Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2011, Qupperneq 52
B
oði fæddist að Sjónarhóli í
Hafnarfirði og ólst þar upp.
Hann fór fyrst til sjós þrettán
ára og var á bátum, togurum
og á millilandaskipinu Gull-
fossi. Hann hóf síðan nám við Mat-
reiðslu- og brytaskólann í Danmörku
1952 og lauk þaðan prófi 1956.
Að námi loknu var Boði á milli-
landaskipum SÍS, strandferðaskipum
Ríkisskipa, Heklu og Esju, starfaði í
Naustinu og á Hótel Borg þar sem
hann var yfirmatreiðslumeistari.
Jón Boði gerðist kaupmaður á
Sjónarhóli í Hafnarfirði 1959 og starf-
rækti þar verslun til 1971. Á þeim
árum var hann með tvo kjörbúðar-
bíla sem þjónuðu bæði Garðabæ og
nokkrum hverfum í Hafnarfirði en
það var þá algjör nýjung í verslunar-
rekstri. Eftir að Boði hætti verslunar-
rekstri starfaði hann við matreiðslu,
m.a. hjá Álverinu í Straumsvík, var
yfirmatreiðslumaður hjá hernum á
Keflavíkurflugvelli og bryti hjá Áburð-
arverksmiðju ríkisins. Í dag starfar
Boði hjá líftæknifyrirtækinu Prokaría.
Boði fór snemma að stunda íþrótt-
ir. Hann varð Norðurlandameistari
skipafélaga í 100 metra hlaupi og í
knattspyrnu. Á Danmerkurárum sín-
um lék hann knattspyrnu með sjó-
mannaklúbbi Kaupmannahafnar og
handbolta með deild danska sjóhers-
ins. Hann var í fimleikum og hand-
bolta í FH og hefur sinnt ýmsum trún-
aðarstörfum á vettvangi íþróttanna,
setið í nefndum á vegum FH, sat í
stjórn Stjörnunnar í Garðabæ og var
formaður Stjörnunnar um tveggja
ára skeið. Þá var hann formaður
skemmtiklúbbsins Káts fólks í fimm-
tán ár og sat þar í stjórn samfleytt í átj-
án ár. Einnig sat Boði í safnaðarstjórn
Fríkirkjunnar í Hafnarfirði.
Fjölskylda
Eiginkona Boða var Erna Sigurbjörg
Ragnarsdóttir, f. 28.5. 1929, d. 30.6.
2006, hárgreiðslumeistari. Hún var
dóttir Jóns Ragnars Jónassonar, skipa-
smiðs í Reykjavík, og Jóhönnu Eiríks-
dóttur verslunarmanns.
Börn Boða og Ernu Sigurbjargar
eru Gréta, f. 3.10. 1953, hárkollu- og
förðunarmeistari, gift Gauki Jóns-
syni blikksmiði og eiga þau þrjú
börn, Boða, f. 1980, Bylgju, f. 1984,
og Hrönn, f. 1986; Guðbjörg, f. 12.2.
1958, heilsunuddari en hún á þrjá
syni, Arnar, f. 1982, Jón Fannar, f.
1984, og Victor Orra, f. 2004; Hafdís,
f. 6.11. 1961, danskennari , gift Birni
Leifssyni framkvæmdastjóra og eiga
þau tvö börn, Birgittu Líf, f. 1992, og
Björn Boða, f. 1999; Jóhanna, f. 7.9.
1966, tölvunarfræðingur í Colorado,
gift Guðmundi Bergmann Jónssyni
arkitekt og eiga þau þrjú börn, Andreu
Bergmann, f. 1993, Ian Bergmann, f.
1999, og Emmu Bergmann, f. 2003.
