Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2013, Blaðsíða 36
36 Fréttir Erlent Áramótablað 28. desember 2013
Bandaríkjamenn
lögðu niður störf
1. október Hundruð þúsunda opin
berra starfsmanna í Bandaríkjun
um lögðu niður störf vegna deilna
um fjárlagafrumvarp landsins og
fjárheimildir ríkisstofnana. Sextán
dagar liðu þar til deilan leystist en
hún er talin hafa kostað efnahagslíf
ið 24 milljarða Bandaríkjadala.
Ferjuslys við
Lampedusa
3. október Hátt í fjögur hundruð
flóttamenn létu lífið þegar ferja sökk
skammt undan ströndum eyjarinnar
Lampedusa í Miðjarðarhafi. Flótta
mennirnir sem létust voru frá Afríku.
Al-Liby gómaður
5. október Sérsveitarmenn á vegum
bandaríska hersins hand
tóku hryðjuverkamann
inn Abu Anas alLiby
í Trípólí, höfuðborg
Líbíu. AlLiby var
einn af háttsettustu
meðlimum alKaída
og í hópi þeirra sem
Bandaríkjamenn lögðu
hvað mesta áherslu á að fanga.
Hann er meðal annars grunaður um
að hafa skipulagt sprengjutilræðin í
sendiráðum Bandaríkjanna í Kenía
og Tansaníu árið 1998.
Höfnuðu sæti í
öryggisráðinu
18. október SádiArabar höfnuðu
sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóð
anna. Vildu SádiArabar þannig
mótmæla afstöðu öryggisráðsins til
málefna Sýrlands, þá sérstaklega eft
ir efnavopnaárásina í ágúst.
Hleranir á vegum
Bandaríkjanna
22.–24. október Mikil spenna
kom í samskipti Bandaríkjanna við
nokkrar vinaþjóðir eftir að í ljós kom
að bandarísk yfirvöld höfðu hlerað
hátt setta embættismenn. Upplýs
ingarnar komu fram í gögnum sem
Edward Snowden lak. Meðal annars
höfðu embættismenn í Frakklandi
og Þýskalandi verið hleraðir.
Eitrað fyrir Arafat
6. nóvember Ný skýr
sla leit dagsins ljós
sem gaf til kynna að
eitrað hefði verið
fyrir Yasser Arafat,
leiðtoga Palestínu
manna. Áður höfðu
grunsemdir verið uppi
um þetta en í skýrslunni kom fram
að geislavirkt efni, pólóníum210,
hefði fundist í líkamsleifum
Arafats sem lést árið 2004.
Fellibylur á
Filippseyjum
8. nóvember Rúmlega sex þús
und létu lífið þegar mjög öflugur
fellibylur, Haiyan, reið yfir Filipps
eyjar. Fellibylurinn skildi eftir sig
slóð eyðileggingar og enn í dag eiga
margir um sárt að binda vegna hans.
James „Whitey“
Bulger sakfelldur
14. nóvember James
„Whitey“ Bulger,
alræmdur glæpa
maður frá Boston,
var dæmdur í tvöfalt
lífstíðarfangelsi fyr
ir morð, fjárkúgun og
ofbeldisverk. Íslensk kona,
Anna Björnsdóttir, sagði til Bulgers
en hann hafði verði eftirlýstur um
langt skeið.
JP Morgan
greiddi metfé
19. nóvember Bandaríski bankinn
JP Morgan samþykkti að greiða
bandarískum yfirvöldum þrettán
milljarða Banda
ríkjadala. Með
þessu komst
bankinn frá
yfirvofandi
málsókn vegna
vafasamra lána
sem bankinn veitti í
aðdraganda efnahagshrunsins árið
2008. Af þessum 13 milljörðum
dala munu fjórir milljarðar
dreifast til íbúðareigenda sem
eiga í greiðsluerfiðleikum.
Samkomulag um
kjarnorku áætlun
24. nóvember Íranir
náðu samkomulagi
við fastafulltrúa í
öryggisráði Sam
einuðu þjóðanna
um að minnka
verulega auðgun
úrans. Á sama tíma
var efnahagsþvingunum, sem Íranir
hafa sætt um langt skeið, létt.
Mótmælaalda í
Úkraínu
1. desember Hundruð þúsund
einstaklinga komu saman í Kænu
garði, höfðuborg Úkraínu, til að
krefjast afsagnar Viktors Yanukovich,
forseta landsins. Mótmælendur köll
uðu líka eftir auknum tengslum við
Evrópu og Vesturlönd í stað Rúss
lands. Fjöldi mótmælenda og lög
reglumanna mæddust í mótmæl
unum. Mótmælin stóðu fram eftir
mánuðinum en um miðjan mánuð
buðust Rússar til að koma slæmum
efnahags landsins til bjargar; kaupa
mikið magn ríkisskuldabréfa og selja
þeim jarðgas á miklum afslætti.
Mandela látinn
5. desember Frelsishetjan og fyrr
verandi forseti Nelson Mandela féll
frá 95 ára að aldri þann 5. desember.
Mandela lést eftir langa baráttu við
veikindi.
Pútín náðar
19. desember Fjölmargir fangar í
Rússlandi voru náðaðir af Vladimír
Pútín, forseta landsins. Meðal þeirra
voru meðlimir í hljómsveitinni
Pussy Riot sem fangelsaðir voru eftir
mótmæli. Þá var fyrrverandi olíubar
ón, Mikhail Khodorkovsky, leystur
úr haldi eftir að hafa dúsað í fangelsi
frá 2005 en hann var einn þekktasti
pólitíski fanginn í Rússlandi.
Bifreiða- og vélaverkstæði • Álhellu 8
Hafnarfirði • Sími 577 6670 • velras.is
Er bíllinn tilbúinn fyrir veturinn?
Allar almennar bílaviðgerðir – Gírkassa- og vélaviðgerðir.
Yfirförum, gerum við og förum með í skoðun sé þess óskað.
Fljót og góð þjónusta.
Metanbreytingar
HÁTÆKNIBÚNAÐUR
EINN VIRTASTI FRAMLEIÐANDI
METANBÚNAÐAR Í EVRÓPU
HRINGDU STRAX OG FÁÐU UPPLÝSINGAR
Sparaðu bensín!
Metanvæddu bílinn!
Bifreiða- og vélaverkstæði • Álhellu 8
Hafnarfirði • Sími 577 6670 • velras.is
Er bíllinn tilbúinn fyrir veturinn?
Allar almennar bílaviðgerðir – Gírkassa- og vélaviðgerðir.
Yfirförum, gerum við og förum með í skoðun sé þess óskað.
Fljót og góð þjónusta.
Metanbreytingar
HÁTÆKNIBÚNAÐUR
EINN VIRTASTI FRAMLEIÐANDI
METANBÚNAÐAR Í EVRÓPU
HRINGDU STRAX OG FÁÐU UPPLÝSINGAR
Sparaðu bensín!
Metanvæddu bílinn!
Við óskum landsmönnum gleðilegs nýs árs!