Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Qupperneq 38
38 Lífsstíll 10.–12. ágúst 2012 Helgarblað
Ull, leður og
tíundi áratugurinn
U
m þessar mundir streyma
haustvörurnar í búðirnar.
DV fékk nokkra tískuþenkj-
andi einstaklinga til þess að
segja frá hvað væri að þeirra
mati það allra heitasta í hausttísk-
unni þetta árið. Afturhvarf til tíunda
áratugarins virðist vera áberandi,
stórir jakkar, hermannamynstur,
skór með botni, klossar, gallajakk-
ar og ýmis fleiri tísku-„trend“ snúa
aftur. Þar má líka finna kvendragtir,
yfirhafnir úr ull og leðri og greinilegt
að úr nægu er að taka fyrir þá sem
vilja fylgja tískunni.
viktoria@dv.is
Ólympíuleikararnir
hafa áhrif
Kristín Ásta Matthíasdóttir búðareigandi
„Ég er rosalega hrifin af hausttískunni,
hún á vel við minn stíl,“ segir Kristín
Ásta Matthíasdóttir annar eigenda
Dótturfélagsins. „Eins og margir hafa
tekið eftir eru hermannajakkar mik-
ið í tísku og koma þeir sérstaklega
vel út í vetur með grófum skóm eins
leðurbomsum eða mótorhjólastígvélum. Svona skór bjarga
þér í slabbinu og lúkka líka afar vel,“ segir Kristín. Hún segir
nauðsynlegt að eiga leðurjakka. „Hann má nota við allt, hvers-
dags sem og fínt. Stórar og hlýjar peysur eru „möst“ á haustin,
að ég tala nú ekki um hvað þær eru flottar með t.d. leðurjökk-
um. Gallaskyrtur og góðar gallabuxur er mjög flott. Barbour eða
aðrir vax-veiðijakkar eru einnig æðislegir í kalda haustveðrinu á
Íslandi. Eins munu áhrif Ólympíuleikanna skila sér í hausttísk-
una með snert af íþróttafatnaði mixuðu við hversdagsföt. Ég sé
alls ekkert að því að fara í t.d Nike/Adidas-hlaupabuxum í bíó
við töff grófa peysu,“ segir hún. „Það er draumur flestra kvenna
að eiga fallega kápu, ég er mjög hrifin af kápum, það má einnig
klæða þær niður og vera í kúl íþróttaskóm eða joggingbuxum
við. Love it!“ segir Kristín að lokum.
Kurt Cobain og
Courtney Love
Ása Ottesen búðareigandi og stílisti
„90´s „grunge“ tískan verður áberandi í haust,
Kurt Cobain og Courtney Love koma sterk inn
sem tískufyrirmyndir haustsins,“ segir Ása Otte-
sen annar eiganda verslunarinnar Lakkalakk. Ása
er nýkomin ásamt systur sinni og meðeiganda
Lakkalakk, Jónu Elísabetu Ottesen, að utan þar sem þær versluðu inn
haustvörur og sáu hvað var það allra heitasta í hausttískunni. „Creepers-
skór, Doc Martens-skór, víðir gallajakkar, köflóttar skyrtur og skósíðir kjól-
ar verða mjög áberandi í haust. Hermannatískan verður áberandi í yfir-
höfnum, „camouflage“-jakkar og hermannajakkar með leðurermum, líka
„biker“-jakkar og svona „over-sized“ eða of stórar yfirhafnir,“ segir hún og
bætir við: „Áberandi munstur eru til dæmis krossar og „galaxy“-munstur.
Í það heila er tískan frekar
pönkuð í bland við 90´s
grungið.“
Ull og leður
Erna Hrund Hermannsdóttir
tískubloggari hjá Trendnet.is
„Hausttískan, þá sérstaklega yfirhafn-
irnar, einkennist af ullarefnum og leðri
og helst væri þessum efnum blandað
saman, sniðin á yfirhöfnunum eru stór
með breiðum öxlum eins og sást m.a.
hjá Balenciaga og Céline. Sniðin eru
frekar mikið bein og ekki þröng. Sér-
staklega á buxum, peysum og jökkum
og flíkurnar líta þá út fyrir að vera létt-
ar en eru það alls ekki. Kvenlegar línur
læðast svo með eins og var einkennandi
hjá Burberry Prorsum sem var mín
uppáhaldslína hún var gott sambland
af borgar- og sveitastelpu,“ segir Erna
Hrund. Hvað er nauðsynlegt í fataskáp-
inn fyrir haustið? „Að mínu mati á hver
kona að eiga fallegan feld, há leðurstíg-
vél, heila léttprjónaða/heklaða peysu,
ullarkápu með áberandi öxlum helst
með leðurbótum eða leðurermum, helst
eina buxnadragt og breitt belti sem pass-
ar fyrir mittið. En til að vera örugg er gott
að eiga buxur í beinu sniði, flottan bol
og víðan ullarfrakka. Svo er líka alltaf
gott að kíkja á haustlínuna frá H&M til
að fá vísbendingar um það sem ætti að
rata í fataskápinn hjá okkur.“
Strigaskór og
hermannajakki
Hildur Ragnarsdóttir verslunarstjóri og tískubloggari
„Vínrauður, hermanna-
grænn, grár og metallitir
eru heitir í haust. Einnig
er sportleg tíska og
„camouflage“ áberandi.
Ég mundi segja að möst
hlutir fyrir haustið væru
„camouflage“ jakki og
flottir strigaskór eins og
New Balance eða Old
school Nike.“
Síðir jakkar og frakkar
Helgi Ómarsson ljósmyndari og tískubloggari
„Hjá strákum er rosalega mikið jakkar með áberandi kraga,
jakkar með leðurermum, „oversized“ peysur og peysur með
dýra-printum,“ segir Helgi aðspurður um það hvað hann
telji vera heitast í hausttískunni og bætir við: „Síðir jakkar
og frakkar finnst mér mest áberandi og mest spennandi. Ég
er einmitt nýbúinn að fjárfesta í nýjum frakka fyrir haustið,“
segir hann. En hvað er að hans mati nauðsynlegt að eiga í
fataskápnum fyrir haustið? „Stóran trefil, frakka, og bæta
við nýrri gollu eða nýrri hettupeysu til að vera í innan undir
léttum jakka eða leðurjakka. Fullt af „layers“ (lögum) af föt-
um áður en það verður of kalt og maður þarf að skipta yfir í
úlpurnar.“
Dreymir um
leðurkápu
Pattra Sriyanonge tísku-
bloggari á Trendnet.is og leikkona
„Ég er mjög spennt fyrir
„goth“ trendinu sem kem-
ur með haustinu. Í sum-
ar er ég búin að vera pínu
rokkari í mér og hlakka
til að taka þetta skrefinu
lengra, kvikmyndin Mat-
rix er fyrirmyndin,“ segir
Pattra. Hana dreymir um
að eignast flotta leðurkápu
fyrir haustið. „Nú ímynda
sér allir þessar ljótu gömlu
frá því í denn en ég væri
til að eiga eina fíngerða í
„military“ stíl sem verð-
ur einnig „trend“ hausts-
ins. Ég læt mig dreyma um
eina slíka frá Alexander
Wang og mun sennilega
dreyma að eilífu.“
Hvað verður heitast í haust?