Systkini Boða: Bjarni Vestmar,
f. 14.11. 1925, d. 1986, var bifreiða-
stjóri; Bára, f. 16.5. 1927, d. 9.5. 2006,
húsmóðir og verslunarmaður, var gift
Magnúsi Þórðarsyni, d. 11.5. 2010 og
eignuðust þau fjögur börn; Bragi Vest-
mar, f. 18.6. 1929, skipstjóri og sölu-
maður, var kvæntur Ernu Guðmunds-
dóttur, f. 5.6. 1930, d. 12.6. 1996, og
eignuðust þau sex börn; Birgir, f.
22.2. 1935, d. 2.9. 2011, vélstjóri og
framkvæmdastjóri, var kvæntur Ingu
Magnúsdóttur og eignuðust þau þrjú
börn; Guðlaug Berglind, f. 21.2. 1937,
kaupmaður, var gift Halli Ólafssyni,
d. 13.12. 2009 og eignuðust þau tvö
börn.
Foreldrar Boða voru Björn Eiríks-
son, f. 9.9. 1894, d. 1983, skipstjóri og
bifreiðastjóri á Sjónarhóli í Hafnar-
firði, og k.h., Guðbjörg Jónsdóttir, f.
20.10. 1894, d. 21.11. 1993, húsmóðir
og kaupmaður.
Ætt
Björn var sonur Eiríks Jónssonar á
Halldórsstöðum á Vatnsleysuströnd
og k.h., Sólveigar Benjamínsdóttur.
Guðbjörg var dóttir Jóns Magn-
ússonar og Guðlaugar Jónsdóttur frá
Bárugerði á Miðnesi.
Á
rmann Reynisson fæddist
í Reykjavík og ólst þar upp.
Hann var í Langholtsskóla og
Vogaskóla, lauk kennaraprófi
frá Kennaraskóla Íslands 1973,
stúdentsprófi þaðan 1974, stundaði
laganám við Háskóla Íslands 1974–79,
stundaði viðskiptafræðinám við The
London School of Foreign Trade og
útskrifaðist þaðan 1981 og útskrifaðist
frá The London School of Economics
1982.
Ármann var forstjóri og eigandi
verðbréfafyrirtækisins Ávöxtunar á ár-
unum 1982–88 sem var viðskiptasam-
steypa fjölda fyrirtækja í hinum ýmsu
greinum með um þrjú hundruð starfs-
menn og sinnti þá brautryðjanda-
starfi við nútímavæðingu á íslenskum
fjármálamarkaði. Hann sinnti síðan
margs konar viðskiptum á árunum
1989–2000.
Ármann hefur helgað sig ritstörf-
um frá því í ágúst 2000. Hann hefur
sent frá sér ellefu tvítyngdar bækur þ.e.
á íslensku og ensku, Vinjettur I–XI, og
eru í hverri þeirra 43 sögur, samtals
alls 473. Auk þess hafa komið út eft-
ir hann tvær fjórtyngdar safnbækur,
Vestnorrænar vinjettur, en í báðum
bókunum eru sömu 47 sögur frá Ís-
landi, Færeyjum og Grænlandi. Fyrri
bókin er á íslensku, færeysku, dönsku
og grænlensku og sú síðari á norsku,
sænsku, finnsku og ensku. Þá er Vinj-
ettur V, tvítyngd, þ.e. á þýsku og ís-
lensku komin út hjá forlaginu August
von Goethe Literaturverlag í Frank-
furt. Með vinjettunum kynnir Ármann
nýja bókmenntagrein inn í íslenskar
bókmenntir.
Auk þess hefur Esperantofélagið
þýtt nokkrar sögur á esperanto og birt í
tímariti sínu. Öll innlend útgáfa á verk-
um höfundar, sala og dreifing og sam-
skipti við erlenda aðila er á kostnað og
ábyrgð höfundarins sjálfs.
