Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2011, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2011, Qupperneq 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 25. júlí 2011 Mánudagur Úrslit Formúla 1 Þýskalandskappaksturinn Nafn Lið Tími 1. Hamilton McLaren 1:37:30.334 2. Alonso Ferrari +00:03.980 3. Webber Red Bull +00:09.788 4. Vettel Red Bull +00:47.921 5. Massa Ferrari +00:52.252 6. Sutil Force India +01:26.208 7. Rosberg Mercedes hringaður 8. Schumacher Mercedes hringaður 9. Kobayashi Sauber hringaður 10. Petrov Renault hringaður Staða ökumanna Nafn Lið Stig 1. Sebastian Vettel Red Bull 216 2. Mark Webber Red Bull 139 3. Lewis Hamilton McLaren 134 4. Fernando Alonso Ferrari 130 5. Jenson Button McLaren 109 6. Felipe Massa Ferrari 62 7. Nico Rosberg Mercedes 46 8. Nick Heidfeld Renault 34 9. Vitaly Petrov Renault 32 10. Michael Schumacher Mercedes 32 Staða bílasmiða Lið Stig 1. Red Bull 355 2. McLaren 243 3. Ferrari 192 4. Mercedes 78 5. Renault 66 6. Sauber 35 7. Force India 20 8. Toro Rosso 17 9. Williams 4 10. Lotus 0 Í slenska landsliðið í körfu- bolta tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum um helgina á Norðurlandamótinu í körfu- bolta sem fram fer í Sunds- vall í Svíþjóð. Á laugardaginn tapaði Ísland með tólf stiga mun gegn gestgjöfum Svía, 74–62, og á sunnudaginn steinlágu okkar menn gegn Finnum með þrjátíu og tveggja stiga mun, 108–76. Finnar eru langsterkasta Norðurlandaþjóðin í körfubolta en þjálfari þess stýrði lengi Dirk Nowitzki og félögum í þýska landsliðinu. Finnarnir náðu tök- um á leiknum strax í upphafi. Þeir spiluðu mjög góða vörn sem gerði okkar mönnum erfitt fyrir í sókninni og leiddu Finnar í hálfleik, 56–37. Í seinni hálfleik bættu Finn- arnir bara í en þeir hittu mjög vel fyrir utan þriggja stiga lín- una. Skotnýting þeirra var 50 prósent á móti 30 prósenta nýt- ingu íslenska liðsins. Því fór sem fór og stórt tap er staðreynd. Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson, sem báð- ir leika með Sundsvall og eru því á heimavelli, skoruðu báð- ir nítján stig gegn Finnum. Auk þess tók Hlynur tíu fráköst. Pa- vel Ermolinskij átti einnig fín- an leik og skoraði 15 stig, tók 6 fráköst og gaf 5 stoðsending- ar. Næstir komu Hörður Axel Vilhjálmsson með 8 stig, Logi Gunnarsson skoraði 7, Haukur Helgi Pálsson sem lék sinn fyrsta landsleik skoraði 5 stig, Brynjar Þór Björnsson 2 og Finnur Atli Magnússon 1. Jón Arnór Magnússon var ekki í liði Íslands í leiknum vegna meiðsla sem hann hlaut snemma leiks gegn Svíum í fyrsta leik mótsins. Næsti leikur Íslands er í dag, mánudag, gegn Dönum. Áttu ekki séns í Finna n Ísland tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum á NM í körfubolta Stigahæstur Jakob Örn Sigurðarson skoraði 19 stig gegn Finnum eins og Hlynur Bæringsson. MyNd AME Stórleikur á Skaganum Fjórtánda umferðin í 1. deild karla hefst á þriðjudaginn með þremur leikjum. Stórleikur um- ferðarinnar verður á Skipaskaga þar sem tvö bestu lið deildar- innar, hið