Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Qupperneq 50

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Qupperneq 50
Jólablað 20.–27. desember 201350 Lífsstíll Þ ann 5. desember síðastliðinn frumsýndi Ford Motor nýj- ustu afurð sína, árgerð 2015 af Ford Mustang. Bíllinn var formlega kynntur í sex stórborgum, Dearborn, New York, Los Angeles, Barcelona, Shanghaí og Sydney. Bifreiðin mun fara í sölu þegar verksmiðjurnar halda formlega upp á 50 ára afmæli Ford Mustang þann 17. apríl 2014. Mikil leynd er búinn að vera yfir hönnun og út- liti bílsins og biðu áhugamenn þess spenntir að sjá hver útkoman yrði. Vistvænn vöðvabíll Ein af mörgum nýjungum í þessum nýja bíl er vélarvalið sem í boði verð- ur. Þó hingað til hafi kaupendur Ford Mustang ekki keypt hann vegna lítill- ar eldsneytisnotkunar þá liggur það ljóst fyrir að árgerð 2015 verður nú fá- anleg með fjögurra sýlindra vél í fyrsta skipti frá árinu 1993. Þessi fjarki er þó enginn letingi því vélin mun verða 2,3 lítra með túrbínu og skila 305 hest- öflum í grunnútgáfu. Sex sýlindra V- mótor með 3,7 lítra slagrými verður einnig í boði sem einnig skilar ríflega 300 hestöflum og hin sögufræga 5 lítra V8-vél verður einnig fáanleg í honum og mun hún skila 420 hest- öflum. Þessar tölur eiga þó án efa eft- ir að rjúka upp þegar Shelby- og SVT- týpurnar koma á markaðinn með öllum sínum breytingum. Þá herma fregnir að sex gíra sjálfskiptingin, sem verið hefur í bílnum síðustu ár, verði kvödd með staðgengli sem verður 9 eða 10 gíra. Áfram verður þó hægt að fá hann beinskiptan með sex gíra kassanum. Stærstu fréttirnar varða hins vegar enn grænni áætlanir en fjögurra sýlindra bíl því að eins og bílamarkaðurinn er að breytast þá er víst í skoðun að bjóða Mus tang sem hybrid-bíl, dísil eða jafnvel sem rafmagnsbíl og ljóst að þegar þau áform verða kynnt munu þau án efa hneyksla margan aðdáandann, enda hefur Ford Mustang fyrst og fremst verið svokallaður vöðvabíll hingað til. Nýjungar frá fyrri bíl Að innan er bíllinn nokkuð áþekkur fyrri bílum þó svo að efnisval í inn- réttingu sé nú mun veglegra og eins er bíllinn rúmbetri að innan. Stór- ir og góðir mælar beint fyrir fram- an öku mann sýna allar aðgerðir og upplýsingar vel og rofar og stjórntæki hafa verið löguð til. Bíllinn er breiðari en forverinn og með nýrri afturfjöðr- un hefur einnig myndast meira far- þegarými aftur í honum ásamt því að skottið í honum er einnig stærra. Hann er nú einnig með margan búnað sem við þekkjum betur frá Evrópumódelum Ford-bíla eins og stillanlegri stýris aðstoð, spólvörn, „blind spot“-kerfi í hliðarspeglum og fjölmörgum öðrum öryggiskerf- um sem nýtast við akstur. Þar sem bíllinn er kynntur nú sem hluti af 50 ára afmæli týpunnar þá mun hann verða með sérmerkingum að inn- an þar sem undir hinu fræga merki bílsins mun standa „Mustang – Since 1964“. Útlitið sver sig í ættina en eins og myndir af bílnum sýna er það orðið svolítið evrópskara og mun að- alástæða þess vera væntingar Ford- fyrirtækisins um meiri sölu bílsins á heimsvísu. „Burn-Out“-kerfi Enn hvílir nokkur leynd yfir hinum ýmsu valmöguleikum sem bíllinn hefur upp á að bjóða þó formlega sé nú búið að frumsýna útlitið á hon- um. Einn af þeim valmöguleikum sem vitað er að hægt verði að panta í hann er svokallað „Burn-Out“- kerfi. Bílaáhugamenn þekkja þetta kerfi betur sem „line-lock“, en með því er hægt að festa bílinn í bremsu að framan og aftengja um leið spól- vörn. Þetta hjálpar til við að hita dekk með spóli (taka burn-out) fyr- ir spyrnur og mun án efa jafnframt kæta margan ökumanninn sem vill geta leikið svipaðar kúnstir í al- mennri umferð eða við sýningar og samkomur sem eigendur þessara bíla gjarnan sækja. 