Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2008, Síða 12
Þriðjudagur 26. ágúst 200812 Fréttir
Aðskilnaðarhéruð fái sjálfstæði
Rússneska þingið hefur ákveðið
að viðurkenna sjálfstæði aðskiln-
aðarhéraða Georgíu; Suður-Osse-
tíu og Abkasíu. Ákvörðun þings-
ins kemur í kjölfar átaka Rússa
og Georgíumanna undanfarnar
vikur, en rússneskt herlið hóf að
draga sig til baka úr Georgíu í síð-
ustu viku eftir tíu daga hersetu.
Rússar munu þó enn hafa viðveru
á landamærum Suður-Ossetíu,
sem að þeirra sögn sé hugsuð til
að koma í veg fyrir frekari ágang
Georgíumanna í héraðinu. Niður-
staða rússneska þingsins var ein-
róma en Dmitry Medvedev, forseti
Rússlands, mun engu að síður
eiga lokaorðið.
Antonia Rungi er kaþólskur prest-
ur frá Ítalíu sem svarið hefur skírlíf-
iseið, en það þýðir ekki að hann sé
hættur að vera karlmaður, eða Ítali.
Rungi er þeirrar skoðunar að hug-
myndir almennings um nunnur séu
of neikvæðar og ætlar hann því að
setja upp fegurðarsamkeppni fyrir
nunnurnar á netinu.
„Haldið þið virkilega að all-
ar nunnur séu gamlar og visnar
kerlingar? Svoleiðis er það nú al-
deilis ekki lengur. Það eru nunnur
frá Afríku og Suður-Ameríku sem
eru virkilega huggulegar. Sérstak-
lega þessar brasilísku,“ er haft eft-
ir hinum óhefðbundna séra Rungi.
„Systir Ítalía“ heitir keppnin og
ólíkt ungfrú Ítalíu þá mun keppnin
fara fram á netinu. Í næsta mánuði
mun Rungi setja myndir af nunn-
unum, sem vilja taka þátt, á netið,
þar sem Ítölum verður gefinn kost-
ur á að gefa þeim einkunn og kynna
sér persónuleika þeirra. Þótt ótrú-
legt megi virðast þá var það ekki
hinn kaþólski prestur sem átti upp-
haflegu hugmyndina að fegurðar-
samkeppninni, heldur nunnurn-
ar. Rungi segir að hugmyndin hafi
kviknað þegar hann var að spjalla við
nokkrar systur á strönd nærri Napólí
á dögunum þegar hann var stadd-
ur í einum af sínum óhefðbundnu
herferðum til að fá sólbaðstranda-
gesti til að fara með bænaþulur sín-
ar. Hvort nýjasta athæfi hans falli í
kramið hjá æðstu stjórnendum kirkj-
unnar, á enn eftir að koma í ljós, en
Rungi beitir oftar en ekki afar nýstár-
legum aðferðum í boðun hins himn-
eska orðs. mikael@dv.is
Kaþólski presturinn Antonio Rungi leitar að fegurstu nunnu Ítalíu:
Fegurðarsamkeppni nunna á netinu
Systur Ítalíu antonio rungi segir að nunnur nútímans njóti ekki sannmælis og vill
sýna heiminum hvað þær eru fallegar.
MálglAður reynslubolti
Repúblikanar í Bandaríkjunum telja
sig himin höndum hafa tekið eftir að
Barack Obama tilkynnti varaforseta-
efni sitt; Joe Biden. Biden hefur orð
á sér fyrir að tala áður en hann hugs-
ar og eftir áratuga veru í bandarískum
stjórnmálum er af nógu að taka.
Í Biden sjá rebúblikanar ótæmandi
uppsprettu til gagnrýni og nú þegar
ku hafa vaknað hugmynd að límmiða
sem á stendur „Obama bin Biden“.
En þó að repúblikanar hlakki til
baráttu gegn honum og hafi nægan
efnivið að moða úr velkist enginn
í vafa um að Biden er verðugt vara-
forsetaefni. Joe Biden hefur aldur-
inn, persónutöfrana, upprunann og
reynsluna með sér.
