Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Síða 4
Gistináttaskatti mótmælt n „Fyrsta málsþófsmál haustsins dottið inn“ Æ fleiri bætast nú í hóp þeirra sem gagnrýna fyrirhug­ aða hækkun ríkisstjórnar­ innar á gistináttaskatti. Til stendur að hækka virðisaukaskatt­ inn á gistikostnað úr sjö prósentum í 25,5 prósent. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, seg­ ir í samtali við Vísi að hugmyndin sé „arfavitlaus“ og verið sé að „sjokkera“ atvinnugreinina. Hann telur skatta­ hækkunina óraunhæfa og ólíklega til að skila tekjum í ríkissjóð. Athygli vekur að daginn áður en Bjarni gaf út þessar yfirlýsingar blés Sjálfstæðismaðurinn Friðjón R. Frið­ jónsson, fyrrum kosningastjóri Þóru Arnórsdóttur, í herlúðra í stöðuupp­ færslu á samskiptamiðlinum Face­ book. Hann kallaði hækkun gisti­ náttaskattarins „fyrsta málþófsmál haustsins“ og sagði sjálfstæðismenn myndu berjast með oddi og egg gegn áformum ríkisstjórnarinnar. Meðal þeirra sem „lækuðu“ stöðuuppfærsl­ una var Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins. Í tilkynningu frá Samtökum ferða þjónustunnar eru áform ríkis­ stjórnarinnar kölluð „rothögg“ fyr­ ir greinina. „Því verður ekki trúað að ríkisstjórnin ætli að taka atvinnu­ grein, sem nú er á uppleið og skilar erlendum gjaldeyri sem aldrei fyrr, og skattpína hana út af markaðnum,“ segir í tilkynningunni. Ólafur Torfa­ son, stjórnarformaður Íslandshótela, hefur tekið í sama streng en hann ótt­ ast að svört atvinnustarfsemi í hótel­ rekstri aukist ef virðisaukaskatturinn verður hækkaður. johannp@dv.is 4 Fréttir 10.–12. ágúst 2012 Helgarblað L andsbanki Íslands þurfti að afskrifa 3.850 milljóna króna skuld félagsins Gráfells ehf. sem úrskurðað var gjald­ þrota í lok mars síðastliðins. Engar eignir fundust í þrotabú­ inu og fékk bankinn því ekkert upp í kröfur sínar sem stærsti kröfu­ hafinn samkvæmt tilkynningu í Lögbirtingablaðinu. Landsbankinn er eins og kunnugt er í meirihluta­ eign íslenska ríkisins, sem af þeim sökum tekur skellinn. Gráfell er að fullu í eigu eignar­ haldsfélagsins Látrar sem aftur er í eigu útgerðarfélagsins Ingimund­ ar hf. sem útgerðarmaðurinn Ár­ mann Ármannsson á. Ármann sat í stjórn Gráfells samkvæmt síðasta ársreikningi félagsins. Skattakóngur Ármann er þekktur útgerðarmaður og virðist af fréttum undangenginna ára hafa orðið vellauðugur mað­ ur í þeim geira. Hann var til dæmis skattakóngur Reykjavíkur það mikla góðærisár 2006 þegar hann greiddi hæstu opinberu gjöld allra í höfuð­ borginni, tæpa 161 milljón króna. Skákaði hann þá þekktum, og síð­ ar alræmdum auðmönnum, á borð við þáverandi forstjóra KB Banka, Hreiðari Má Sigurðssyni. Þrátt fyr­ ir gæfu í viðskiptalífinu þá breyttist líf Ármanns til frambúðar árið 2007 þegar hann lenti í slysi í Borgarfirði og lamaðist. Nýr togari keyptur eftir hrun Ármann og útgerð hans virðast þó hafa komist sæmilega í gegnum hrunið þrátt fyrir mótbyr og erfið­ leika á mörkuðum líkt og svo mörg önnur fyrirtæki sem standa í útflutn­ ingi. Greint var frá því í ágúst 2009 að Ármann hefði, í gegnum Ingi­ mund hf., keypt nýsmíðaðan togara, Helgu RE, sem þá var fyrsti nýsmíð­ aði togarinn sem keyptur var hing­ að til lands í níu ár. Í fréttum Stöðv­ ar 2 af því tilefni sagði Ármann að hann hafi verið heppinn að tryggja sér dollara á hagstæðu gengi fyrir hrun. Samið var um smíði skipsins árið 2006, skattakóngsárið hans Ár­ manns. Ingimundur hf. hefur haldið