Hagskýrslur um iðnað - 01.01.1958, Side 9

Hagskýrslur um iðnað - 01.01.1958, Side 9
Inngangur. Introduction. I. Almennar skýringar og skilgreining hugtaka. General statement and defmition of concepts. 1. Skýrslusöfnunin 1953. Collection of data. Skýrslum um rekstur iðnaðarfyrirtækja hefur um alllangt skeið verið safnað af Hagstofu íslands. Hefur sú skýrslusöfnun verið byggð á lögum nr. 64/1934, um viðauka við lög nr. 29/1895, um hagfræðiskýrslur. í fyrstu grein þeirra laga segir svo: „Iðnfyrirtæki þau, sem eru tryggingarskyld samkvæmt lögum nr. 72 8. sept. 1931 um slysatryggingu1), eru skyld til að láta Hagstofunni árlega í té skýrslu um magn og verð framleiðslu sinnar, um notkun liráefna og aðstoðarefna, um tölu og samanlagðan vinnutíma verkamanna og starfsmanna ásamt útborguðu viku- kaupi, svo og aðrar upplýsingar um fyrirtækið, samkvæmt eyðublöðum, sem Hag- stofan semur í samráði við Iðnráð Reykjavíkur". Eins og greint er frá í inngangi Iðnaðarskýrslna 1950 — einu áður útgefnum iðnaðarskýrslum — liefur árangur af söfnun iðnaðarskýrslna yfirleitt alltaf verið MtiU. Áxin 1950—1952 tókst þó að safna það góðum efnivið í iðnaðarskýrslur fyrir árin 1949—1950, að fært þótti að gefa niðurstöðurnar fyrir síðara árið út á prenti, þótt margt væri þar ófullkomið og af vanefnum gert. Þessi skýrslusöfnun var undir- búin í samráði við Fjárhagsráð. Þær skýrslur, sem hér birtast á prenti fyrir árið 1953, eru að ýmsu leyti betur úr garði gerðar en skýrslurnar 1950, þótt enn skorti mikið á, að þær séu viðhlítandi. Félag íslenzkra iðnrekenda og Landssamband iðnaðarmanna lögðu mikla áherzlu á, að Hagstofan safnaði skýrslum um iðnaðinn í landinu á árinu 1953, og var sú söfnun endanlega ákveðin vorið 1954. Við undirbúning söfnunarinnar var haft samráð við fyrr greind samtök, svo og Iðnaðarmálastofnunina, Iðnráð Reykja- víkur, hagfræðideild Landshankans og Framkvæmdabankann. Hinn 23. apríl 1954 gerðu þessir aðilar með sér samkomulag um skýrslusöfnunina og var þar meðal annars eftirfarandi tekið fram: „Með hliðsjón af þeim stórfelldu örðugleikum, sem voru á innheimtu iðnaðar- skýrslna 1950, telur Hagstofan sér ekki fært að leggja út í aðra skýrslusöfnun um iðnaðinn nú, nema heildareamtök handiðnaðar og verksmiðjuiðnaðar, hvor um sig, taki að sér að sjá um innheimtu gagna frá meðlimum þeirra, eftir því sem Hagstofan telur æskilegt. Undirskrift fulltrúa Landssambands iðnaðar- manna og Félags íslenzkra iðnrekenda felur í sér loforð um, að þessir aðilar muni sjá um innheimtu fullnægjandi skýrslna frá meðlimum sínum, samkvæmt óskum Hagstofunnar þar að lútandi.“ Eyðublöð undir iðnaðarskýrslurnar voru send út í ágúst og september 1954, 1) Núgildandi ákvœði hér að lútandi cru í 112. og 113. grein laga nr. 50/1946, um almannatryggingar.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Hagskýrslur um iðnað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um iðnað
https://timarit.is/publication/1130

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.