Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Síða 38
Jólablað 20.–27. desember 201338 Fólk Viðtal Áreittur og fangelsaður vegna leitar að Tony Y usuf bjó við bágan kost í Íran til ársins 2006 þegar dvalarkort hans var eyði- lagt af Bazets-hermönnum. Yusuf flúði í gegnum Tyrk- land til Evrópu hvar hann þvældist á milli landa. Hann kom hingað til lands árið 2011 og sótti um hæli. Útlendingastofnun hefur hafnað hælisumsókn hans á þeim forsend- um að aðstæður í Afganistan séu betri en þegar hann flúði. DV hitti þennan rólyndismann á heimili hans í Reykjavík og ræddi við hann um óljósa framtíð og þokukennda fortíð. „Farðu heim til þín, þú tilheyrir ekki þessum stað,“ sagði íslensk lögreglukona við Yusuf þar sem hann sat handjárnaður í lögreglu- bíl á leiðinni upp á lögreglustöðina Hverfisgötu. Yusuf hafði verið hand- tekinn inni á heimili sínu, af lög- reglumönnum sem leituðu að Tony Omos sem vísa átti úr landi. Tony fannst ekki heima hjá Yusuf en hann og félagi hans voru hins vegar hand- teknir og færðir í fangageymslur lög- reglunnar þar sem þeir máttu dúsa í fjórtán tíma án þess að fá að tala við lögmenn. Félagi Yusuf segist hafa fengið sömu skilaboð frá lögreglunni – að hann ætti að fara heim til sín þar sem hann tilheyrði ekki Íslandi. Helga Vala Helgadóttir, lögmaður Yusuf, segist telja handtökuna til- efnislausa og ólögmæta, en hún hef- ur kært málið til ríkissaksóknara. DV sendi lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu fyrirspurn vegna málsins en þar á bæ sögðust menn ekki geta tjáð sig um einstök mál. Hælisleitendur áreittir DV hefur fjallað um leit lögreglunnar að Tony Omos að undanförnu en samfélag flóttamanna á Íslandi fór ekki varhluta af henni. Fóru lög- reglumenn meðal annars ítrekað heim til barnsmóður hans, Evelyn Glory Joseph, og tjáðu henni að lög- reglan myndi koma daglega þangað til Tony kæmi úr felum. „Ég vil fara úr felum vegna þess að lögreglan er far- in að áreita fólk út af mér,“ sagði Tony í samtali við DV stuttu áður en hann gaf sig fram við innanríkisráðu- neytið á föstudag. Yusuf talar einnig um áreiti lögreglunnar í þessu sam- hengi en DV hefur rætt við fleiri hæl- isleitendur sem fengu heimsókn- ir frá lögreglunni vegna Tonys. „Ég vil bara að þeir hætti. Þeir eru farn- ir að áreita fólk, sérstaklega konur og konur með börn. Þeir koma þangað klukkan tíu á kvöldin,“ sagði Tony við DV. Blaðamaður og ljósmyndari DV heimsóttu Yusuf í íbúð í Reykjavík sem hann deilir með þremur öðrum hælisleitendum. Hann færir blaða- manni og ljósmyndara kaffi og vínar- brauð og sýnir þar með þá gestrisni sem Afganir eru einatt þekktir fyrir, áður en hann fær sér sæti í sófanum og segir frá heimsókn lögreglunnar í síðustu viku. „Svona er Ísland“ „Þeir [lögreglumennirnir] voru há- værir og reiðir þegar þeir leituðu í hverju einasta herbergi. Við spurðum hvort þeir þyrftu að vera með svona mikil læti en þeir svör- uðu því til að þeim væri sama hvað okkur fyndist,“ segir Yusuf sem tek- ur fram að handtakan hafi fengið á hann: „Ég bað um að fá að tala við lögfræðing og þeir sögðu mér að ég gæti gert það daginn eftir. Ég sagði þeim að það væri kalt í fangaklefan- um en þeir sögðu mér bara að svona væri Ísland. Mér leið mjög illa, bara illa og ekkert annað.