Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2012, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2012, Side 14
14 Erlent 26. mars 2012 Mánudagur Ástæða til að óttast: Vatn sem hernaðartól Skortur á ferskvatni, þurrkar og flóð gætu gert það að verkum að vatn verði í auknum mæli notað sem eins konar hernaðartæki í fram- tíðinni. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá National Intelligence Estimate, stofnun sem er yfir allri leyniþjónustu Bandaríkjanna, en bandaríska blaðið The Washington Post fjallaði um skýrsluna á dög- unum. Blaðið hefur eftir ónafngreind- um heimildarmanni að bandarísk stjórnvöld hafi áhyggjur af því að „vatn verði notað sem vopn þar sem ein þjóð hindrar aðgang annarrar þjóðar að hreinu vatni“. Þetta á sér- staklega við um ríki sem búa ekki yfir miklum birgðum af ferskvatni, til dæmis ríki í Mið-Austurlöndum, Suður-Asíu og Norður-Afríku. Í skýrslunni kemur fram að lítil hætta sé á slíkum hernaðarátökum á næstu árum. Um miðja þessa öld geti þessi hætta þó skapast sam- hliða auknum fólksfjölda og auk- inni ásókn í ferskt vatn. Bent er á að í sumum löndum sé hraðar gengið á vatnsból en þau endurnýjast og það sé þegar farið að hafa áhrif í ríkjum sem reiða sig á landbúnað að miklu leyti. Á næstu 40 árum sé gert ráð fyrir meiri þurrkum og meiri öfgum í veðri sem gætu gert þjóðir berskjaldaðar fyrir vatns- skorti. Þá er einnig bent á að hryðju- verkamenn gætu beint spjótum sínum að viðkvæmum vatnsbólum sem myndi skapa mjög alvarlegt ástand. n Barack Obama reynir að sýnast vera venjulegur Bandaríkjamaður Pylsur og körfubolti voPn gegn romney Í myndarherferð Baracks Obama, forseta Bandaríkjanna, í aðdrag- anda forsetakosninganna sem fram fara í nóvember á þessu ári, er komin á fullt. Allt bendir til þess að Mitt Romney verði fulltrúi Repúblikanaflokksins, en sá er ofur- ríkur, hvítur miðaldra karlmaður – nokkuð sem Obama vill fjarlægja sig frá. Í ofanálag hefur Romney þótt heldur klaufskur í ummælum sínum og á erfitt með að sýnast vera venju- legur Bandaríkjamaður. Körfuboltinn mikilvægur Eftir fjögur ár í Hvíta húsinu gæti ímynd Obama, sem ungæðislegur töffari og vonarneisti þjóðar, hafa dofnað aðeins. Væntingar urðu að vonbrigðum og það viðhorf heyrist oftar að Obama sé ekkert öðruvísi en forverar hans á forsetastóli. Þessa ímynd reynir Obama nú að lappa upp á. Þar spilar körfubolti lykil hlutverk. Forsetinn hefur að undanförnu komið fram á íþróttasjónvarpsstöð- inni ESPN til þess að spá í spilin fyrir úrslitin í háskólakörfuboltanum þar í landi. Athygli vakti að Obama not- aði slanguryrði um tölfræði körfu- boltans, sem bendir til þess að hann hafi raunverulegan áhuga á þess- ari vinsælu íþrótt. Það þótti líka klókt af honum að spá háskólanum í Norður-Karólínu sigri í úrslitun- um, en það ríki er eitt þeirra þar sem barátta frambjóðenda verður hvað hörðust. Þá hefur Obama sagt í viðtali að hann hafi vitað upp á hár hver Je- remy Lin, nýjasta ofurstjarnan í NBA- körfuboltanum væri, áður en hann sló í gegn. Lin var nánast algjörlega óþekktur og ónotaður varamaður hjá New York Knicks áður en hann blómstraði snögglega og allt ætlaði um koll að keyra í svokölluðu LIN- sanity æði. Öðruvísi áhugi Romneys Þegar þú ert forseti Bandaríkjanna, þá er það ekki tilviljun eða skyndi- ákvörðun sem ræður því að þú færð þér pylsu úti á götu. Slíkar upp- ákomur geta verið þaulskipulagðar af ímyndarsérfæðingum kosninga- herferðar Obama og hafa þann til- gang að láta almenning muna að for- setinn sé venjulegur maður sem hafi sömu áhugamál og fólkið í landinu. Á dögunum skellti forsetinn sér á íþróttaleik í Ohio með David Came- ron, forsætisráðherra Bretlands. Félagarnir sátu á fremsta bekk og gæddu sér á pylsum og horfðu á leikinn eins og þeir væru ótíndir al- múgamenn. Ef ekki væri fyrir her leyniþjónustumanna sem gætti öryggis þeirra, þá hefðu þeir getað verið hvaða miðaldra félagar sem er. Í úttekt sem bandaríska dagblað- ið New York Times gerði á ímynd- armálum Obama kemur fram að íþróttaáhugi Obama sé lykilatriði í baráttunni við Romney. Íþróttaáhug- inn muni gera hann „venjulegri“ á meðan Romney hefur átt í