Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2012, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2012, Qupperneq 24
Mjölnir drottnaði í kastalanum n Heimamenn unnu nánast allt á sínu eigin móti K eppnislið bardaga- íþróttafélagsins Mjöln- is bar höfuð og herðar yfir andstæðinga sína á stærsta uppgjafaglímu- móti sem haldið hefur verið hér á landi um helgina. Mót- ið var haldið af Mjölni og fór fram í húsakynnum félagsins, Mjölniskastalanum við Selja- veg. Á mótinu kepptu tæplega 80 manns frá fjórum félögum. Skemmst er frá því að segja að Mjölnismenn áttu góðan dag en þeir sigruðu í öllum flokkum á mótinu nema einum og misstu að- eins af þremur verðlauna- peningum. Eini maðurinn sem stóð uppi sem sigurveg- ari sem ekki var úr liði Mjöln- is var Guðmundur Stefán Gunnarsson úr Sleipni sem vann +99kg flokk karla. Gunnar Nelson og Sól- veig Sigurðardóttir, bæði úr Mjölni, voru best á mótinu. Gunnar vann -88kg flokk karla og opna flokkinn og þá vann Sólveig -64kg flokk kvenna sem og opna flokk- inn hjá konunum. Í úrslitum opna flokksins hafði Gunn- ar sigur á hinum risavaxna Þráni Kolbeinssyni sem varð annar í -99kg flokknum. Sólveig hafði aftur á móti betur gegn Sigrúnu Helgu Lund sem vann +64kg flokk kvenna. 24 Sport 26. mars 2012 Mánudagur Hart tekist á Mjölnismenn og konur fóru á kostum í kastalanum. Opinn flokkur karla 1. sæti Gunnar Nelson (Mjölnir) 2. sæti Þráinn Kolbeinsson (Mjölnir) 3. sæti Bjarni Kristjánsson (Mjölnir) Opinn flokkur kvenna 1. sæti Sólveig Sigurðardóttir (Mjölnir) 2. sæti Sigrún Helga Lund (Mjölnir) 3. sæti Sunna Rannveig Davíðs- dóttir (Mjölnir) Félög 1. sæti Mjölnir: 103 stig 2. sæti Sleipnir: 9 stig 3. sæti Pedro Sauer: 4 stig 4. sæti Combat Gym: 0 stig Hrun hjá Cardiff Aron Einar Gunnarsson var að vanda í byrjunarliði Cardiff sem gerði jafntefli gegn Birmingham, 1–1, í ensku Championship-deild- inni á sunnudaginn. Ekkert hefur gengið hjá Cardiff eftir tapið gegn Liverpool í úr- slitum deildarbikarsins. Eftir það hefur Cardiff spilað sjö leiki í deildinni og unnið að- eins einn, gert fjögur jafntefli og tapað tveimur. Liðið hefur aðeins nælt sér í sjö stig af 21 mögulegu í síðustu sjö leikj- um og er fallið niður í átt- unda sæti deildarinnar. Alonso sigrAði í rigningunni n Óvæntur sigur Ferrari í öðru móti ársins í Formúlu 1 S pánverjinn Fernando Alonso sem ekur Ferr- ari varð fyrstur í Mal- asíukappakstrinum sem fram fór á sunnu- dagsmorgun en þetta var önnur keppni ársins í Form- úlu 1. Sigurinn kemur virki- lega á óvart því Ferrari-bíll- inn er vart samkeppnishæfur við fljótustu bílana og ræsti Alonso áttundi því til staðfest- ingar. Hann ók aftur á móti vel í rigningunni í Malasíu og nýtti sér mistök annarra ökumanna. Maður dagsins var aftur á móti