“ Handtakan kallaði fram minningar úr fortíðinni: „Afganskir flóttamenn eru áreittir með sama hætti í Íran. Ég hef upplif- að þetta allt saman áður.“ Helga Vala segir skjólstæðing sinn hafa sagt lög- regluna margoft hafa komið heim til hans í þeim tilgangi að leita að Tony. Yusuf hafi ítrekað verið spurður út í það hvað hann héti og hvaðan hann væri. Hann hafi því verið orðinn langþreyttur á þessum yfirheyrslum þegar lögreglumenn komu enn einu sinni heim til hans á fimmtudags- kvöld. „Hann setti upp einhvern snúð og hringdi á félagsþjónustuna og bað starfsmann þar um að útskýra fyrir lögreglunni að hann væri ekki þessi Tony sem þeir leituðu að,“ seg- ir Helga Vala. Þetta lagðist hins vegar ekki vel í lögreglumennina sem ákváðu að handtaka hann og félaga hans fyrir að gefa ekki upp nafn skil- yrðislaust. „Þetta virðast hafa verið einhverjir stælar í lögreglunni, þeir vissu algjörlega hvaða mann þeir voru með í höndunum, enda á hans heimili,“ segir Helga Vala sem segir alvarlegt ef lögreglan tekur sig til og fer að áreita ákveðinn þjóðfélagshóp. Tilheyrir ofsóttum minnihluta Eins og greint er frá hér að ofan hef- ur Útlendingastofnun hafnað um- sókn Yusuf um hæli á þeim forsend- um að ástandið í Afganistan sé ekki jafn slæmt og það var þegar hann flúði þaðan árið 1996. Helga Vala segir úrskurð Útlendingastofnunar í hæsta máta furðulegan. Yusuf sé shia-múslimi af Hazara-þjóðarbroti en þeir hafi þurft að sæta ofsókn- um og pyntingum af hálfu talibana um áratugaskeið. Slíkar ofsóknir séu viðvarandi en í byrjun árs voru gerð- ar tvær árásir sem beindust sérstak- lega að fólki af Hazara-þjóðflokki, þar sem nærri 200 manns týndu lífi og fjöldi særðist. Þá má geta þess að forseti landsins, Hamid Karzai, lýsti því nýlega yfir að best væri að mynda samsteypustjórn með talibönum. Samt sem áður hefur Útlendinga- stofnun úrskurðað sem svo að engin ástæða sé fyrir Yusuf að óttast um líf sitt í landinu. „Þegar við lítum síðan til þess að hann fór frá landinu fyrir sautján árum, þegar hann var sex ára, og að hann á engan að þar, þá er auðvitað ruglað að ætla að senda hann þangað aftur,“ segir Helga Vala. Yusuf óttast það mjög að verða send- ur aftur til Afganistan: „Ég á frænda á lífi í Afganistan en ég hef ekki heyrt í honum í sautján ár og veit ekkert hvar hann er.“ Helga Vala hefur kært úrskurð Útlendingastofnunar til innan ríkisráðuneytisins og því bíður hann nú á milli vonar og ótta eftir ákvörðun ráðuneytisins. Þessi óvissa hefur fengið mikið á hann: „Eftir að þeir sögðu mér að umsókninni hefði verið hafnað þá varð ég mjög sár. Þetta hefur verið erfiður tími, ég hef grátið mikið, ég grét í heila viku.“ Hermenn nefbrutu Yusuf Yusuf er eins og gefur að skilja orðinn langþreyttur á óvissu og bið. „Það er erfitt að vera hælisleitandi hvar sem maður er niðurkominn í heiminum. Það velur sér enginn þessa stöðu. Ég til dæmis, ég hef ekki séð móður mína, bróður eða systur í sjö ár, ég sakna fjölskyldu minnar óendanlega mikið,“ segir Yusuf sem á þá ósk heitasta að fá hæli á Íslandi enda geti hann ekki snúið aftur til Afganistan eða Íran. Hann segist finna til ótta við það eitt að hugsa til Afganistan: „Ég á bara minn- ingar um stríð. Talibanarnir voru hættulegir, mjög hættulegir. Pabbi fór upp á háaloft en þeir fundu hann þar og drápu hann en okkur tókst að flýja út úr húsinu og kom- ast í burtu. Ég get ekki farið þang- að aftur enda eru talibanarnir þar ennþá.