erfiðleik- um með að hrista af sér þann stimpil að hann sé milljarðamæringur sem á margar glæsivillur og rándýra lúxus- bíla. Sérfræðingar Obama telja að með því að tengja sig við íþróttir auki hann vinsældir sínar meðal karlkyns kjósenda, en repúblikanar hafa oftar notið meira fylgis karla. Romney segist reyndar líka vera íþróttaáhugamaður, en hans áhugi er talsvert öðruvísi. Hann hefur sagt frá því að vinir hans eigi NFL-lið og Nascar-kappaksturslið. Á meðan Romney viðurkennir að vera vin- ur eigendanna sem sitja í sérstakri stúku og hafa aðgang að þjónum á meðan á leiknum stendur, þá vill Obama líta út fyrir að vera venjulegur maður sem borðar pylsur á vellinum og grúskar í tölfræði leikmannanna. Segja Obama falskann Stuðningsmenn Romney hafa gert grín að þessari herferð Obama og sagt hana vera mjög fyrirsjáanlega. Forsetinn ætti raunar að vera að gera eitthvað annað en að vera alltaf að horfa á körfubolta. Obama er hins vegar hvergi af baki dottinn og lætur gagnrýni úr herbúðum Romney ekki á sig fá. Um daginn var Obama myndaður í bak og fyrir að drekka Guinness-bjór á írskum bar í Washington-borg. Ekki er heldur langt síðan forsetinn var myndaður það sem hann hámaði í sig grillmat, en fátt er bandarískara en grilluð steik. Þá steig hann á svið á tónleikum í Hvíta húsinu á dögun- um og tók lagið með blúsgoðsögn- inni B.B King. Það þykir falla vel í kramið hjá svörtum kjósendum og verkafólki að hafa forseta sem kann að meta góðan blús. Michele Obama forsetafrú hef- ur einnig tekið virkan þátt í þessari ímyndarherferð, enda leikur hún stórt hlutverk í kosningabaráttunni. Forsetafrúin mætti til spjallþátta- stjórnandans Davids Letterman á dögunum og greindi frá því að hún hefði farið að versla í lágvöruversl- uninni Target, en nær óhugsandi má teljast að Ann Romney, eiginkona Mitt Romney, versli í slíkum búðum. Verslanir Target eru vanalega risa- stórar og þar má kaupa föt og ann- an varning á mjög góðu verði. Fyrir vikið nýtur Target mikilla vinsælda hjá miðstéttarfólki. David Axelrod, fjölmiðlaráð- gjafi Demókrataflokksins, segir að kjósendur vilji forseta sem þeir geti tengt við. „Það verður enginn kosinn forseti út á körfuboltaáhuga sinn, en kjósendur verða að geta speglað sjálfa sig í frambjóðand- anum.“ Kevin Madden, fjölmiðlaráðgjafi Romney, segir hins vegar að Obama sé að leika þennan leik til þess að beina athyglinni frá slökum árangri í efnahagsstjórn landsins síðustu þrjú ár. „Romney er ekki að reyna að vera vinur allra. Hann er með hug- ann við stóru verkefnin.“ Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is „Romney er ekki að reyna að vera vinur allra. Hann er með hug- ann við stóru verkefnin. Hörð barátta Stuðningsmenn Romney telja sig sjá í gegnum herferð Obama og hafa raunar gert grín að henni. Með Guinness Obama heimsótti írskan bar í Washing- ton á dögunum þar sem hann bragðaði á Guinness-bjór. Í baksýn er körfubolti í sjón- varpinu. Draugaskip veldur usla Kanadíska strandgæslan kom á dögunum auga á stórt og mann- laust fiskiskip á reki á Kyrrahafi. Tal- ið er að skipinu hafi skolað á haf út í kjölfar jarðskjálftanna og flóðbylgj- unnar í Japan fyrir rúmu ári. Skipið stefnir að ströndum Kanada og er búist við því að reynt verði að koma því í tog áður en það veldur hugsan- legu tjóni. Gríðarlegt magn af alls konar drasli skolaðist á haf út í kjölfar flóðbylgjunnar en samkvæmt frétt CNN er magnið talið nema um tutt- ugu milljónum tonna. Brakið er nú á leið yfir Kyrrahafið og stefnir að vesturströnd Bandaríkjanna og Kanada. Fékk nýtt hjarta Dick Cheney, fyrrverandi vara- forseti Bandaríkjanna, er á bata- vegi eftir að hafa gengist undir hjartaígræðslu á laugardag. Che- ney, sem er 71 árs, hafði verið á biðlista í 20 mánuði eftir nýju hjarta, en hann hefur lengi átt við hjartavandamál að stríða. Cheney var 37 ára þegar hann fékk fyrst hjartaáfall og hef- ur þurft á fjölmörgum aðgerðum að halda vegna þess. Meðal ann- ars hefur hann farið í hjáveituað- gerð og fengið gangráð. Cheney hvílist nú á sjúkra- húsi í Falls Church í Virginíu og segja læknar aðgerðina hafa gengið vel.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.