Ármann hefur ferðast um Græn-
land, Færeyjar, Indland og Himalaja-
fjallsvæðið til þess að viða að sér efni
í vinjettur. Vinjettudagskrár með upp-
lestri og tónlist hafa verið haldnar í
nánast öllum kaupstöðum landsins en
Ármanni hefur verið boðið að kynna
ritverk sín í skólum og á menningarhá-
tíðum, innanlands og utan. Bækurnar
eru ekki auglýstar né seldar í bóka-
verslunum á Íslandi heldur í áskrift og
einnig er hægt að kaupa þær á heima-
síðunni armannr.com.
Ármann hefur aldrei hlotið verð-
laun né viðurkenningar fyrir störf sín,
né verið úthlutað úr starfslaunasjóði
rithöfunda, en Vinjetturnar eru vel
kynntar, hver útgáfa seld í 3.000 ein-
tökum og fara vítt um heim. Þá hefur
Ármann slegið í gegn sem kynnir á
skemmtikvöldum Leikhúss og Lista-
manna í Þjóðleikhúskjallaranum.
Fjölskylda
Alsystkini Ármanns eru Ásta Reynis-
dóttir, f. 20.1. 1949, handavinnukenn-
ari í Hafnarfirði; Bergþóra Reynisdótt-
ir, f. 3.1. 1950, geðhjúkrunarfræðingur,
búsett í Kópavogi og í Fögruhlíð í
Fljótshlíð; Halldór Reynisson, f. 10.11.
1953, fyrrv. forsetaritari og fyrrv. sókn-
arprestur í Hruna- og Neskirkju en nú
fræðslustjóri Þjóðkirkjunnar.
Hálfsystir Ármanns var Sigrún
Reynisdóttir, f. 7.9. 1947, d. 6.3. 2011,
baráttukona, lengst af búsett í Reykja-
vík.
Foreldrar Ármanns eru Reynir Ár-
mannsson, f. 11.8. 1922, d. 4.12. 2002,
fyrsti póstmeistari á Keflavíkurflugvelli
og síðar yfirmaður hjá Pósti og síma í
Reykjavík, og Stefanía Guðmundsdótt-
ir frá Syðra-Lóni á Langanesi, f. 23.11.
1922, d. 25.5. 1999, húsfreyja og smur-
brauðsdama í Reykjavík.
Ætt
Reynir var sonur Ármanns, konung-
legs skósmiðs í Reykjavík og síðar trú-
boða, bróður Bergþórs skipstjóra, afa
Árna B. Sveinssonar stórkaupmanns.
Ámann var sonur Eyjólfs, steinsmiðs í
Reykjavík Þorvaldssonar, b. á Lamba-
stöðum Eyjólfssonar. Móðir Ármanns
trúboða var Guðrún Bergþórsdóttir, b.
að Langárfossi og í Straumfirði Berg-
þórssonar. Móðir Guðrúnar var Guð-
rún Sigurðardóttir, systir Sigríðar, lang-
ömmu Halldórs Kiljan Laxness, föður
Einars sagnfræðings, Guðnýjar kvik-
myndagerðarmanns og Sigríðar þýð-
anda. Sigríður var einnig langamma
Þórunnar Elfu Magnúsdóttur skáld-
konu, móður Megasar.
Móðir Reynis var Guðrún, verka-
kona í Reykjavík Reinaldsdóttir, land-
pósts og útvegsb. á Kaldá í Önundar-
firði Kristjánssonar. Móðir Guðrúnar
var Anika Magnúsdóttir, Jónatansson-
ar, b. í Vöðlum í Önundarfirði Jóns-
sonar. Móðir Magnúsar var Helga,
systir Ólafs Thorberg Hjaltasonar, pr.
á Breiðabólstað í Vesturhópi og ætt-
föður Thorbergsættar, föður Bergs
Thorberg landshöfðingja, og Kristín-
ar, ömmu Einars Guðfinnssonar, út-
gerðarmanns í Bolungarvík, afa Einars
Guðfinnssonar, alþm. og fyrrv. ráð-
herra. Móðir Aniku var Guðrún Jóns-
dóttir, b. á Laugabóli á Langadals-
strönd Árnasonar, umboðsmanns í
Æðey Jónssonar, sýslumanns í Reykja-
firði Arnórssonar. Móðir Jóns á Lauga-
bóli var Elísabet Guðmundsdóttir, b.