taplausa lið ÍA og Sel- foss, sem er í öðru sæti, mætast. Skagamenn hafa níu stiga for- ystu á Selfoss á toppnum en Selfyssingar hafa einnig verið á miklu skriði og aðeins tapað einum leik frá því þeir lágu gegn ÍA í þriðju umferð. É g er mjög hamingjusam- ur og ánægður að vinna loksins stórmót,“ seg- ir Axel Bóasson úr GK, nýkrýndur Íslandsmeist- ari í höggleik, en DV náði tali af honum í gær, skömmu eftir að hann vann sinn fyrsta Íslands- meistaratitli. Axel lék manna best á Hólmsvelli í Leiru þar sem mótið fór fram í ár. Hann jafnaði vallarmetið á fyrsta degi og leiddi frá fyrsta degi, allt til síðasta pútts. Hann fór hringina fjóra á samtals tveimur undir pari en hann kórónaði frábæra spilamennsku sína á erfiðri helgi með erni á lokaholunni. Kristján Þór Einarsson, GKJ, varð annar en hann veitti Axel harða samkeppni á lokadeg- inum og náði meðal annars að jafna Axel en lét kné ekki fylgja kviði. Kom yfirvegaður inn í mótið „Þetta var orðið svolítið tæpt þarna á tímabili en þá sýndi maður bara klærnar,“ segir Axel við DV. Hann lék manna best við erfðar aðstæður í Leirunni þessa helgina en mikið rok setti svip sinn á mótið. Sjálfur seg- ist hann hafa komið rólegur og yfirvegaður inn á Íslandsmót- ið eftir að hafa unnið keppn- ina um högglengsta kylfinginn í vikunni sem leið að mótinu. „Þar fann ég „drive-in“ mín aftur og fór að slá hátt og langt. Svo mætti ég bara rólegur inn í fyrsta daginn og fann líka pútt- in mín en ég hafði átt erfitt með þau í vikunni á undan. Fyrsta daginn spilaði ég í fyrsta sinn á ferlinum skollalaust golf og átti þar enn nokkuð inni til að bæta mig. Á öðrum degi spilaði ég bara nokkuð vel en þriðji dag- urinn var einhver mesti þolin- mæðisdagur sem maður hefur þurft að upplifa. Það var storm- ur allan tímann og það var ekk- ert verið að gera völlinn auð- veldan fyrir mann. Þar var ég að setja mikilvæg pútt í. Þar var mikilvægast að vera ekki að fá skolla og tvöfalda skolla. Passa sig á að gera ekki of mörg mis- tök,“ segir Axel. Ástarsamband við Leiruna Axel leiddi þegar lokahringur- inn var hálfnaður en ekki leið á löngu þar til Kristján Þór Ein- arsson var búinn að jafna Axel. „Ég vissi eftir tólftu holu að hann væri búinn að jafna mig. Þá þurfti ég að fara að sækja en ekkert vildi ofan í. En svo datt fugl niður á fimmtándu og þá fór ég að finna mig aftur,“ segir Axel. „Ég rotaði þetta bara svo endanlega með erni á átjándu en til að vera heiðarlegur skal ég viðurkenna að það pútt átti aldrei að fara ofan í,“ segir hann og hlær við. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Axel gengur vel í Leirunni en þar vann hann sitt fyrsta karlamót og varð Íslandsmeist- ari í holukeppni. „Ég og Leiran erum mjög góðir vinir. Við eig- um gott samband,“ segir hann og hlær en hvað gefur það hon- um að vera orðinn Íslands- meistari 21 árs gamall? „Ég er bara stoltur. Þetta er mikill heiður og það er gaman að geta loksins sagt við stóra frænda að maður sé orðinn Ís- landsmeistari,“ segir Íslands- meistarinn í