Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Síða 21
Jólablað 20.–27. desember 2013 Fólk 21 og hún hlaut heimakennslu vegna námsörðugleika sinna. Í mörg ár hefur Dorrit sérhæft sig í meðferð eðalsteina og sérhæft sig í þeim allra fágætustu. Dorrit hefur einnig tekið virkan þátt í viðskipta- og menningarlífi bæði í Bretlandi og í Bandaríkjunum. Dorrit trúlofaðist Ólafi Ragnari, forseta Íslands, árið 2000 og þau giftu sig þremur árum seinna á af- mælisdegi forsetans, 14. maí 2003. Þau áttu því 10 ára brúðkaupsafmæli á árinu. Á síðustu árum hefur Dorrit helg- að sig því að kynna íslenska menn- ingu og listafurðir á alþjóðlegum vettvangi. Hún vill kynna íslenska listamenn og vinna að velferð barna og ungs fólks, sér í lagi þeirra sem stríða við fötlun eða geðræn vanda- mál. Þá hefur hún verið óþreytandi að kynna starfsemi lítilla fyrirtækja og frumkvöðla svo um munar. Nú síðast í októbermánuði heimsótti hún Gestastofu sútarans og verk- smiðju Loðskinns á Sauðárkróki með vinkonu sinni frá Alaska. Í fylgd með þeim voru nokkrir erlendir frétta- menn og Sámur, hundur Dorritar. 2 Guðbjörg MatthíasdóttirAthafnakona og fjárfestir Guðbjörg er útgerðarkona í Vest- mannaeyjum og athafnakona. Guð- björg var gift Sig- urði Einarssyni, útgerðar- og athafnamanni í Vestmannaeyjum, en hann lést langt um aldur fram 4. október árið 2000. Guð- björg er einn helsti eigandi Árvakurs, útgefanda Morgunblaðsins, og hef- ur nokkrum sinnum ratað ofarlega á lista yfir hæstu skattgreiðendur. Guðbjörg er kennari að mennt og starfaði lengi við kennslu. Þegar Sig- urður eiginmaður hennar lést skildi hann eftir sig Ísfélag Vestmannaeyja. Hann hafði einnig keypt hlutabréf í Tryggingamiðstöðinni árið 1996. Guðbjörg er núna einn helsti eigandi Ísfélagsins hf. Hún situr í stjórn Fram ehf. ásamt syni sínum Sigurði, en það félag er stofnandi Kristins ehf., félags sem komst í fréttirnar þegar Guðbjörg seldi bréf sín í Glitni á síð- ustu dögum fyrir bankahrunið 2008. Guðbjörg þykir traust og einörð, vinnusöm og fylgin sér. 3 Birna EinarsdóttirBankastjóri Íslandsbanka Birna Einarsdóttir bankastjóri Ís- landsbanka er ein þeirra fáu kvenna sem hef- ur tekist að feta metorðastigann jafnt og þétt hjá einu og sama fyrir- tækinu. Hún varð bankastjóri í hruninu, október 2008 og hefur tekist að fá frið um fyrirtækið. Hún var áður fram- kvæmdastjóri viðskiptabankasviðs frá 2007 og framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála frá 2004, útibús- stjóri og markaðsstjóri Íslandsbanka. Enn fremur starfaði Birna á árum áður hjá Iðnaðarbankanum, ein- um af forverum Íslandsbanka. Fer- ill hennar hjá bankanum spannar meira en 17 ár. Á árunum 1998-2004 starfaði Birna sem vörustjóri hjá Royal Bank of Scotland. Hún hefur jafnframt starfað sem markaðsstjóri Íslenska útvarpsfélagsins – Stöðvar 2 og Ís- lenskrar getspár. Birna þykir kraft- mikil og drífandi og dugleg að fá samstarfsfólk til að fylgja sér. 4 Ingibjörg BenediktsdóttirHæstaréttardómari Ingibjörg er skipuð hæstaréttardóm- ari frá árinu 2001. Hún varð