Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2014, Qupperneq 24
Vikublað 12.–14. ágúst 201424 Neytendur
Heil bringa getur gufað upp á pönnunni
n Dýrustu kjúklingabringurnar rýrnuðu minnst í prófi DV n Bringur Krónunnar rýrnuðu um rúmlega 30 prósent á pönnu n Eldunaraðferð skiptir öllu máli
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
L
itlu getur munað þegar
litið er til þeirrar rýrn
unar sem verður við
matreiðslu á kjúklinga
bringum sem spraut
aðar eru með vatni og öðrum
aukaefnum og þeim sem inni
halda engin aukaefni. Þetta er
meðal þess sem kjúklinga
bringupróf DV leiddi í ljós.
Sjö vörumerki voru próf
uð og bringurnar eld
aðar ferskar bæði í
ofni og á steikingar
pönnu. Dýrasta
tegundin rýrnaði
minnst en
bringurnar
sem rýrnuðu
mest
skruppu
saman um
rúmlega þrjátíu
prósent við pönnu
steikingu.
Í prófinu voru
þrenns konar
tegundir af hrein
um kjúklinga
bringum án
allra aukaefna
prófaðar. Þetta
eru hreinar
bringur frá Holta
kjúklingum, Fersk
um kjúklingum og Bón
us 100% kjúklingabringur.
Svo voru fjórar tegundir sem
innihalda einnig blöndu af vatni,
sykri, rotvarnarefnum og þess
háttar. Þær eru frá Bónus, Kjör
fugli, Krónunni og Íslenskum mat
vælum. Bringurnar voru keyptar í
Bónus og Krónunni. Þegar litið er
til rýrnunar í prósentum þá héldu
þær dýrari og aukaefnalausu
eilítið betur velli en þó munaði að
jafnaði sáralitlu á þeim og ódýrari
tegundunum, sérstaklega þegar
eldað var í ofni.
Prófað við eðlilegar aðstæður
Blaðamaður eldaði bringurnar
við venjulegar íslenskar heimilis
aðstæður með klassískri Rafha
eldavél og var stuðst við eldunar
leiðbeiningar sem finna má á
heimasíðu eins framleiðandans.
Það er nú einu sinni svo að þannig
elda flestir landsmenn matinn sinn
– sjálfir, á heimili sínu án aðstoð
ar faglærðra matreiðslumanna og
þeirra
flottu,
dýru at
vinnutækja.
Annars vegar
voru allar bringurnar
sjö settar á grind beint úr pakkn
ingunni, þar sem hver þeirra var
sett á merktan stað og inn í 180°C
heitan ofn í 35 mínútur. Bringurnar
voru vigtaðar fyrir og eftir eldun
og rýrnun þeirra í prósentum
fundin út frá því. Hins vegar voru
bringurnar steiktar í heilu lagi á
pönnu við miðlungshita í 10 mín
útur á hvorri hlið. Staðsetning
hverrar bringu á pönnunni eftir
tegund var skráð niður fyrirfram
og var haldið vandlega utan um að
enginn ruglingur yrði á tegundum.
Fyrst voru fjórar bringur eldað
ar samtímis á pönnunni og síðan
þrjár, þar sem þær komust ekki all
ar sjö í einu á steikingarpönnuna.
Rýrnun var svo fundin út með
sama hætti og í ofnprófinu.
Hvað er ásættanleg
rýrnun?
En hvað getur talist ásættanleg
rýrnun á ferskum kjúklingabring
um við eldun? Meistarakokkar
sem DV ráðfærði sig við sögðu að
í ferskum bringum sem ekki eru
sprautaðar með vatni og öðrum
íblöndunarefnum sé hlutfallið um
8 til 12 prósent. Ferskar bringur
sem sprautaðar eru að utan sem
innan með vatni geta hins vegar
rýrnað um allt að 25 til 30 pró
sent. Þeir leggja þó höfuðáherslu
á að eldun skipti öllu máli. Gagn
legt sé til dæmis að steikja bring
ur vel, loka þeim á pönnu og elda
síðan lengur á lágum hita. Síðan
er gott ráð að hvíla bringurnar að
eins eftir eldun áður en skorið er
í þær. Það er því ekki óeðlilegt að
kjúklingabringur rýrni, en áhuga
vert er fyrir neytendur að vita
hversu mikil sú rýrnun er og bera
saman nokkrar vin
sælar tegundir.
Tapar mest á pönnunni
Eins og við var að búast var tals
vert meiri rýrnun þegar steikt
var á pönnu þar sem á sér með
al annars stað meiri uppgufun
en í ofni. Þegar litið er til rýrn
unar á bringunum í ofni þá varð
minnst rýrnun á hreinu kjúklinga
bringunum frá Ferskum kjúkling
um sem rýrnuðu um slétt 9 pró
sent. Þær eru jafnframt dýrastar
allra, 2.869 krónur kílóið. Athygli
vekur að hreinu bringurnar frá
Bónus komu verst út úr ofnpróf
inu af öllum og rýrnuðu um 13,3
prósent. Til samanburðar þá rýrn
uðu venjulegu bringurnar frá Bón
us um 11,3 prósent en samt er
kílóið af þeim 400 krónum ódýrara
en þeim hreinu.
