Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2012, Page 84

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2012, Page 84
Minna tengi staðfest n Reuters fjallar um iPhone 5 F réttastofan Reuters, sem þykir með þeim áreiðanlegri í heim- inum, fjallar um tengið á vænt- anlegum iPhone 5. Orðrómur hefur verið uppi um að nýi síminn verði með minna tengi, eða svokall- að vöggutengi, en það sem prýtt hef- ur Apple-vörur í nærri áratug. Þetta þykir nú svo gott sem staðfest með frétt Reuters en tengið hefur almennt ekki notið hylli notenda hingað til. Þetta hefur Reuters eftir tveimur mismunandi heimildum. Nýja tengið, svokallað 19-pin tengi, er sagt til þess að koma fyrir heyrnar- tólatengi á neðri enda símans en það hefur hingað til verið á hinum endan- um líkt og á iPod. Nýja tengið gerir það að verkum að iPhone 5 og vörur frá Apple sem fylgja á eftir munu ekki geta tengst beint við hátalara, hleðslutæki og fleiri aukahluti. Hins vegar verð- ur að teljast líklegt að hægt verði að fá millistykki fyrir búnaðinn. Þó svo að margir notendur Apple kunni að fussa og sveia yfir því að geta ekki nýtt gamla búnaðinn sinn segja sérfræðingar þetta nauðsynlegt skref. Þar sem gamla 31-pin tengið sé ein- faldlega orðið úrelt. Það taki of mik- ið pláss og löngu sé orðið tímabært að minnka það. Þetta þýði bæði fleiri möguleika fyrir Apple og framleiðend- ur aukahluta í vöruhönnum. Annað sem vakti athygli í frétt Reuters er að þar er notast við nafnið iPhone 5 en margir höfðu spáð því að síminn yrði einfaldelga kallaður New iPhone líkt og nýjasta iPad-spjald- tölvan. Nýi iPhone-inn er væntan- legur á markað í október. asgeir@dv.is Hægeldun heima Hægeldun, eða sous-vide, verður sífellt vinsælli eldunaraðferð. Þá er matur eldaður í vatni á löngum tíma í lofttæmdum umbúðum við lágt hitastig. Þessi aðferð hefur aðallega verið notuð á veitinga- stöðum þar sem græjurnar eru til staðar en nú getur fólk keypt tæk- ið Nomiku. Því er til dæmis hægt að krækja á stóran pott en tækið heldur jöfnum hita á vatninu í pottinum sem gerir fólki kleift að hægelda heima hjá sér. Nomiku kostar 300 dali í Bandaríkjunum eða um 37.000 krónur. Alvöru hengilás Hengilás framtíðarinnar hlýtur að vera The Master Lock Dial Speed Padlock. Á honum er rafrænn snertiflötur sem gerir þér kleift að setja saman mun fjölbreyttari og persónulegri lykilorð en á hefð- bundnum talnalás. Oft vill talna- röðin gleymast en nú getur þú sett lykilorðið sem þú ert vanur/vön að nota á hengilásinn. Með lásn- um kemur svo alkóði sem opnar lásinn ef lykilorðið gleymist. Raf- hlaðan í lásnum endist í fimm ár en gripurinn kostar 25 dali ytra sem er um 3.000 krónur. Grillteinar fyrir pylsur Sannir grillmeistarar grilla pyls- ur yfir opnum eldi og án þess að gata þær miðjar eða brenna þær á endunum. Þessir grillteinar eru sérstak- lega hannaðir fyrir þesa iðju og koma í veg fyrir að þær brenni á endanum eins og stundum vill gerast. Þessa teina er einnig tilval- ið að stinga sykurpúðum í. Nýja portið Hér má sjá samanburð á 30-pin tengi og 19-pin. Góð þjónusta eða brot á friðhelGi? n Google Now fylgist með þér n Twitter veitti upplýsingar um Birgittu 36 Lífsstíll 27.