varafor- seti Hæstaréttar 2008 og 2009 og for- seti Hæstaréttar 2010 og 2011. Hún er oft eina konan í hópi hæstaréttardómara og hefur í nokkrum veigamiklum kynferðis- brotamálum skilaði séráliti. Mesta athygli vakti þegar hún skilaði sér- áliti í sýknudómi Hæstaréttar yfir Ómari Traustasyni. Hún er umdeild en stendur sterk á sinni sannfæringu og hefur bæði kjark og festu til að breyta til góðs. aðstoða einstaklinga að hrinda verk- efnum í framkvæmd. Hún er einbeitt og ryður brautina fyrir þá sem hún leggur lið. „Ég myndi ekki segja að ég leggi á mig sérstaka króka til þess að koma hlutum í framkvæmd. Ef mér finnst eitthvert verkefni eigi að verða að veruleika þá læt ég þau gerast. Ég fer beinu leiðina,“ segir hún ákveðin og brosir út í annað. Hún segist stundum ekki þurfa að beita sér að öðru leyti en því að gefa góð ráð. „Ef einhver biður mig um ráð, þá reyni ég að gefa ráð sem koma að gagni. Það þýðir ekki að ég hafi rétt fyrir mér. En ég reyni mitt besta.“ Tilbúin til að gera mistök Dorrit hefur á liðnum árum verið einhver umtalaðasta kona landsins og bera flestir landsmenn til hennar frekar jákvæðar tilfinningar, að mati Guðna Th. Jóhannessonar sagn- fræðings sem meðal annars hefur sérhæft sig í sögu forsetaembættis- ins. Dorrit kemur stöðugt á óvart með uppátækjum sínum og tilsvörum – „Ísland er stórasta land í heimi“ – og þykir framkoma hennar á köflum vera óvenjuleg og lífleg. Er Dorrit óhefðbundin og fær hún að vera hún sjálf? „Já, ég er það. Fólk sem vill ná ár- angri verður að vera bæði reiðubúið til að taka áhættu og kunna að taka gagnrýni. Ég er alltaf tilbúin til þess og að gera mistök. En það á bara við um mig sjálfa. Ég haga mér á annan máta og vanda mig í hvívetna þegar ég tek ákvörðun sem hefur áhrif á aðra. Þá finnst mér ég ekki hafa efni á að taka jafnmikla áhættu og þegar ég á sjálf í hlut. Ekki nema viðkomandi sé undir það búinn og finnist það þess virði. Ég er alltaf ég sjálf. Ef ég hefði ekki svigrúm til þess, þá gæti ég allt eins hætt að vera til.“ Trú á hæfileika mikilvæg Dorrit hefur ákveðnar skoðanir á vel- gengni kvenna og telur að þeim sé farsælast að sækja hart fram og trúa á hæfileika sína. „Íslenskar konur eru afar sérstakar og þeim farnast vel. Mér finnst ekk- ert atriði að við þurfum að vera jafnar körlum, það ætti að mínum dómi ekki að vera keppikefli hverrar og einnar. Fremur heildarinnar. Kyn hefur ekkert með hæfileika að gera, mikilvægast er að trúa á hæfileika sína og sækja fram. Við erum jafn misjöfn eins og við erum mörg.“ Hún efast stundum sjálf um eigin velgengni. Segist ekki viss um að sér gangi vel. „Ég er ekki viss um að mér gangi vel. Ég held samt að ef maður trúir á eitthvað og fylgir því eftir fylgi velgengnin. En ég er full efa um hvað ég vil gera eftir annasamt ár í London. Ég þarf meiri tíma til þess að íhuga eigin markmið.