Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Page 26
26 Viðtal 10.–12. ágúst 2012 Helgarblað V ala Grand hefur verið áber- andi í íslenskum fjölmiðl- um undanfarin ár. Hún hefur rætt opinskátt um kynáttunarvanda sinn en Vala fæddist karlmaður og gekkst undir kynleiðréttingaraðgerð fyrir um tveimur árum síðan. Margir hafa skoðun á Völu Grand, hvort sem fólk þekkir hana eða ekki. Því hún er ör, opin og segir nákvæmlega það sem henni býr í brjósti. Fljótlega eftir aðgerðina dró Vala sig út úr sviðsljósinu og hefur lítið til hennar spurst undanfarið ár. Ástæðan er sú að Vala kynntist stóru ástinni skömmu eftir aðgerð, Eyjólfi, en hann á fjögur börn úr fyrra sam- bandi. Vala dró sig úr sviðsljósinu þeirra vegna. Vala lauk nýverið við seinni að- gerðina sem fylgir kynleiðréttingu og er hæst ánægð með útkom- una. Næst á dagskrá hjá Völu er brjóstastækkun en hún segist ótt- ast þá aðgerð meira en sjálfa kyn- leiðréttinguna. Þegar blaðamaður DV hitti á Völu var hún á leiðinni á frumsýningu myndarinnar Hrafn- hildur en hún fjallar um íslenska konu sem gekkst undir sams konar aðgerð og Vala. Gæti orðið amma „Það er alveg ástæða fyrir því að ég hef dregið mig út úr allri fjöl- miðlaumfjölluninni. Mamma stjúp- barna minna vill ekki að ég sé mjög áberandi í fjölmiðlum, barnanna vegna,“ segir Vala sem virðir þær ósk- ir og ber hag barnanna fyrir brjósti. Vala segir að henni hafi verið tekið ótrúlega vel af börnum Eyjólfs og að hún finni sig í stjúpmóðurhlutverk- inu. „Þau elska mig alveg ofboðslega mikið. Þau eru mjög dugleg og hlýð- in en börn eru samt alltaf börn og það geta alveg verið læti í þeim. Þau eru mjög orkumikil. Þau eru fimm, sjö og níu ára og svo á Eyjólfur son sem er tvítugur. Þau eru öll rosalega klár og gáfuð. Til dæmis kann sá sem er fimm ára fimm sinnum töfluna,“ segir Vala sem er greinilega stolt af krökkunum. „Svo er stóri strákurinn sem er tvítugur kominn með kær- ustu og er í sambúð. Kærastan hans er þremur árum yngri en ég. Svo ég gæti alveg farið að verða amma á næstu árum, spáðu í það!“ Barnanna vegna Vala segir að til að byrja með hafi barnsmóðir Eyjólfs ekki tekið vel í samband þeirra. Það hafi þó lagast með tímanum: „Fyrst voru mikil læti og hún hafði rosalega mikið á móti mér. Það er alltaf erfitt að sjá fyrrver- andi maka sinn byrja með einhverj- um öðrum og sérstaklega ef það eru börn í spilinu. En núna í dag þegar ég hef sýnt henni að ég er ekki að fara neitt, þá hefur þetta lagast mik- ið. Í dag tölum við reglulega saman vegna barnanna og reynum að gera allt í sátt og samlyndi.“ Vala er alsæl í þessu nýja hlutverki en hún segir mikilvægt hvað tengda- foreldrarnir hafi tekið sér vel. „Ég er ótrúlega heppin með tengdafor- eldra,“ segir Vala „Tengdamóðir mín er æðisleg! Hún er meira að segja að fara að passa börnin fyrir mig á eft- ir meðan ég fer á frumsýninguna. Ég á líka tvo yndislega tengdafeður þannig að ég er mjög rík,“ bætir Vala við en foreldrar Eyjólfs skildu fyrir þó nokkrum árum síðan. Vala setur sig í annað sæti Líkt og áður sagði hefur Vala rætt sín málefni opinskátt en hún átti upp- haflega að vera viðfangsefni myndar- innar Hrafnhildur sem Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir gerði. Vala og Ragnhildur voru hins vegar sammála um það að Vala væri ekki þessi hefð- bundna transmanneskja sem að öllu jöfnu kærir sig ekki um athygli. Vala benti Ragnhildi því á Hrafnhildi. „Ég sá í viðtali við Hrafnhildi um daginn að hana langaði til að eignast börn eins og auðvitað mörgum sem hafa farið í svona aðgerð. Þó það sé ekki líkamlega hægt. Það má segja að ég sé komin með allan pakkann. Ég er komin með manninn, börnin og húsið, ég hef allt! Við erum samt ekki komin þangað í sambandinu að við ætlum að fara að ættleiða. Það má ættleiða til 45 ára og kallinn minn er 38 ára svo við höfum nægan tíma til að ræða það.