Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2014, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2014, Síða 4
Helgarblað 24.–27. janúar 20144 Fréttir Aðalkennari: Hjörvar Steinn Grétarsson nýbakaður stórmeistari. Skráning í síma 568 9141. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu skólans sem er opin alla virka daga frá kl. 10-13. Einnig er hægt að skrá nemendur eða senda inn fyrirspurnir á netfangið skaksamband@skaksamband.is Kennsla barna 6 – 9 ára hefst laugardaginn 25. janúar nk. Vetrarnámskeið 10 skipti. Kennt verður alla laugardaga. „Ég trúi þessu ekki!“ Gagnrýnir Kaþólsku kirkjuna á Íslandi fyrir svívirðingar gegn samkynhneigðum F yrstu viðbrögð mín voru nú einfaldlega: Ég trúi þessu ekki!“ segir Anna Pála Sverrisdóttir, formaður Samtakanna 78, varðandi þær svívirðingar sem birtar hafa verið á vef Kaþólsku kirkjunn- ar á Íslandi um samkynhneigt fólk. Þar er meðal annars að finna full- yrðingar þess efnis að samkynhneigð tengist fíkniefnaneyslu og útbreiðslu kynsjúkdóma. Þá er mælst til þess að ungt fólk sé verndað gegn „lygum í áróðri samkynhneigðra“ og fjall- að um samkynhneigða sem „þögla þolendur“ tilfinninga sinna. DV. is greindi frá því í vikunni að þetta kæmi fram í grein Hollendingsins Gerald J. M. van den Aardweg, sem þýdd var af Reyni K. Guðmundssyni, og birt á vefsíðu kirkjunnar rétt fyrir áramót. Anna Pála segir athyglisvert að forsvarsmenn Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi hafi haft fyrir því að láta þýða og birta þessa löngu grein. „Ef horft er á björtu hliðarnar er hún ágætis áminning um það sem eftir er í bar- áttu hinsegin fólks því í henni koma fyrir allar helstu röksemdarfærslurnar sem notaðar eru til að kúga hinsegin fólk.“ Sorglegast við greinina sé það að í henni eru taldar upp afleiðingarnar sem fordómar eins og í greininni hafa á líf hinsegin fólks – svo sem þung- lyndi og aðrar afleiðingar sjálfsfor- dóma. „Opna verður augu þeirra fyrir skaðlegum áhrifum slíks lífernis: von- brigði og einmanaleiki, þunglyndi og persónulegir erfiðleikar sem verða hlutskipti þeirra. Þá er ánauð í kynlífi nánast óumflýjanleg, veruleg hætta verður á misnotkun fíkniefna og að smitast af kynsjúkdómum (svo ekki sé talað um alnæmi),“ segir í greininni sem birt var á vefnum. Um 11 þúsund manns tilheyra Kaþólsku kirkjunni á Íslandi. n jonbjarki@dv.is Ágætis áminning Anna Pála segir grein­ ina ágætis áminningu um það sem eftir er í baráttu hinsegin fólks 14 milljarðar hefðu dugað sparisjóðum Frískuldamarkið óþarflega hátt fyrir minnstu fjármálafyrirtækin T il að undanskilja lítil fjár- málafyrirtæki hefði ver- ið nóg að setja fjórtán millj- arða frískuldamark vegna sérstaks skatts á fjármála- fyrirtæki, sem í daglegu tali er kall- aður bankaskattur. Þess í stað var samþykkt að setja frískuldamarkið í 50 milljarða króna en það veitir MP banka, minnsta viðskiptabankanum, verulegan afslátt af greiðslum sem annars hefðu verið inntar af bankan- um vegna bankaskattsins. DV kannaði skuldastöðu við- skiptabanka, sparisjóða og lána- fyrirtækja sem lúta eftirliti Fjár- málaeftirlitsins og reiknaði út frá heildarskuldum hvers aðila eins og þær birtast í síðasta birta ársreikningi hvað fyrirtækin hefðu borgað með og án frískuldamarksins. Sparisjóðirnir langt frá markinu Aðeins viðskiptabankarnir fjórir skulda umfram 50 milljarða frískulda- markið sem skilgreint er í lögun- um. Sjö sparisjóðir sem DV kannaði skulda allir miklu minna en 50 millj- arða og eru því langt frá markinu. Enginn þeirra kemur til með að borga bankaskatt í ár vegna marksins. Sam- kvæmt yfirlitinu er það Sparisjóð- ur Vestmannaeyja sem skuldar mest sparisjóða, með skuldir upp á 11,8 milljarða króna. Hefði frískuldamark- ið ekki komið til hefði sparisjóðurinn þurft að greiða sjötíu milljónir króna í sérstakan bankaskatt, langmest allra sparisjóða. Fjögur lánafyrirtæki, þar á með- al Straumur fjárfestingabanki, sleppa einnig við greiðslu bankaskatts vegna frískuldamarksins. Borgun hefði átt að greiða 70 milljónir, Lýsing 17 milljónir, Straumur 51 en Valitor hefði þurft að greiða mest, samtals 132 milljónir. Ekkert þessara fyrir- tækja, sem skulda á bilinu fjóra til 35 milljarða