamönnum komin hérna að líta á hræið,“ segir Skúli Alexandersson, leiðsögu- maður frá Hellissandi, en full- vaxið búrhveli rak á land í Beruvík á Snæfellsnesi. Skúli segir dýrið vera tólf til fimmtán metra á lengd og að það virðist vera fullvaxið og algerlega óskemmt. Ekki leggur mikla lykt frá hvalnum að sögn Skúla sem segir hann eflaust hafa rekið á land fyrir skömmu. Hann á von á að fjöldi fólks muni leggja leið sína í Beruvík til þess að skoða hræið en hann veit ekki hvað gert verður við það. Gæti fengið hálfan milljarð Ekki er útilokað að íslenska ríkið þurfi að greiða félagi í eigu Ólafs Ólafssonar tæplega hálfan millj- arð til baka vegna olíusamráðs- málsins, en dómur féll í síðustu viku í héraðsdómi. Þá felldi Hér- aðsdómur Reykjavíkur úr gildi ákvörðun áfrýjunarnefndar sam- keppnismála um sektargreiðslur vegna málsins árin 1993 til 2001. Í fréttum Stöðvar 2 á sunnudags- kvöld kom fram að íslenska ríkið þurfi að greiða Keri, áður olíu- félaginu Esso, 495 milljónir króna, Skeljungi 450 milljónir og Olís 560 milljónir. Ker er í eigu fjárfest- ingarfélagsins Kjalar sem er í eigu Ólafs Ólafssonar sem kenndur er við Samskip. Málinu verður áfrýjað til Hæstaréttar og því verða peningarnir ekki endurgreiddir fyrr en endanleg niðurstaða liggur fyrir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.