“ Upptekin af rekstrinum í London Dorrit á við rekstur fyrirtækis foreldra hennar í London. Áður en kosninga- barátta Ólafs Ragnars hófst hafði hún gert ráðstafanir til að sinna í frekara mæli störfum sínum í London. Eink- um í ljósi þess að foreldrar hennar eru nú háaldraðir. „Í ár þá var ég upptekin af rekstrin- um í London. Við höfðum gert okkar áætlanir ég og Ólafur Ragnar, áður en þær breyttust með framboði hans. Þá hafði ég tekið ákvörðun um að það væri kominn tími til þess að sinna rekstrinum í London og þurfti að standa við þær skuldbindingar mínar. Ég tók þátt í kosningabaráttunni af fullum hug. Ég gerði mér síðan ekki grein fyrir afleiðingum fyrri áætlana fyrr en seinna. Mestu skiptir að þegar við lítum um öxl getum við sagt að við höfum gert það sem hugur okkar stóð til.“ Vill njóta þess að vera til Dyrnar á forsetaskrifstofunni opnast og inn kemur Sámur og rýkur með látum til Dorritar. Hann er greini- lega hændur að henni og Dorrit tekur honum fagnandi og strýkur honum og kjassar. Starfsmaður forsetaskrif- stofunnar kemur aðvífandi og ætlar að fara með Sám út en Dorrit harð- bannar honum það. Hún hefur sakn- að hans sárlega. „Nei, nei, nei, ekki taka Sám. Komdu hérna Sámur minn,“ segir hún og Sámur situr sem fastast við hlið Dorritar. „Sámur kom og sótti mig á flugvöllinn og var svo kátur að sjá mig. Það voru góðir endurfundir. Mér finnst alltaf svo gott að koma heim.“ Dorrit heldur áfram að ræða um markmið sín og tilgang á meðan hún strýkur Sámi blíðlega. „Ég er ekki reiðubúin að festa mig í einu eða öðru. Stundum þá langar mig aðeins til að vera ég sjálf og gera ekkert annað. Vera hér með Ólafi Ragnari og Sámi, ganga á Esjuna og njóta þess að vera til. Næsta dag fyllist ég orku og metnaði og langar að láta til mín taka. Ég hef sæst á þessar and- stæður og komist að því að þetta er allt saman spurning um tímasetn- ingu. Lífið hefur kennt mér að hvert verk hefur sinn tíma. Sveigjanleikinn er mikilvægur þegar kemur að því að lifa góðu lífi. Sá sem býr yfir slíkum eiginleika getur gert líf sitt og annarra gott, sama hversu erfiðar aðstæðurnar eru. Það sem drepur þig ekki, gerir þig sterkari. Þetta þekkja Íslendingar. Þeir hafa haft það erfitt síðustu ár en ég vona að sem þjóð séum við að rísa úr erfiðleikum okkar og betur búin til að takast á við næstu erfiðleika, en séum þá sterkari.“ Haldin efa Hún segir að hingað til hafi hún reikn- að með að sinna starfinu í fjölskyldu- fyrirtækinu af natni. „Ég sagði við Ólaf Ragnar í morgun að ég væri ekki lengur viss. Ég þarf ekki að taka ákvörðun strax en ég er haldin efa. Ég þarf að gefa þessu meiri tíma. Fyrirtækið er mikil- vægt fjölskyldunni og ef ég drægi mig úr því yrði það henni áfall.“ Starfsmaður forsetaskrifstofu til- kynnir að tíminn sé útrunninn. Dagskrá Dorritar er þéttsetin og hún þarf að sinna fleiri verkefnum. Blaðamaður biðst afsökunar og segist ekki vilja brjóta þær reglur sem hon- um voru settar. Dorrit hristir höfuðið. „Nei, nei, þú átt að brjóta reglur. Að brjóta reglur og fara á móti hefðum er mikilvægt. Ef þær eru rangar þá þarf að fara gegn þeim. Það er mjög mikil- vægt.“ n „Ég er full efa um hvað ég vil gera eftir annasamt ár í London.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.