höggleik 2011, Axel Bóasson. Ólafía Þórunn bar af Meðalaldur Íslandsmeistar- anna í ár er aðeins 19,5 ár því Íslandsmeistari kvenna í högg- leik 2011 er Ólafía Þórunn Krist- insdóttir úr GR. Hún bar höfuð og herðar yfir keppinauta sína í Leirunni og endaði með því að vinna með níu högga mun. Hún fór hringina fjóra á átta yfir pari en næst kom Íslandsmeist- arinn frá því í fyrra, Tinna Jó- hannsdóttir, á sautján yfir pari. Tinna sló vallarmetið á fyrsta degi en gekk skelfilega á öðr- um degi og þá tók Ólafía foryst- una. Í samtali við mbl.is sagði Tinna ástæðuna fyrir slöku gengi á öðrum degi hafa verið að hún meiddi sig í hendinni í fyrsta hring. Tinna lék langbest á lokadeginum en þá fór hún hringinn á tveimur yfir pari og vann sex högg á Ólafíu. Forysta Ólafíu var þó svo rosaleg að það dugði ekki til að snerta nýja Ís- landsmeistarann, Ólafíu Þór- unni Kristinsdóttur úr GR, sem vann með níu högga mun. „Ég og Leiran erum mjög góðir vinir“ n Axel Bóasson Íslandsmeistari karla í höggleik 2011 n Ólafía Þórunn Kristinsdóttir sópaði upp kvennaflokknum n Meðalaldur Íslandsmeistaranna 19,5 ár Pepsi-deildin Þór - Víkingur 6-1 1-0 Ármann Pétur Ævarsson (11.), 2-0 David Diztl (35.), 3-0 David Diztl (38.), 3-1 Viktor Jónsson (46.), 4-1 Sveinn Elías Jónsson (53.), 5-1 Clark Keltie (90.+2 víti), 6-1 Ragnar Hauksson (90.+3). Fram - ÍBV 0-2 0-1 Andri Ólafsson (36.), 0-2 Þórarinn Ingi Valdimarsson (77.). Stjarnan - Keflavík 2-3 1-0 Baldvin Sturluson (19.), 1-1 Einar Orri Einarsson (20.), 1-2 Magnús Þórir Matthíasson (51.), 2-2 Halldór Orri Björnsson (57. víti), 2-3 Hilmar Geir Eiðsson (82.). Grindavík - Fylkir 1-4 1-0 Matthías Örn Friðriksson (6.), 1-1 Ingimundur Níels Óskarsson (51.), 1-2 Andrés Már Jóhannesson (55.), 1-3 Andri Þór Jónsson (75.), 1-4 Tómas Joð Þorsteinsson (85.). KR - Breiðablik 4-0 1-0 Guðjón Baldvinsson (2.), 2-0 Skúli Jón Friðgeirsson (27.), 3-0 Óskar Örn Hauksson (42.), 4-0 Kjartan Henry Finnbogason (71. víti). Staðan 1 KR 11 8 3 0 25:7 27 2 Valur 11 7 2 2 16:6 23 3 ÍBV 11 7 1 3 16:9 22 4 Stjarnan 12 5 3 4 22:20 18 5 Fylkir 12 5 3 4 20:21 18 6 Keflavík 12 5 2 5 17:17 17 7 FH 11 4 4 3 23:16 16 8 Breiðablik 12 4 3 5 20:24 15 9 Þór 12 4 2 6 17:23 14 10 Grindavík 12 3 2 7 15:26 11 11 Víkingur R. 12 1 4 7 9:21 7 12 Fram 12 1 3 8 7:17 6 Best í Leirunni Axel Bóasson vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil og Ólafía Þórunn Kristins- dóttir rúllaði yfir stöllur sínar í Leirunni. MyNd SHA/GoLf.iS Efstu karlar Kylfingur Skor 1. Axel Bóasson, GK -2 2. Kristján Þór Einarsson, GKJ +1 3.-5. Ólafur Már Sigurðsson, GR +3 3.-5. Heiðar Davíð Bragason, GÓ +3 3.-5. Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG +3 Efstu konur Kylfingur Skor 1. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR +8 2. Tinna Jóhannsdóttir, GK +17 3. Signý Arnórsdóttir, GK +22 4. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL +23 5. Ingunn Gunnarsdóttir, GKG +24 Íslandsmótið í höggleik

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.