50 ára afmælið Getgátum um annan búnað bíls- ins fækkar án efa eftir því sem nær dregur almennri sölu og við 50 ára afmæli bílsins mun forvitni áhuga- manna verða formlega svalað. Veg- leg dagskrá vegna afmælisins verð- ur í Bandaríkjunum og heyrst hefur að margir Íslendingar hafi nú þegar pantað sér ferð þangað til þess að verða viðstaddir hátíðarhöldin þar. Brimborg er umboðsaðili Ford Must- ang á Íslandi og verður spennandi að sjá hvort við fáum ekki að berja þennan nýja fák augum hér heima á þessum merku tímamótum. n Mustang frumsýndur n Framleiddur í tilefni 50 ára afmæli n Sýndur samtímis í sex stórborgum Björgvin Ólafsson bilar@dv.is Bílar Heimsfrumsýning Hér er blæjuútgáfan af 2015-árgerðinni og við hlið bílsins er Alan Mulally, stjórnarformaður Ford Motor-fyrirtækisins. MyNd ReuteRs Að innan Alan Mulally mátar sig hér í stjórnklefann á nýja bílnum og virðist nokkuð hamingjusamur með útkomuna. Hið fræga vörumerki Þetta er hesturinn sem prýðir framenda 2015 Ford Mustang. Fyrsti kaupandinn Tom og Gail Wise eru samkvæmt upplýsingum frá söluaðilum Ford í Bandaríkjunum fyrstu almennu kaupendur að Ford Mustang. Hjónin pöntuðu sér ljósbláan 1964 1/2 Ford Mustang blæju- bíl tveimur dögum fyrir frum- sýningu hans 17. apríl árið 1964. Þessi heiðurshjón eiga bílinn enn þann dag í dag en bílinn notuðu þau fyrstu árin sem einkabíl. Eftir að hann hafði svo staðið óhreyfð- ur í 27 ár fyrir utan heimili þeirra var ráðist í allsherjaruppgerð á honum og er bíllinn eins og nýr að sjá eftir hana. Hann er notað- ur af fjölskyldu þeirra og fagnar brátt 50 ára afmæli sínu. Góð fjárfesting Einn af þeim klassísku Mustang- bílum sem eiga sér merkilega sögu og seljast á ótrúlegu verði í dag er hinn sögufrægi 1969 Boss 429-bíll. Þessi bíll fékkst með 375 hestafla „big block“ V8-mót- or sem er sá hinn sami og fyr- irtækið notaði í NASCAR-bíla sína. Ástæðan fyrir því að þess- um mótor var „troðið“ í bílinn er sú að sem „stock“ keppandi í NASCAR þá þurfti verksmiðj- an að bjóða upp á bíl með sömu vél og keppt var á í bíl í almennri sölu. Þeir sem eru það heppnir að eiga svona bíla nú í uppruna- legri mynd þurfa ekki að kvíða elliárunum því þeir eru að seljast á allt að 60 milljónum. Mustang á Íslandi Mustang-klúbburinn á Íslandi er virkur og heldur árlega bílasýn- ingu, fundar reglulega og tekur skipulagða rúnta þar sem eigend- ur þessara bíla koma saman, sýna bíla sína og sjá aðra. Hátíðardag- skrá mun vera í undirbúningi hjá klúbbnum vegna þessara merku tíma- móta og geta allir fylgst með gangi mála á heimasíð- unni mustang.is Mæting í New york Bílaflutningabíll rennir í hlað í morgunþátt ABC-stöðvarinnar í New York – Good Morning America. Frá shanghaí Bíllinn var frumsýndur samtímis í sex stórborgum um allan heim. Hér er bíllinn á sýningunni í Shanghaí.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.