Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Page 42
42 Lífsstíll 10.–12. ágúst 2012 Helgarblað Mikið úrval af ullarfötum fyrir börn og fullorðna. Tilvalin í útileguna! V ið megum búast við að ork- an sem við söfnuðum upp í sumarfríinu klárist á tveim- ur til þremur dögum eftir að vinna hefst að nýju. Þetta segir Thomas Milsted, danskur rit- höfundur, fyrirlesari og sérfræðingur í streitu en sagt er frá þessu í danska blaðinu Politiken. Ekki hægt að hlaða stressrafhlöðu Þar segir Milsted að þó að við höf- um náð að kúpla okkur frá vinnunni í fríinu þýði það ekki að við verðum lengi að kúpla okkur inn aftur. Heil- inn muni nákvæmlega hvað vinnan snýst um. Það sé hins vegar spurning hvernig við tökumst á við stressið því ekki sé hægt að hlaða stressrafhlöður í sumarfríinu. „Stress er varnarkerfi sem heilinn kveikir á þegar hann skynjar hættu. Tilfinningar spila þar stóran þátt. Það sem kveikir á varnarkerfi gasellunnar er ekki ljónið sjálft, heldur hræðslan við ljónið,“ útskýrir hann og segir að það ætti því að skoða streitu sem viðbrögð við ákveðnum aðstæðum og full ástæða sé til að undirbúa sig fyrirfram. „Það er hægt að undirbúa sig hvernig best sé að koma til vinnu aftur eftir frí,“ segir hann og veitir lesendum fjögur góð ráð til þess: Undirbúðu heilann Líkt og reynt er að koma lagi á svefn- venjur barna áður en fríi lýkur mæl- ir Milsted með að fullorðna fólkið reyni einnig að koma skikki á dag- legar venjur áður en vinna hefst að nýju. Það sé því gott ráð að halda smá fund með heilanum nokkrum dög- um áður en fríinu lýkur og undirbúa hann undir hvað koma skal. „Sálrænn undirbúningur get- ur hjálpað til við að takast á við það óumflýjanlega stress sem við finnum fyrir þegar við göngum inn á vinnu- staðinn. Þetta er spurning um að segja heilanum að það sé í raun ekk- ert að óttast. Við séum bara komin aftur í hringiðuna.“ Hann bætir við að heilinn sé fljótur að aðlagast að nýju svo við þurfum ekki að hafa áhyggj- ur af því hvernig okkur muni ganga. „Höfum það hugfast að við verðum fljót að detta í hversdagsgírinn aftur.“ Skipulegðu fyrstu vikuna vel Milsted neitar því ekki að fyrsta vikan eftir sumarfrí geti verið strembin. „Ég held að það sé mikilvægt að maður viðurkenni fyrir sjálfum sér og geri sér ljóst að það er heilmikið sem þarf að takast á við þegar maður mætir til vinnu, svo sem tölvupóstar sem þarf að svara, óunnin verkefni og hlut- ir sem þarf að setja sig inn í.“ Fyrsta vikan verði þó alltaf léttari að takast á við hafi maður undirbúið hana vel og fylgi þeirri góðu reglu að gera einn hlut í einu. „Það getur virst óyfirstíg- anlegt en þá er mikilvægt að takast á við verkefnin á skipulagðan hátt. Það er ekki hægt að gera 40 hluti í einu,“ segir hann og bætir við að oft virðist verkefnin erfiðari en þeir eru. Gerðu samning við yfirmann og vinnufélaga Það geta verið mörg og mismunandi verkefni sem bíða þín eftir fríið og margir sem þurfa að ná tali af þér. Mil- sted mælir með því að þú gerir plan með yfirmanni þínum og vinnufélög- um yfir hverju sé mikilvægast að byrja á. „Komist að því í sameiningu hvað er mikilvægast og geymdu önnur ver- kefni.“ Hann vill einnig beina því til yfirmanna og fyrirtækja að setja ekki of mikla pressu fyrst um sinn og veita viðkomandi tíma til að ganga frá því sem þarf að gera. „Best væri ef yfir- maður og samstarfsfélagar myndu láta sem þú værir ekki á staðnum á meðan þú ert að klára forgangsmál- in. Eftir það kæmir þú svo sterkur inn,“ segir hann. Auk þess ætti ekki að skipuleggja fundi með starfsmönnum fyrr en allir eru komnir úr fríi. Komdu skipulagi á innhólfið Fullt innhólf getur orsakað streituvið- brögð að sögn Milsteds. Hvort sem byrjað er á því að skoða póstinn eða það er geymt þar til í lok vikunnar þá er mikilvægt að koma skipulagi á hann. Þá er gott að flokka þann póst sem skal eyða, þann sem má bíða og þann sem þarf að setja í forgang að svara. Milsted segir að hann hafi sjálf- ur skipulagt sinn tölvupóst á þann hátt að hann er með nokkrar möpp- ur. Þeim sé skipt upp eftir mánuð- um, sendendum og hversu mikil- vægir tölvupóstarnir eru. „Þegar ég fer í gegnum tölvupóstinn minn set ég póst strax í ákveðinn hóp og held þannig innhólfinu alltaf tómu. Þá er enginn póstur þar til að trufla mig.“ Því næst fer hann í þá möppu sem er mest áríðandi og fer yfir hvern ein- asta póst þar. „Þegar ég hef lokið því af fer ég yfir aðrar möppur í þeirri röð sem mér finnst mikilvægust,“ segir hann að lokum. Undirbúðu þig andlega fyrir vinnuna n Nokkur atriði sem vert er að hafa í huga eftir sumarfrí Streita Það getur verið stressandi að mæta til vinnu eftir frí og ná ekki yfirsýn yfir þau verkefni sem þarf að vinna. MYND CORBIS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.