Prósentutölurnar voru heldur
hærri þegar komið var yfir á
pönnuna. Þar héldu hreinu
bringurnar frá Ferskum kjúkling
um best velli en rýrnuðu þó um
15 prósent. Venjulegu bringurnar
frá Krónunni komu hins vegar
langverst út en þær rýrnuðu um
30,4 prósent. Til samanburðar þá
munar miklu á bringunum sem
komu næstverst út úr pönnusteik
ingunni, Kjörfugli sem rýrnaði um
24,4 prósent.
Heil bringa getur gufað upp
Niðurstaðan er því á heildina litið
að þegar bringur eru eldaðar í
ofni þá má búast við rýrnun á bil
inu 9–13 prósent á hverri bringu
og rýrnun á bilinu 15–30 prósent
séu þær steiktar á pönnu. Vanda
málið er auðvitað að neytandinn
greiðir fyrir kjötið eftir þyngd og í
hverjum pakka með fjórum bring
um gæti samtals heil 250 gramma
bringa verið að tapast í uppgufun,
eins og versta tilfellið með Krónu
bringurnar sýnir. Það eru umtals
verð afföll. n
Pottur brotinn Hér má sjá bæklingana
sem sýndu að eitthvað var bogið við verðin
á Lillevilla-smáhýsunum hjá Bauhaus.
Bauhaus sektað um hálfa milljón
Ekki um raunverulega verðlækkun að ræða á smáhýsum
N
eytendastofa hefur sektað
byggingavöruverslunina Bau
haus um hálfa milljón fyrir að
hafa auglýst fjögur smáhýsi á
lækkuðu verði í fyrra án þess að um
raunverulega verðlækkun hafi verið
að ræða. Neytendastofa krafðist þess
að Bauhaus færði sönnur á að fjórar
vörur hefðu verið seldar á tilgreindu
fyrra verði líkt og lög gera ráð fyrir.
Að mati Neytendastofu gátu forráða
menn Bauhaus ekki sýnt fram á þetta
og var því stjórnvaldssekt lögð á fyrir
tækið.
Um einn anga þessa máls var fjall
að á DV.is í ágúst í fyrra undir fyrir
sögninni „einkennileg útsala“ en nú
liggur fyrir að fleiri brot var að finna í
auglýsingabæklingum Bauhaus.
Í fyrsta lagi var um að ræða
„Leikjahús“ sem í þremur auglýsinga
bæklingum Bauhaus frá miðjum júlí
fram í lok ágúst í fyrra var auglýst á
20% afslætti á 99.995 krónur þar sem
fyrra verð var tilgreint 127.995 krón
ur. Í auglýsingabæklingi í júní þar á
undan hafði varan hins vegar ver
ið auglýst á 99.995 krónur án þess að
fram kæmi að um afsláttarverð væri
að ræða. Var þess krafist að Bauhaus
sannaði að fyrirtækið hefði selt húsið
á 127.995 krónur áður en til afsláttar
kom.
Sama átti við um Lillevilla 70 smá
hýsi sem auglýst var með 20% afslætti
á 419.995 krónur og fyrra verð til
greint 524.995 krónur. Í auglýsinga
bæklingum í maí og júní var sama
hús auglýst á 499.995 krónur án
þess að fram kæmi að um afsláttar
verð væri að ræða. Var þess krafist að
Bauhaus sannaði að fyrirtækið hefði
selt húsið á 524.995 krónur áður en til
afsláttar kom.
Um Lillevilla 12 húsið var fjallað
á DV.is á sínum tíma. Það var í aug
lýsingabæklingi Bauhaus með gild
istíma 13.–25. ágúst auglýst með 20%
afslætti á 335.995 krónur og fyrra verð
tilgreint 419.995. Hins vegar var hús
ið auglýst á 279.995 krónur án þess
að fram kæmi að um afsláttarverð
væri að ræða í nokkrum bæklingum
fyrirtækisins þar áður, frá maí og til
loka júní. Var þess krafist að Bauhaus
sannaði að fyrirtækið hefði selt húsið
á 419.995 krónur áður en til afsláttar
kom.
Loks var Lillevilla bílskúr auglýstur
með 20% afslætti á 648.995 krónur þar
sem fyrra verð var tilgreint 811.750
krónur í lok júlí og byrjun ágúst. Í
bæklingi frá maí var varan auglýst á
799.995 krónur án þess að fram kæmi
að um afsláttarverð væri að ræða. Var
Bauhaus gert að sanna að bílskúrinn
hefði verið seldur á 811.750 krónur
áður en til afsláttar kom.
Sem fyrr segir metur Neytenda
stofa það sem svo að Bauhaus hafi
ekki tekist að sanna neitt af þessu og
fyrirtækið því sektað og „bannað að
viðhafa slíka viðskiptahætti“ eins og
það er orðað á vef Neytendastofu. n
mikael@dv.is
Ekki raunveruleg verðlækkun Neyt-
endastofa lagði 500 þúsund króna stjórn-
valdssekt á Bauhaus fyrir auglýsingarnar.