Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2011, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2011, Side 2
2 | Fréttir 25. júlí 2011 Mánudagur Á annan tug fasteigna sem eru í niðurníðslu í miðborginni eru í eigu eignarhaldsfélaga eða fjármálastofnana. Þegar hafa verið lagðar dagsektir á eiganda einnar fasteignar en eigendur annarra gætu átt yfir höfði sér slíkar sektir. Frestur eigenda til að skila inn áætlun um áform sín er í mörgum tilvikum að renna út og geta þeir átt von á dagsektum ef Reykja- víkurborg metur það sem svo að fyrir- ætlanir eigenda séu ekki fullnægjandi. Sum þessara eignarhaldsfélaga hafa ekki ráðið við skuldsetningu vegna kaupa á fasteignunum og er beðið eftir að nauðungarsölumeðferð ljúki. Reykjavíkurborg mun þá þurfa að hafa samband við nýja eigendur til að kom- ast að því hverjar fyrirætlanir þeirra eru. Í byrjun ágúst verður næsti fundur skipulagsráðs haldinn og má búast við að þar muni koma fram meiri upplýs- ingar um framgang þessara mála. Þá mun koma betur í ljós hvort eigendur verði beittir dagsektum eða hvort þeir hafi gripið til fullnægjandi aðgerða að mati borgarinnar til að komast undan sektum. Kaupa, rífa og byggja meira Algengt var á árunum fyrir hrun að fjárfestar keyptu hús í miðbænum með áætlanir um að rífa þau. Í sum- um tilvikum var leyfilegt að auka við byggingarmagn á lóðunum en algengt var að sækja þyrfti um leyfi fyrir slíku. Í sumum tilvikum gekk þetta upp en sjaldnast fékkst leyfi hjá borginni fyrir slíkum breytingum. Ef ekki fékkst leyfi til að byggja meira á lóð kom í ljós að fjárfestingin borgaði sig ekki þar sem verðmiðinn var hár og miðaðist við að hægt væri að reisa nýjar og stærri fast- eignir á lóðunum. Breyttur tíðarandi „Við höfum það á tilfinningunni að það sé að breytast að menn séu í upp- kaupum á eignum í þeim tilgangi að fá að rífa þær í til að byggja eitthvað meira en er heimilað,“ segir Helga Björk Laxdal, yfirlögfræðingur skipu- lags- og byggingarsviðs Reykjavíkur- borgar. Að hennar mati virðist sem meiri áhugi sé nú fyrir því að gera upp eldri hús í stað þess að rífa þau og byggja ný. „Við erum mjög bjart- sýn. Þetta hefur verið erfitt tímabil varðandi mörg mál í miðborginni eft- ir hrun. Okkur sýnist við vera að horfa fram á töluverðar breytingar og eðli- legri væntingar varðandi uppbygg- ingu í miðborginni,“ segir Helga um hvernig litið sé á þróun þessara mála innan borgarinnar. Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar tók saman úttekt í maí þar sem gerð var grein fyrir þeim fasteignum sem væru í hvað verstu ástandi og mest var kvartað undan. Húsin sem fjallað er um hér á opn- unni eru þó ekki nema hluti þeirra, að sögn Helgu. Um er að ræða úttekt sem var unnin fyrir skipulagsráð þar sem menn höfðu áhyggju af ástandi mála. Þessi hús eru svokallaður fyrsti áfangi og er annar áfangi í vinnslu. Hann mun væntanlega líta dagsins ljós í ágúst þegar skipulagsráð kemur saman á ný. Í uppboðsmeðferð „Á meðan eignir eru í nauðungar- sölumeðferð er ekkert annað hægt að gera en að bíða þar til niðurstaða liggur fyrir,“ segir Helga en borgin get- ur lítið gert þar til ljóst er hver er eig- andi