Laganám og hjónaband
Joe Biden fæddist þann 20. nóvem-
ber 1942 í Scranton í Pennsylvaníu.
Joe Biden er elstur fjögurra systkina,
en fjölskylda hans flutti til Delaware
þegar hann var tíu ára þar sem faðir
hans starfaði við bílasölu.
Joe Biden lagði stund á nám í
sögu og stjórnmálafræði og fór síð-
an í lögfræði í lagaháskólanum í
Syrakúsu.
Árið 1966, á meðan hann var
í laganámi, kvæntist hann Neiliu
Hunter. Með Neiliu eignaðist hann
þrjú börn, tvo syni og eina dóttur.
Joe Biden missti eiginkonu sína og
dóttur í bílslysi 1972, skömmu eftir
að hann var kjörinn í öldungadeild-
ina. Synir hans slösuðust alvarlega í
sama bílslysi, en náðu sér að lokum
að fullu.
Að áeggjan vina sinna ákvað
hann að draga sig ekki í hlé til að
geta sinnt sonum sínum, en þess í
stað lagði hann á sig eins og hálfs
tíma lestarferð daglega frá heimili
sínu í úthverfi Wilmington til Wash-
ington D.C. Þeim sið hefur hann
haldið allar götur síðan.
Öldungadeildin
Árið 1977 kvæntist Joe Biden á
ný, Jill Tracy Jacobs, og eiga þau eina
dóttur saman. Joe Biden gekkst undir
skurðaðgerð árið 1988 vegna tveggja
slagæðargúlpa í heila og var frá öld-
ungadeildinni um sjö mánaða skeið
í kjölfarið.
Joe Biden er sjötti yngsti einstakl-
ingurinn í sögu Bandaríkjanna sem
kjörinn hefur verið í öldungadeild-
ina og státar enginn öldungadeild-
arþingmaður frá Delaware af lengri
tíma í deildinni. Hann hefur setið
sex kjörtímabil í öldungadeildinni og
hefur sjötta lengsta tímann þar hvort
heldur er horft til demókrata eða
repúblikana.
Joe Biden hefur átt sæti í utan-
ríkismálanefnd öldungadeildar-
innar og er nú um stundir formað-
ur nefndarinnar. Hann lét mikið
að sér kveða þegar stríðið á Balk-
anskaga stóð yfir og studdi George
W. Bush, Bandaríkjaforseta, í kjöl-
far árásanna 11. september 2001.
Andastaða hans við innrás í Írak,
nema sem þrautalendingu í þeirri
deilu var þó á skjön við vilja Bush
og hauka hans.
Síðan þá hefur hann gagnrýnt
stefnu ríkisstjórnar Bush í Íraks-
stríðinu og sagt að fjölga þurfi her-
mönnum, sækja víðtækari stuðn-
ings til alþjóðasamfélagsins og sýna
bandarísku þjóðinni hreinskilni
hvað varðar gang mála í stríðs-
rekstrinum. Eitt af því sem Joe Bid-
en hefur stungið upp á sem lausn
á átökum sjíta og súnnía, og mál-
efnum Kúrda í Norður-Írak, er að
skipta landinu upp þannig að þeir
fengju „andrými“ í eigin héruðum.
Forsetaframboð og ritstuldur
Joe Biden bauð sig fram til emb-
ættis forseta 1987 og var lengi
framan af vænlegur kostur. En þeg-
ar leið á dróst hann aftur úr keppi-
nautum sínum. Í september varð
framboð Bidens fyrir verulegu
áfalli þegar hann gerði að sínum
orð Neils Kinnocks, þáverandi leið-
toga breska Verkamannaflokksins.
Skömmu síðar kom í ljós að Joe
Biden hafði, þegar hann nam lög í
háskólanum í Sýrakúsu, orðið upp-
vís að ritstuldi í ritgerð sem hann
skrifaði um lögfræðileg efni. Bid-
en hafði þá kennt því um að hann
hefði ekki þekkt til hlítar reglur um
notkun tilvitnana. Hann fékk að
taka það próf aftur.
