Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Page 2
StjörnufanS
í Vík í Mýrdal
2 Fréttir 10.–12. ágúst 2012 Helgarblað
Enn of mörg
dauðaslys
3 Umferðarslys eru algengasta dánarorsök ungra karlmanna
á Íslandi og í fyrra létust 12 í um-
ferðinni og helmingur þeirra hafði
ekki náð 18 ára aldri. Í síðasta
helgarblaði DV var ítarleg úttekt
á banaslysum í umferðinni og
einnig rætt við foreldra sem hafa
þurft að upplifa þá martröð að
missa börn sín í slíkum slysum.
Framsókn vill
fjölmiðil
2 Mánuðum saman hafa aðil-ar innan Framsóknarflokks-
ins íhugað kaup eða rekstur á fjöl-
miðli sem talað
gæti máli fram-
sóknarstefnunn-
ar. Svo virðist
sem framsóknar-
menn telji á sig
hallað í umfjöll-
un fjölmiðla.
Flokkurinn njóti
ekki sannmæl-
is og sjónarmið
hans komist ekki til skila vegna
fjandskapar blaðamanna gagnvart
flokknum. DV fjallaði ítarlega um
bollaleggingar framsóknarmanna
sem hafa gert tvö tilboð í Frétta-
tímann.
Keating kostaði
9 milljónir
1 Kostnaðurinn við að fá írska tónlistarmanninn Ronan
Keating til að skemmta á Þjóð-
hátíð í Eyjum
nemur um það
bil 9 milljónum.
Upphæðin jafn-
gildir virði 470
miða á hátíðina.
Ákvörðunin var
umdeild enda er
þjóðhátíðin eins
konar fjáröflun-
arviðburður fyrir
íþróttafélag ÍBV. Skipuleggjend-
ur hátíðarinnar hafa einnig ver-
ið gagnrýndir fyrir að verja ekki
nægilegu fé í forvarnir gegn kyn-
ferðisafbrotum. DV fjallaði um
uppgjörið á Þjóðhátíð.
Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
T
ökurnar fara fram á
ströndinni hinum megin við
Reynisfjall,“ segir starfsmað-
ur Hótel Lunda í Vík í Mýr-
dal um það hvar tökur á kvik-
myndinni Noah fara fram – og á þar
við Reynisfjöru. Kvikmyndin skartar
meðal annars stórleikurunum Russell
Crowe, Emmu Watson og Anthony
Hopkins.
Stóru nöfnin á Hótel Rangá
Starfsmaðurinn, sem vill ekki láta
nafns síns getið, segir að fjórir úr
tökuliðinu gisti á hótelinu. „Svo gist-
ir restin af tökuliðinu og leikararn-
ir á hótelunum í kring,“ segir starfs-
maðurinn sem kveðst hafa séð leikara
myndarinnar spóka sig um bæinn.
„Tökuliðið og leikararnir fá sér reglu-
lega drykki á öldurhúsum bæjar-
ins. Russell Crowe var til dæmis
á Halldórskaffi í gær.“ Starfs-
maðurinn segist virkilega
spenntur yfir komu stórleik-
aranna. „Allir í bænum eru
mjög spenntir yfir þessu, þar
á meðal ég. Það eru um 300
manns í tökuliðinu. Þau nota
öll gistipláss sem þau kom-
ast í – sumir úr tökuliðinu
þurfa að dvelja í töluverðri
fjarlægð frá bænum.“
Starfsmaðurinn segir
framleiðsluteymi myndar-
innar gista á Hótel Lunda.
En hvar eru Russell Crowe
og félagar? „Ég held að
stóru nöfnin gisti á Hótel
Rangá. Það er eina fimm
stjörnu hótelið á Íslandi,“
segir hann en samkvæmt
heimasíðu Hótel Rangár
fær hótelið eingöngu fjór-
ar stjörnur. Margrét Herdís
Jónsdóttir, starfsmaður Hót-
el Rangár, vildi hins vegar
ekki staðfesta að stórleikar-
ar væru meðal gesta hótelsins.