Mexíkóinn Sergio Perez sem ekur Sauber en hann náði sínum besta árangri á ferlin- um er hann kom í mark í öðru sæti. Hann hefði getað náð fyrsta sætinu en gerði mistök þegar fjórir hringir voru eftir. Uppi eru smá deilur um hvort honum hafi verið gert ljóst að Alonso ætti að vinna mótið. Hann þvertekur fyrir það. Ekki í stöðu sem við viljum vera Fernando Alonso var kátur með sigurinn en hann var þó ekkert að fara fram úr sér. „Þetta breytir engu. Við verð- um að bæta bílinn,“ sagði Alonso eftir sigurinn. „Þessi sigur gerir okkur alla mjög glaða en hann mun ekki draga úr metnaði okkar í að gera bílinn fljótari og sam- keppnishæfari. Núna erum við í stöðu sem við viljum ekki vera í. Við erum að berjast við að komast í gegnum fyrsta tímatökusvæði og reyna krafla í einhver stig í mótinu,“ sagði Alonso ákveðinn. Dagurinn var ekki góð- ur fyrir báða Ferrari-bílana því Felipe Massa endaði í 15. sæti. Með hverju mótinu sem líður verður ljósara að hann mun ekki aka fyrir Ferr- ari á næsta ári. Lewis Hamil- ton varð þriðji í Malasíu en báðir McLaren-bílarnir, sem ræstu fremstir, náðu ekki upp neinum almennilegum hraða eftir að keppnin var endur- ræst eftir tíu hringi. Button, sem vann keppnina í Ástral- íu, endaði í fjórtánda sæti og heimsmeistarinn Sebastian Vettel varð ellefti. Fékk engin skilaboð Mexíkóinn Sergio Perez var, sem fyrr segir, maður dagsins í Malasíu en hann brunaði á Sauber-bíl sínum alla leið í annað sætið. Hann hefði getað stolið sigrinum undir lokin því hann var kominn á hæla Alonso er sex hring- ir voru eftir og var að keyra mun hraðar. Hann gerði aft- ur á móti mistök þegar hann missti bíl sinn aðeins út fyrir brautina og tapaði fimm sek- úndum. „Ég var alveg að ná Fernando og ég vissi að ég yrði að komast fram úr hon- um snögglega því framdekk- in voru búin hjá mér,“ sagði Perez. Aftur á móti snerti Perez brautarkant og missti stjórn á bílnum í augnablik sem kost- aði hann sigurinn. Athygli vakti að það atvik kom upp skömmu eftir að hann fékk skilaboð frá liðinu sem hljóm- uðu svona: „Checo, farðu var- lega. Við þurfum að hafa þig í þessari stöðu.“ Liðstjóri Sau- ber, Monisha Kalten born, harðneitaði að þetta væru dulin skilaboð um að leyfa Alonso að vinna einungis vegna þess að Sauber keyrir á vélum frá Ferrari. „Eina sem þetta þýddi var að við þurftum að fá bílinn í mark. Þetta voru mikilvæg stig fyrir okkur. Um það snér- ist málið. Þetta voru engin dulin skilaboð,“ sagði Kalten- born. Stigakeppni ökuþóra Ökuþór Lið Stig 1. Fernando Alonso Ferrari 35 2. Lewis Hamilton McLaren 0 3. Jenson Button McLaren 25 4. Mark Webber Red Bull 24 5. Sergio Perez Sauber 22 6. Sebiastien Vettel Red Bull 18 7. Kimi Raikkonen Lotus 16 8. Bruno Senna Williams 8 9. Kamui Kobauashi Sauber 8 10. Paul di Resta