Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2011, Blaðsíða 59
59Helgarblað 2.–4. desember 2011
„Hún höfðar til hjarta og vitsmuna; spil-
ar á strengi drama, spennu og húmors.“
„Leikurinn er að flestu
leyti vel heppnaður“
Jójó
eftir Steinunni Sigurðardóttur
Call of Duty:
Modern Warfare 3
Uppáhaldsjólamyndin?
F
ootball Manager-serí-
an nýtur gríðarlegra
vinsælda meðal knatt-
spyrnuáhugamanna.
Í gegnum árin hefur FM
fangað drauma hvers knatt-
spyrnuunnanda um að stýra
sínu uppáhaldsliði, kaupa og
selja leikmenn, semja við þá
um himinhá laun og vinna
titla. Þetta er allt saman enn
hægt í Football Manager
2012. Draumurinn lifir en nú
er svo komið að hann er far-
inn að þynnast út og tekinn
að staðna.
Sá sem hér skrifar hefur
margra ára reynslu af spilun
Manager-leikja. Þróunin hef-
ur verið mikil á undanförn-
um árum þó mörgum hafi
þótt hún býsna hæg. Sífellt
hefur verið breytt og bætt við
sigurformúluna sem í eðli
sínu er einföld. Einn og einn
aukafídus hér og þar hefur
gert leikinn afar raunveru-
legan, aukið dýpt hans og
endingu. Nú er svo komið að
undirrituðum þykir FM hafa
staðnað, jafnvel farið eilítið
aftur. Þær nýjungar sem mik-
ið er látið með í herbúðum
Sports Interactive (SI) eru
smávægilegar og aðeins til
þess gerðar að auka flækju-,
pirrings- og endurtekningar-
stig leiksins.
Nú er hægt að ákveða fas
sitt þegar maður flytur staðl-
aðar innblástursræður fyrir, í
hálfleik og eftir leik. Þú getur
stillt hvort þú sért reiður eða
rólegur og allt þar á milli.
Þetta verður mjög þreytt afar
fljótt. Við spilun tekur maður
eftir að nú þarf að standa í
endalausu flipaflakki til að
komast milli upplýsinga-
skjáa. Hvort heldur sem er
þegar leikmaður er skoð-
aður eða liði stillt upp fyrir
leik. Mín spá er sú að FM12
muni kafsökkva nýjum spil-
urum þrátt fyrir leiðbeining-
ar. Reyndari spilarar ættu að
spjara sig.
Niðurstaðan er að SI þarf
að girða sig í brók. Í FM 12
er hvergi nógu miklu breytt
eða það bætt til að réttlæta
nýja útgáfu. Hér er sáralít-
ið að finna sem ekki hefði
mátt laga með uppfærslu á
FM11. Og þær tilþrifalitlu
nýjungar sem bætt er við eru
eiginlega bara leiðinlegar. En
FM-serían er gullkálfur sem
aðdáendur munu kaupa í
bílhlössum sem fyrr. Þetta er
besti leikur sinnar tegundar
en serían er í krísu stöðnunar
og hugmyndaleysis.
Staðnaður stjóri
Sigurður
Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Tölvuleikur
Football
Manager 2012
Spilast á: PC og PSP
F
yrri myndin, Tropa de
Elite, fjallar um sérsveit
Rio de Janeiro lögregl-
unnar sem Nascimento
stýrir. Hún á fullt í fangi
með að „hreinsa til“ í Favelu
Rio de Janeiro fyrir heimsókn
páfans. Þessar „hreinsunar-
herferðir“ hafa verið fastur
liður fyrir stórviðburði í höfuð-
borg Brasilíu, götubörn og
aðrir „óæskilegir“ finnast í
haugum við borgarmörkin
til að ferðamenn og efnaðir
heimamenn geti slett áhyggju-
lausir úr klaufunum. Eini
munurinn er að Nascimento
(Wagner Moura) er ólíkur
öðrum sem sinna þessu skíta-
starfi, hann nefnilega trúir því
að vinna hans skipti sköpum
og vill að sama skapi hreinsa
út meðal gjörspilltra laganna
varða. Þegar hér er komið
sögu er hann orðinn yfirmaður
sérsveitarinnar BOPE og fær
það verkefni að enda vopnaða
gíslatöku og blóðugar deilur
gengja í öryggisfangelsi.
Erfiður óvinur, kerfið
Fyrir milligöngu mannrétt-
indalögfræðingsins Diogo
Fraga (Irandhir Santos) tekst
að leysa út gíslana en deilan
endar engu að síður í blóðugu
mannfalli meðal fanganna.
