Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Blaðsíða 4
Gistináttaskatti mótmælt
n „Fyrsta málsþófsmál haustsins dottið inn“
Æ
fleiri bætast nú í hóp þeirra
sem gagnrýna fyrirhug
aða hækkun ríkisstjórnar
innar á gistináttaskatti. Til
stendur að hækka virðisaukaskatt
inn á gistikostnað úr sjö prósentum
í 25,5 prósent. Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, seg
ir í samtali við Vísi að hugmyndin sé
„arfavitlaus“ og verið sé að „sjokkera“
atvinnugreinina. Hann telur skatta
hækkunina óraunhæfa og ólíklega til
að skila tekjum í ríkissjóð.
Athygli vekur að daginn áður en
Bjarni gaf út þessar yfirlýsingar blés
Sjálfstæðismaðurinn Friðjón R. Frið
jónsson, fyrrum kosningastjóri Þóru
Arnórsdóttur, í herlúðra í stöðuupp
færslu á samskiptamiðlinum Face
book. Hann kallaði hækkun gisti
náttaskattarins „fyrsta málþófsmál
haustsins“ og sagði sjálfstæðismenn
myndu berjast með oddi og egg gegn
áformum ríkisstjórnarinnar. Meðal
þeirra sem „lækuðu“ stöðuuppfærsl
una var Ragnheiður Elín Árnadóttir,
þingkona Sjálfstæðisflokksins.
Í tilkynningu frá Samtökum
ferða þjónustunnar eru áform ríkis
stjórnarinnar kölluð „rothögg“ fyr
ir greinina. „Því verður ekki trúað
að ríkisstjórnin ætli að taka atvinnu
grein, sem nú er á uppleið og skilar
erlendum gjaldeyri sem aldrei fyrr,
og skattpína hana út af markaðnum,“
segir í tilkynningunni. Ólafur Torfa
son, stjórnarformaður Íslandshótela,
hefur tekið í sama streng en hann ótt
ast að svört atvinnustarfsemi í hótel
rekstri aukist ef virðisaukaskatturinn
verður hækkaður.
johannp@dv.is
4 Fréttir 10.–12. ágúst 2012 Helgarblað
L
andsbanki Íslands þurfti að
afskrifa 3.850 milljóna króna
skuld félagsins Gráfells ehf.
sem úrskurðað var gjald
þrota í lok mars síðastliðins.
Engar eignir fundust í þrotabú
inu og fékk bankinn því ekkert upp
í kröfur sínar sem stærsti kröfu
hafinn samkvæmt tilkynningu í
Lögbirtingablaðinu. Landsbankinn
er eins og kunnugt er í meirihluta
eign íslenska ríkisins, sem af þeim
sökum tekur skellinn.
Gráfell er að fullu í eigu eignar
haldsfélagsins Látrar sem aftur er í
eigu útgerðarfélagsins Ingimund
ar hf. sem útgerðarmaðurinn Ár
mann Ármannsson á. Ármann sat
í stjórn Gráfells samkvæmt síðasta
ársreikningi félagsins.
Skattakóngur
Ármann er þekktur útgerðarmaður
og virðist af fréttum undangenginna
ára hafa orðið vellauðugur mað
ur í þeim geira. Hann var til dæmis
skattakóngur Reykjavíkur það mikla
góðærisár 2006 þegar hann greiddi
hæstu opinberu gjöld allra í höfuð
borginni, tæpa 161 milljón króna.
Skákaði hann þá þekktum, og síð
ar alræmdum auðmönnum, á borð
við þáverandi forstjóra KB Banka,
Hreiðari Má Sigurðssyni. Þrátt fyr
ir gæfu í viðskiptalífinu þá breyttist
líf Ármanns til frambúðar árið 2007
þegar hann lenti í slysi í Borgarfirði
og lamaðist.
Nýr togari keyptur eftir hrun
Ármann og útgerð hans virðast þó
hafa komist sæmilega í gegnum
hrunið þrátt fyrir mótbyr og erfið
leika á mörkuðum líkt og svo mörg
önnur fyrirtæki sem standa í útflutn
ingi. Greint var frá því í ágúst 2009
að Ármann hefði, í gegnum Ingi
mund hf., keypt nýsmíðaðan togara,
Helgu RE, sem þá var fyrsti nýsmíð
aði togarinn sem keyptur var hing
að til lands í níu ár. Í fréttum Stöðv
ar 2 af því tilefni sagði Ármann að
hann hafi verið heppinn að tryggja
sér dollara á hagstæðu gengi fyrir
hrun. Samið var um smíði skipsins
árið 2006, skattakóngsárið hans Ár
manns. Ingimundur hf. hefur haldið
velli, samkvæmt síðasta ársreikn
ingi útgerðarfélagsins fyrir árið 2010
nam hagnaður þess árs tæplega 16
milljónum.