–29. júlí 2012 Helgarblað Á sama tíma og netrisinn Google kynnti Nexus 7 spjaldtölvuna kynnti fyr- irtækið nýjasta hugbúnað sinn, Google Now. Hugbún- aðurinn er að margra mati snilldar- tækni sem auðveldar fólki lífið á meðan öðrum þykir hann fara skrefi of langt og sýna í raun það magn upplýsinga sem risar eins og Google geti safnað um einstaklinga. Veit hvað þú vilt Google Now virkar í grófum drátt- um þannig að það lærir á nethegð- un notenda sinna. Það sýnir þér svo stutt upplýsingaskilaboð sem það telur þig hafa áhuga á eins og stöð- una í leikjum hjá uppháldsliðinu þínu, flugferðir, strætóferðir og veð- urfar. Í raun það sem þú hefur áhuga á. Þegar þú ert svo á faraldsfæti lagar Google Now vitneskju sína að þeim stað og bendir þér að veitingastaði, bókasöfn og þar fram eftir götunum. Hugbúnaðurinn getur sýnt þér hversu langan tíma tekur að keyra heim og jafnvel innan skamms hvaða leið er best að fara til að losna við traffík. Ekki hafa allir möguleikar for- ritsins verið virkjaðir ennþá en þeim mun eflaust fjölga stöðugt með auk- inni notkun. Eins og er geta aðeins notendur Android-stýrikerfisins Jelly Bean nýtt sér Google Now en það er nýjasta uppfærslan af Android, 4.1. Google greiðir sekt Google Now er frábært viðbót við Google-heiminn og gæti verið hinn fullkomni ferðafélagi. Frábær þjón- usta að margra mati. En forritið sýnir um leið hversu miklum upplýsingum Google getur safnað um þig. Töl- um nú ekki um ef þú ert með Gmail, Google+ og Chrome líka. Svo lengi sem þú notar forritið eða ert skráð- ur inn á Google-aðgang er verið að safna upplýsingum um þig. Þarna reynir á heiðarleika og löghlýðni fyr- irtækisins þar sem það hefur aðgang að gríðarlegu magni persónuupplýs- inga í netvæddum heimi. Google er í hugum margra „sómasama stórfyrirtækið“ en Google leggur mikið upp úr þeirri ímynd. Jafnrétti, heiðarleika og gagnsæi. Þrátt fyrir það hefur The Wall Street Journal greint frá því að Google hafi samþykkt að greiða um 22,5 milljóna dala sekt frá Federal Trade Commission í Bandaríkjun- um. Ástæðan er mál sem FTC höfð- aði gegn Google eftir að í ljós kom að fyrirtækið, ásamt þremur öðrum, fór fram hjá „do-not-track“ stillingum Safari-vafrans frá Apple. Google seg- ir að um ómeðvituð mistök hafi verið að ræða og að fyrirtækið leggi mikla áherslu á öryggi og friðhelgi notenda sinna. Birgitta Jónsdóttir og Twitter Hvort Google Now og fleiri forrit eða vefsíður eins og Facebook séu góð þjónusta eða brot á friðhelgi einka- lífsins veltur alfarið á hvernig þessi fyrirtæki nota upplýsingarnar sem er safnað og hversu vel þær eru varð- veittar. Mál Birgittu Jónsdóttur al- þingiskonu má nefna í þessu sam- hengi en bandaríska ríkið óskaði eftir upplýsingum um þingkonuna frá samskiptavefnum Twitter og fékk þær. Sú umræða verður sífellt há- værari að fyrirtæki eins og Google, Facebook og Twitter séu undir mikl- um þrýstingi frá yfirvöldum um að láta af höndum upplýsingar um fólk. Þess má geta að Birgitta höfðaði mál gegn Twitter en tapaði því á þrem- ur dómstigum. Staðreyndin er því sú að þegar á reynir er persónufrelsi einstaklinga illa varið í netheimum. asgeir@dv.is Google-heimurinn Sundar Pichai, vara- forseti Google Chrome, kynnir það nýjasta á ráðstefnu fyrirtækisins í San Francisco í lok júní. Hversu vel varðveittar eru upp- lýsingar um þig? Twitter gaf bandaríska ríkinu upplýsingar um Birgittu Jónsdóttur alþingiskonu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.