Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Síða 23
Mávarnir eru fljótir Við höfum alltaf borgað Jón Þorgeir Ragnarsson hefur komið upp vörnum fyrir kanínur – DVElísabet Reynisdóttir tapaði hálfri milljón því bankinn neitaði að flytja veð út á land – DV Spurningin „Ég tek þátt í gleðigöngunni og fer í matarboð og teiti eftir á.“ Arndís B. Sigurgeirsdóttir 51 árs bóksali „Ég verð ekki í bænum. Annars hefði ég horft á gleðigönguna.“ Ester Valgerður Brynjólfsdóttir 25 ára starfsmaður í Visit Reykjavík „Ég fer alltaf í bæinn á Hinsegin dögum því það er svo mikil stemning.“ Sigríður Ólafsdóttir 43 ára rekstrarstjóri „Ég er að fara í sumarbústað en ég hef oft gert eitthvað skemmti- legt þá.“ Fanney Björk Kristinsdóttir 18 ára nemi „Ég er ekki búinn að ákveða það en oftast kíki ég í bæinn.“ Arnar Freyr Guðmundsson 25 ára grafískur hönnuður Hvað ætlarðu að gera á Hinsegin dögum? 1 Lífsleikni Gillz ekki á dagskrá Ari Edwald, forstjóri 365, sagði við DV að ekki stæði til að sýna Lífsleikni Gillz á Stöð 2. 2 Þorsteinn fær ekki sjö milljarða frá Kópavogsbæ Héraðsdómur Reykjaness féllst ekki á bótakröfu skattakóngsins Þorsteins Hjaltested. 3 Hvort annars bestu ráðgjafar Sambýlisfólkið Guðrún Gunnarsdóttir og Hannes Friðbjarnarson heldur tónleika á Vopnafirði á föstudag. 4 Hringir í Stewart í glasi Bandaríski leikarinn Robert Pattinson hringdi drukkinn í fyrrverandi kærustu sína Kristen Stewart, en framhjáhald hennar olli skilnaði þeirra á dögunum. 5 Áróðursvefur hýstur í Moggahöll Vefmiðlun ehf. sem á og rekur áróðursvefinn amx.is, flutti í höfuðstöðvar Morgunblaðsins nýverið. 6 Fagnað gífurlega þegar hún kom langsíðust í mark Sarah Attar varð á miðvikudag fyrsta konan til að keppa í frjálsum íþróttum fyrir hönd Sádi-Arabíu á Ólympíuleikum. 7 „Þetta er hræðileg óaðgæsla“ Ragna Aðalsteinsdóttir, bóndi segist aldrei hafa orðið vitni að jafnstórum bruna í Laugadalnum áður. Mest lesið á DV.is Hollywood-stjórnmál S varthöfða finnst gaman í bíó. Það er góð ástæða fyr- ir því. Sprengingar, „one- liner“ stemning og stuð. Raunveruleikinn er svo leiðin- legur. Hverjum er ekki sama þótt Schwarzenegger þurfi að kaupa í matinn eins og allir aðrir? Hver nennir að pæla í því að Bruce Will- is geti líklegast ekki grandað fljúg- andi þyrlu með því að keyra bíl – eða reyndar fljúga honum – inn í hana? Svarthöfði vill fá hasar, raun- veruleikinn bíður í vinnunni og öðr- um hversdagslegum leiðindum. Þess vegna er Svarthöfði rosa- lega ánægður með þróun íslenskra stjórnmála. Það er til hugtak, „Hollywood-eðlisfræði“. Hún leyfir mönnum til dæmis að stökkva út úr bíl á 80 kílómetra hraða án þess að fá svo mikið sem skrámu. Gildir einu þótt menn myndu líklegast deyja við það í alvörunni. Það þarf ekkert að pæla í raunveruleikanum. Stjórn- málin á Íslandi eru orðin svolítið svona líka. Þú þarft ekkert að pæla í staðreyndum, best að vera bara nægilega dramatískur. Þess vegna vill Svarthöfði stinga upp á nýju hugtaki: Hollywood- stjórnmál. Þingmenn mega alveg segja að ríkisstjórnin hafi kost- að meira en hrunið. Það má al- veg fullyrða að hún sé ekki hluti af orsakamenginu þegar talað er um framfarir eftir hrun. Það var tilfinn- ingaþrungin stund þegar Bjarni Ben fór að gráta í pontu. ESB er líka vont og sendir þig í herinn, alveg eins og vondi karlinn í Batman er bara vondur og það þarf ekkert að út- skýra. Hann er vondi karlinn. Þetta eru eftir allt saman Hollywood- stjórnmál. Skemmtileg afþreying. Svarthöfði biður því rökfræðilúða að halda kjafti og rétta sér poppið. Gegn hvalveiðum Sjálfboðaliðar frá SEEDS, sem starfa fyrir International Fund for Animal Welfare hafa í sumar safnað undirskriftum í miðborg Reykjavíkur. Þeir vilja að Íslendingar hætti hvalveiðum. Mynd Eyþór ÁrnassonMyndin Svarthöfði Skáldið skrifar Kristján Hreinsson Umræða 23Helgarblað 10.