króna, þurfa hins vegar að greiða. Mest frá föllnu bönkunum Langstærstur hluti tekna ríkis- ins af bankaskattinum kemur frá slitastjórnum föllnu bankanna en skatturinn hafði fram að samþykkt fjárlaga 2014 ekki náð yfir þær. Út frá stöðu þeirra í árslok 2012 nema heildargreiðslur þeirra samtals 28,78 milljörðum króna. Viðskiptabankarn- ir fjórir, MP banki, Landsbanki, Arion banki og Glitnir, standa svo undir um það bil níu milljörðum. Frískuldamarkið hefur tiltölulega lítil áhrif á þessa aðila, að undan- skildum MP banka. Líkt og fjall- að hefur verið um skiptir frískulda- markið MP banka gríðarmiklu máli en bankaskattsgreiðslur bankans eru 78 prósentum lægri með frítekju- markinu en án. Því hefur verið velt upp hvort markið sé sérsniðið að bankanum en því hefur Frosti Sigur- jónsson, formaður efnahags- og við- skiptanefndar sem lagði til frískulda- markið, hafnað. Segir MP banka hafa vælt Aðeins einn þingmaður stjórnar- meirihlutans á Alþingi greiddi ekki atkvæði með bankaskattinum. Það var Vilhjálmur Bjarnason, þing- maður Sjálfstæðisflokksins og fram- kvæmdastjóri Samtaka fjárfesta. Í samtali við RÚV 13. janúar síðast- liðinn sagði hann að nokkrar fjár- málastofnanir hefðu vælt og fengið í gegn frískuldamarkið. Aðspurður hverjir hefðu vælt sagði hann: „Ja, náttúrlega þeir sem höfðu árangur í málinu, það eru sparisjóðirnir og eig- um við ekki að segja einn banki, sem er MP banki.“ Athygli vekur að Vilhjálmur nefn- ir MP banka sérstaklega en bankinn var ekki meðal þeirra sem skiluðu inn athugasemd við tekjuaðgerðarfrum- varpið. Það gerði hins vegar Sam- band íslenskra sparisjóða sem benti á að skatturinn legðist þungt á þeirra starfsemi. n Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is Á mörkunum MP banki er minnstur viðskiptabankanna fjögurra en hann skuldar þrettán milljarða umfram frískulda­ markið. Mynd Sigtryggur Ari Mest NBI, eða gamli Landsbankinn, greiðir mest í bankaskatt. Föllnu bankarnir standa undir stærstum hluta tekna af skattinum. „ Ja, náttúrlega þeir sem höfðu árang- ur í málinu, það eru spari- sjóðirnir og eigum við ekki að segja einn banki, sem er MP banki. Vilhjálmur Bjarnason Var eini þingmaður meirihlutans sem greiddi ekki atkvæði með banka­ skattinum. Dæmdur fyrir svik á Blandi Héraðsdómur Suðurlands dæmdi nýverið tvítugan karlmann í níu mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundna, með- al annars fyrir að hafa selt vörur á bland.is án þess að afhenda þær. Maðurinn auglýsti til sölu Sam- sung Galaxy S3-síma og þrír aðilar lögðu inn á hann samtals 75 þús- und krónur, en síminn var aug- lýstur til sölu á 30 þúsund krónur. Fólkið fékk þó símann aldrei í hendurnar. Þá var maðurinn einnig sakfelldur fyrir að hafa brot- ið bílrúðu og gengið ölvaður um Eyrarbakkaveg. Þá var mikil þoka og rigning og taldi ákæruvaldið að talsverð hætta hefði stafað af hegðun hans. Þá var maðurinn einnig sakaður um að hafa brotist inn á veitingastaðinn Rauða hús- ið á Eyrarbakka. Þar braut hann rúðu í útidyrahurð, gekk inn og hafði á brott með sér fimm flöskur af áfengi. Þess var krafist að hann yrði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Hann mætti ekki við þingfestingu málsins þar sem hann var í meðferð og fyrir- töku var því frestað. Hann mætti hins vegar fyrir dóm nú í janúar og játaði á sig öll brotin. Dómari taldi ekki ástæðu til að draga játn- inguna í efa, en í máli verjanda mannsins kom fram að ákærði „væri búinn að snúa lífi sínu til betri vegar.“ Hann hefur einu sinni áður sætt refsingu en hann var þá dæmdur í átta mánaða skilorðs- bundið fangelsi fyrir rán, en ekki voru liðin tvö ár frá þeim dómi og skilorðið því enn í gildi. Með þess- um afbrotum rauf hann skilorð og hlaut því þyngri dóm nú en ella. Vilja tryggja hagsmuni Stjórn Átaks, félags fólks með þroskahömlun, hefur áhyggj- ur af stöðu fatlaðs fólks í rétt- arkerfinu og hefur af þeim sökum sent frá sér ályktun þar sem bent er á að fatlað fólk sé í meiri áhættu hvað ofbeldi varðar en ófatlað fólk og fær lítinn stuðning þegar það greinir frá ofbeldinu. Fé- lagið segist reiðubúið til sam- starfs til að tryggja hagsmuni þessa hóps.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.