Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2013, Blaðsíða 38
38 Fréttir Áramótablað 28. desember 2013
Árið 2013 var viðburðaríkt á heimsvísu, eins og lesa má um í erlendum annáli ársins 2013. Meðfylgjandi myndir eru myndir sem Reuters valdi
sem bestu fréttamyndir ársins. Hér er komið víða við, fylgst með fæðingu í Brasilíu og föðurást í Súdan og litið við hjá buguðum leiðtogum.
Sorgin í Sandy Hook Þann 14. desember 2012 myrti óður byssumaður ungmenni og kennara í grunnskólanum í Sandy
Hook í Bandaríkjunum. Í desember 2013 var ár litið frá þessum hræðilega viðburði, en bæjarbúar völdu að minnast hans í friði frá fjölmiðlum.
Þeir afþökkuðu alla athygli og báðu fjölmiðla náðarsamlegast að halda sig fjarri. Skilti voru hengd upp víða um bæinn þar sem fjölmiðlafólki var
nánast skipað að hypja sig.
Morðákæran Þessi mynd af Oscar Pistorius, reyndist verða ein sérstakasta
fréttaljósmynd ársins. Í febrúar 2013 var Oscar ákærður fyrir morð. Hann stóð nánast öll rétt-
arhöldin fyrir framan ættingja og vini. Hann skalf, nötraði og grét þegar hann játaði að hafa
orðið unnustu sinni, Reevu Steenkamp, að bana, af gáleysi.
Minningarstund
Minningarathöfn um 23 ára konu
sem lést af áverkum sem hún hlaut
í hópnauðgun var haldin í byrjun
desember 2013. Þá var ár liðið frá
árásinni. Á myndinni sést mótmæl-
andi koma fyrir minningarkertum og
kveikja á þeim. Árásarmenn konunnar
voru dæmdir til betrunarvistunar í
unglingafangelsi fyrr á árinu.
Hjálp Særð kona kallar
á hjálp eftir árás byssumanna í
Westgate-verslunarkjarnanum
í Kenya. Byssumennirnir héldu
fólki í miðstöðinni í gíslingu í
nokkra daga.
Hetjudáð Kona sem festist í bifreið sinni í flóðum í Grikklandi fær óvænta hjálp frá vegfaranda. Konunni var bjargað frá bílnum og
á þurrt land.
Bugaðir Þeir litu út fyrir að vera ansi bugaðir, þeir Barack Obama og Vladimír Pútín
á G8-ráðstefnunni á Norður-Írlandi í júní sl. Samskipti ríkjanna hafa oft líkst kröppum dansi, en
Obama þykir lítið til ætlaðra mannréttindabrota Putins koma og ætlar ekki á Ólympíuleikana
sem haldnir verða í Rússlandi snemma á þessu ári.
Myndir ársins 2013