Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Page 6
Jólablað 20.–27. desember 20136 Fréttir Sparifé í rekstur öldrunarheimilis n Dánarbú konunnar arfleiddi Höfn öldrunarmiðstöð að nærri 30 milljónum T uttugu og fimm milljóna króna sparifé íbúa á öldrunar­ miðstöðinni Höfn í Hafnar­ firði var notað í rekstur heimil­ isins og bókfært sem skuld við hann. Þegar íbúinn, Líneik Gísla dóttir, lést í fyrra var skuldin gerð upp að „hluta“ að sögn Kristjáns Guðmunds­ sonar, framkvæmdastjóra Hafnar. Lí­ neik hafði látið Kristján fá fjármunina til ávöxtunar nokkrum árum en þeir enduðu inni í bókum öldrunarheim­ ilisins sem lán. Þetta kemur fram í ársreikningum Hafnar sem DV hefur undir höndum. Höfn er rekin sem sjálfseignar­ stofnun. Stofnunin á 78 íbúðir í tveim­ ur húsum í Hafnar firði og er íbúðar­ réttur í húsunum seldur út til eldri borgara. Íbúarnir eignast því ekki íbúðirnar sjálfar heldur aðeins bú­ seturéttinn í þeim sem hvílir á íbúð­ inni óháð eignarhaldi hennar. Þegar íbúarnir flytja af Höfn, eða falla frá, greiðir sjálfseignarstofnunin kaupverð búseturéttarins til baka. Endurgreiðslan óljós Kristján segist ekki muna hversu mikið Höfn greiddi til baka af lán­ inu inn í dánarbúið. „Þessi kona er dáin. Hún átti enga afkomendur og bjó hérna hjá okkur alla tíð og tengd­ ist mér mjög mikið […] Það sem varð um þetta var það að … eins og ég segi þá myndi ég helst ekki vilja tala um þetta í síma […] Þetta mál var svo leitt til lykta með þokkalega góðri sátt […] Við borguðum þetta að stærstum hluta, með peningum, til dánarbús­ ins,“ segir Kristján en hann vill ekki greina frá því hversu mikið greitt var til baka til dánarbúsins af 25 milljóna króna skuldinni. Höfn úthlutað úr dánarbúi DV hefur undir höndum fundargerð frá stjórn Hafnar sem dagsett er 15. maí 2012. Höfn er sjálfseignarstofnun, eins og áður segir, sem stýrt er af Kristjáni og stjórn félagsins. Fyrsta málið á dag­ skrá fundarins var „dánarbú Líneikar Gísladóttur“. Í fundargerðinni kem­ ur fram að Kristján hafi haft umboð til að greiða reikninga vegna útfarar­ innar svo hægt væri að ljúka skiptum búsins. Samkvæmt fundargerðinni arfleiddi Líneik Öldrunarsamtökin Höfn að íbúðarréttinum í íbúð sinni en hann er 17 milljóna króna virði. Þá arfleiddi dánarbú Líneikar að reiðufé upp á 12,5 milljónir króna. Samtals er því um að ræða arf upp á 29,5 milljón­ ir króna sem Höfn fékk út úr dánarbú­ inu. Ekki er minnst einu orði á 25 millj­ óna kröfuna sem hún átti útistandandi hjá Höfn. Matskennt lán Í ársreikningi Hafnar fyrir árið 2010 kemur hins vegar skýrt fram: „Lán frá Líneik Gísladóttur er óumsamið og ófrágengið en talið er að það sé til langs tíma. Ekki eru reiknaðir áfallnir vextir af þessu láni né verð­ bætur.“ Í endurskoðunarskýrslu frá endurskoðanda Hafnar segir enn fremur um lánið frá Líneik að það sé álitið vera langtímalán að mati Kristjáns Guðmundssonar. Forsendur þessarar lánveitingar frá Líneik virðast því vera mats­ kenndar, samkvæmt þessum gögn­ um, og virðist ekki hafa verið gengið frá lánveitingunum með hefðbundn­ um hætti þar sem lánstíminn var ótil­ greindur sem og vextir. Alveg ljóst er út frá ársreikningnum að peningarnir frá Líneik voru notaðir í rekstur öldr­ unarheimilisins enda getur Kristján ekki neitað því þegar hann er spurð­ ur að því. „Þetta er allt opið og ég kýs að sýna þér þessa niðurstöðu sem ég ég nefndi við þig áðan; út frá því get ég skýrt þetta […] Hún Líneik hafði ímugust á peningum.