Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2014, Blaðsíða 26
Vikublað 12.–14. ágúst 201426 Lífsstíll
„Ég vel að
elta plastið“
n Ástríðufullur náttúruunnandi en stýrir stóriðju n Stundar útivist og tínir rusl
Þ
ar líður mér best, að vera úti
í náttúrunni. Það er friður,
dýralífið, gróðurinn. Þessi ró
sem að raun og veru færist
yfir mann þegar maður er í
náttúrunni. Ósnortin náttúra er mun
fallegri heldur en til dæmis borgir,“
segir Gestur Pétursson, nýr forstjóri
Elkem á Íslandi en fyrirtækið rekur
kísiljárnverksmiðju á Grundartanga.
Útivist er eitt hans helsta áhugamál
en til þess að svala útivistarþörfinni
gengur hann á fjöll, fer á kajak og
gistir í „biwack“ svo nokkuð sé nefnt.
Hann er sannkallaður náttúru
unnandi en telur stjórnun stóriðju
ekki endilega vera þversögn við þá
ástríðu, enda sé alltaf hægt að breyta
til hins betra.
„Ekki nóg að vera með
góðar fyrirætlanir“
Gesti þykir brýnt að nýta þau tækifæri
sem hann hefur til að hafa góð áhrif á
umhverfið eins og hann getur, hvort
sem er í vinnunni eða heima fyrir.
„Ég flokka sorp, ef ég er úti í náttúr
unni, ef ég er að veiða eða labba þá
tíni ég upp ruslið og geri mér far um
það að setja það í pokann minn. Það
er í raun og veru hvað þú gerir sem
skilgreinir sjálfan þig. Það er ekki
nóg að vera með góðar fyrirætl
anir, það sem skilgreinir þig er
hvað þú gerir. Þannig ef ég er til að
mynda úti í náttúrunni með aðila
sem kallar sig náttúru unnanda
og hann sér rusl en gengur fram
hjá því, þá er það val hjá honum.
Hann velur að hunsa það, ég vel
að hunsa það ekki,“ segir Gestur.
„Ef þú ert á Klambratúni og
ert með barnið þitt sem er að
drekka kókómjólk og það fýkur
plastið af rörinu. Það er val hjá
þér hvort þú eltir plastir uppi og
setjir það í vasann eða gerir það
ekki. Ég vel að elta plastið. Ég vel
að gera það sem ég get,“ segir
forstjórinn.
Virkar hvetjandi
En spillir stóriðjan ekki náttúr
unni sem Gesti er svo annt um? „Öll
mannana verk hvort sem það er
stóriðja, verslun, veiðar, eða ferða
þjónusta hafa áhrif á umhverfið,
en að sjálfsögðu mismikil. Ef mað
ur er náttúruunnandi og hefur tæki
færi til þess, hvort sem er heima eða
í vinnunni, til þess að draga úr um
hverfisáhrifum, þá að sjálfsögðu gerir
maður það,“ segir Gestur. „Þetta bara
virkar hvetjandi. Mann langar að gera
góða hluti. Þarna getur maður haft
raunveruleg áhrif gagnvart því,“ seg
ir hann.
„Kísilmálmur er eitthvað sem er
eftirspurn eftir og ef maður er í að
stöðu til að hafa jákvæð áhrif á að
draga úr umhverfisáhrifum þá ger
ir maður það,“ segir Gestur en kísil
málm er ekki hægt að búa til án þess
að nota að einhverju leyti óendur
nýjanlegar náttúruauðlindir. „Í dag
erum við að nota 10% af endurnýjan
legum kolefnisgjöfum við framleiðsl
una hjá okkur. Áður vorum við með
100% óendurnýjanlega. Þetta hef
ur verið að breytast og mun breytast
áfram,“ segir Gestur bjartsýnn.
„Tölurnar tala sína máli“
Gestur var framkvæmdastjóri örygg
is, heilbrigðis og umhverfissviðs í
þrjú og hálft ár áður en hann tók við
forstjórastólnum og hefur þar beitt
sér fyrir bættum umhverfismálum
fyrirtækisins. „Já, ég er til dæmis bú
inn að vera að gera það undanfarin
þrjú og hálft ár. Ef við tökum dæmi
þá hefur endurvinnsla og endur
nýting á öllum aukaafurðum aukist
um 66 prósent upp í 85 prósent.
