Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2011, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2011, Blaðsíða 12
12 | Fréttir 25. júlí 2011 Mánudagur A nders Behring Breivik er fæddur í febrúar árið 1979. Faðir hans starfaði sem hagfræð- ingur fyrir norska sendiráðið í Lundúnum og síðar í París. Móðir hans starf- aði sem hjúkrunarkona. Brei- vik eyddi fyrsta ári ævi sinnar í Lundúnum en foreldrar hans skildu árið 1980. Hann fluttist því næst með móður sinni til vesturhluta Osló þar sem hann ólst upp. Hann gekk meðal annars í sama grunnskóla og Hákon krónprins af Noregi, Smestad-grunnskólann, og fór síðan í unglingadeild í Ris- gagnfræðiskólanum. Kunn- ingjar Breivik segja hann hafa verið góðan nemanda sem var þó nokkuð einrænn. Hann ávann sér þó virðingu sam- nemenda sinna fyrir að koma öðrum til hjálpar, til að mynda þegar fórnarlömb eineltis urðu fyrir barðinu á fantaskap eldri og stærri nemenda. Áhugi á pólitík Faðir Breivik býr nú í Suður- Frakklandi þar sem hann hef- ur sest í helgan stein. Hann sagði í viðtali við Verdens gang að hann hafi ekki talað við son sinn í mörg ár, sennilega ekki síðan Breivik var 15 eða 16 ára. „Hann var hinn vænsti piltur þegar hann var ung- ur, en nokkuð einrænn. Hann hafði engan áhuga á stjórn- málum þegar ég þekkti hann,“ sagði hinn eldri Breivik, sem sagðist ekki hafa talað við son sinn síðan árið 1995 en þá sleit Anders öllum samskiptum við föður sinn. „Þá ætlaði hann til Bandaríkjanna en ég veit ekki hvort hann lét verða af því.“ Nágrannar Breivik hafa sagt lögreglu að þeir muni eftir því að hann hafi byrjað að klæða sig öðruvísi á þessum árum. Hann hafi byrjað að klæðast hermannafötum í felulitum, þó það geti í raun ekki talist óalgengt meðal táninga. Hann fékk einnig áhuga á tölvuleikj- um og spilaði mikið af slík- um leikjum sem gengu út á að drepa sem flesta. Frægast- ur þessara leikja er sennilega Doom, sem er fyrstu persónu tölvuleikur þar sem markmið- ið er að drepa fólk með hinum ýmsu vopnum. Breivik gekk í norska herinn eins og aðrir ungir menn, en herskylda er í Noregi fyrir alla karlmenn. Þar lærði hann að fara með vopn. „Eins og að hafa hitt Hitler“ Síðla árs 1997, þegar Breivik var 18 ára, gekk hann til liðs við ungliðahreyf- ingu Framsóknarflokksins í Noregi. Þar var hann meðal annars varaformaður Vestur- Oslódeildar hreyfingarinn- ar árið 2002 og formaður frá 2002 til 2004. Hann gekk til liðs við Framsóknarflokkinn sjálf- an árið 1999 og var meðlimur flokksins til ársins 2006 en ári síðar sagði hann sig einnig úr ungliðahreyfingunni. Breivik mun ekki hafa hugnast stefna Framsóknarflokksins í innflytj- endamálum og taldi flokkinn hafa svikið lit með því að ganga til liðs við fjölmenningarstefnu „marxista“, en hann rökstuddi árás sína á ungmennin í Útey með svipuðum ásökunum í garð Verkamannaflokksins. Joran Kallemyr er borgar- fulltrúi Framsóknarflokks- ins í Osló og starfaði hann með Breivik innan flokks- ins um nokkurra ára skeið. Hann sagði í viðtali við Ver- dens gang að hann líkti þeirri reynslu við að hafa „hitt Hitler áður en síðari heimsstyrjöldin hófst.