Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2012, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2012, Side 10
10 Fréttir 26. mars 2012 Mánudagur F innskur vinur og viðskipta­ félagi Björgólfs Thors Björg­ ólfssonar keypti hlutabréf í Landsbankanum fyrir 3,8 milljarða króna þann 3. októ­ ber 2008. Landsbankinn var yfir­ tekinn af Fjármálaeftirlitinu fjórum dögum síðar, þann 7. október. Finn­ inn heitir Ari Mika Petteri Salmi­ vuori og keypti hlutabréfin í gegn­ um aflandsfélagið Azalea Resources Limited. Landsbankinn fjármagnaði hlutabréfakaup Finnans í bankanum. Finninn gengur undir nafninu „Ari finnski“ hjá þeim sem til þekkja í ís­ lensku viðskiptalífi. Björgólfur Thor var spurður út í þessi viðskipti Finnans í yfirheyrslu sem hann fór í hjá sérstökum sak­ sóknara í þar síðustu viku samkvæmt heimildum DV. Björgólfur Thor er með réttarstöðu vitnis í rannsókn­ inni. Björgólfur var einnig spurður út í 4,5 milljarða króna yfirdráttarlán frá Landsbankanum í Lúxemborg til búlgarska félagsins Pro­Invest, sem er í eigu Georgs Tsvetanski, þann 30. október 2008. Lánið var veitt einum degi eftir þjóðnýtingu Glitnis þann 29. september 2008. Tsvetanski og Björgólfur eru fyrrverandi viðskipta­ félagar. Ragnhildur Sverrisdóttir, talskona Björgólfs Thors, segir að fjárfestirinn geti ekki tjáð sig um það sem fram fór í yfirheyrslunni. „Björgólfur tjáir sig ekkert um þau mál sem hann var spurður út í sem vitni.“ Ragnhildur segir að Ari Salmivuori sé vissulega gamall viðskiptafélagi Björgólfs Thors en að engu sé við það að bæta. Rannsaka markaðsmisnotkun Embætti sérstaks saksóknara fór í heilmikla rassíu vegna Landsbank­ ans í janúar í fyrra. Nokkrir af fyrr­ verandi yfirmönnum Landsbankans voru þá yfirheyrðir, meðal annars bankastjórarnir Sigurjón Árnason og Halldór J. Kristjánsson, sem og Steinþór Gunnarsson og Ingvi Örn Kristinsson. Meðal þess sem var til skoðunar hjá embættinu var meint markaðsmisnotkun með hlutabréf í Landsbankanum sjálfum og lán­ veitingar til eignarhaldsfélaga til að kaupa hlutabréf í bankanum. Þetta er það sem er til rannsóknar í tilfelli viðskipta Finnans: Meint markaðsmisnotkun. Heimildir DV herma hins vegar að ekki hafi náðst að ganga endanlega frá kaupum fé­ lags Finnans á hlutabréfunum í Landsbankanum þar sem svo stuttur tími leið frá því að hann festi kaup á bréfunum og þar til Landsbankinn var yfirtekinn af Fjármáleftirlitinu. Í skýrslu rannsóknarnefndar Al­ þingis er minnst á kaup Azalea Re­ sources Limited í Landsbankanum en þar segir að félagið hafi keypt hlutabréf í bankanum fyrir 3,781 milljón þann 3. október 2008. Um var að ræða nærri 200 milljón hluti í bankanum sem seldir voru á geng­ inu 19. Sama dag keypti eignarhalds­ félag Magnúsar Ármann, Imon ehf., 200 milljón hluti í bankanum. Þessi tvenn viðskipti voru síðustu stóru viðskiptin með hlutabréf í Lands­ bankanum áður en bankinn féll fjór­ um dögum síðar. Viðskiptafélagar um árabil DV hefur heimildir fyrir því að tengsl Björgólfs og Ara hins finnska séu nokkur. Ari er fjárfestir í Finnlandi og er eigandi og stjórnarformaður fjárfestingarfélagsins Ajanta sem er með skrifstofur í Helsinki og í Belgíu. Björgólfur Thor og Ari Salmivuori hafa til að mynda fjárfest saman í finnsku símafyrirtækjunum Sauna­ lahti og Elisa auk þess sem Björgólf­ ur Thor fjárfesti í finnska flugfélag­ inu Finnair í gegnum Ara árið 2005. Ari var til dæmis í viðtali við Morgunblaðið árið 2005 þar sem blaðið fjallaði um velgengni Björgólfs Thors í viðskiptum og var spurður út í símafyrirtækið Elisa. „Elisa verður að stækka. Ef það er ekki hægt í Finn­ landi, þá utan Finnlands. Og auðvi­ tað viljum við gera það með Björgólfi Thor; Íslendingar vita hvernig á að stækka utan heimalandsins!