“ Minningarnar frá Íran eru ekki fagrar heldur: „Ég man eftir því þegar ég var tíu ára gamall að þrífa hús og búðir í Teheran [höf- uðborg Íran].“ Þá rifjar hann upp daginn sem hann var laminn af Bazets-hermönnum í Íran, en þeir eyðilögðu meðal annars dvalarkort hans í árásinni. Yusuf segist hafa verið á leiðinni út úr verslun með amerískar kvikmyndir, sem teljast ólöglegur varningur í Íran, þegar hermennirnir gripu hann og lömdu. „Ég var barinn illa, nefbrotinn og tekinn í varðhald í sólarhring.“ Yusuf hafði áður orðið fyrir ítrekuð- um árásum Bazets-hermannanna eingöngu vegna afgansks þjóðernis síns. Hann átti þess ekki kost að flýja til annarra borga landsins þar sem dvalarleyfisskírteini hans hafði verið eyðilagt og útilokað var að fá nýtt skírteini. „Eftir þetta flúði ég til Tyrklands og fór þaðan með bát til Grikklands.“ Minningar um valdbeitingu Handtakan á fimmtudag og ummæli lögreglukonunnar um að Yusuf ætti að fara aftur heim sitja í honum. Helga Vala segir erfitt að sjá hvers vegna lögreglan sá ástæðu til þess að handtaka þennan litla mann sem ógnaði engum og færa hann í varð- hald. Hún spyr hvort slíkt yrði gert við Íslending í sömu stöðu? „Mér finnst fullkomlega eðlilegt að spyrja þeirrar spurningar. Þeir höfðu kom- ið margoft heim til hans og fengið nafn hans. Þeir vissu að hann væri hælisleitandi og ég velti því fyrir mér hvort þetta hafi einungis verið gert í þeim tilgangi að hrella hann, sérstaklega í ljósi þess sem lög- reglukonan sagði um að hann ætti kannski bara að hunskast heim.“ Yusuf hefur undanfarnar vikur hitt starfsmann Rauða krossins vegna bágrar andlegrar heilsu. Blóðug for- tíðin hefur sett mark sitt á þennan unga mann. Aðgerðir lögreglunnar á fimmtudag drógu fram gamlar minningar um þá valdbeitingu sem hann hefur verið beittur í gegnum tíðina. „Mér líður svo illa vegna alls sem hefur gerst og þegar lögreglu- konan sagði mér að fara aftur heim til mín, á því augnabliki, þá fannst mér hún vera ógnandi alveg eins og lögreglan í Íran, eða talibanar.“ n Yusuf Mahdavi, 23 ára hælisleitandi frá Afganistan, flúði heimalandið þegar hann var sex ára. Talibanar réðust inn í þorpið hans í Wardak-hér- aði árið 1996 og drápu þorpsbúa. Yusuf man óljóst eftir atburðunum en gleymir því þó aldrei að þennan dag var faðir hans drepinn. Þá hvarf bróðir hans og hefur ekki sést til hans síðan. Yusuf, móður hans og systkinum tókst hins vegar að flýja úr þorpinu og til Íran. Það vakti upp gamlar minningar þegar hann var nýlega handtekinn að tilefnislausu á heimili sínu og færður í fangageymslu lögreglu. Jón Bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is „Farðu heim til þín, þú tilheyrir ekki þessum stað Kalt í klefanum Yusuf Mahdavi frá Afganistan var handtekinn og færður í fangageymslur þegar lögreglan leitaði að Tony Omos. Honum fannst kalt í klefanum en lögreglumenn tjáðu honum að svona væri Ísland. MYnd SigTrYggur Ari „Þegar lögreglu- konan sagði mér að fara aftur heim til mín, á því augnabliki, þá fannst mér hún vera ógn- andi alveg eins og lög- regan í Íran, eða talibanar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.