Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2012, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2012, Side 18
E ld sn ey ti Bensín Dísilolía Algengt verð 262,5 kr. 263,4 kr. Algengt verð 262,3 kr. 263,2 kr. Algengt verð 262,2 kr. 263,1 kr. Algengt verð 262,5 kr. 263,4 kr. Algengt verð 264,7 kr. 263,4 kr. Melabraut 262,3 kr. 263,2 kr. 18 Neytendur 26. mars 2012 Mánudagur Afbragðsgóð þjónusta n Lofið að þessu sinni fær verslunin Vídd í Kópavogi en viðskiptavin- ur sendi eftirfarandi: „Ég þurfti að kaupa flísar á baðherbergi og eldhús í nýja húsið mitt og fékk afbragðs góða þjónustu í Vídd. Ég fór nokkrum sinnum og þurfti mikið að skoða, pæla og fá ráðlegg- ingar og fékk alltaf góða viðmótið. Það skipti ekki máli við hvern ég talaði, allir voru boðnir og búnir til að aðstoða. Þeg- ar ég hafði svo loksins ákveðið mig buðust þau til að senda flísarnar heim, mér að kostnaðarlausu,“ seg- ir hinn ánægði viðskiptavinur. Of langar auglýsingar n Lastið að þessu sinni fær Smárabíó en viðskiptavinur þeirra sendi eftirfarandi: „Ég fór á Svartur á leik um daginn. Það má búast við auglýsingum og stiklum fyrir myndina en nú byrjaði hún hálftíma eftir aug- lýstan tíma. Fullmikið af hinu góða. Í hálfleik var tónlistin svo æpandi há til að koma manni út úr salnum og í sjoppuna að ekki var hægt að ræða við manninn við hlið sér. Eru þetta engar ýkj- ur. Þetta var eins og á skemmti- stað.“ Blaðamaður hafði samband við Jón Eirík Jóhannsson, rekstrar- stjóra Smárabíós, og bar undir hann lastið. „Við tökum að sjálfsögðu á móti ábending- unum með glöðu geði og fullri alvöru og viljum líta á kvartanir sem tækifæri til að betrumbæta okkar þjónustu í vinsælasta kvikmyndahúsi landsins. Hjá okkur gilda strangar reglur um tíma auglýsinga og stiklna en þær mega vera 14 til 18 mínútur. Eftir athugun hefur komið í ljós að heildartíminn á Svörtum á leik hefur aldrei far- ið yfir 18 mínútur, sem á að vera vel innan þolanlegra marka og styttri tími en víðast hvar erlendis. Vel er passað upp á að tónlist í sölum sé ekki of há og ef hún væri eins og viðskipta- vinur lýsir væri væntanlega mik- ið kvartað á hverri einustu sýn- ingu, en svo hefur ekki verið en málið verður skoðað nánar.“ SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last Þ að gætir aukinnar dánartíðni hjá þeim sem neyta A- og E-vítamína auk beta-karótíns. Öll vítamínin eiga það sameiginlegt að innihalda andoxunarefni. Þetta eru niðurstöður danskrar rannsóknar sem framkvæmd var um allan heim. Fjallað er um rannsóknina á vef Politiken en þar er vitnað í videnskab.dk þar sem fram kemur að hættan á skyndidauða sé meiri hjá þeim sem neyta þessara vítamína. Aukin dánartíðni Christian Gluud yfirlæknir stjórnaði rannsókninni en hann er forstöðumaður Copenhagen Trial Unit. „Rannsókn okkar sýnir að andoxunarefni auka dánartíðni um um það bil 4 prósent. Það er sem sagt hættulegt að taka vítamínpillur og við viljum ráðleggja heilbrigðu fólki sem neytir næringarríkrar fæðu að taka ekki vítamínpillur,“ segir Gluud. Hann vill ganga svo langt að banna sölu umræddra vítamína í lausasölu. „Þessi efni ættu að falla undir lyfjalög svo ef þú værir veikur eða með sérþarfir, þyrftir þú að fara til læknis og fá lyfseðil fyrir