í Arnardal Bárðarsonar. Móðir Guð-
rúnar var Helga, systir Jóns í Djúpa-
dal, föður Björns, ráðherra og ritstjóra
Ísafoldar, föður Sveins, fyrsta forseta
lýðveldisins, og Ólafs, ritstjóra Morg-
unblaðsins. Helga var dóttir Jóns, b. í
Djúpadal Arasonar.
Stefanía var systir Baldurs, föður
séra Davíðs, prófasts á Eskifirði. Stef-
anía var dóttir Guðmundar, b., kaup-
félagsstjóra og oddvita að Syðra-Lóni,
bróður Árna, héraðslæknis á Vopna-
firði, og bróður Aðalbjargar ljósmóður,
ömmu Steingríms J. Sigfússonar fjár-
málaráðherra. Guðmundur var sonur
Vilhjálms, b. á Ytri-Brekkum á Langa-
nesi Guðmundssonar, b. á Skálum.
Móðir Guðmundar kaupfélagsstjóra
var Sigríður, systir Árna, b. á Gunn-
arsstöðum, langafa Steingríms J. Sig-
fússonar. Sigríður var dóttir Davíðs, b.
á Heiði á Langanesi Jónssonar. Móð-
ir Sigríðar var Þuríður, systir Jóns á
Skútustöðum, langafa Þórs Vilhjálms-
sonar, fyrrv. dómara. Jón var einnig
langafi Magnúsar Torfasonar hæsta-
réttardómara, Jónasar Jónssonar bún-
aðarmálastjóra og Hjálmars Ragnars-
sonar tónskálds. Þuríður var dóttir
Árna, b. á Sveinsströnd í Mývatnssveit,
bróður Kristjönu, móður Jóns Sigurðs-
sonar, alþm. á Gautlöndum, ættföður
Gautlandaættar, föður ráðherranna
Kristjáns og Péturs og Steingríms,
alþm. og bæjarfógeta, og Rebekku,
móður Haralds ráðherra og ömmu
Jóns Sigurðssonar, fyrrv. ráðherra, auk
þess sem Jón var faðir Sigrúnar, móð-
ur Steingríms Steinþórssonar forsætis-
ráðherra.
Móðir Stefaníu var Herborg Frið-
riksdóttir, b. og smiðs í Svínadal í
Kelduhverfi Erlendssonar, hreppstjóra
á Fjöllum, bróður Ólafs á Auðbjargar-
stöðum, langafa Vilhelms, föður Bald-
urs, fyrrv. prófasts í Vatnsfirði. Annar
bróðir Erlends var Jón, langafi Frið-
riks, föður Barða, framkvæmdastjóra
VSÍ, Kristjáns í Últíma og Sæmundar,
framkvæmdastjóra Stéttarsambands
bænda, en bróðir Friðriks var Torfi,
langafi Höskuldar Þráinssonar pró-
fessors. Þriðji bróðir Erlends var
Magnús, afi Benedikts Sveinssonar al-
þingisforseta, föður Bjarna Benedikts-
sonar forsætisráðherra, föður Björns,
fyrrv. ráðherra, og Valgerðar alþm., en
bróðir Bjarna var Sveinn, afi Bjarna
Benediktssonar, alþm. og formanns
Sjálfstæðisflokksins. Benedikt var auk
þess afi Halldórs Blöndal, fyrrv. ráð-
herra. Magnús var auk þess afi Jóns
Trausta, rithöfundar og skálds.
Ármann Reynisson
Vinjettuskáld
Jón Boði Björnsson
Matreiðslumeistari og bryti frá Sjónarhóli
80 ára á sunnudag
60 ára á föstudag
G
uðbjört fæddist í Reykja-
vík en ólst upp í Keflavík til
fjögurra ára aldurs, síðan í
Laugardal í Skagafirði til tólf
ára aldurs en síðan í Garða-
bæ.