Einnig kom í ljós að Biden hafði
farið heldur frjálslega með afrek sín
á námsárunum og hafði ekki verið
sá námshestur sem hann vildi láta
í veðri vaka. Joe Biden dró framboð
sitt til baka 23. september 1987.
Í kjölfarið kom í ljós að fólk í her-
búðum Michaels Dukakis, keppi-
nautar Bidens, hafði útbúið mynd-
band þar sem ritstuldur Bidens á
ræðu Neils Kinnocks var tíundaður,
og hafði myndbandinu verið dreift
til fréttaveita. Í kjölfarið rak Duka-
kis John Sasso, framkvæmda- og
starfsmannastjóra, framboðsins.
Forsetaframboð
Joe Biden tók einnig slaginn
í þeirri kosningabaráttu sem nú
stendur hvað hæst í Bandaríkjun-
um. Honum var meðal annars tal-
ið það til tekna að hann tilheyrði
„skynsamlegri miðju demókrata-
flokksins“.
En þeir voru til sem töldu að
kjafturinn yrði Joe Biden að falli og
hann olli þeim ekki vonbrigðum.
Joe Biden dró sig í hlé í janúar þeg-
ar forval fór fram í Iowa.
Í júní gaf Biden út þá yfirlýs-
ingu að hann myndi þekkjast boð
um embætti varaforseta ef til þess
kæmi. Þann 23. ágúst var staðfest að
Barack Obama og Joe Biden myndu
hlaupa lokasprett kosningaslags-
ins saman. Með vali sínu hefur Bar-
ack Obama styrkt stöðu sína gagn-
vart þeim sem telja að hann skorti
reynslu í utanríkismálum. Með val-
inu sló hann tvær flugur í einu höggi
því Biden hefur reynslu af hvort
tveggja öryggismálum og öryggis-
málum þjóðarinnar.
KoLbeinn þoRSteinSSon
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
barack obama hefur tilkynnt um varafor-
setaefni sitt. Fyrir valinu varð Joe biden, öld-
ungadeildarþingmaður frá Delaware. Biden getur veg-
ið upp á móti meintu reynsluleysi Obama í utanríkismálum,
en hefur verið gagnrýndur fyrir að tala áður en hann hugsar.
Í hópi stuðningsfólks joe Biden tekur
lokaorrustuna við hlið Baracks Obama.
„Ég meina, hér höfum við
fyrsta meginstraums
þeldökka Bandaríkja-
manninn sem er
skýrmæltur og klár og vel
útlítandi náungi, ég
meina, þetta er eins og í
sögu.“
Þessi ummæli sem joe
Biden viðhafði um Barack
Obama voru túlkuð á versta
veg, enda má lesa út úr
þeim ákveðna skoðun um
þeldökka Bandaríkjamenn.
En ef, líkt og þeir sem vit
hafa á segja, komma er sett
þar sem hún á að vera, á eft-
ir Bandaríkjamanninn,
breytist inntak setningar-
innar verulega. joe Biden
hefur enda fullyrt að þetta
hafi átt að vera hrós.
„Það er aðeins þrennt
sem setningar hans
innihalda: nafnorð,
sagnorð og 9/11.“
um rudy giuliani.
„Stærstan hluta
fjölgunar íbúa Delaware
má rekja til Indverja sem
flytja frá Indlandi. Þú
getur ekki farið út í 7-
Eleven eða Donkin´
Donuts án þess að tala
með smá indverskum
hreim. Ég er ekki að
grínast.“
um stuðning sinn frá
samfélagi Bandaríkjamanna
af indverskum uppruna.
Einnig þessi ummæli sagði
hann hafa verið hugsuð
sem hrós.
Nokkrar tilvitNaNir
eigNaðar Joe BideN
„Í hreinskilni sagt, held ég að ég sé reynslumeiri en
hinir frambjóðendurnir, málefnin sem bandarískur
almenningur stendur frammi fyrir eru öll í hjólbörun-
um mínum.“