“ Kallemyr sagðist ekki hafa haft mikil kynni af Breivik, en að hann hefði verið róleg- ur og auðmjúkur náungi. „Ég tók eftir því að hann var ekki sammála mér í innflytjenda- málum, en ég tók ekki eftir að skoðanir hans væru öfgafullar. Ég veit að hann mætti á fund í vesturhluta Osló árið 2002. Það mættu bara „Hann var hinn vænsti piltur þegar hann var ungur, en nokkuð einrænn. ófreskjan í eyjunni n Anders Behring Breivik hefur játað á sig ein mannskæðustu fjöldamorð síðari tíma en hann myrti minnst 93 síðastliðinn föstudag n Breivik vildi berjast gegn „menningarlegum marxistum“ og hafði andúð á fjölmenningarstefnu n Var mörg ár að skipuleggja voðaverkin H ér fyrir neðan má lesa nokkrar færslur úr dagbókum Anders Behring Breivik sem hann sendi með 1.500 blað- síðna „Sjálfstæðisyfirlýsingu Evrópu“ til meðlima í stjórnmálaflokknum Sönnum Finnum rétt eftir sprenginguna. Síðasta færsl- an vekur þónokkurn óhug enda skrifuð rétt eftir sprenginguna og áður en Breivik hélt til Úteyjar og hóf skothríðina. Ágúst 2010: Ég er að undirbúa mig fyrir bílferð til Prag þar sem ég ætla að komast í tengsl við vopnasala í þeim tilgangi að komast yfir riffil, Glock- skammbyssu, handsprengjur og AP-skotfæri (handsprengjur og skotfæri eru bónus). Prag er fræg fyrir að vera einhver mikilvægasti staður í Evrópu fyrir flutning ólöglegra fíkni- efna og vopna. Dagur fimm í Prag: Ég fer að verða örvæntingarfullur. Þetta er fyrsta alvöru hindrunin í aðgerðinni minni. Ég hef orðið fyrir svo miklum von- brigðum með sjálfan mig. Ég hef áttað mig á því að Prag er langt frá því að vera draumastaður- inn þegar kemur að vopna- kaupum. September 2010: Ég hef nú sent frá mér umsókn um Ruger Mini 14 hálfsjálf- virkan riffil (5.56). Það er „hernaðarlegasti“ riffill sem leyfður er í Noregi. Á um- sóknareyðublaðið skrifaði ég: „Dýraveiðar“. Það hefði verið freistandi að skrifa bara sann- leikann; „Lífláta tegund A og B menningar marxista/fjölmenn- ingarsvikara.“ Til þess eins að sjá viðbrögð þeirra:P Það hefur verið ákveðið að aðgerðin verði framkvæmd í haust, 2011. Þrátt fyrir það, get ég ekki útskýrt hvers vegna, á þessum tíma. Fé mitt er að klárast, og ég á minna en 15.000 evrur eftir og til viðbótar við það 30.000 evru varasjóð á tíu mismunandi kreditkortum. Líkami minn er á þessum tímapunkti meira eða minna fullkominn og ég er ham- ingjusamari en ég hef nokkru sinni verið. Baráttuviljinn minn er í sögulegu hámarki og ég er almennt ánægður með það hvernig hlut- irnir eru að þróast. Ég gæti tekið upp á því að búa til hugmyndafræðilegt myndband um Frímúrararegluna á YouTube í vetur. Ég hef ágætis tíma þangað til efnin berast. Mánudagur, 13. júní, 2011: Ég bjó til tilraunaeintak í dag og keyrði á mjög afskekktan stað. Ég kveikti í og færði mig úr augsýn og beið. Þetta voru ábyggilega lengstu tíu sekúndur sem ég hef upplifað... BÚM! Sprengingin heppnaðist:-) Ég keyrði snarlega í burtu til þess að forðast mögulega og óæskilega athygli frá fólki í nágrenninu. Ég þyrfti að koma aftur nokkrum klukkustund- um síðar til þess að skoða sprengjuholuna, til að sjá hvort báðar einingarnar hafi sprungið. Föstudagur, 22. júlí, 2011: Gamli málshátturinn: „Ef þú vilt að eitthvað sé gert, gerðu það þá sjálfur“ á betur við nú en nokkru sinni. Fleiri en einn „kokkur“ þýðir ekki að þú vinnir tvöfalt hraðar. Að mörgu leyti; gætir þú gert þetta allt sjálfur, það tekur bara aðeins meiri tíma. OG, án þess að taka óþarfa áhættu. Niðurstaðan er tvímælalaus. Ég hef trú á því að þetta verði mín síðasta færsla. Núna er föstudagurinn 22. júlí, 12.51. jonbjarki@dv.is „Ég hef trú á því að þetta verði mín síðasta færsla“ Björn Teitsson bjorn@dv.is Úttekt Dagbókarfærslur Breiviks: Morðinginn Breivik Vill opin réttarhöld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.