Vill ekkert segja
„Nó komment, vinur,“ sagði Ármann
þegar DV spurðist fyrir um Gráfell
og milljarðaþrot þess og vildi hann
ekkert tjá sig nánar um það. Að sögn
Björgvins Halldórs Björnssonar, full
trúa skiptastjóra þrotabús Gráfells,
var móðurfélagið Ingimundur hf.,
annar kröfuhafi í búið en krafa þess
var þó smávægileg samanborið við
milljarðakröfu Landsbankans.
Samkvæmt síðasta ársreikn
ingi Gráfells, fyrir árið 2010, var
tilgangur þess meðal annars
kaup, sala og útleiga fasteigna og
annarra rekstrarfjármuna. Sam
kvæmt þessum ársreikningi var
rekstur félagsins á réttri leið þrátt
fyrir geigvænlegar langtímaskuld
ir. Hagnaður nam 5,4 milljónum
króna eftir rúmlega 740 milljóna
króna tap árið 2009.
Samkvæmt ársreikningi fyr
ir árið 2010 námu skuldir Gráfells
rúmlega 5.635 milljónum króna
í árslok 2010 og munaði þar mest
um lán frá Landsbanka upp á 5.283
milljónir króna í erlendri mynt.
Meðal eigna félagsins taldist Set
bergsland í Garðabæ. Bókfært verð
þess var 2.830 milljónir króna, þó
fasteignamat lóðanna hafi aðeins
numið rúmlega 231 milljón.
RisagjaldþRot
skattakóngs
n Tæpir 4 milljarðar afskrifaðir við gjaldþrot Gráfells ehf.
„Nó komment,
vinur
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Félag í þrot Félag í eigu félaga Ármanns Ármannssonar skildi eftir sig 3,8 milljarða króna skuld sem Landsbankinn hefur nú þurft að afskrifa.
M
y
N
d
F
a
ce
b
o
o
k
Nauðgarar
ganga lausir
Enginn hefur verið handtekinn í
tengslum við rannsókn lögreglu á
tveimur nauðgunarmálum sem
komu upp í Vestmannaeyjum um
verslunarmannahelgina. Kærur
bárust lögreglu á sunnudagskvöld
og mánudagsmorgun. Eins og
fram hefur komið komu upp þrjú
kynferðisbrotamál á Þjóðhátíð og
var 22 ára karlmaður handtekinn
vegna eins þeirra, nauðgunar sem
átti sér stað aðfaranótt laugardags.
Maðurinn neitar sök en hann hef
ur áður komið við sögu lögreglu
vegna svokallaðra smærri afbrota.
Enginn er þó grunaður í hinum
tveimur málunum en samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu var gefin
greinargóð lýsing á geranda í einu
málinu en í hinu hafði fórnarlamb
ið ekki eins skýra mynd af geranda
og atburðarásinni. Málin hafa ver
ið í rannsókn í vikunni og hefur
lögregla verið að fínkemba upp
tökur úr eftirlitsmyndavélum í
Herjólfsdal.
„Hjálpsami“
ræninginn
ófundinn
Ungur karlmaður sem rændi níutíu
ára gamla konu eftir að hafa að
stoðað hana með innkaupapoka á
miðvikudag er ófundinn. Lögreglan
á höfuðborgarsvæðinu reynir að
hafa upp á honum en hefur engan
grunaðan sem stendur og eru allar
ábendingar vel þegnar. Lögreglan
segir manninn hafa komið auga á
konuna fyrir utan verslunarmið
stöðina Kringluna. Bauðst hann til
að aðstoða hana með innkaupa
poka og settist síðan upp í bíl hjá
henni. Eftir að hafa maðurinn hafði
neitað að fara út úr bílnum ákvað
konan að keyra af stað og reyna að
fá aðstoð við að fá hann út úr bíln
um. Þegar hún var komin að Stóra
gerði rauk maðurinn út úr bílnum
og hrifsaði handtösku hennar úr
farangursrýminu og rauk í burtu.
Hafði hann tíu þúsund krónur af
konunni og greiðslukort. Konuna
sakaði ekki en var illa brugðið að
sögn lögreglu.
bjarni benediktsson Útlit er fyrir að
sjálfstæðismenn muni berjast gegn gisti
náttaskatti af krafti.