–12. ágúst 2012 Í skjallbandalagi Sigmundar Dav- íðs Oddssonar og Bjarna Ben þyk- ir ekki við hæfi að þakka ríkis- stjórn Jóhönnu fyrir allt sem vel er gert. Leiðtogar stjórnarandstöðunn- ar hafa í svo mörgu að snúast sem vælukjóar að þeir mega varla vera að því að þakka Jóhönnu og Stein- grími fyrir allt góða veðrið sem þjóð- in hefur notið sumarið 2012 og þeir eru slíkir velunnarar valdhrokans að þeir hika ekki við að ljúga því að þjóðinni að allt slæmt sé ríkisstjórn- inni að kenna og allt gott einhverjum öðrum að þakka. Að vísu geta þeir ekki kennt Jóhönnu um Ránið, enda hefur skjallbandalag Framsókn- ar og Sjálfstæðisflokks komist að því að Ránið, sem stundum er kall- að hrun, sé í raun og veru einhverj- um útlenskum bankaræningjum að kenna. Og samkvæmt þeirra sögu, var hérna allt í gúddí fíling þegar góðæri helmingaskipta var og hét. Skjallbandalag hægrimanna, þ.e.a.s. framsóknar- og sjálfstæð- ismanna, treystir nú á að þau þrjú stórmál sem þingið þarf að leysa, nái aldrei fram að ganga. En málin þrjú eru: kvótamálið, stjórnarskrár- málið og svo aðildarviðræðurnar við ESB. Það vill svo skemmtilega til að breytingar á kvótakerfi og ný stjórn- arskrá munu koma þjóðinni til góða, en munu væntanlega skerða mátt auðvaldsins. Þar eð bandalag hægri- manna vill vernda þá sem eiga mikla peninga, þá vilja þeir í skjallbanda- laginu ekki að milljarðar verið færðir frá kvótakóngum til þjóðarinnar. Þeir hjá skjallbandalagi hægrimanna vilja ekki heldur að yfirráð þjóðarinn- ar yfir auðlindum verði tryggð með nýrri stjórnarskrá, vegna þess að slíkt ákvæði gæti komið í veg fyrir brask fárra með eignir heildarinnar. Og núna er forseti vor, sem er kosinn til að gegna hlutverki forseta, búinn að ákveða að kvótadeilan verði ekki leyst, að þjóðin fái ekki nýja stjórnarskrá og að aðildarvið- ræður við ESB verði hvorki fugl né fiskur. Skjallbandalagi hægrimanna hefur sem sagt borist liðsstyrkur þess manns sem áður fyrr var sagður maður fólksins. Fullkomlega óþarft sjálfsálit varð að keisaratign; einræðisherrann á Bessastöðum ætlar að ganga á bak orða sem hann hefur látið falla; til þess eins að þóknast kvótafólkinu sem krýnir hann guðdómlegri tign í von um að hann svíki fjöldann. En hvað gerist þegar hann hrökklast frá einsog barinn hund- ur; eftir að hafa verði hlýðinn kvóta- kóngum og ennþá með óbragð í munni eftir útrásarmærð og eilífan sleikjuhátt? Hvað gerist þegar Dor- rit verður bara orð sem rímar við forrit og Ólafur Ragnar verður upp- gjafarsjallaballi einsog Davíð Odds- son? Hvað munum við hafa að segja um þá hégómlegu sýn og þá aumu hræsni sem felst í loforðum um að leiða sameinaða þjóð frá þrasi um kvóta og stjórnarskrá? Óttinn við nýja stjórnarskrá er óttinn við að fólkið fái völd; óttinn við fólkið í landinu fái að ráða yfir auðlindum sínum. Um þetta snýst allur sá hildarleikur sem stjórnar- andstaðan stundar, með Ólaf Ragnar Grímsson í broddi fylkingar. Er það satt, sem almannaróm- ur segir; að Hannes Hólmsteinn sé að skríða til forsetans í skjóli nætur og gefa honum uppskriftir og önn- ur góð ráð, varðandi það hvernig best sé að græða á daginn og grilla á kvöldin? Hann er indæll hann Ólafur Ragnar, hann átök með þjóðinni magnar, víst fagna hér hræður ef flytur hann ræður þó fögnum við mest ef hann þagnar. Þegar Ólafur þagnar Það er ekki ásættanlegt Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta segir grófustu mannréttindabrot fylgja útihátíðum – DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.