“ Samkvæmt grein á ensku á finnskum vefmiðli er Ari tiltölu­ lega lítt þekktur í Finnlandi. Hann er fyrst og fremst þekktur fyrir að vera viðskiptafélagi Björgólfs Thors. Þá segir í greininni að Ari hafi lagt sitt af mörkum árið 2006 til að tryggja Björgólfi fasteignafélagið Kapiteeli sem var í ríkiseigu á þeim tíma. Kapi­ teeli var hins vegar á endanum selt til finnsks fyrirtækis. Þá kemur einn­ ig fram í greininni að í janúar 2008 hafi fjárfestingarfélag Finnans, Aj­ anta, selt fjárfestingarfélagi Björgólfs Thors, Novator, hlutabréf í íþrótta­ vöruframleiðandanum Amer sem fyrirtæki Ara hafði þá tapað miklu á. Kom í afmæli Björgólfs Thors Heimildir DV herma að Björgólf­ ur Thor hafi þrátt fyrir þessi tengsl gert frekar lítið úr tengslum sín­ um við Ara í yfirheyrslunni hjá sér­ stökum saksóknara. Ari og Björg­ ólfur þekkjast hins vegar vel og kom finnski fjárfestirinn meðal annars í fertugsafmæli Björgólfs sem haldið var á Jamaíku 2007. 130 gestir voru í afmælinu sem haldið var í kastal­ anum Trident. Líkt og frægt er orðið söng bandaríski rapparinn 50 Cent í afmælinu. „Ég er í stórmarkaðnum“ DV hafði samband við Ara á föstu­ daginn. Blaðið hringdi í finnskt far­ símanúmer sem skráð er á heima­ síðu Ajanta, fjárfestingarfélags hans í Finnlandi. Ari svaraði en hafði hins vegar ekki áhuga á að ræða við blað­ ið um viðskipti hans með hlutabréf í Landsbankanum. Samtal blaða­ manns við Ara fylgir hér á eftir: Blaðamaður: Ari? Ari: Já, sá er maðurinn. Blaðamaður: Heyrir þú í mér? Ari: Já. Blaðamaður: Ég heiti Ingi Vil­ hjálmsson og er blaðamaður á ís­ lenska dagblaðinu DV. Ari: Já, en þú afsakar – ég veit ekki hvort þú heyrir í mér – en ég er staddur í stórmarkaði... Blaðamaður: Ég skil, ég skil en mig langar bara að spyrja þig að einu, ég verð mjög fljótur. Þann 3. október 2008... Ari: Hei, hei, hei getur þú ekki hringt í mig eftir klukkutíma? Blaðamaður: Leyfðu mér bara að bera upp erindið... Ari: (skellti á) Sónninn heyrist. Ari vildi því ekki ræða um við­ skiptin í þessu samtali, áður en hann skellti á blaðamann DV. Þegar DV hringdi í Ara rúmum klukkutíma síð­ ar var slökkt á síma hans. Vinurinn keypti bréf í bankanum í hruninu n Ari Salmivuori keypti fyrir 4 milljarða í Landsbankanum n Bankinn féll 4 dögum seinna Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Ég er í stór- markaðnum Spurt um Finnann Björgólfur Thor Björgólfsson var spurður um tengsl sín við Finnann í yfirheyrslu hjá embætti sérstaks saksóknara fyrir skömmu. Ólafur Hauksson stýrir embættinu. Kom í afmælið Ari Mika Petteri Salmi- vuori var einn af gestunum í fertugsafmæli Björgólfs Thors á Jamaíku árið 2007. Þeir Björgólfsfeðgar sjást hér ásamt bandaríska rapparanum 50 Cent í afmælinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.