Nascimento og hans hægri
hönd André Matias (André
Ramiro) eru færðir til í starfi
til að sefa reiði almennings.
Diogo Fraga verður í kjölfarið
þingmaður og berst áfram
gegn meðferð stjórnvalda á
hinum fátæku við lítinn fögn-
uð Nascimento. Ekki síst þar
sem Fraga er núverandi eigin-
maður fyrrverandi konu hans
og fósturfaðir sonar hans sem
fjarlægist blóðföður sinn æ
meir. Nascimento sekkur sér í
vinnu en þegar hann skynjar
loks árangur í baráttu gegn
eiturlyfjasölunum stendur
hann skyndilega frammi fyrir
mun erfiðari óvini, sjálfu kerf-
inu. Sögurnar sem myndirnar
báðar byggja á koma frá sál-
fræðingum sem sinna lög-
reglumönnum borgarinnar
og birtast hér ljóslifandi.
Beygluð réttlætiskennd
Nascimento sem sögumaður
er kaldrifjaður og samúðar-
laus en nær samt einhverri
samúð. Maður sér rönguna
hjá honum en hann er hrein-
skilinn og reynir ekki að fegra
sinn hlut, honum finnst bara
allt í lagi að hafa fulla vinnu af
því að drepa. En þú getur ekki
skotið öll vandamál í andlitið
og persónuleg fjölskyldu-
flækjan þjakar hann. Maður
áttar sig á því að hann hefur
réttlætiskennd þótt beygl-
uð sé, er alls ekki heimskur
og hlýtur þar af leiðandi að
þroskast. Sama hvað hann
drepur marga þá er vanda-
málið miklu stærra og hverfur
ekki eftir að rofar til í púður-
skýjunum. Skyndilega sjáum
við að kaldrifjaði sérsveitar-
maðurinn og mannrétt-
indalögfræðingurinn standa
frammi fyrir sama vandamáli
og ef til vill sömu lausn. Þrátt
fyrir allt eru þeir hugsjóna-
menn þótt þeir séu hvor sín-
um megin víglínunnar. Snjallt
að sjá hvernig þessir ólíku
pólar, bæði sökum vinnu
og fjölskyldumála, nálgast
hvor annan. Þetta er enginn
lítill slagur að taka og þá er
spurningin hvaða vopnabúr
er nothæft. Þessar samfélags-
raunsæju brasilísku mynd-
ir, Cidade de Deus, Cidade
dos Homens, Tropa de Elite
og núna Tropa de Elite 2 eru
svo skuggalega krassandi lýs-
ing á því sem er í grunninn
vandamál alls heimsins. Fyrri
myndin var ofurraunsæ út frá
sjónarhóli sérsveitarmann-
anna og Borg Guðs og Borg
mannanna segir svipaða sögu
nema frá sjónarhóli utan-
garðsmannanna.
Ekkert rúnk
Eins og ég elska nú þessar
myndir hélt ég að þessi fram-
haldsmynd væri bara rúnk
eins og flestar myndir með
tölustafi í enda titils. Þeir
myndu nota fyrri vinsældir,
taka nokkra harða frasa frá
sérsveitarmönnum og fókus-
era á blóðugt ofbeldið. En
þessi tvistur bætir margfalt
um betur, er dýpri, snjallari
og á allan hátt stórkostlegt
framhald. Sem kemur svo
frábærlega á óvart og gefur
manni glænýja og dýpri upp-
lifun en fyrirrennarinn.
Að skjóta félagsleg
vandamál í hnakkann?
Erpur
Eyvindarson
Bíómynd
Tropa de Elite 2
IMDb 8,3 RottenTomatoes 97% Metacritic 71
Leikstjóri: José Padilha
Handrit: José Padilha
Leikarar: Wagner Moura, Irandhir
Santos og André Ramiro
115 mínútur
Hreinsunarstarf
í Rio de Janeiro
Myndin fjallar um
sérsveit Rio de
Janeiro lögreglunnar
sem Nascimento
stýrir. Hún á fullt
í fangi með að
„hreinsa til“ í Favelu
Rio de Janeiro fyrir
heimsókn páfans.
Alvaran tekin við
að í því lagi syngja líka stelpa
og strákur í samtali. Ég vil
halda því fram að lögin séu
reyndar mjög ólík. Gagnrýni
fylgir þessu auðvitað bara.
Það er líka ekkert að því að
fá smá gagnrýni, það heldur
manni á jörðinni, maður tek-
ur slíku með ró.“
Sverrir Stormsker
„Uppáhaldsjólamyndin mín er Deep Throat,
kristilegasta jólapornó sem ég hef séð.“