velli, samkvæmt síðasta ársreikn­ ingi útgerðarfélagsins fyrir árið 2010 nam hagnaður þess árs tæplega 16 milljónum. Vill ekkert segja „Nó komment, vinur,“ sagði Ármann þegar DV spurðist fyrir um Gráfell og milljarðaþrot þess og vildi hann ekkert tjá sig nánar um það. Að sögn Björgvins Halldórs Björnssonar, full­ trúa skiptastjóra þrotabús Gráfells, var móðurfélagið Ingimundur hf., annar kröfuhafi í búið en krafa þess var þó smávægileg samanborið við milljarðakröfu Landsbankans. Samkvæmt síðasta ársreikn­ ingi Gráfells, fyrir árið 2010, var tilgangur þess meðal annars kaup, sala og útleiga fasteigna og annarra rekstrarfjármuna. Sam­ kvæmt þessum ársreikningi var rekstur félagsins á réttri leið þrátt fyrir geigvænlegar langtímaskuld­ ir. Hagnaður nam 5,4 milljónum króna eftir rúmlega 740 milljóna króna tap árið 2009. Samkvæmt ársreikningi fyr­ ir árið 2010 námu skuldir Gráfells rúmlega 5.635 milljónum króna í árslok 2010 og munaði þar mest um lán frá Landsbanka upp á 5.283 milljónir króna í erlendri mynt. Meðal eigna félagsins taldist Set­ bergsland í Garðabæ. Bókfært verð þess var 2.830 milljónir króna, þó fasteignamat lóðanna hafi aðeins numið rúmlega 231 milljón. RisagjaldþRot skattakóngs n Tæpir 4 milljarðar afskrifaðir við gjaldþrot Gráfells ehf. „Nó komment, vinur Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is Félag í þrot Félag í eigu félaga Ármanns Ármannssonar skildi eftir sig 3,8 milljarða króna skuld sem Landsbankinn hefur nú þurft að afskrifa. M y N d F a ce b o o k Nauðgarar ganga lausir Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn lögreglu á tveimur nauðgunarmálum sem komu upp í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Kærur bárust lögreglu á sunnudagskvöld og mánudagsmorgun. Eins og fram hefur komið komu upp þrjú kynferðisbrotamál á Þjóðhátíð og var 22 ára karlmaður handtekinn vegna eins þeirra, nauðgunar sem átti sér stað aðfaranótt laugardags. Maðurinn neitar sök en hann hef­ ur áður komið við sögu lögreglu vegna svokallaðra smærri afbrota. Enginn er þó grunaður í hinum tveimur málunum en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var gefin greinargóð lýsing á geranda í einu málinu en í hinu hafði fórnarlamb­ ið ekki eins skýra mynd af geranda og atburðarásinni. Málin hafa ver­ ið í rannsókn í vikunni og hefur lögregla verið að fínkemba upp­ tökur úr eftirlitsmyndavélum í Herjólfsdal. „Hjálpsami“ ræninginn ófundinn Ungur karlmaður sem rændi níutíu ára gamla konu eftir að hafa að­ stoðað hana með innkaupapoka á miðvikudag er ófundinn. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu reynir að hafa upp á honum en hefur engan grunaðan sem stendur og eru allar ábendingar vel þegnar. Lögreglan segir manninn hafa komið auga á konuna fyrir utan verslunarmið­ stöðina Kringluna. Bauðst hann til að aðstoða hana með innkaupa­ poka og settist síðan upp í bíl hjá henni. Eftir að hafa maðurinn hafði neitað að fara út úr bílnum ákvað konan að keyra af stað og reyna að fá aðstoð við að fá hann út úr bíln­ um. Þegar hún var komin að Stóra­ gerði rauk maðurinn út úr bílnum og hrifsaði handtösku hennar úr farangursrýminu og rauk í burtu. Hafði hann tíu þúsund krónur af konunni og greiðslukort. Konuna sakaði ekki en var illa brugðið að sögn lögreglu. bjarni benediktsson Útlit er fyrir að sjálfstæðismenn muni berjast gegn gisti­ náttaskatti af krafti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.