Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2013, Blaðsíða 56
Áramótablað 28. desember 201356 Völvuspá 2014
Dúnþvottur
Er gamla dúnsængin orðin slitin?
Vantar hana upplyftingu fyrir jólin?
Við þvoum æðardún og skiptum um ver á gömlum dúnsængum.
Setjum æðardún í sængurver. Seljum einnig æðardúnsængur.
Morgunroði ehf. - Sími 893 2928
Geymið
auglýsinguna!
Sakamál
Njósnir á
Íslandi
n Völvan sér njósn-
ir á Íslandi í fréttum
næsta árs. Í ljós kem-
ur að NSA, Þjóðar-
öryggisstofnun Banda-
ríkjanna, hefur stundað mun
umfangsmeiri njósnir og eftirlit á
Íslandi en nokkurn hafði órað fyrir.
Þetta kemur allt í ljós þegar skjöl frá
Edward Snowden berast til fjölmiðla.
Í ljós kemur að samstarf NSA og fleiri
njósnastofnana við embætti ríkislög-
reglustjóra hefur verið óheilbrigt svo
ekki sé fastar að orði kveðið. Völvan
sér Harald Johannessen ríkislögreglu-
stjóra undir gríðarlegum þrýstingi
vegna þessa máls og mun hann senni-
lega segja af sér embætti eftir ályktun
Alþingis um málið. Í ljós kemur að
þræðir njósnanna tengjast stóra leka-
málinu hjá Vodafone í lok ársins 2013.
Sérkennilegt
sakamál
n Völvan sér undarlegt sakamál
koma upp á Akureyri í byrj-
un ársins. Það varðar mútur og
spillingu sem tengist aðilum í
bæjarstjórn Akureyrar. Málið
fer í rannsókn og allur bær-
inn og mestallt landið loga
í kjaftasögum um það sem
gerðist en svo verður málið í
þagnargildi það sem eftir lif-
ir árs. Þetta mál dregur á eftir
sér slóða sem hefur mikil áhrif
í bæjarstjórnarkosningum á Akur-
eyri og verður til þess að meirihlut-
inn fellur og nýir vendir taka við
að sópa.
Einelti
og ofbeldi
n Umræða og játningar varð-
andi einelti halda áfram á nýju ári.
Mikla athygli vekur í byrjun árs
þegar þjóðþekktur einstaklingur
grætur í Kastljósviðtali þegar hann
lýsir einelti á stórum opinberum
vinnustað. Völvan sér dapurlega
atburði tengda einelti eiga sér stað
á stórum þéttbýlisstað í nágrenni
Reykjavíkur.
Skömmu síðar stígur þekkt
fjölmiðlakona fram og seg-
ir frá grófu heimilisofbeldi
af hálfu sambýlismanns
síns sem einnig er þekktur
maður. Frásagnir henn-
ar vekja mikla athygli og
verða margir til þess að
segja: þar sem er reykur
þar er eldur.
Glæpaborgin
Reykjavík
n Morð verður framið í Reykjavík
á vordögum og er þar um ástríðu-
glæp eða hefndarglæp að ræða sem
tengist átökum milli manna sem
stunda ólöglega starfsemi.
Afar víðtækt fjársvikamál kemur
upp á árinu og völvan sér ekki bet-
ur en starfsmaður banka og starfs-
menn fasteignasölu hafi þar bundist
samtökum um að blekkja stór-
an hóps fólks.
Allir stela
n Völvan sér starfs-
mann góðgerðasam-
taka leiddan út í
járnum eftir að upp
kemst að hann (eða
hún) seldi vörur
sem fyrirtæki gáfu til
styrktar bágstöddum
og seldi í sína eigin þágu.
Gamli góði Villi
n Völvan sér Vilhjálm Vilhjálms-
son, fyrrverandi borgarstjóra í
Reykjavík, í kastljósi fjölmiðla vegna
dvalarheimilisins Eirar. Rannsókn
leiðir í ljós að ástandið á Eir og með-
ferð fjármuna þar var undarlegri
og verri en nokkurn gat órað fyrir.
Snemma á nýju ári verður farið að
rannsaka málið sem sakamál og þá
kemur margt í ljós sem ekki átti að
koma fyrir sjónir almennings. Gamli
góði Villi virðist ekki koma neitt sér-
staklega vel út úr því öllu saman og
völvan sér hann í mikilli vörn.
Fíkniefni í
umferð
n Fíkniefnaneysla leggst ekki af á
nýju ári þótt einhverjir kunni að
vona það. Innflutningur þeirra
kemst nokkrum sinnum í
fréttir án þess að vekja
verulega athygli.
Það sem vekur
athygli er þegar
þjóðþekktur
maður er
handtekinn í
tengslum við
eitt slíkt mál
og í kjölfar-
ið leysir hann
frá skjóðunni
og segir frá eig-
in neyslu, sölu
og dreifingu en
síðast en ekki síst
frá mörgum við-
skiptavinum
og sam-
starfsmönnum við þessa ólög-
legu iðju. Á þeim lista reynast vera
margir nokkuð þekktir menn, þar á
meðal einn þingmaður.
Femínisma vex
fiskur um hrygg
n Mikla athygli
vekur þegar
Hildur Lilli-
endahl fær
viðurkenn-
ingu er-
lendis fyr-
ir baráttu
sína í þágu
kvenfrelsis.
Hildur tekur við
viðurkenningunni og ræða sem hún
flytur við það tækifæri bergmálar í
fjölmiðlum heimsins í nokkrar vik-
ur á eftir. Um hríð eftir verðlauna-
veitingu stendur lögreglan í Reykja-
vík vörð um heimili Hildar vegna
hótana sem henni berast frá íslensk-
um karlmönnum.
Eftirmál
Al-Thani
n Völvan sér Hæstarétt staðfesta
dóm héraðsdóm í Al-Thani málinu.
Á nýja árinu falla svo fleiri dóm-
ar í héraði yfir sömu aðalpersónum
og stóðu á sviði Al-Thani málsins.
Í kjölfarið fer afar kaldur hrollur
um marga sem bíða dóms og völv-
an sér fleiri lítt þekkta snillinga úr
bankaheiminum standa gneypa
frammi fyrir dómara.
Mikla athygli og hneykslun
vekur þegar lögfræðingarnir
sem voru sektaðir í Al-Thani
málinu eru sýknaðir í Hæsta-
rétti og sektirnar felldar niður.