þeirra húsa sem vandræði stafa af. Mun fleiri hús eru í nauðungar- sölumeðferð en búist var við innan stjórnkerfis Reykjavíkurborgar og þarf „Hefur verið erfitt tímabil varðandi mörg mál í miðborginni. Miðbærinn í klóm eignarhaldsfélaga n Eigendur niðurníddra húsa eiga von á dagsektum n Mörg hús á leið í hendur bankanna n Nauðungar­ sölumeðferð veldur bið á framgangi mála n Niðurrif getur ekki hafist fyrr en byggingaráætlanir liggja fyrir Skólavörðustígur 40 Byggt: 1905 og 1925. Eigandi: Samtímalist ehf. Staða: Tillaga að dagsektum vegna ástands. Hverfisgata 28 Byggt: 1905. Eigandi: Landsbankinn, áður í eigu Festar ehf. Hverfisgata 32 Byggt: 1904, 1910. Eigandi: Festar ehf. Staða: Beðið eftir greinargerð eiganda. Hverfisgata 34 Byggt: 1910. Eigandi: Festar ehf. Staða: Beðið eftir greinargerð eiganda. H úsið að Tryggvagötu var metið ónýtt og var samþykkt bygg- ingarleyfisumsókn árið 2010 vegna nýbyggingar á lóðinni og niðurrif á fyrirliggjandi húsi. Við þá af- greiðslu var skilyrði sett um að niðurrif yrði ekki heimilað sérstaklega heldur innifalið í endanlegu byggingarleyfi. Leyfið yrði svo ekki gefið út nema fyrir lægi dagsett tímaáætlun um bygging- arhraða á lóðinni. Málið hefur verið í biðstöðu þar sem slíkar áætlanir og sérteikningar hafa ekki legið fyrir. Skipulags- og byggingarsvið Reykja- víkurborgar lagði fram tillögu um að byggingarfulltrúinn í Reykjavík myndi krefja eigendur um nákvæma tíma- áætlun. Ef hún verður ekki lögð fyrir verður væntanlega lögð fram tillaga um að beita eigendur dagsektum. H úsið og lóðin að Hverfisgötu 28 var í eigu Festa, líkt og Hverfis- gata 32–34. Hverfisgata 28 fór í nauðungarsölumeðferð og er í dag formlega í eigu Landsbankans. Flytja átti húsið að Bergstaðastræti en eftir að það brann og skemmdist mikið hefur lítið gerst. Búið var að ákveða að húsið yrði fært. Ljóst þykir að húsið verður ekki fært fyrr en vitað er hvað kemur í stað þess, óvíst er hvenær sú ákvörðun liggur fyrir. Hverfisgata 32–34 er enn í eigu Festa en félagið er í dag í samninga- viðræðum við Landsbankann um fjár- hagslega endurskipulagningu skulda. Samningaviðræðurnar hafa staðið yfir í um tvö ár og ekki liggur fyrir hvernig þeim mun ljúka. Samkvæmt aðal- eiganda og stjórnarformanni Festa, Benedikt Sigurðssyni, veltur fjárhags- leg staða félagsins á því hvað verði leyft að byggja á reitunum. Festar keyptu reitina af Reykjavíkurborg árið 2007 og var allan tímann gert ráð fyrir að rífa húsin sem þar standa. Erfiðlega hefur gengið að fá skipulags- ráð til að samþykkja tillögur um hvað skuli byggja í stað þeirra húsa sem nú standa á reitunum. Ráðgert var, af hálfu eigenda Festa, að byggja hús- næði sem færi meðal annars undir verslanir og hótelrekstur. Sífellt verið að ráðast inn í húsið: Vonandi rifið á árinuStöðugar samningaviðræður við bankann:Húsin bíða eftir að vera rifin Guðni Rúnar Gíslason blaðamaður skrifar gudni@dv.is Úttekt Bakhlið Reykjavíkur Bakhlið húsa við Hverfisgötu sem bíða eftir að verða rifin. Ekki er hægt að rífa húsin fyrr en eigendur fá samþykkta áætlun um hvað taki við að niðurrifi loknu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.