Markmiðið er að vera með 100 pró
sent endurvinnslu og endurnýtingu
á öllu sem fellur til hjá okkur. Þetta
gengur út á að vera með skýr mark
mið og mjög skýrar aðgerðir á bak
við þau markmið,“ segir hann.
„Ég tók við góðu búi af mínum
forvera, hafði góðan stuðning frá
forstjóra. Ég kynnti mína sýn á að
innleiða svokölluð „Zero Waste to
Landfill“stefnu og fékk stuðning í
það. Við höfum unnið ötullega að
því. Tölurnar tala sína máli,“ segir
Gestur.
Hann er þó hvergi nær hættur, því
betur má ef duga skal. „Get ég gert
betur? Alltaf. Vil ég gera betur? Alveg
klárlega.“ n
Salka Margrét Sigurðardóttir
salka@dv.is
Staðalbúnaður Gestur
fer vel búinn í ferðir.
Ferðast mikið um
landið Gestur fer mikið í
kanóferðir og gistir gjarnan
í „biwack“, sem er eins
konar tjaldsvefnpoki.
„Mann langar að gera
góða hluti“ Gestur vill leggja
sitt af mörkum til að draga úr
umhverfisáhrifum, hvort sem í
vinnunni eða heima fyrir.
5 leiðir til að
matreiða
vatns melónu
Vatnsmelónur eru vinsælar á sumrin
enda einstaklega sætar, safaríkar og
svalandi. Fæstir breyta til og prófa nýja
hluti hvað ávexti varðar en ýmislegt má
þó gera við þennan stórgóða ávöxt. Hér
eru fimm öðruvísi og skemmtilegar leiðir
til að matreiða vatnsmelónu.
1 Vatnsmelónufranskar
Skerið vatnsmelónu í hæfilega
bita. Takið fram þrjár skálar og
setjið hveiti í eina ásamt salti,
pipar og chilidufti. Þeytið saman
egg og mjólk í aðra skál og setjið
brauðmylsnu í þá þriðju. Dýfið
vatnsmelónubitunum í hveitið,
síðan eggjablönduna og að lokum í
brauðmylsnuna og djúpsteikið í olíu
þar til franskarnar verða ljósbrúnar
að lit. Látið olíuna leka af á pappírs-
bréfi, saltið „frönsku“ vatnsmelón-
urnar og berið fram heitar.
2 Grilluð vatnsmelónaSkerið vatnsmelónu í
þríhyrningslaga bita. Penslið hvern
bita með ólífuolíu og kryddið með
salti og pipar. Hellið
hunangi einnig
á hverja hlið
og skellið
melónubitun-
um á grillið.
Grillið hvora
hlið í um tvær
mínútur og bætið
við smá hunangi eftir á, ef vill. Grill-
uðu melónurnar er svo gott að nota
í salat, til dæmis með tómötum,
mozzarella-osti, basilíkulaufum og
balsamikediki.
3 VatnsmelónukrapSkerið vatnsmelónu í litla
bita og frystið. Þegar útbúa á krapið
eru bitnar teknir
úr frystinum
og settir í
blandara eða
matvinnslu-
vél ásamt
límónusafa og
vatni. Vinnið þar
til úr verður svalandi,
sykurlaust og bráðhollt krap.
4 VatnsmelónupítsaÞað er varla til hollari pítsa
en vatnsmelónupítsa. Skerið
vatnsmelónu í kringlóttar sneiðar
og setjið hverja þá áleggstegund
sem hugurinn girnist ofan á. Það má
til dæmis setja mulinn fetaost og
rifna basilíku eða aðrar kryddjurtir
eða gera eftirréttapítsu með öðrum
ávöxtum og súkkulaði.
5 Pikklaður vatnsmelónubörkur
Takið börkinn af hálfri vatnsmelónu
og skerið í litla bita. Blandið saman
3 msk. af salti og 3 bollum af vatni
og setjið í stóra skál ásamt berkin-
um. Setjið plastfilmu yfir skálina og
geymið í kæli í sól-
arhring. Hreinsið
börkinn vel
með vatni og
setjið hann
svo ásamt
¾ bolla
af sykri, ¾
bolla af ediki og
2 bitum af stjörnuanís í pott. Eldið
þar til suðan kemur upp og takið
þá pottinn af hitanum. Kælið í um
klukkustund og hrærið af og til.
Kælið í sólarhring áður en börkurinn
er borinn fram en blandan endist í
allt að eina viku.