“ Vala segist heldur ekki tilbú- in alveg strax til þess að bæta barni við fjölskylduna. „Ég er manneskja sem var barnlaus en núna á ég þrjú lítil stjúpbörn. Svo það er ákveðin breyting. Það getur verið erfitt fyr- ir manneskju sem er vön því að vera alltaf númer eitt að vera allt í einu númer tvö. Mig langar svo að koma því á framfæri fyrir þá sem eru að fara að verða stjúpforeldrar að leyfa ykkur aldrei, aldrei að líða illa yfir því að þið séuð númer tvö. Það er alltaf þannig að þegar börnin eru hjá okk- ur, þá eru þau númer eitt. Það er endalaust mikilvægt að vera alltaf góður við börnin og börnin eru guðs blessun. Ég þurfti sjálf að læra þetta og það var erfitt og tók mig nokkra mánuði og ég er ennþá að læra þetta,“ segir Vala og slær svo á létta strengi: „Ef Vala Grand getur sett sig í annað sæti, þá geta það allir!“ „Ástin mín, þú ert sú eina sanna“ Vala er nýkomin úr seinni aðgerðinni sem fylgir kynleiðréttingunni og er hún hæstánægð með útkomuna. „Ég fór í aðgerðina í júlí og þetta er að- gerð þar sem klárað er að móta kyn- færin. Það sést ekkert núna að ég hafi verið með typpi. Nú er ég komin með innri barma.“ Þegar Vala var á sjúkrahúsinu sendi Eyjólfur henni bréf sem hitti hana beint í hjartastað. „Það hljóm- ar svona: Elsku litla hjartað mitt. Ég óska þér þess að þér líði sem best og náir fullum bata fljótt og um leið vil ég óska þér til hamingju með tveggja ára afmælið þitt. Þú kannski fæddist ekki eins og hinar stelpurnar en ástin mín, þú ert sú eina sanna, svo lang- flottust bæði á líkama og sál. Til að halda upp á baráttuna sem vannst loks fyrir tveimur árum ætla ég að gefa þér þennan dag sem sérstak- an auka afmælisdag á hverju ári svo lengi sem ég lifi. Til hamingju með daginn elsku dúllan mín, þinn fram- tíðarmaður Eyjólfur Svanur.“ C, D eða DD En þó Vala hafi lokið kynleið- réttingunni segir hún ferlinu ekki lokið enn. Eitt atriði sé eftir og það hræðist hún mest af öllu. Vala er á leiðinni í brjóstastækkun. „Í nóvem- ber fer ég í brjóstastækkun, Eyjólf- ur vill hafa mig með risastór brjóst!“ segir Vala og skellihlær. „Nei, nei. Hann hefur samt alveg sagt að hann vilji hafa konuna sína með stór brjóst svo ég hugsa að ég fari í skála- stærð C, D eða jafnvel DD. Ég er samt skíthrædd við þessa brjóstaað- gerð, miklu hræddari við brjóstaað- gerðina heldur en ég var við pjöllu- aðgerðina,“ segir Vala hreinskilin. Sexí gefur öryggi Almennt séð segir Vala að umræð- an um kynleiðréttingar hafi opn- ast mjög mikið síðan hún fór í að- gerðina fyrir tveimur árum. Hún segir að ein ástæða þess að hún var mjög áberandi þegar hún fór í kyn- leiðréttinguna hafi verið að gera þessa umræðu almennari. „Ég hef sjálf vitað að ég er kona frá því að ég var um fjögurra ára gömul og aldrei efast um það. Ég fékk svo gott upp- eldi að ég var nógu sterkur einstak- lingur til að ganga í gegnum þetta og hef aldrei séð eftir neinu.“ En ekki eru allir jafn öryggir með sig og Vala og því mikilvæg þróun sem hefur átt sér stað. Til að mynda hefur Hrafnhildur, viðfangsefni samnefndu heimilda- myndarinnar, sagt að fyrir hana hafi aðeins verið tvær leiðir í boði: kyn- leiðrétting eða sjálfsvíg. En aukinni umræðu fylgja líka neikvæðar hliðar og hún getur oft og tíðum verið óvægin. Vala hefur sjálf þurft að lesa ótrúlegustu hluti um sjálfa sig og undrast hversu hatursfullt fólk getur verið. „Það er fullt af fólki sem er alltaf að skrifa eitthvað um mig á síðum eins og bland.is. Fólk sem felur sig bara á bakvið tölvuna og myndi aldrei geta sagt þessa hluti við mig augliti til auglitis. Það sem hefur reynst mér best gagnvart öllu því neikvæða sem ég hef lesið um mig er að brosa Kidda Svarfdal kidda@dv.is Viðtal Ennþá að læra á móðurhlutverkið Vala Grand lauk fyrir skömmu seinni aðgerðinni sem fylgir kynleiðréttingu. Hún er yfir sig ástfangin og hefur dregið sig út úr sviðsljósinu – stjúpbarna sinna vegna. Vala segir börnin vera númer eitt en hún hafi þurft að læra það af því að hún var vön að vera í fyrsta sæti. Vala lætur ósmekkleg ummæli um sig á netinu ekki trufla sig og dansar fyrir framan spegil til að auka sjálfstraustið. Næst á dag- skrá hjá Völu er að koma sér fyrir á nýja heimilinu og að fara í brjóstastækkun. Vala og Eyjólfur Eru ástfangin upp fyrir haus. Á leið í brjóstastækkun „Ég hugsa að ég fari í skálastærð C, D eða jafnvel DD.“ „Ef Vala Grand getur sett sig í annað sæti, þá geta það allir!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.