Guðbjört var í Steinstaðaskóla í
Skagafirði, síðan í Garðaskóla, stund-
aði nám við Menntaskólann í Reykja-
vík og lauk þaðan stúdentsprófi 2001,
stundaði síðan nám í samfélags- og
hagþróunarfræði við Háskólann á
Akureyri og lauk þaðan BA-prófi vor-
ið 2006 og stundaði síðan nám í al-
þjóðaviðskiptum við Háskólann í
Reykjavík og lauk þaðan MSc-prófi
árið 2009.
Guðbjört ólst upp við öll almenn
sveitastörf í Laugardal, starfaði hjá
Sambíóunum í Reykjavík á mennta-
skólaárunum og vann við uppvörtun
og þjónastörf með háskólanámi. Þá
starfaði hún við gleraugnaverslunina
ÉgC í Kópavogi í tvö ár. Hún hefur
verið sérfræðingur hjá Trygginga-
stofnun ríkisins frá hausti 2009.
Guðbjört æfði skauta frá tólf ára
aldri, æfði og
keppti í sam-
hæfðum skauta-
dansi og keppti
þá m.a. á heims-
meistaramótum
í Rouen í Frakk-
landi, árið 2002,
og í Ottawa í Kan-
ada, árið 2003.
Hún var skautadómari á mótum
hér landi, varð alþjóðlegur skauta-
dómari árið 2010 og þjálfar nú á veg-
um íþróttafélagsins Aspar.
Fjölskylda
Maður Guðbjartar er Einar Hermann
Einarsson, f. 27.11. 1977, tæknimað-
ur hjá Þjóðleikhúsinu.
Systkini Guðbjartar eru Kristín
Björk Erlendsdóttir, f. 13.5. 1969,
bókhaldari í Reykjavík; Páll Stefán
Erlendsson, f. 27.8. 1974, við bygg-
ingavinnu í Noregi.
Foreldrar Guðbjartar eru Þór-
dís Pálsdóttir, f. 9.10. 1948, húsmóð-
ir í Garðabæ, og Erlendur Ragnars-
son, f. 5.8. 1947, húsasmíðameistari
í Garðabæ.
Guðbjört Erlendsdóttir
Sérfræðingur hjá Tryggingastofnun ríkisins
30 ára á föstudag
Ó
lafur fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp. Hann var í
Lauganesskóla og Laugalækj-
arskóla, stundaði nám við
Fjölbrautaskólann í Breið-
holti og lauk þaðan stúdentsprófi
2006. Hann stundar nú nám í tísku-
og textílhönnun í Mílanó á Ítalíu.
Ólafur hefur sinnt hönnun, leik-
stjórn og leikið sjálfur á sviði með
námi. Þá hefur hann sýnt sem drag-
drottning frá 2002 og var valinn
dragdrottning Íslands árið 2003.
Fjölskylda
Unnusti Ólafs er Daníel Guðjónsson,
f. 18.9. 1984, nemi í húsasmíði.
Bræður Ólafs eru Friðbergur
Ólafsson, f. 21.10. 1970, leigubif-
reiðastjóri, búsettur á Selfossi; Jón
Sölvi Ólafsson, f. 9.6. 1972, kokkur,
búsettur á Höfn; Valgeir Ólafsson,
f. 31.3. 1974, framkvæmdastjóri í
Reykjavík.
Foreldrar Ólafs eru Ólafur Jóns-
son, f. 19.12. 1950, leigubifreiða-
stjóri, búsettur í Reykjavík, og
Valgerður Friðþjófsdóttir, f. 27.7.
1952, strætisvagnabifreiðastjóri í
Reykjavík.
Ólafur Helgi Ólafsson
Hönnuður og dragdrottning
30 ára á föstudag
52 Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 2.–4. desember 2011 Helgarblað