Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2011, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2011, Side 8
8 | Fréttir 25. júlí 2011 Mánudagur Allt á einum stað! Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir Þú færð fría olíusíu ef þú lætur smyrja bílinn hjá okkur Komdu með bílinn til okkar og þú færð fría ástandsskoðun n Birna Einarsdóttir fagnaði fimmtugsafmæli á Ítalíu n Giftist óvænt manninum sínum og kom öllum á óvart n Var búinn að lofa veislu árið 2007 ef hún sigraðist á krabbameini Birna gifti sig óvænt á Ítalíu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Ís- landsbanka, hélt upp á fimmtugsaf- mæli sitt í Toscana á Ítalíu í liðinni viku og fór veislan fram á sveitabæ skammt frá borginni Lucca. Í samtali við DV segir Birna að eftir að hún greindist með brjóstakrabba- mein árið 2007 hafi hún heitið nán- ustu vinum og ættingjum því að þeim yrði boðið í fimmtugsafmæli hennar á Ítalíu árið 2011 ef hún myndi lifa af og sigra í baráttu sinni við krabbameinið. Saman í 15 ár „Ég ákvað því að halda upp á afmæl- ið mitt á Ítalíu með nánustu vinum og ættingjum. Síðan ákvað ég nú bara að skella mér í giftingu í leið- inni,“ segir Birna. Sá heppni heit- ir James Hine og er hann skoskur. Þau hafa verið saman í 15 ár og segir Birna að þau hafi kynnst þegar hún stundaði MBA-nám við Háskólann í Edinborg árið 1996 og eiga þau ell- efu ára gamla dóttur sem heitir Ellen Melkorka. Þau hafi hins vegar formlega gift sig í Edinborg áður en þau héldu til Ítalíu þar sem þau hafi óttast að skriffinnska Ítala yrði þeim ofviða. Því hafi það komið afmælisgestum mjög á óvart þegar þau tilkynntu um brúðkaup sitt. „Allt í einu spil- aði plötusnúðurinn brúðarmarsinn og vinkona okkar sá um ákveðna at- höfn sem hafði verið skipulögð,“ seg- ir Birna. Þetta hafi verið óskaplega skemmtileg veisla en um 40 til 50 gestir mættu í veisluna, bæði frá Ís- landi og Skotlandi. Kom öllum á óvart „Ég var svo heppin að fá að vera viðstödd afmæli Birnu sem óvænt breyttist í brúðkaup, okkur öllum til mikillar gleði. Þetta var alveg yndis- leg stund, mjög tilfinningarík, veðr- ið gott og þetta tókst því alveg ótrú- lega vel hjá okkur,“ segir Anna Guðný Aradóttir, vinkona Birnu í samtali við DV. Athöfnin fór fram á gömlum sveitabæ og var veislan haldin úti í garði. Birna og James gengu niður tröppur ásamt Ellen Melkorku, dótt- ur sinni og þá hljómaði brúðarmars- inn. „Allir litu upp og skildu ekkert í því hvað væri í gangi. Svo uppgötv- aði fólk að um óvænt brúðkaup væri að ræða. Það var því mikið klapp- að, mikið grátið og auðvitað hlegið og faðmast,“ segir hún. Veislan hafi síðan staðið fram eftir nóttu líkt og í flestum brúðkaupum Íslendinga. Birna er væntanleg til Íslands í dag eftir að hafa dvalið í Skotlandi og á Ítalíu í tíu daga. Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar as@dv.is „Þetta var alveg yndisleg stund, mjög tilfinningarík. Óvænt brúðkaup Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og James Hine komu öllum á óvart þegar þau tilkynntu óvænt um brúðkaup sitt á Ítalíu þegar Birna hélt upp á fimmtugsafmæli sitt. Með þeim á myndinni er Ellen Melkorka, dóttir þeirra. Slapp ótrú- lega vel Fólksbifreið fór út af Suðurlandsvegi til móts við Rauðafell undir Eyja- fjöllum um klukkan fjögur í gærdag. Afleiðingarnar urðu þær að öku- maðurinn, sem var einn í bíln- um, var fluttur með sjúkrabíl á Landsspítalann í Fossvegi. Hann þykir hafa slopp- ið ótrúlega vel og er ekki alvarlega slasaður. Hann var í bílbelti. Bifreiðin fór ríflega þrjár veltur, að því er lögreglan á Hvols- velli segir, og hafnaði ofan í skurði. Bifreiðin er gjörónýt. Umferðin gekk annars nokkuð vel um helgina. Að sögn lögregl- unnar á Blönduósi gekk allt eins og í sögu, þrátt fyrir margar bæjarhátíðir og stóra ferðahelgi. Eldingu laust í flugvél Eldingu laust niður í flugvél á vegum Icelandair, rétt áður en hún lenti á Charles de Gaulle-flugvelli í París á laugardaginn. Upplýsingafulltrúi flugfélagsins, Guðjón Arngrímsson, sagði við fréttastofu RÚV á laugar- daginn að aldrei hafi verið hætta á ferðum, enda séu flugvélar félags- ins hannaðar til þess að standa af sér þrumuveður. Við skoðun á vélinni kom fram smávægileg bilun á radar- kerfi vélarinnar. Gert var við vélina í París og var henni flogið heim á leið aðfaranótt sunnudags. Fjölmennt í druslugöngu Fjölmennt var í Druslugöngunni í Reykjavík á laugardaginn þar sem fólk kom saman til að vekja athygli á því að það eru gerendur í kynferðis- brotamálum sem bera ábyrgð á brot- um sínum, ekki þolendur. Druslu- gangan (e. Slut Walk) var fyrst farin í Toronto í Kanada í kjölfar umdeildra ummæla lögreglustjórans í borginni, Michael Sanguinetti, sem sagði að konur þyrftu að forðast það að klæða sig „eins og druslur“ til að verða ekki fórnarlömb nauðgara. Yfirlýst markmið göngunnar í Reykjavík var líkt og hjá fyrirmynd- unum víða um heim að uppræta þá fordóma sem endurspeglast í áherslu á klæðaburð og ástand þolenda kynferðisofbeldis. Þátttak- endur báru margir harðorð mót- mælaspjöld á borð við „Ríkið er besti vinur nauðgara“ og önnur sem ætlað var að vekja fólk til umhugsunar eins og það sem á stóð: „Þetta er kjóll, EKKI já.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.