“ n Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is „Hún hafði ímugust á peningum Sparifé notað í reksturinn Sparifé eins íbúa á öldrunarheimilinu Höfn var notað í rekstur heimilisins. Mynd SIgtryggur ArI Arfur Höfn, sem stýrt er af Kristjáni Guð- mundssyni, fékk 30 milljónir úr dánarbúi íbúa öldrunarheimilisins. Sýknaður af nauðgun 23 ára karlmaður var á dögunum sýknaður af því að hafa þvingað tvítuga stúlku með ofbeldi til samræðis á heimili sínu í júní árið 2012. Stúlkan sagðist hafa verið beitt harðræði, en enginn áverkar fundust á henni og taldi dómurinn því ósannað að hún hefði verið beitt ofbeldi. Ákæru­ valdið sagði framburð stúlkunnar hafa verið staðfastan og trúverð­ ugan. Hann hafi að auki fengið stoð í framburði vitna og rann­ sóknargagna, en þessu mótmælti verjandi mannsins harðlega og sagði ekkert benda til þess að konunni hefði verið nauðgað. Svo taldi fjölskipaður Héraðs­ dómur Norðurlands einnig vera. Konan og maðurinn væru ein til frásagnar, maðurinn neitaði eindregið sök og sagði að sam­ farir þeirra tveggja hefðu verið með samþykki konunnar. Ekkert í gögnum málsins bendi til að maðurinn segi ósatt, að mati dómsins. „Við mat á trúverðug­ leika framburðarins verður þó ekki framhjá því litið að miðað við það harðræði sem stúlkan segir ákærða hafa beitt sig hefði hún átt að bera þess einhver merki,“ segir í dómsniðurstöðu, en sem áður sagði voru engir lík­ amlegir áverkar á konunni. Það að vitni greini frá því að konan hafi verið í miklu uppnámi þegar hún kom frá manninum geti ekki leitt til sakfellingar. Ríkis­ sjóður greiðir sakarkostnað og málsvarnarlaun. Völvan á Beinni línu Völva DV verður á Beinni línu á DV.is mánudaginn 30. desember. Um árlegan viðburð er að ræða. Hún situr fyrir svör­ um á afviknum og fáförnum stað, þar sem hún spáir í spilin, rýnir í kúlur og les í bein til að skyggnast inn í atburði komandi árs. Beina línan hefst klukkan tólf á hádegi, stundvíslega. Kennari leitar réttar síns ragnar Þór Pétursson ósáttur við vinnubrögð SFS R agnar Þór Pétursson, fyrr­ verandi kennari í Norð­ lingaskóla, segist muna leita réttar síns fyrir dómstólum vegna meðferðar Skóla­ og frí­ stundasviðs Reykjavíkurborgar á máli tengdu honum. „Ég hef hingað til keyrt málið á almennri skynsemi og réttlæt­ iskennd. Þegar hlutir taka mynd­ breytingum fyrir augunum á manni og hugtök hætta skyndilega að merkja það sama og áður – þá er það skýrt merki um að kominn sé tími á lögfræðingana. Ég mun því kalla þá fram á sjónarsviðið og leyfa þeim að gera tilraunir til að blása burt þokunni,“ skrifar Ragn­ ar á bloggsíðu sína en hann hefur tjáð sig mikið um málið á undan­ förnum dögum. Líkt og fjallað hefur verið um barst Skóla­ og frístundasviði borgarinnar ábending um að Ragnar Þór hafi gerst brotlegur gagnvart barni, en ábendingin var bæði nafnlaus og „almennt orðuð“. Þrátt fyrir það var Barnavernd Reykjavíkur gert kunnugt um málið og var rannsókn í kjölfarið hafin. Svo virðist sem ásakanirnar á hendur Ragnari séu tilhæfulaus­ ar, en málið var fellt niður og barst aldrei til lögreglu. Ragnar sagði engu að síður upp starfi sínu sem kennari í Norðlingaskóla vegna óánægju með vinnubrögð Skóla­ og frístundasviðs Reykjavíkurborg og hyggst nú leita réttar síns og fara með málið alla leið fyrir dóm­ stóla. n horn@dv.is Ósáttur Ragnar er afar ósáttur við vinnu- brögð Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur- borgar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.