„Ég get ekki sagt neitt – við segjum
ekkert hérna.“
Útsýni yfir tökustaðinn
Jakobína Elsa Ragnarsdóttir
rekur bændagistingu rétt hjá
Reynisfjöru. „Bærinn er stað-
settur alveg við tökustaðinn.
Þeir eru búnir að taka hérna
upp í tvo daga, kláruðu tökur
á þriðjudagskvöldið. Það er
búið að vera frábært veður –
akkúrat veðrið sem þeir von-
uðust eftir.“ Jakobína, sem er
með 14 gistipláss, segir enga
fræga leikara hafa verið með-
al þeirra sem gistu hjá henni
– eingöngu óbreytta meðlimi
tökuliðsins. Sökum nálægðar
við tökustaðinn gat Jakobína
fylgst vel með. „Maður fylgd-
ist með þessu út um gluggann.
Það var gaman að sjá þetta; þetta
er mikið batterí,“ segir Jakob ína
sem kveðst hafa séð sjálfan Russell
Crowe út um gluggann. „Ég held ég
hafi nú séð hann þarna. Maður sá
þetta í kíki. Hann var með skegg og
svona en var ekki kominn í neinn
búning.“
Yfirgáfu heimili sín
Heimildir DV herma að framleiðend-
ur myndarinnar hafi, sökum skorts á
gistiplássum, beðið suma íbúa bæj-
arins að fara úr húsum sínum til að
rýma fyrir tökuliðinu – gegn því að
fá hótelgistingu í Reykjavík. Jakobína
staðfestir að íbúar hafi verið beðn-
ir að yfirgefa húsin sín. „Fólk var að
ganga úr húsum fyrir þá og annað.
Ég veit að minnsta kosti um tvo sem
fóru úr húsunum sínum.“
„Maður
fylgdist
með þessu út
um gluggann
Baldur Eiríksson
blaðamaður skrifar baldure@dv.is
Fréttir vikunnar
Falleg fjara
Birtist brátt á
hvíta tjaldinu.
Hress á Halldórskaffi
Russell Crowe leikur í
stórmyndinni Noah.
n Íbúar yfirgefa heimili sín til að rýma fyrir tökuliði myndarinnar Noah
Veghefill á
Miklubraut
Stundum verður misbrestur á
að ökumenn virði umferðarlög-
in eins og gengur og gerist. Karl-
maður á þrítugsaldri gerðist
einmitt sekur um slíkt en lög-
reglan á höfuðborgarsvæðinu
stöðvaði för hans á Miklubraut,
rétt austan Grensásvegar, um
fimmleytið síðdegis á miðviku-
dag. Það væri vart í frásögur
færandi nema fyrir þær sakir að
maðurinn ók veghefli og fór því
ekki hratt yfir. Olli þessi snigilför
veghefilsins um Miklubrautina
á háannatíma tilheyrandi töfum
og vandræðum og var hann lát-
inn leggja honum. Fékk hann að
halda för sinni áfram eftir klukk-
an sex. Lögreglan brýnir fyrir
fólki að virða þær takmarkanir
sem allvíða eru í gildi um hæg-
fara ökutæki á vegum og götum.
Vítavert
kæruleysi
Karl á fertugsaldri var stöðvað-
ur við akstur á Reykjanesbraut í
Hafnarfirði um kvöldmatarleytið
í á miðvikudag en hugsunarleysi
hans, og tveggja fullorðinna far-
þega sem einnig voru í bíln-
um, var með ólíkindum að mati
lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu. Í aftursætinu voru
tvö lítil börn en hvorugt þeirra
var með tilskilinn öryggisbún-
að. Fátt var um svör þegar leit-
að var svara við því hvers vegna
eldra barnið var ekki í bílbelti
og því yngra leyft að sitja í fangi
annars farþega í stað þess að
vera tryggilega fest í barnabíl-
stól. Í tilkynningu lögreglu seg-
ir að viðeigandi ráðstafanir hafi
verið gerðar áður en fólkinu var
leyft að halda för sinni áfram.
Ökumaðurinn má búast við sekt
og að upplýsingar um málið
verði sendar barnaverndaryfir-
völdum.