þessu. Það ætti að fjarlægja þetta úr búðunum,“ segir hann. Setja í gang öldrunarferli Niðurstöður rannsóknarinnar segja ekki til um hver tengslin séu á milli vítamínanna og hærri dánartíðni en Gluud telur að efnin setji í gang visst öldrunarferli. „Svo virðist sem fólk deyi af sömu ástæðum og þeir sem eru haldnir hjartasjúkdómum og krabbameini. Við getum sýnt fram á að það er aukin dánartíðni,“ segir hann. Fyrri rannsóknir hafa sýnt fram á að andoxunarefni, sem vanalega hafa góð áhrif á líkamann, geti haft þveröfug áhrif eða oxandi áhrif. Slík áhrif má sjá þegar járn ryðgar og Gluud telur að það sé ástæðan fyrir því að öldrunarferlið fer í gang. Svipuð niðurstaða Rannsóknin gefur svipaðar niðurstöður og önnur sem framkvæmd var árið 2008. Þá voru niðurstöðurnar byggðar á rannsókn á 232.606 manns þar sem hluti þeirra tók andoxunarefni sem fæðubótarefni á meðan aðrir fengu lyfleysu. Á þeim tíma vöktu niðurstöðurnar mikla athygli í fjölmiðlum og uppskáru mikla umræðu í vísindasamfélaginu. Stjórnvöld kusu hins vegar að grípa ekki inn í. Þessi nýja rannsókn byggir á 11 fyrri rannsóknum og náði til tæplega 65.000 fleiri en sú fyrri. Jafnvægi með fjölbreyttu fæði Þær upplýsingar fengust hjá Lýðheilsustofnun að þar sé fólki almennt ekki ráðlagt að taka vítamín eða steinefni aukalega. Einungis er mælt með að taka D-vítamín í formi lýsis eða annarra D-vítamíngjafa og fólasín fyrir konur sem geta orðið barnshafandi. Fólki sé hins vegar ráðlagt að nýta sér fæðuhringinn og borða fjölbreyttan mat í hæfilegum skömmtum og fá þannig öll þau næringarefni sem líkaminn þarf úr matnum. Til að ná að fylgja öllum ráðleggingum um æskilega samsetningu fæðunnar og ráðlagða dagskammta vítamína og steinefna og jafnvægi þar á milli þurfi flestir að borða meira af grænmeti og ávöxtum, grófu kornmeti, trefjaríkara brauði og fiski. Fæðubótarefni séu oftast óþörf en Íslendingar, eins og aðrir sem búa á norðlægum slóðum, þurfi að taka D-vítamín aukalega. Vítamínin geta drepið n Læknir vill að vítamín verði lyfseðilsskyld Vítamín Við eigum að geta fengið öll vítamín og steinefni úr matnum sem við neytum. „Þessi efni ættu að falla undir lyfja- lög svo ef þú værir veikur eða með sérþarfir, þyrftir þú að fara til læknis og fá lyfseðil fyrir þessu. Það ætti að fjarlægja þetta úr búðunum. Vítamín og steinefni Í grein í Politiken er fjallað um vítamín og steinefni. Þar segir að efnaflokkarnir tveir aðstoði ensím í lifrinni við að brjóta niður mat og breyta honum í byggingarefni líkamans. Byggingarefnin eru svo notuð víða um líkamann. Því er nauðsynlegt að neyta vítamína og steinefna til að nýta matinn sem best. Þetta er þó það eina sem vítamín og steinefni eiga sameiginlegt. Steinefni Við getum endurnýtt steinefnin að miklu leyti en ekki vítamínin. Við missum einhvern hluta steinefna með þvagi, hægðum og húðflögum. Að mestu leyti endurvinnum við þó steinefnin og ef við erum heilbrigð, borðum hollan og fjölbreyttan mat þá er þörfin fyrir auka skammt af steinefnum ekki mikil. n Sink: Má fá úr úr kjöti, osti, mjólk og heilkornsafurðum. Er nauðsynlegt fyrir myndun og vöxt vefja og líffæra og gróanda sára. Er einnig mikilvægt fyrir efnaskipti líkamans. n Joð: Flestur matur inniheldur joð, en það er