Force India 7 Óvæntur sigur Alonso skoraði 25 mikilvæg stig á hægum bíl Ferrari. Tómas Þór Þórðarson blaðamaður skrifar tomas@dv.is Úrslit Enska úrvalsdeildin Chelsea - Tottenham 0-0 Liverpool - Wigan 1-2 0-1 Shaun Maloney (30. víti), 1-1 Luis Suarez (48.)1-2 Gary Caldwell (63.). Arsenal - Aston Villa 3-0 1-0 Kieran Gibbs (16.), 2-0 Theo Walcott (25.), 3-0 Mikel Arteta (90.). Sunderland - QPR 3-1 1-0 Nicklas Bendtner (41.),2-0 James McClean (70.), 3-0 Stephane Sessegnon (76.), 3-1 Taye Taiwo (79.). Swansea - Everton 0-2 0-1 Leighton Baines (59.), 0-2 Nikola Jelavic (76.). Bolton - Blackburn 2-1 1-0 David Wheater (28.), 2-0 David Wheater (35.), 2-1 Steven N'Zonzi (56.). Norwich - Wolves 2-1 0-1 Matt Jarvis (25.), 1-1 Grant Holt (26.), 2-1 Grant Holt (45. víti). Stoke - Man. City 1-1 1-0 Peter Crouch (59.), 1-1 Yaya Touré (75.). WBA - Newcastle 1-3 0-1 Papiss Demba Cisse (5.), 0-2 Hatem Ben Arfa (11.), 0-3 Papiss Demba Cisse (33.), 1-3 Shane Long (51.). Staðan 1 Man. City 30 22 4 4 72:22 70 2 Man. Utd 29 22 4 3 73:27 70 3 Arsenal 30 18 4 8 61:39 58 4 Tottenham 30 16 7 7 53:35 55 5 Chelsea 30 14 8 8 49:34 50 6 Newcastle 30 14 8 8 44:42 50 7 Liverpool 30 11 9 10 36:31 42 8 Sunderland 30 11 7 12 39:34 40 9 Everton 30 11 7 12 30:32 40 10 Swansea 30 10 9 11 34:36 39 11 Norwich 30 10 9 11 41:47 39 12 Stoke 30 10 8 12 29:41 38 13 Fulham 29 9 9 11 37:40 36 14 WBA 30 10 6 14 36:41 36 15 Aston Villa 29 7 12 10 31:38 33 16 Blackburn 30 7 7 16 43:62 28 17 Bolton 29 8 2 19 33:58 26 18 QPR 30 6 7 17 33:53 25 19 Wigan 30 5 10 15 27:55 25 20 Wolves 30 5 7 18 31:65 22 Championship-deildin Barnsley - Peterborough 1-0 Burnley - West Ham 2-2 Coventry - Portsmouth 2-0 Derby - Crystal Palace 3-2 Leicester - Hull 2-1 Middlesbrough - Bristol City 1-1 Millwall - Leeds 0-1 Nott. Forest - Brighton 1-1 Reading - Blackpool 3-1 Southampton - Doncaster 2-0 Watford - Ipswich 2-1 Birmingham - Cardiff 1-1 Staðan 1 Southampton 39 23 9 7 72:35 78 2 Reading 39 22 7 10 56:34 73 3 West Ham 38 19 12 7 59:38 69 4 Brighton 39 17 11 11 48:40 62 5 Middlesbr. 38 16 13 9 45:42 61 6 Birmingham 38 16 12 10 60:41 60 7 Blackpool 39 16 12 11 66:56 60 8 Cardiff 39 15 15 9 57:50 60 9 Hull 38 16 10 12 38:32 58 10 Leeds 39 16 9 14 59:57 57 11 Leicester 38 15 10 13 56:48 55 12 Derby 39 16 7 16 44:52 55 13 Watford 39 14 12 13 46:55 54 14 Cr.Palace 38 13 14 11 39:35 53 15 Ipswich 38 15 6 17 61:67 51 16 Burnley 38 14 8 16 50:47 50 17 Barnsley 39 13 7 19 47:62 46 18 Peterborough 38 12 8 18 59:62 44 19 Millwall 39 10 10 19 44:54 40 20 Nottingh. F. 38 11 6 21 41:59 39 21 Bristol City 39 9 9 21 33:62 36 22 Coventry 39 8 11 20 35:52 35 23 Doncaster 38 7 10 21 33:63 31 24 Portsmouth 38 10 10 18 38:43 30

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.