mest fiski, skeldýrum, mjöli, eggjum og grænmeti. Er notað við myndun skjaldkirtilshormóna sem leika stórt hlutverk í efnaskiptum líkamans. n Magnesíum: Má fá úr kornafurðum, mjólk og grænmeti. Innihaldið er sérlega hátt í fersku grænmeti og möndlum. Er mikilvægt í efnaskiptum vöðva og virkni hjartans. n Fosfór: Má fá úr mjólkurafurðum, kornafurðum, kjöti og grænmeti. Nauðsynlegt fyrir orkubúskap líkamans, bein, vöðva og DNA. n Kalk: Má fá úr mjólkurafurðum, feitum fisk og grænmeti, eins og spergilkáli og baunum. Gefur beinum styrk og er nauðsynlegt fyrir vöðva, taugar og blóðþrýsting. n Járn: Má fá úr kornafurðum, kjöti (t.d lifur), ávöxtum og grænmeti (t.d spergilkáli). Járn er nauðsynlegt við súrefnisflutning innan líkamans. Vítamín Vítamínin eru flóknari en steinefnin. Þau eru stórar og flóknar sameindir sem eru óstöðugar og viðkvæmar. Líkaminn notar þau á annan hátt og ekki er hægt að endurnýta þau að sama marki og steinefnin. Þar sem við þurfum meira af vítamínum en steinefnum þarf minna til að við verðum fyrir vítamínskorti en steinefnaskorti. Það er þó ekkert sem við þurfum að hafa áhyggjur af ef við fylgjum heilbrigðu mataræði. Með því ætti líkaminn að fá nægilegt magn vítamína. n A-vítamín: Má fá úr kjöti, eggjum, mjólkurafurðum og í appelsínugulu og dökkgrænu grænmeti. Nauðsynlegt fyrir sjón, vöxt, ónæmiskerfið og húðina. Þar að auki er það nauðsynlegt í fósturþroska. n B1-vítamín: Má fá úr kornafurðum, grænmeti, linsubaunum, mögru kjöti og mjólkurvörum. Nauðsynlegt við ummyndun kolvetnis í glúkósa sem er mjög mikilvægt fyrir heilann, hjartað og vöðvana. n B2-vítamín: Má fá úr mjólkurvörum, heilkornsafurðum, kjöti, grænmeti og fiski. Nauðsynlegt fyrir vöxt, húð, neglur, hár, varir, tungu og sjón. n C-vítamín: Má fá úr sítrusávöxtum, berjum, tómötum, blómkáli, kartöflum og grænu grænmeti. Mikilvægt fyrir ónæmiskerfi líkamans sem vinnur bug á vírusum og bakteríum. n D-vítamín: Má fá úr í eggjum, feitum fiski og feitum mjólkurvörum, en er einnig fáanlegt frá sólinni. Eykur upptöku á kalki við meltingu og er nauðsynlegt fyrir bein og tennur. Tryggir jafnvægi í ónæmiskerfinu. Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Hættuleg sindurefni Á heilsubankinn.is er fjallað um andoxunarefni og þar segir að þau séu samheiti yfir náttúruleg efni sem verndi líkamann gegn sindurefnum. Sindurefni séu atóm eða flokkur atóma sem hafi eina eða fleiri óparaðar rafeindir. Sindurefnin geti skaðað lifandi frumur, veikt ónæmiskerfið og leitt til myndunar sjúkdóma eins og hjartasjúkdóma og krabbameins. Eins sé talið að sindurefnin séu þau efni sem leggi grunninn að öldrun líkamans. Andoxunarefni geri sindurefnin hlutlaus og komi þannig í veg fyrir skaða af þeirra hálfu. Þar er bent á að líkaminn sjái okkur fyrir ákveðnum ensímum sem gegna þessu hlutverki og einnig fáum við þessi andoxunarefni úr ávöxtum, grænmeti, korni, baunum, hnetum og jurtum. Getur skaðað Á vef Lýðheilsustofnunar segir að of mikil neysla á beta-karótíni á einangruðu formi, eins og úr fæðubótarefnum, geti skaðað heilsuna. Rannsóknir bendi til þess að stórir skammtar af beta-karótíni auki líkur á lungnakrabbameini meðal reykingafólks.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.